Morgunblaðið - 11.06.2018, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 11.06.2018, Blaðsíða 26
hafa oft skriflegar upplýsingar að styðjast við og jafnvel nóturnar líka. Þegar stigin hafa verið talin er birt- ur listi yfir tíu efstu verkin, og stiga- hæsta verkið fær sérstaka útnefn- ingu. Að auki er tekið sérstaklega út fyrir sviga besta verkið eftir tón- skáld 30 ára og yngri og fóru þau verðlaun að þessu sinni til Hol- lands.“ Í félagsskap merkra tónskálda Páll hlaut aðalverðlaunin fyrir verkið „Quake“ og er núna kominn á lista með mörgum fremstu tón- skáldum síðustu aldar sem einnig hrepptu verðlaunin. „Fyrsta keppn- in fór fram árið 1955 og ef maður skoðar hverjir hafa unnið aðalverð- laun Alþjóðlega tónskáldsþingsins síðan þá þá er það mjög glæsilegur hópur. Það er hreinlega fáránlegt hvað ég er kominn í góðan félags- skap.“ Verðlaununum fylgir ekki bara mikill heiður, heldur einnig sýnileiki um allan heim og samningur um að semja nýtt verk fyrir Útvarps- hljómsveit Frakklands. „Það liggur ekki alveg fyrir hvenær verkið á að vera tilbúið, eða hvernig ég á að haga tónsmíðunum, en heimur sin- fóníuhljómsveitanna hreyfist hægt og ég geri ráð fyrir að vinna ekki í þessu verki fyrr en á næsta ári,“ seg- ir Páll, en hann fær einnig verð- launagrip til að hafa uppi í hillu. „Þá eru útvarpsþættir um allan heim að gera keppninni skil um þessar mundir. Ég hef verið að leika mér við að „gúggla“ nafnið mitt og nær daglega að ég finn nýja þætti á net- inu um hátíðina og þar sem verkið mitt er kynnt sérstaklega og spilað.“ Páll reynir að gæta þess að láta ekki verðlaunin stíga sér til höfuðs. „Ég fæ vissulega meiri sýnileika um þessar mundir en ekkert er tryggt með framhaldið. Ég er búinn að senda þetta tónverk mitt út í heim- inn þar sem það fer að lifa sínu sjálf- stæða lífi og ferðast um, en enginn veit hvert þetta mun leiða og veltur bæði á því hvernig ég mun vinna úr tækifærinu sjálfur og veltur líka á ótal öðrum þáttum sem ég hef enga stjórn á.“ Með minnimáttarkennd Sennilega tengja margir lesendur Pál einkum við hljómsveitina Maus en þar spilaði hann á gítar í röskan áratug eða allt þar til á síðustu tón- leikum bandsins árið 2004. Er óhætt að segja að tónlistin sem Páll semur í dag er gjörólík lögunum sem hann flutti með félögum sínum Bigga, Danna og Eggerti. „Ég var enn í grunnskóla og hinir strákarnir, árinu eldri, allir komnir í menntaskóla þegar bandið varð til. Á meðan bandið starfaði fór ég á bólakaf inn í þennan rokkheim og mestallan tímann leiddi ég ekki hug- ann að því að ég gæti hugsanlega átt einhverja framtíð án hljómsveit- arinnar, og Maus var það sem lífið snérist um allan þennan tíma. Gerð- ist það ekki fyrr en ég var farinn að eldast að ég tók að átta mig á því að ég myndi kannski ekki verða gítar- leikari í hljómsveit alla ævi.“ Páll hafði lært á píanó sem barn og lengi hafði blundað í honum að mennta sig á sviði tónlistar. „Það var einhver taug þarna sem tengdi mig við klassíska heiminn, en ég hafði líka snert af minnimáttarkennd gagnvart fólki sem hafði lært miklu meira en ég. Síðan gerist það á mjög lífrænan hátt, einhvern veginn, að á sama tíma og Maus er að fara í sína löngu pásu skelli ég mér í nám, fyrst einn vetur hjá Tónlistarskóla Kópa- vogs til að læra um raftónlist og krafsa í tónfræðina, og svo í fram- haldinu við Listaháskóla Íslands í bachelor-nám í tónsmíðum.