Morgunblaðið - 11.06.2018, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2018
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
HELGA ÁRMANNS
lést fimmtudaginn 7. júní.
Útför hennar fer fram frá Víðistaðakirkju
fimmtudaginn 14. júní klukkan 13.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vildu
minnast hennar er bent á Styrktar- og líknarsjóð Oddfellowa.
Sigurður I. Ólafsson
Ragnhildur Sigurðardóttir Örn Guðmundsson
Ólafur Kr. Sigurðsson Sigrún Ósk Jóhannesdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
HANNA MARGRÉT SVERRISDÓTTIR
lágfiðluleikari
lést að heimili sínu í Belgíu fimmtudaginn
24. maí.
Útförin fer fram í Brussel þriðjudaginn
12. júní klukkan 14.
Rafn Halldór Gíslason, Linda Kraim, Ómar Kraim
Svanbjörg Sverrisdóttir, Halldór Magni Sverrisson
Hanna Sigurðardóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
EINARA ÞYRI EINARSDÓTTIR
Mörkinni 62,
áður til heimilis að Hlíðargerði 26,
Reykjavík,
lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
föstudaginn 8. júní.
Eggert Lárusson Guðrún Sigurgeirsdóttir
Einar Þór Lárusson Hrönn Kristjánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Útför sonar míns, bróður okkar og frænda,
ÞORVALDAR MAGNÚSSONAR
Hátúni, Stokkseyri,
fer fram í Ríkissal Votta Jehóva, Hraunbæ
113, þriðjudaginn 12. júní klukkan 13.
Jarðsett verður í Stokkseyrarkirkjugarði.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Magnús Gunnar Sigurjónsson
Faðir okkar, bróðir, tengdafaðir og afi,
MAGNÚS DAVÍÐ ELLIÐASON
lést sunnudaginn 3. júní.
Útförin fer fram frá Áskirkju föstudaginn
15. júní klukkan 13.
Ólafur Davíð Magnússon
Guðmundur Magnússon Arndís Sigríður Bjarnadóttir
Guðlaug Eygló Elliðadóttir Ari Reynir Halldórsson
Júlíus Elliðason Ása Ásgrímsdóttir
Þröstur Elliðason
Guðrún Hrefna Elliðadóttir Svavar Valur Svavarsson
og barnabarn
✝ Ragna RósbergHauksdóttir
fæddist í Geirshlíð-
arkoti í Flókadal,
Borgarfirði, 1. des-
ember 1943. Hún
lést 28. maí 2018 á
sjúkrahúsi Akra-
ness. Foreldrar
hennar voru Jó-
hanna Steinunn
Sveinsdóttir, f. 3.
júlí 1920, d. 11.4.
2005, frá Breiðafjarðareyjum,
starfaði lengst af sem ráðskona í
Ásbyrgi, Hveragerði, og Haukur
Matthíasson, f. 18. ágúst 1917, d.
3. febrúar 1991 frá Siglufirði,
verslunarmaður. Stjúp- og upp-
eldisfaðir Rögnu var Sigurjón
Einarsson frá Tóftum í Stokks-
eyrarhreppi f. 28. september
1907, d. 22. september 1955.
Systkini Rögnu sammæðra eru
Valborg Guðmundsdóttir, f. 18.8.
1939, Hjalti Sigurjónsson f. 14.1.
1948, d. 9.8. 1957, Ragnheiður
Guðrún Sigurjónsdóttir, f. 21.1.
1949, Sveinn Bergmann Sig-
urjónsson f. 26.8. 1950, maki
Guðrún Friðriksdóttir, Sigríður
Sigurjónsdóttir f. 30.1. 1952 og
Pálína Gestrún Sigurjónsdóttir f.
