Morgunblaðið - 11.06.2018, Side 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það geta komið upp alls konar eftir-
mál þegar fólki finnst það ekki ná fram vilja
sínum. Þú þekkir ekki alla málavöxtu um
ákveðið mál.
20. apríl - 20. maí
Naut Finndu góðar aðferðir til að afla meiri
tekna, því útgjöld eru á næsta leiti sem þú
vilt geta borgað. Fólk gerir það sem þú biður
það um með glöðu geði.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Reyndu ekki að byrgja tilfinningar
þínar inni. Flas er alls ekki til fagnaðar og
þeir sem eru að ýta á eftir þér munu iðrast
þess þegar ástandið lagast.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er ekki hægt að gera svo að öll-
um líki og því skaltu halda þínu striki ótrauð-
ur. Láttu ekki draga úr þér kjarkinn og
mundu að enginn verður óbarinn biskup.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þótt þér finnist allt vera að fara úr
böndunum skaltu ekki örvænta því útlitið er
ekki eins slæmt og þér sýnist. Sígandi lukka
er best.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Finndu út hvar þú best getur komið
skoðunum þínum á framfæri því þú vilt að
hlustað sé á þig. Samlyndi eykst þegar líður
á daginn.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þér henta best samningar og umhverfi
sem leyfa þér að vaxa. Snúðu þér að þeim
sem þú getur treyst hafirðu þörf fyrir það.
Vertu staðfastur.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert viðkvæmur fyrir líðan
annarra í dag og tilbúinn til að leggja þitt af
mörkum til að hjálpa þeim sem minna mega
sín.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú verður að ljúka við þau verk-
efni, sem þú hefur tekið að þér, áður en þú
gerir þér dagamun. Reyndu að bíða til morg-
uns með að leysa úr erfiðum málum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Láttu þér ekki til hugar koma að
þú þurfir að klára allt eins og skot. Skipu-
leggðu þig því vel og leggðu hart að þér en
leyfðu stundum hlutunum að þróast af sjálfu
sér.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Dagurinn í dag er kjörinn til að
tala opinskátt um hlutina. Hikaðu ekki við að
segja meiningu þína. Notaðu krafta þína til
þess að laða til þín nýja vini.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Stundum kemur það fyrir að frekari
umræður leiða ekki til neins árangurs.
Mundu bara að aðgát skal höfð í nærveru
sálar.
Ég var að taka til í bókaskápnumog rakst á „Heiðnar hugvekjur
og mannaminni“ eftir Sigurð Guð-
mundsson skólameistara. Eftir að
hafa blaðað í bókinni hugkvæmdist
mér að taka upp í Vísnahorn vísur
og stökur sem þar birtast. Þegar lát
Bjarna Thorarensens spurðist var
kveðin þessi staka sem sumir hafa
eignað Sigurði Breiðfjörð en skóla-
meistari telur hana líklega eftir
séra Ögmund Sigurðsson á Tjörn á
Vatnsnesi:
Amtmaður Bjarni er orðinn nár.
Angurs renna vogar.
Það er Íslands þyngra sár
en þúsund Heklu logar.
Í minningarljóði Bjarna um
Rannveigu Filippusdóttur eru þess-
ar hendingar:
Og þó hún kvala kenndi
af kvillum í elli
brúna jafn-heiðskír himinn
hugar ró sýndi.
Skólameistari segir, að kvæði
Jóns Thoroddsen séu með „þjóð-
kennilegum blæ“. Mörgum sveita-
lesanda hafi verið skemmt, er hann
las t.d. þetta erindi:
Sprettur fiskur í sjá,
lítið leik bregður á
lambið, grænkuðum fjalla í geirum;
hoppar kálfur án bands,
stígur fetfljótan dans
folald lífað á rennsléttum eyrum.
Skólameistari skrifar um séra
Matthías áttræðan og byrjar grein
sína á þessu erindi eftir Hannes
Hafstein:
Þín andans tilþrif, fjörtök frjáls og hörð,
sem fagrir tindar rísa upp af heiði.
Ég fæst ei um, þótt hnjúka skilji skörð
og skriður nokkrar grænum hlíðum eyði.
Séra Matthías skrifaði um ferð
sínar á fornar stöðvar og nú gef ég
skólameistara orðið: „Þar er þessi
smávísa, þar sem skáldið – eins og
óvart og án þess hann viti, hver tíð-
indi hann hermir – greinir hljóð-
lega og yfirlætislaust frá tveimur
atriðum, er móðir hans brýndi fyrir
honum á uppvaxtarárum hans:
Mér kenndi móðir
að muna það tvennt:
að vera veikum bróðir
og velja æðstu mennt.
