Morgunblaðið - 11.06.2018, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 11.06.2018, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2018 ✝ Sigríður Reg-ína Eiríks- dóttir fæddist að Auðnum í Sæ- mundarhlíð 1. júní 1928. Hún lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 4. júní 2018. Hún var dóttir hjónanna Krist- ínar Vermunds- dóttur, húsfreyju, f. 20. júlí 1898, d. 11. nóv. 1973, og Eiríks Sigurgeirs- 1936, andvana drengur, f. 1937, Karl, f. 1938. Eigin- maður Sigríðar var Haukur Bl. Gíslason, f. 11.11. 1923 á Eyvindastöðum í Blöndudal, A-Hún. Foreldrar hans voru Friðbjörg Ísaksdóttir, f. 25.7. 1903, d. 15.3. 1972, og Gísli Blöndal Jónsson, f. 15.5. 1902, d. 26.4. 1937. Sigríður og Haukur hófu búskap á Sauðárkróki 1946 og bjuggu þar til ársins 1968 er þau fluttu í Garðabæ og síðan til Hafnarfjarðar. Börn þeirra eru 1) Kristín Alda, f. 21.9. 1945, maki Guðmundur Tr. Ólafsson og eiga þau fjögur börn. 2) Gísli, f. 22.8. 1947, var kvæntur Magneu Halldórs- dóttur, þau skildu og á hann þrjú börn. 3) Jón Óskar, maki Björk Friðfinnsdóttir, f. 29.4. 1960, d. 10.9. 2017, og eiga þau tvö börn. 3) Kolbrún, f 30.9. 1963, maki Valgeir Eyj- ólfsson, f. 17.4. 1965, og eiga þau þrjú börn. 4) Ólafur Geir, f. 30.9. 1963, d. 19.6. 1981. Sigríður ólst upp í Vatns- hlíð fram undir fullorðinsár. Eftir að hún flutti til Sauð- árkróks vann hún á Hótel Villanova og einnig í fisk- vinnslu ásamt húsmóður- störfum. Eftir að hún kom til Hafnarfjarðar vann hún við umönnun á Vífilsstöðum og líka á Hrafnistu í Hafnarfirði, þar sem hún endaði sína starfsævi. Útför Sigríðar fer fram frá Víðistaðakirkju í dag, 11. júní 2018, klukkan 13. sonar, bónda í Vatnshlíð, A-Hún., f. 24. sept. 1891, d. 13. maí 1974. Systkini hennar eru Skarphéðinn, f. 1917, látinn, Ól- ína Rebekka, f. 1918, látin, Ragn- heiður, f. 1920, látin, Valdimar, f. 1921, látinn, Sig- urgeir, f. 1926, látinn, Þórey, f. 1930, látin, Dýrólína, f. 1932, Haukur, f. Þú innrættir sál mína ást og trú varst einlæg og mild í svörum. Hver upplýsti veginn? Það varst þú sem þögul og máttvana liggur nú í draumi á dánarbeði. Drottinn upphefji anda þinn, þar eilífðarljósin skína. Mótuð í hjarta skal minningin meðan vonirnar dvína. Sem angurvært barn í síðasta sinn ég signi gröfina þína. (H. Gíslason) Hvíl í friði, elsku mamma. Þín dóttir, Kristín Alda. Í dag kveðjum við elskulega tengdamóður mína sem nú hefur lokið jarðvist sinni. Mér er ætíð minnisstætt þegar ég kom fyrst á heimili verðandi tengdaforeldra minna á Sauðárkróki fyrir ríflega hálfri öld. Fékk ég afar hlýjar móttökur hjá þeim hjónum Siggu og Hauki og er mér í fersku minni hve mér fannst Sigga hafa góða nærveru, blíð, brosmild og ljúf. Heimili þeirra var afar fallegt og snyrtilegt. Kynni mín við verðandi tengdaforeldra tókust vel og að nokkrum árum liðnum fluttu þau hjónin frá Sauðárkróki ásamt yngstu börnunum Óskari og tví- burunum Kolbrúnu og Ólafi Geir og bjuggu hjá okkur Öldu í ár í Garðabænum, eftir búsetu í Kópavogi um tíma fluttu þau til Hafnarfjarðar og bjuggu þar alla tíð síðan. Ólafur Geir lést af slysförum í júní árið 1981, aðeins 18 ára gamall og var það foreldrum og fjölskyldunni mikil raun. Eftir að Haukur lést voru árin sem á eftir komu Siggu erfið í ein- verunni og varð það henni þung- bært þegar hún þurfti að yfirgefa sitt fallega heimili og flytja á hjúkrunarheimilið Hrafnistu, en þar naut hún góðrar umönnunar. Sigga var sérstaklega myndar- leg í öllu sem hún tók sér fyrir hendur