29.11. 1953. Fyrstu árin ólst
Ragna upp í Borgarfirðinum,
lengst af á Kleppjárnsreykjum til
7 ára aldurs, en þaðan fluttist
fjölskyldan til Hveragerðis, þeg-
ar Ragna var 7 ára. Ragna stund-
aði nám í Barna- og unglinga-
skóla Hveragerðis. Í Hveragerði
æfði Ragna sund og stundaði
skátastarf af miklum áhuga ár-
um saman. Heillaðist snemma af
hestamennsku sem hún kynntist
Árið 1972 kynntist Ragna
eftirlifandi eiginmanni sínum
Stefáni Skagfjörð Óskarssyni f.
29. ágúst 1937. Þau fluttu til
Akraness 1972 og giftu sig 1977.
Eiga þau dæturnar 1) Guðný Ósk
Stefánsdóttir f. 9. febrúar 1975,
maki Sveinbjörn Reyr Hjaltason,
börn þeirra a) Stefanía Sól
Sveinbjörnsdóttir f. 1994. b)
Ragna Dís Sveinbjörnsdóttir f.
1999, maki Arnór Sigurðsson. c)
Agnes Rós Sveinbjörnsdóttir f.
2000. 2) Sigrún Mjöll Stef-
ánsdóttir f. 28. september 1978,
maki Bjarni Rúnar Jónsson, börn
þeirra a) Sylvía Mist Bjarnadótt-
ir f. 1997 b) Stefán Ýmir Bjarna-
son f. 2001 c) Rakel Sunna
Bjarnadóttir f. 2006
Einnig átti Ragna barnabörn-
in: a) Karen Rós f. 1983, maki
Dele Lawrence Inyang, barn
þeirra Jessica Alfa. b) Ægir
Blöndal f. 1987, maki Sif Guð-
mundsdóttir, börn þeirra Hafþór
og Hrannar c) Alda Blöndal f.
1989, maki Gauti Jan Valgeirs-
son, barn þeirra óskírð Gauta-
dóttir.
Ragna gegndi ýmsum störfum
á Akranesi, vann meðal annars í
frystihúsi, sjúkrahúsi Akraness,
og Brauð- og kökugerðinni.
Starfsferli Rögnu lauk svo í efna-
laug sem þau hjónin keyptu og
ráku til ársins 2004. Einnig var
Ragna virk í félagsstörfum hér
áður fyrr og var lengi í leikfélagi
Akraness. Veiðiferðir voru
þeirra aðaláhugamál. 2002
byggðu þau sér fallegan sum-
arbústað við Vesturhópsvatn.
Þar gátu þau farið út á vatn að
veiða. Þau hjónin fluttu í Hval-
fjarðarsveit 2011.
Útförin fer fram frá Akranes-
kirkju í dag, 11. júní 2018, klukk-
an 13.
í Borgarfirðinum,
hjá Sigrúnu systur
Sigurjóns og manni
hennar Ingvari sem
bjuggu á Hof-
stöðum í Stafholt-
stungum. Ragna
dvaldist mikið hjá
þeim, kallaði þau
afa og ömmu. Hof-
staðafólkið allt var
hennar fjölskylda,
og voru þau henni
afar kær. Sem unglingur starfaði
Ragna á Elliheimilinu Ási, á
Heilsuhælinu í Hveragerði, hún
fór í kaupavinnu og á vertíð til
Tálknafjarðar. Ragna var móður
sinni stoð og stytta við uppeldi
yngri systkina eftir að faðir
þeirra lést.
Ragna kynntist fyrri manni
sínum á Heilsuhælinu í Hvera-
gerði, Hauki Benediktsyni. Flutti
norður með honum 1962 og bjó í
Hvassafelli í Eyjafirði í 10 ár.
Þau eignuðust tvö börn. Fyrir
átti Ragna son sem Haukur gekk
í föðurstað. Í sveitinni var hún fé-
lagslynd, kynntist fljótt fólki á
næstu bæjum og var dugleg að
heimsækja fólk. Börn Rögnu og
Hauks eru: 1) Hjalti S. Hauksson
f. 16. júlí 1960. 2) Benedikt Hólm
Hauksson f. 9. april 1963.