“ Þaðan lá leiðin til Eistnesku tón- listarakademíunnar í Tallin, þar sem Páll lærði undir leiðsögn Helenu Tulve og lét hann ekki nægja að ljúka mastersgráðu heldur fór líka í doktorsnám. Aðspurður hvers vegna hann fór alla leið í doktorinn segir að Páll að allir vindar hafi blásið í sömu átt: „Persónulegir hagir mínir höfðu breyst eftir að ég kynntist konunni minni úti í Eistlandi og við vorum á þessum tíma að bíða eftir frumburð- inum. Svo fann ég það líka, þegar fór að styttast í lokin á mastersnáminu, að mér fannst ég hafa svo mikið meira að læra af Helenu Tulve. Ég sá að ég var ekki á leiðinni aftur heim til Íslands í bráð, og að tíma mínum væri best varið í áframhald- andi nám,“ segir Páll og bætir við: „Guði sé lof fyrir LÍN, Jesús minn almáttugur!“ „Á milli nótnanna leynist endu  Páli Ragnari Pálssyni finnst hann geta greint áhrif frá árunum í rokkbandinu Maus í óhlutbundnu tónlistinni sem hann semur í dag  Fyrir skemmstu hlaut Páll ein virtustu verðlaun tónskáldaheimsins og fylgir verðlaununum að semja verk fyrir Útvarpshljómsveit Frakklands VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Páll Ragnar Pálsson fékk tíðindin þegar hann var heima hjá sér á Óðinsgötunni, önnum kafinn við að svara tölvupóstum og leita að villum í nótnablöðum. „Fyrst varð ég var við að fleiri og fleiri skilaboð tóku að birtast á Facebook Messenger, og inn á milli sé ég skeyti frá Arndísi Björk Ásgeirsdóttur sem var úti í Búdapest fyrir hönd RÚV,“ segir Páll. „Hún skrifaði mér: „Palli! Þú vannst! Þú vannst! Þú vannst! Ég er ekki að grínast! Hringi í þig á eftir.““ Það er skiljanlegt að Arndís hafi verið örlítið æst, því verðlaunin sem Páll hafði unnið voru aðalverðlaun Alþjóðlega tónskáldaþingsins (e. International Rostrum of Compos- ers). Gárungar kalla keppnina Evró- visjón fyrir lengra komna, en um er að ræða n.k. tónskáldakeppni ríkis- útvarpsstöðva. „Evrópskar stöðvar eru áberandi í keppninni, enda mikil hefð fyrir ríkisútvarpsrekstri í álf- unni, en einnig taka þátt stöðvar frá fjarlægari stöðum eins og Kanada, Ástralíu, Argentínu og Kína,“ út- skýrir Páll. „Það er mismunandi eft- ir löndum hvernig þau velja verk í keppnina; stundum er haldin keppni, eða að nefnd sér um valið, en allar stöðvarnar senda inn nýtt tónverk og svo er einfaldlega haldið hlust- unarmaraþon og verkunum gefin stig.“ Að þessu sinni fór tónskáldaþingið fram í Búdapest, og skýtur Páll því inn að það gæti þótt rangnefni að kalla viðburðinn tónskáldaþing, enda eru sjálf tónskáldin yfirleitt fjarri góðu gamni. „Gestir þingsins – fulltrúar útvarpsstöðvanna – hlusta á upptökur af öllum verkunum og Upphefð „Ef maður skoðar hverjir hafa unnið aðalverðlaun Alþjóðlega tónskáldsþingsins þá er það mjög glæsilegur hópur. Það er hreinlega fá- ránlegt hvað ég er kominn í góðan fé- lagsskap,“ segir Páll Ragnar Pálsson. 26 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2018 Sími: 411 5000 • www.itr.is Fyrir líkama og sál Laugarnar í Reykjavík Frá morgnifyrir alla fjölskylduna í þínu hverfi t i l kvölds »Bíótónar í baði var yfirskrift viðburðar Breið- holt festivals sem fram fór í Ölduselslaug í fyrradag og var hluti af dagskrá Listahátíðar í Reykjavík. Tónsmíðar íslenskra tónskálda fyrir kvikmyndir og sjónvarpsþætti streymdu úr hátöl- urum ofan í lauginni og varð þeirra því aðeins notið með eyrun ofan í vatninu. Gestir fengu flothettur að láni og ekki annað að sjá en að þeir hafi notið sín vel og kunnað að meta þennan gjörning. Á sund- laugarbakkannum var svo boðið upp á kræsingar frá hinum ýmsu löndum heims. Gestir Listahátíðar í Reykjavík nutu ljúfra Afslöppun Gestir tylltu sumir hverjir tánum á laugarbakkann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.