og má þar nefna matar- gerð, bakstur, saumaskap og allt sem viðkemur heimilisstörfum og hefur hún flutt með sér úr Skaga- firði margrómaða matarmenn- ingu og miðlað henni til afkom- enda sinna, sem hefur verið þeim gott veganesti. Hún var höfðingi heim að sækja, var fagurkeri og vildi hafa fallegt og snyrtilegt í kringum sig og sjálf var hún alltaf fallega klædd og vel tilhöfð og voru dæt- ur hennar alltaf tilbúnar að verða við óskum hennar þegar henni fannst þurfa að setja rúllur í hár- ið, lakka neglur og það sem til þurfti til að líta vel út. Þessu lífs- munstri hélt hún til hinstu stund- ar, nú fyrir örfáum dögum fagn- aði hún 90 ára afmæli sínu með öllum sínum afkomendum og var í sínu fínasta pússi og naut stundarinnar, að veislu lokinni lagði hún upp í sína hinstu ferð og lést tveimur dögum síðar. Mikil sómakona er hér kvödd hinstu kveðju með þökk fyrir allt og allt. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi. Guðmundur Tryggvi Ólafsson. Sigríður Regína Eiríksdóttir Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN GUNNAR JÚLÍUSSON, lést á Hrafnistu 7. júní síðastliðinn. Útför hans fer fram frá Langholtskirkju miðvikudaginn 13. júní klukkan 13. Starfsfólki Hrafnistu í Reykjavík er þökkuð vinsemd í garð hins látna. Hallfríður Jónsdóttir Kristín G. Jónsdóttir Guðmundur B. Kristinsson börn og barnabörn. ✝ Anna fæddist áStóru-Borg í Víðidal 6. febrúar 1930. Hún lést á líknardeild Land- spítalans 24. maí 2018. Foreldrar henn- ar voru Ólöf Helga- dóttir (1898-1945) og Guðmundur Jónsson (1892- 1936) á Stóru-Borg. Systkini Önnu eru; Njáll (1920- 1998), tvíburastúlkur (1921- 1921), Jóhann Helgi (1922-1988), Guðrún Jóhanna, f. 1924, Auður, f. 1926, Ólafur Ingimundur (1928-2005), Ásborg (1931- 1948), Reynir Líndal (1932- 1984), Þórður, f. 1934, Rannveig Sigríður, f. 1935, Guðmundur (1936-2001). Samfeðra Hjörtur Frímann (1918-2009) og Björn Tryggvi (1918-1943). Móðir þeirra var Helga Theodóra Gísladóttir (1875-1923). Anna giftist Böðvari Pétri Indriðasyni, f. 21. júní 1929, d. 10. janúar 1982, frá Gilá í Vatns- dal, 22. nóvember 1952. Þau eignuðust fjögur börn: 1) Þór- unn Birna, f. 1952, gift Huga Helgasyni, f. 1941. Dætur þeirra Birni, og öðrum fósturbörnum sem áttu þar skjól um lengri eða skemmri tíma. Anna lauk landsprófi 1950 frá Reykjaskóla í Hrútafirði og var farkennari í Vatnsdal veturinn á eftir. Anna og Böðvar stofnuðu heimili á Ásvallagötu 16 og leigðu þar íbúð. Árið 1973 misstu hjónin einkason sinn, Guðmund, sem lést eftir lang- varandi veikindi. Anna starfaði lengst af á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Grund, frá 1960, við umönnun og lét af störfum 1997 en hélt alltaf góðu sambandi við sinn gamla vinnu- stað og mætti þar ætíð mikilli hlýju og velvild. Anna og Böðv- ar fluttu í eigin íbúð á Hofs- vallagötu 23 árið 1980. Hús- næðið var ekki stórt og efnin ekki mikil en þau voru mjög gestrisin og varla leið svo dagur að ekki bæri gest að garði. Eftir að Böðvar lést 1982, eftir tals- verð veikindi, helgaði Anna sig uppeldi yngstu dótturinnar og naut samvista við barnabörnin sem voru óðum að koma í heim- inn. Seinna fæddust langömmu- börnin. Anna var mikil prjóna- kona og nutu afkomendur hennar þess í ríkum mæli. Anna dvaldi á sjúkrastofnunum frá desember sl. og síðustu tvo mán- uðina á Grund, þangað sem hún kom þrotin að kröftum. Anna verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, 11. júní 2018, klukkan 13. Anna Hugadóttir, f. 1980, gift Þórarni