3) Jóhanna Steinunn Hauks-
dóttir f. 21.mars 1965, maki
Haukur Magnússon. Börn Jó-
hönnu eru a) Hafdís Ragna Rún-
arsdóttir, f. 1986, maki Guð-
mundur Óskar Ragnarsson, börn
þeirra Jóhanna Dagný, Sara Dís
og Aron Emil b) Hreggviður
Haukur Rúnarsson f. 1990. c) Ey-
dís Lára Þrastardóttir f. 2004.
Í dag, 11. júní, verður móðir
mín, Ragna Rósberg, kvödd í
hinsta sinn. Hver hefði trúað því
að aðeins örfáum vikum eftir að
við stórfjölskyldan hlógum og
lékum okkur í sól og sumaryl á
Flórída kæmum við nú aftur
saman við dánarbeð mömmu
með sorg í hjarta og tár á
hvarmi?
Á stundum sem þessum þýtur
hugurinn stjórnlaust upp og nið-
ur veg minninganna, tárin renna
og þess á milli er hlegið. Bar-
næskan er rifjuð upp, samveru-
stundirnar, systkinakærleikur-
inn og svo margt fleira.
Mamma var um margt stór-
brotin manneskja og sem lítil
stúlka leit ég upp til hennar ekki
bara af því að hún var mamma
mín heldur líka vegna þess
hversu sterk og ósérhlífin hún
var. Sem ung móðir þvældist hún
með okkur systkinin í ferðalög,
keyrði um rykmettaða malar-
vegina með okkur krakkana í
aftursætinu, tjaldaði, veiddi og
kenndi okkur að meta kyrrðina
og náttúruna. Mamma var alla
tíð mikill skáti og í þessum æv-
intýraferðum okkar kom sú
þekking og reynsla sér heldur
betur vel. Þegar fram liðu stund-
ir tók við bústaðurinn í Vestur-
hópinu þar sem mamma naut sín
vel.
Sé litið á heila mannsævi má
segja að í raun hafi ekki verið svo
langt á milli mín og mömmu í
aldri og við vorum á köflum
meira eins og systur en mæðgur.
Þegar litlu systur mínar fæddust
fékk ég sem stóra systir að vera
þátttakandi í þeirra uppeldi og
sterk systratengsl mynduðust.
Þegar ég svo átti mitt fyrsta
barn vakti mamma alla nóttina
og beið spennt komu barna-
barnsins og fékk þar litla nöfnu.
Minningarnar um elsku
mömmu eru margar og þær mun
ég varðveita í mínu hjarta. Börn-
in mín minnast ömmu í Ásfelli af
þakklæti og ást og geta nú með
frændsystkinum sínum rifjað
upp allar samverustundirnar þar
sem hlátur og gleði var oft það
eina sem komst að.
Hvíl þú í friði, elsku mamma.
Þín dóttir,
Jóhanna Steinunn.
Elsku mamma, þú varst okkur
svo mikilvæg, besti hlustarinn og
ráðleggjarinn. Það var svo gott
að koma til þín. Þú kenndir okkur
svo margt sem við höfum tekið
með okkur út í lífið. Þú varst for-
dómalausasta manneskja sem við
höfum kynnst, sagðir alltaf að
„hver hefur sitt göngulag“, það
væri nú gott að við værum ekki
öll eins því þá væri nú ekki eins
gaman að lífinu. Við grátum
vegna þess að við eigum eftir að
sakna þín; fá mömmuknús, finna
lyktina af þér, eiga skemmtileg
spjöll, hláturinn þinn og brosið,
heyra þig segja blómarósirnar
mínar. Við getum endalaust hald-
ið áfram. Svo gleðjumst við yfir
mörgu. Ef við höfðum lítið að
segja þá sagðir þú alltaf: „Segið
mér þá bara L-sögu“ (lygasögu).
Ryksugulagið okkar, þá settum
við sko í „fluggír“ og gerðum fínt.
En það er ómetanlegt að hafa átt
Flórídaferðina um páskana sam-
an og síðasta ferðin okkar í Hópið
í haust, sú ferð er ógleymanleg.
