Morgunblaðið - 11.06.2018, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 11.06.2018, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 162. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Blindfullir, gólandi og ... 2. Við erum ofboðslega lánsöm 3. Tvær þyrlur sendar af stað 4. Fór hamförum á Twitter »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Karlakór Tækniháskólans í Tallinn heldur tónleika í Langholtskirkju ann- að kvöld, þriðjudag, kl. 20. Tónleik- arnir eru liður í aldarafmælisfögnuði Eistlands. Kórinn heldur einnig tón- leika á Akureyri á fimmtudag. Morgunblaðið/Árni Sæberg Eistneskur karlakór með tvenna tónleika  Pan Wanka nefnist sýning enska kvikmynda- leikstjórans og rithöfundarins Will Thomas Freeman sem opnuð verður í Listastofunni á morgun, þriðju- dag, kl. 17. Pan Wanka í Lista- stofunni á morgun  Þrjú ný örleikrit verða sýnd í Blesu- gróf á Listahátíð í Reykjavík á mið- vikudag og fimmtudag kl. 18. Um er að ræða Erfidrykkjuna eftir Soffíu Bjarna- dóttur, Átak I og II eftir Kolfinnu Niku- lásdóttur og Blesugróf eftir Mikael Torfason. Marta Nordal leikstýrir öllum verkunum þremur. Þrjú ný örleikrit sýnd í Blesugróf í vikunni Á þriðjudag Suðlæg átt, 5-10 m/s og dálítil rigning eða súld en hægari vindur og úrkomuminna norðanlands. Hiti 7 til 12 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg norðaustanátt og lítilsháttar rigning eða súld fyrir norðan, en suðvestan 3-8 m/s og smáskúrir syðra, einkum vestantil. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á Suðausturlandi. VEÐUR „Það var ákveðið í gær að Aron (Einar Gunnarsson fyrirliði) yrði ekki með á þessari æfingu, heldur fengi að jafna sig eftir síðustu daga. Svo sjáum við hve mikið hann getur verið með á morgun,“ segir Helgi Kol- viðsson, aðstoðarþjálfari ís- lenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, við Morgun- blaðið í dag, en fimm dagar eru þar til Ísland mætir Arg- entínu á HM. »1 Aron Einar ekki með á æfingu „Þetta skapast þó af þeirri stöðu sem við hér á Morgunblaðinu höfum verið að benda á í tvo áratugi – það að topplið Vesturdeildarinnar hafa ein- faldlega verið þrepi ofar í getu en bestu liðin austanmegin. Það hafa verið undantekningar, en þær eru allar tengdar getu LeBron James,“ segir NBA-sérfræð- ingur blaðsins, Gunnar Val- geirsson, meðal annars í pistli sínum frá Los Angeles. »6 Liðin vestanmegin þrepi ofar í NBA-deildinni Mikið fjör var í leikjum gærdagsins í Pepsi-deild karla í knattspyrnu. Grafarvogsbúar vilja sjálfsagt gleyma leiknum í Garðabæ sem fyrst og í Vesturbæ Reykjavíkur fengu áhorf- endur mikla skemmtun fyrir að- gangseyrinn. Fimm leikir fóru fram í deildinni um helgina og eru þeim öll- um gerð skil í íþróttablaði Morgun- blaðsins í dag. »2, 4 og 5 Fengu mikla skemmtun fyrir aðgangseyrinn ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Sumarið lítur mjög vel út og við er- um bjartsýn. Það hafa allir verið mjög ánægðir með þessa þjónustu, bæði Íslendingar og ferðamenn, enda er þetta einstakt hér. En þetta er ný afþreying, það eru engin bjórböð á Norðurlöndum, þannig að það tekur tíma að koma þessu á kortið,“ segir Agnes Sigurðar- dóttir, stofnandi og framkvæmda- stjóri Brugg- smiðjunnar Kalda á Árskógssandi. Ár er nú liðið síðan Agnes og hennar fólk opn- uðu Bjórböðin. Þessi viðbót við fyrirtækið hefur mælst vel fyrir og mikill straumur gesta kom fyrsta árið. „Það var mjög mikið að gera síðasta sumar. Vetur- inn var rólegri, en við ákváðum samt að hafa opið alla daga til að byggja fyrirtækið upp og kynna það. Það voru ekki margir dagar sem voru al- veg dauðir en við reiknuðum alltaf með því að þurfa að borga með þessu fyrsta veturinn. Og jafnvel þann næsta líka,“ segir hún. Einstakt útsýni í boði Í Bjórböðunum eru sjö ker og hægt er að taka á móti fjórtán manns í einu. Vinsælt er hjá pörum að fara saman í bað. Bjórbað fer þannig fram að fólk liggur í stóru keri sem fyllt er af bjór, vatni, humlum og geri í 25 mínútur. Að því búnu er farið í slök- unarherbergi í aðrar 25 mínútur. Bjórinn sem fólk baðar sig upp úr er ungur í gerjun. Þar af leiðandi hefur hann lágt pH-gildi og þykir hafa góð og mýkjandi áhrif á húð og hár. Gerið í bjórnum þykir ríkt af vítamínum og humlarnir af andoxunarefnum og sýrum. Fólki er ráðið frá því að fara í sturtu eftir bjórbaðið því það dragi úr þeim endurnærandi og mýkjandi áhrifum sem það hefur á húðina. Auk þess að baða sig upp úr bjór býðst gestum að fara í gufubað og í heita potta. Einstakt útsýni er úr pottunum, yfir Hrísey, Kaldbak, Þor- valdsdal og Múlann. „Það er meira að segja algengt að gestir í pottunum fái smá hvalaskoðun í bónus. Ég er fædd og uppalin hérna og man aldrei til þess að hafa séð hvali synda hérna inn og sýna sig. En þeir gera það nú og segja má að þeir hafi komið með bjórnum.“ Mikil tækifæri til staðar Í Bjórböðunum er glæsilegur veit- ingastaður. Segir Agnes að notast sé við hráefni úr sveitinni í kring auk þess sem bjórinn er áberandi. „Við höfum reynt að vanda okkur hér. Við leggjum þetta þannig upp að nú eru Bjórböðin komin og þá vilja kannski einhverjir fleiri gera eitthvað hér. Það þarf að koma einhver grunn- ur. Tækifærin eru til staðar. Við erum mjög miðsvæðis hérna, skammt frá Akureyri, Ólafsfirði og Sigló og svo er alltaf einhver ferðamannastraumur í Hrísey. Auk þess koma líka stundum ferðamenn hingað á þyrlum.“ Óhætt er að segja að margt hafi breyst síðan Agnes og maður hennar opnuðu Kalda árið 2006. „Já, við byrjuðum með tvær hend- ur tómar. Við áttum ekki neitt, seld- um bílinn okkar og veðsettum allt til að opna verksmiðjuna. Og fengum líka lán hjá foreldrum mínum og tengdaforeldrum. Núna erum við með 24 manns í vinnu og erum langstærsti vinnustaðurinn á Árskógssandi.“ Sumir fá hvalaskoðun í bónus  Ár síðan Bjór- böðin voru opnuð á Árskógssandi Morgunblaðið/Hari Einstök upplifun Gestir Bjórbaðanna geta skellt sér í heita potta þar sem útsýnið er einstakt. Stundum fá þeir ókeypis hvalaskoðun í bónus. Og þá er vissara að skála í Kalda eins og þessir herramenn gerðu á dögunum. Bjórbað Gestir liggja í bjórnum í 25 mínútur og slaka svo á eftir það. Agnes Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.