Morgunblaðið - 11.06.2018, Blaðsíða 27
Hljóðveggurinn í
æfingahúsnæðinu
Páll flutti aftur til Íslands með
konu sinni og barni árið 2013 og hef-
ur síðan þá sinnt kennslustörfum hjá
LHÍ og stundað tónsmíðar með
fram því. Hann segist finna ákveðna
tengingu á milli tónlistarinnar sem
hann semur í dag, og tónlistar Maus-
áranna, þó svo að annars vegar sé
um að ræða óhlutbundna og mjög
framúrstefnulega tónlist, og hins
vegar blöndu af rokki, pönki og alt-
rokki: „Ég hef alltaf verið heillaður
af því sem er abstrakt, hvort sem um
er að ræða ljóðlist, málaralist eða
tónlist – haft einhvern áhuga á því
sem ég get ekki alveg skilið. Ég hef
litið svo á að ég sé að sækjast eftir
einhverju sem ég veit að er þarna
innst inni í mér, en það getur tekið
langan tíma að kalla það fram og ná
einhverjum tökum á því.“
Tengingin við rokkárin felst í því
hvernig Páll skynjar og hugsar um
hljóð. „Þegar maður er í æfinga-
húsnæðinu að rokka er þessi brjálaði
hávaði, og maður er ekki bara að
hlusta á melódíurnar heldur líka á
hljóðvegginn og finnur hann bók-
staflega með öllum likamanum. Ég
held að þetta komi fram í því hvernig
ég skrifa fyrir hljómsveit; að ein-
hvers staðar á milli nótnanna leynist
endurómur af gítar.“
rómur af gítar“
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
MENNING 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2018
bíótóna þar sem þeir flutu í algleymi um Ölduselslaug í fyrradag
Rólegt Jafnvel mátti halla höfði á vatnsyfirborðið.
Núvitund Fátt er líklegra til ánægju en menningarviðburður í sundlaug.
Algleymi Gestirnir sökktu sér hettuklæddir í röðum ofan í upplifunina í Ölduselslaug.
Þær stórfréttir hafa borist úr
djassheiminum að týndar upp-
tökur með hinum klassíska kvart-
ett bandaríska saxófónleikarans
Johns Coltrane frá árinu 1963 hafi
komið í leitirnar. Verða þær gefn-
ar út síðar í mánuðinum undir
heitinu Both Directions at Once:
The Lost Album.
Um er að ræða sjö lög sem
Coltrane hljóðritaði með rómuðum
kvartetti sínum, bassaleikaranum
Jimmy Garrison, Elvin Jones á
trommum og píanóleikaranum
McCoy Tyner.
Á þremur árum áður en Coltr-
ane sendi meistaraverkið A Love
Supreme frá sér, 1965, komu út
átta aðrar plötur hjá Impulse-
útgáfunni sem hann hljóðritaði
með kvartettinum. Þar af komu
frægar rómaðar plötur út árið
1963, Duke Ellington & John
Coltrane, Ballads, Impressions og
John Coltrane and Johnny Hart-
man. Að sögn The New York Tim-
es komu upptökurnar sem nú
verða gefnar út fram meðal muna
frá fyrri eiginkonu Coltrane, en
þær höfðu verið taldar glataðar
með öllu.
Lögin sjö voru hljóðrituð á ein-
um degi í marsmánuði 1963 og
segja djassfræðingar augljóst að
Coltrane hafi stefnt að því að gera
plötu úr fjölbreytilegum efniviðn-
um en annir hafi verið miklar
þessa mánuði og hafi upptökurnar
því verið settar til hliðar og
gleymst.
„Árið 1963 voru allir tónlistar-
mennirnir að ná hæstu hæðum
sköpunar sinnar,“ er haft eftir
saxófónleikaranum Ravi Coltrane,
syni Johns Coltrane, en hann tók
þátt í að undirbúa fundnu upptök-
urnar fyrir útgáfu. „Á þessari
plötu má heyra John með annan
fótinn í fortíðinni og hinn er að
stíga inn í framtíðina.“
Á Both Directions at Once: The
Lost Album verða eins og fyrr
segir sjö lög, sem talin eru vera
eftir Coltrane utan eitt sem kann
að vera eftir Tyner. Platan kemur
einnig út í „viðhafnarútgáfu“ þar
sem heyra má sjö aðrar „tökur“ af
lögunum.
Stórmeistari John Coltrane árið
1963 þegar lögin sjö voru tekin upp.
Upptökur með Coltr-
ane komnar í leitirnar
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Fim 14/6 kl. 19:30 35.sýn
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200