Það var sjaldan sem þú sast ein
við eldhúsborðið, öllum leið vel í
kringum þig, þú varst einstak-
lega jákvæð og manni leið alltaf
vel eftir að vera búinn að hitta
þig. Hjarta þitt var úr gulli, þér
var alltaf svo umhugað um alla.
Ekki nóg með að þú mettaðir
okkar maga heldur hugsaðirðu
um öll dýrin í kringum þig líka.
Og ekki má gleyma rúsínubelgn-
um þínum fyrir norðan, hann er
örugglega hissa á því að þú sért
ekki komin til að gefa honum rús-
ínur. Fjölskyldan var þér allt, þú
varst svo dugleg að bjóða okkur
heim í mat og steikja silung ofan í
allan mannskapinn eða þið pabbi
gerðuð veiðimannnasúpu og
fenguð liðið ykkar í mat. Svo
sagðir þú: „Hugsið ykkur bara ef
ég væri ekki til, þá væri engin af
ykkur til!“ Svo stolt af öllum. Það
lýsir þér svo vel hvað þú elskaðir
okkur mikið, allar símhringing-
arnar og byrjaðir alltaf á því að
segja: „Hvað segir fólkið á þess-
um bæ?“ Þú naust þess í botn ef
við gerðum okkur ferð í Hópið,
fallega bústaðinn ykkar pabba.
Við eigum eftir að sakna þess svo
að sjá þig ekki í glugganum með
vídeókameruna skælbrosandi að
taka á móti okkur. Tíminn þinn
var svo sannarlega ekki kominn.
Við vitum að þú varst oft með
verki í skrokknum, gigtarverki
og líkaminn þinn orðin þreyttur.
En hugur þinn var ennþá mjög
sprækur og þú sagðir oft að það
væri ekkert að þér. Þú hefðir nú
oft mátt hlífa sjálfri þér betur, þú
varst svo mikið hörkutól. Þú vær-
ir t.d. búin að segja okkur að bíta
á jaxlinn núna. Aldrei, sama
hversu slæm þú varst í skrokkn-
um, heyrðum við þig tala um það.
Eftir að þú greindist með krabb-
ann sagðirðu að þér fyndist þú
bara ekkert veik og gætir nú al-
veg unnið þetta verkefni eins og
svo mörg önnur sem þér hefði
verið úthlutað í gegnum ævina.
Elsku mamma, haltu áfram að
senda okkur hugskeyti og koma í
húsvitjanir, það verður gott að
finna fyrir þér. Elsku mamma,
við vitum að þér líður vel núna og
erum sannfærðar um það að þú
hafir vaknað í sumarlandinu
verkjalaus umkringd fólkinu þínu
þar. Ef þú bara vissir hvað okkur
þykir erfitt að bíta á jaxlinn núna.
Við elskum þig endalaust mikið
og Guð gefi þér góða nótt.
Þínar blómarósir,
Guðný Ósk og Sigrún Mjöll.
Elsku amma Ragna, þín verð-
ur sárt saknað, ég á eftir að sakna
þess að fá símhringingar frá þér,
þú hringdir alltaf allra fyrst til
okkar þegar ég eða barnabarna-
börnin þín áttu afmæli til þess að
óska okkur til hamingju með dag-
inn, þú varst líka alltaf fyrst að
hringja þegar ég var að koma
heim frá útlöndum til að athuga
hvort allt hafi gengið vel, þú
hringdir líka alltaf í mig þegar þú
vissir að ég væri að koma til eða
frá Reykjavík ef einhvað smá var
að veðrinu.
Ég gleymi aldrei þeim dögum
sem ég kom til þín eftir leikskóla
og skóla, þér fannst ekkert leið-
inlegt að hækka í tónlistinni og
við dönsuðum saman inni í stofu
og höfðum svo gaman.
Það var nú gott og ómetanlegt
að við fórum öll saman til Flórída
um páskana tveimur mánuðum
áður en þú kvaddir okkar í hinsta
sinn.