Arnari Ólafssyni, f. 1980. Synir þeirra Ólafur, f. 2010, og Sigurður Hugi, f. 2016. Margrét, f. 1982, sambýlis- maður Tryggvi Gunnarsson, f. 1980; 2) Kristín, f. 1954, gift Valgeiri Jónassyni, f. 1950. Börn þeirra Guðmundur, f. 1979, Sóley, f. 1984, sambýlis- maður Eiður Ottó Bjarnason, f. 1984. Dætur þeirra Kristín Björt, f. 2012, og Embla Ýr, f. 2016. Jónas, f. 1986, sambýlis- kona Elsa María Gunnarsdóttir, f. 1991. Dætur þeirra Sunna Björk, f. 2015, og Erla Sól, f. 2017; 3) Guðmundur (1962- 1973); 4) Ólöf Ása, f. 1966, giftist Þorgrími Péturssyni, f. 1963. Synir þeirra; Böðvar Pétur, f. 1994, og Sölvi, f. 1997. Þau skildu. Anna fór tveggja ára í fóstur að Miðhópi í Víðidal til hjónanna Þórunnar Björnsdóttur og Björns Þorsteinssonar og ólst þar upp til fullorðinsára ásamt börnum þeirra, Margréti og Klukkan er rúmlega átta en það er vissara að hringja, það er aldrei að vita nema amma sé á einhverju flakki. Síminn hringir tvisvar og svo er svarað – „varst það þú sem hringdir áðan, ég var nefnilega niðri í þvottahúsi“. „Nei, það var ekki ég.“ „Nú jæja, það hefur verið einhver annar. Hvort ég er heima? Já, hvað heldur þú. Ertu búin að borða? Ég skal sjá hvort ég eigi eitthvað handa þér. Það verður nú ekkert merkilegt en við sjáum til“. Ég geng upp Túngötu og stytti mér leið yfir Landakots- túnið og yfir Héðinsvöll. Lít upp í stofugluggann hennar ömmu á horninu við Hofsvallagötu og þar er ljós. Inni er hlýtt og amma slekkur á sjónvarpinu, ekkert merkilegt í því hvort eð er og enginn hand- bolti á dagskrá í kvöld. Amma missir ekki af leik. Hún er reynd- ar hætt að prjóna yfir leikjum því ef þeir eru spennandi á hún það til að missa niður lykkju og það er ómögulegt. „Viltu kaffi?“ „Já takk, endilega.“ Við drekkum kaffi allan sólarhringinn í þessari fjölskyldu. „Þetta er nú heldur þunnt hjá mér. Jæja, þú ræður því sjálf hvort þú drekkur það eða ekki. Ég sauð egg handa þér.“ Svo setjumst við við rauða borðið í eldhúsinu, ég í mitt sæti, hún í sitt og spjöllum. Um pólitík. Um verkalýðshreyfinguna. Heimsmálin, fjölskylduna. Hver er hvar, hvernig gengur þessum, það rætist úr þessu öllu saman, það gerir það yfirleitt. Vantar þig ekki sokka eða vettlinga,“ spyr hún. „Ég á hérna par inni í stofu.“ Ömmu lætur ekki vel að tala um sjálfa sig en stundum tekst manni að fá hana til þess. Hún segir frá Miðhópi og fólkinu sem hún ólst upp hjá. Frá skólaárun- um á Reykjaskóla, þar sem allur skólinn var einu sinni settur í sóttkví yfir jólin og haldið var ball þar sem drengir og stúlkur skiptust á fötum og íslensku- kennarinn bar af hávirðulegur á peysufötum. Frá því þegar hún hljóp frá búverkunum til að taka þátt í 200 metra bringusundi í Samnorrænu sundkeppninni ár- ið 1951 og þegar hún þremur ár- um síðar sat fyrir mjólkurbíln- um til að komast inn á Hvammstanga til að eiga dóttur númer tvö. Frá fyrstu árunum í Reykjavík, fátæktinni sem allt ætlaði lifandi að drepa, fólkinu í hverfinu. Hún segir mér frá ferðalögunum með afa sáluga sem oft voru farin á hálfónýtum bíl við vafasamar aðstæður. Ég fæ líka að heyra um ferðalögin með verkakvennafélaginu Sókn, „aldrei ætla ég að fara aftur fjallabak syðra“, segir amma, „það var svo fallegt að ég er hrædd um að skemma minn- inguna fyrir mér“. Amma ber í mig jólasmákök- ur sem virðast hafa ótakmarkað geymsluþol. Við setjumst fram í stofu og hún orðar það við mig að ég þurfi að fara að hjálpa sér við gardínurnar. Hún sé hætt að príla, það sé búið að banna sér það. „Ég sé að klukkan stendur, á ég ekki að trekkja hana upp?“ „Jú takk.“ Klukkan er orðin margt og amma heimtar að ég taki strætó. Við kveðjumst, biðjum að heilsa og amma biður mig að senda sér skeyti í símann þegar ég er kom- in heim. Þegar ég er komin upp í vagninn verður mér litið upp í eldhúsgluggann þar sem amma stendur og horfir á eftir mér og ég veit að hún bíður þar til vagn- inn er kominn úr augsýn. Anna Hugadóttir. Elsku amma mín, þá er víst komið að kveðjustund þó ég vildi að raunin væri önnur. Ég á svo erfitt með að sætta mig við að þú sért farin frá okkur enda hefur þú alltaf verið stór hluti af mínu lífi. En ég er jafn- framt ótrúlega þakklát fyrir að hafa haft þig sem fyrirmynd í rúm 30 ár. Þú varst svo ótrúlega vel gefin og klár, varst með dæg- urmálin 100% á hreinu og það var alltaf best að hringja í ömmu ef stafsetning eða málfræði var að vefjast fyrir manni. Þú varst líka með ótrúlega sterka réttlætis- kennd, vildir að allir fengju jafnt og þér var sérstaklega umhugað um þá sem minna mega sín. Þú varst einfaldlega ótrúlega góð og ljúf kona. Þú varst algjör nagli en líka svolítill grallari og það var alltaf hægt að plata þig til að taka þátt í uppátækjum okkar systkinanna. Til dæmis minnist ég þess þegar við vorum eitt sinn í helgarpöss- un hjá þér á Hofsvallagötunni, að þér fannst nú lítið mál að drösla okkur í strætóferð í hverfissjopp- una okkar í Smáíbúðahverfinu því þar fengum við svo mikið sæl- gætismagn fyrir 100 krónurnar. Það var heldur ekki erfitt að fá þig til að búa til heimsins bestu pönnukökur þegar við komum í heimsókn og fylgdumst vel með hægum en öruggum handtökum við baksturinn. Lykt af vanillu- dropum minnir mig alltaf á þess- ar stundir. Þú varst alltaf svo jákvæð og áhugasöm um það sem við afkom- endur þínir tókum okkur fyrir hendur. Dæmi um það er þegar ég kom eitt sinn að heimsækja þig á Rauðakrosshótelið á Rauð- arárstígnum þegar ég var um 14 ára gömul. Þá hafði ég verið í bæjarferð að kaupa mér risa- vaxnar skopparabuxur sem voru það heitasta á þessum tíma og hefðu eflaust rúmað 5 eintök af sjálfri mér. Ég kom að sjálfsögðu við hjá þér þar sem ég var í ná- grenninu og sýndi þér gersem- arnar sem ég hafði verið að kaupa. Þér fannst ég nú aldeilis hafa gert góð kaup og fannst efn- ið í þeim svo agalega gott. Ég minnist þess ekki að hafa fengið svona jákvæð viðbrögð frá öðrum fullorðnum við þessum kaupum mínum. En þetta var svo dæmi- gert fyrir þig. Allt sem við afkom- endur þínir gerðum var algjör- lega frábært og það skein svo í gegn hvað þú varst stolt af okkur þótt þú segðir það kannski ekki beinum orðum. Enda vorum við öll mikil ömmubörn. Þú varst með ótrúlegt jafnað- argeð og reiddist aldrei né skammaðist. Það var alltaf svo gott að vera í kringum þig því þú hafðir svo róandi áhrif og fannst svo gaman að spjalla um daginn og veginn, pólitík og strætó. Síð- ustu árin fannst þér allra skemmtilegast að tala um lang- ömmubörnin og þér fannst þau alltaf svo fullkomin og hafðir mikinn húmor fyrir uppátækjum þeirra. Ég er óendanlega þakklát fyrir að stelpurnar mínar hafi fengið að kynnast þér og við munum geyma allar gersemarn- ar sem þú prjónaðir á okkur vel og vandlega. Svo fáum við okkur kandís á tyllidögum og hugsum til þín með mikilli hlýju. Elsku amma mín, þú varst svo dásamleg og þín verður sárt saknað. Ég veit að það verður tekið vel á móti þér á nýjum og betri stað þar sem þú getur farið allra þinna ferða í hraustum lík- ama. Þangað til næst, amma mín. Sóley Valgeirsdóttir. Mig langar örlítið að segja ykkur frá Önnu ömmu minni. Það var bara núna á síðustu árum sem ég áttaði mig á því að það ættu ekki allir svona ömmu eins og ég. Endalaus jákvæðni og lífgleði er ekki sjálfsögð hjá eldra fólki en hún amma mín gat alltaf séð eitthvað jákvætt við hund- leiðinlega hluti. Hún hló að prakkarastrikunum mínum og var yfirleitt til í að finna ein- hverja afsökun fyrir mig. Tengdapabbi minn spurði mig í einu jólaboðinu fyrir nokkrum árum af hverju amma mín væri svona. Ég skildi ekki spurn- inguna því ég hélt að það væri sjálfsagður hlutur að eiga ömmu sem getur hlegið að öllu og öllum. Í gegnum tíðina hef ég örugg- lega fengið hundrað símtöl frá henni ömmu minni varðandi elda- vélina. Öll barnabörnin hennar þekkja spurninguna vel „Ertu ekki örugglega búinn að slökkva á eldavélinni?“. Spurningin kom yfirleitt þegar við krakkarnir vorum ein heima. Hún hringdi líka stundum og spurði eftir að ég byrjaði að búa. Reyndar man ég ekki eftir að hún hafi spurt mig eftir að ég varð þrítugur. Kannski var hún þá loksins farin að treysta mér til að muna eftir að slökkva á eldavélinni. Hún hefur gegnum árin prjón- að sokka, húfur, vettlinga og peysur á hálft Ísland. Ég á örugglega ennþá 5 eða 6 ullar- sokkapör sem eru ónotuð. Í gegn- um menntaskóla þótti mér ekk- ert meira töff en að vera með lopahúfu frá ömmu minni. Kær- astan mín og börnin mín eiga líka heilan helling. Vinir mínir fengu einnig að njóta prjónaskaparins. Ég held meira að segja að einn vinur vinar míns eigi eina húfu einhverstaðar heima hjá sér. Ég þekki hann ekki neitt og hvað þá hún amma mín. Hún var alltaf til í að prjóna fyrir alla. Ég held að það geri öllum gott að takast á við hlutina eins og hún amma mín gerði. Allt var gert með jákvæðni í huga. Og svo að sjálfsögðu ekki gleyma að slökkva á eldavélinni... Jónas Valgeirsson. Hringdu nú samt á undan þér svo ég sé örugglega heima þegar þú kemur, sagði amma í hvert einasta skipti sem ég sagðist ætla að kíkja á hana í heimsókn. Þessi setning lýsir henni einstaklega vel því hún var kona sem mat ferðafrelsi sitt mikils og ferðaðist um allan bæ gangandi og í strætó, í ýmsum erindagjörðum, hvort sem það var garnleiðangur, heimsóknir eða ferð upp í mjódd eftir besta súra hvalbitanum í fiskbúðinni. Hún gerði nefnilega vel við sig í mat sagði hún, konan sem mundi tímana tvenna, konan sem sagði mér frá þeim árum þegar vísitölutrygging launa var afnumin og verðtryggðu lánin sliguðu fjölskylduna, þegar vöru- skortur var svo mikill í landinu að krakkar í vesturbænum voru sendir á stúfana til að finna naglaspýtur sem voru svo nagl- hreinsaðar, naglarnir réttir og notaðir í viðbyggingu Grundar. Konan sem hringdi í alþingis- menn og sagði þeim til syndanna þegar þeir sögðu að fólk gæti léttilega komist af með 1000 krónur á dag, það gæti bara gist í tjaldi, konan sem vann og vann og vann, konan sem starfaði á Grund fram að eftirlaunum, kon- an sem setti aðra í fyrsta sæti og hætti aldrei að berjast, konan sem náði að kjósa utan kjörfund- ar áður en hún kvaddi. Ég er þakklát elsku ömmu fyr- ir svo margt. Hún kenndi mér þrautseigju og að gefast ekki upp. Ég mun ávallt minnast hennar sem sterkrar og lífsglaðr- ar konu sem hlakkaði til að kom- ast aftur á Grund, sinn gamla vinnustað. Nú er hún farin en lifir áfram í okkur afkomendunum um ókomna tíð. Margrét. Anna Guðmundsdóttir  Fleiri minningargreinar um Önnu Guðmunds- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.