Skólameistari segir að Einar í
Eydölum grípi á merkilegum kosti
kvæðanna, þegar hann segir:
Kvæðin hafa þann kost með sér
þau kennast betur og lærast ger,
en málið laust úr minni fer.
Mörgum að þeim skemmtun er.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vísur úr Heiðnum hugvekjum
Sigurðar skólameistara
„ÉG ER Í SAMBANDI NÚNA. ÉG GET
EKKI FARIÐ MEÐ ÞÉR AÐ SLÁ KONUM
GULLHAMRA.“
„ÉG Á BARA FIMMKALL. ÉG ÆTLA AÐ FÁ
EINN STÓRAN BITA AF ÞESSU.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar þú getur ekki
ímyndað þér að vera
með nokkrum öðrum.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG GERI HEIMINN
AÐ SVALARI STAÐ
EN JAFNVEL ÉG GET
BARA GERT SVO MIKIÐ
EF VIÐ FÖRUM EKKI MUNU
EYJASKEGGARNIR PYNDA ÞIG MEÐ
VÚDÚ-DÚKKU!
HA! ÉG
ÞOLI
ALVEG
AÐ VERA
STUNGINN
MEÐ
PRJÓNUM!
ÞEIR ÆTLA AÐ
GEFA HENNI
FREYÐIBAÐ!
VIÐ FÖRUM! VIÐ FÖRUM!!
Bókin Rúna – örlagasaga er margtog Sigmundur Ernir Rúnarsson
hefur skrifað ævisögu sem gæti ver-
ið öðrum höfundum fyrirmynd. Upp-
vöxtur, áhugamál, áhrif, ástir, örlög,
vonbrigði og sigrar; ekkert er skilið
undan í tæpitungulausri sögu.
Hestakonan Rúna Einarsdóttir hef-
ur heima og erlendis unnið glæsta
sigra í hestamennskunni og verið
fyrirmynd. Á langri leið gerist þó
margt sem mótar einstaklinginn,
eins og fram kemur í þessari per-
sónulegu sögu. Stílleikni skrásetj-
arans nýtur sín, svo jafnvel skáld-
fákurinn Pegasus er farinn að
brokka á blaðsíðum. Ævisögur eru
margar hverjar því marki brenndar
að vera ferilskrá með sigursögum,
þar sem aðeins hálf sagan er sögð.
Þessi bók er öðruvísi og betri.
x x x
Fornar minjar í Oddbjarnarskeri áBreiðafirði og á Gufuskálum á
Snæfellsnesi, kumlfundur á Dalvík
og skemmtilegar myndir af vett-
vangi minjarannsókna. Þetta er
meðal margs áhugaverðs sem sagt
er frá í Árbók Hins íslenska forn-
leifafélags 2015 sem Víkverji
gluggaði í nú um helgina. Grein-
arnar eru vissulega með vísindalegri
framsetningu en eru þó yndislestur.
Í frásögnum lifnar allt við; sjá dagar
koma og ár og aldir líða. Áhugi Ís-
lendinga á fornum minjum hefur
alltaf verið mikill og fræðingar í fag-
inu eru töffarar. Má þar nefna að um
helgina var frétt um dularfulla gripi
sem skiluðu sér óvænt til Þjóðminja-
safnsins ein allra mest lesna fréttin í
Morgunblaðinu og á mbl.is.
x x x
Halldór Laxness var stórbrotinnrithöfundur en ekki síður þjóð-
félagsrýnir. Var upphafsmaður í um-
hverfismálum og brýndi fyrir fólki
að umgangast ekki náttúru landsins
eins og naut í flagi. Kiljubókin Land-
kostir – úrval greina um sambúð
lands og þjóðar 1927 – 1984 er ný-
lega komin út hjá Vöku-Helgafelli.
Það er veigur í bókinni, þótt grein-
arnar séu margar um mál sem í dag
eru öllum gleymd. Og kannski var
líka of bratt farið í að gerilsneyða
málfar nóbelsskáldsins og færa al-
veg til nútímastíls. vikverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn er nálægur þeim sem hafa
sundurmarið hjarta, hann hjálpar
þeim sem hafa sundurkraminn anda.
(Filippíbréfið 34.19 )