Ég er nú samt ekki búinn að
meðtaka það, elsku amma mín að
þú ert farin frá okkur, Sara Dís
kom inn í dag með grasgrænku í
nýju buxunum sem voru keyptar
í Flórída og fyrsta sem mér datt í
hug var að það þyrfti að hringja í
þig og fá góð ráð, elsku amma. Ég
á eftir að sakna þín, elsku amma
Ragna. Hvíldu í friði, þín
Hafdís Ragna.
Elsku amma Ragna, þegar við
hugsum til baka koma margar
góðar og hlýjar minningar upp í
huga okkar. Þú vildir allt fyrir
okkur gera og um leið og maður
labbaði inn um dyrnar hjá ykkur
afa tókuð þið vel á móti okkur og
þið buðuð okkur heiminn þegar
við komum til ykkar. Það var allt-
af jafn notalegt að koma í heim-
sókn og fá kókómjólk og kex, þú
passaðir vel upp á að við yrðum
ekki svangar. Við munum allar
sakna þessara heimsókna mikið
þar sem það var svo gott að setj-
ast niður og tala við þig, hlusta á
gamlar sögur frá því þegar þú
varst lítil eða slúðra um hitt og
þetta sem okkur datt í hug. Alltaf
varstu svo áhugasöm um líf okk-
ar og góður hlustandi. Við eigum
þó ekki eftir að hætta að fara í
heimsókn þar sem afi tekur jafn
vel á móti okkur.
Þú passaðir einnig vel upp á að
hafa okkur snyrtilegar, bauðst
okkur naglalakkahreinsi ef
naglalakkið okkar var orðið
subbulegt og sagðir okkur að
maður væri aldrei skvísa á
djamminu nema vera í hæla-
skóm. Þú skildir aldrei tískuna að
vera í hálfrifnum fötum. Þegar
við vorum í gallabuxum með göt-
um á hnjánum þá sagðirðu: „Á ég
að setja bót í götin?“
Þú dekraðir okkur út í eitt og
varst alltaf svo glöð að hitta
blómarósirnar þínar. Þú hafðir
svo hlýja nærveru og svo mjúkt
og gott knús.
Minningarnar eru svo ótelj-
andi margar, ylja okkur um
hjartarætur og kalla fram bros.
Við munum minnast þín sem dug-
legrar, góðrar og fallegrar konu
og halda lífi í frösunum þínum
sem þú sagðir stundum við okk-
ur. Eins og kaldar hendur, hlýtt
hjarta.
Hvíldu í friði, elsku amma okk-
ar.
Þínar blómarósir,
Stefanía Sól, Ragna Dís
og Agnes Rós.
Ragna Rósberg
Fleiri minningargreinar
um Rögna Rósberg bíða birt-
ingar og munu birtast í blað-
inu næstu daga.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
ÞORGEIR ÓLAFSSON
frá Kvíum,
Böðvarsgötu 2, Borgarnesi,
lést á Sjúkrahúsi Akraness 30. maí.
Útförin fer fram frá Borgarneskirkju laugardaginn 16. júní
klukkan 14.
Ólafur Þorgeirsson Auður Ásta Þorsteinsdóttir
Sigrún Björg Þorgeirsdóttir Birna Gunnarsdóttir
Þóra Þorgeirsdóttir Hilmar Sigurðsson
Gretar Þorgeirsson Sigrún Arna Hafsteinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HALLA GUÐNÝ ERLENDSDÓTTIR,
Laufásvegi 50,
Reykjavík,
lést miðvikudaginn 30. maí á Land-
spítalanum við Hringbraut.
Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju mánudaginn 11. júní
klukkan 13.
Anna Erla Guðbrandsdóttir Egill Sveinbjörnsson
Margrét Traustadóttir Ámundi Halldórsson
Hjördís Steina Traustadóttir Kristinn Jónsson
Erlendur Traustason Björg Sigrún Ólafsdóttir
Þórður Ólafur Traustason Ágústa Ragnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn