Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.06.2018, Page 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.06.2018, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.6. 2018 VETTVANGUR flokkarnir þrír eru lagðir saman. Það er að sjálfsögðu ótrúlega góður ár- angur. Þegar einstakir þjónustuflokkar eru skoðaðir kemur í ljós að Ísland er í efsta sæti hvað varðar veitingastaði, efsta sæti þegar kemur að afþreyingu og upplifun og fjórða sæti hvað varð- ar gistingu. Reykjavík er í öðru sæti á aðallist- anum yfir borgir, sem er ekki síður glæsilegur árangur. Í einstökum þjónustuflokkum er Reykjavík í öðru sæti hvað varðar veitingastaði og fimmta sæti í afþreyingu og upplifun en nær ekki inn á topp 10 listann yfir gistingu. Eins og áður segir sýnir mælingin ánægju viðskiptavina með þjónustu fyrirtækja sem þeir áttu viðskipti við. Árangurinn er því fyrst og fremst vitnisburður um fagmennsku og gæði íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja í þeim þjónustuflokkum sem um ræðir. Þau eiga heiður skilið fyrir slíka frammistöðu. Notendur TripAdvisor hafa alls sett þar inn yfir 630 milljón dóma um áfangastaði og fyrirtæki. Vefurinn er af þeirri stærðargráðu að niður- staðan í gæðakönnun hans getur óhikað talist marktæk: Ofangreind þjónusta á Íslandi er almennt séð á heimsmælikvarða. Meðmælaskorið: NPS Annar mælikvarði sem við fylgjumst með er svokallað meðmælaskor, en sú aðferðafræði er vel þekkt erlendis og kallast Net Promoter Score eða NPS. Meðmælaskor Íslands meðal er- lendra ferðamanna á síðasta ári var 74%. Þetta er mun betri einkunn en kann að virðast í fyrstu. Hún þýðir nefnilega ekki að Ísland fái að með- altali 74% í einkunn. Og hún þýðir ekki heldur að 74% ferðamanna mæli með Íslandi. Öðru nær. Meðmælaskorið er fundið þannig út að spurt er hversu líklegt sé að við- komandi muni mæla með Íslandi sem áfangastað, þar sem 10 þýðir að þeir muni örugglega mæla með Íslandi. Þeir sem svara 9 eða 10 eru taldir „meðmælendur“, en það er dálítið veik og jafnvel villandi þýðing á enska hugtakinu „promoters“, sem þýðir einskonar umboðsmenn, kynning- arfulltrúar, aðdáendur eða einarðir talsmenn. Í því felst sem sagt miklu kröftugri stuðningur en einföld með- mæli; þetta eru nánast sendiherrar okkar. Hlutfall þessara einörðu tals- manna meðal erlendra ferðamanna á Íslandi í fyrra var hvorki meira né minna en 78%. Þeir sem svara 7 og 8 eru álitnir hlutlausir og ekki teknir með í reikn- inginn. Þeir sem svara 6 eða minna eru taldir „gagnrýnendur“ eða „de- tractors“. Hlutfall þeirra er dregið frá hlutfalli meðmælenda til að fá út lokaeinkunn. Hlutfall gagnrýnenda var í okkar tilviki 4% og því er loka- einkunn okkar 74%. Þetta þykir mjög há einkunn. Hafa verður í huga að lægsta mögulega einkunn er ekki 0 heldur mínus 100%, þegar allir svara 6 eða minna. Al- mennt miða fyrirtæki og vörumerki við að vera að lágmarki yfir núllinu en allt yfir 50% þykir framúrskarandi. Merkilegur árangur Ofangreindar niðurstöður eru ekki síst merkilegar fyrir þá sök að vöxtur ferðaþjónustunnar hefur verið svo æv- intýralega hraður að við höfum naum- ast náð að bregðast nógu hratt við. Árið 2010 tókum við á móti um það bil hálfri milljón erlendra ferða- manna. Ef einhver hefði á þeim tíma tekið að sér að framfylgja því mark- miði að á sjö árum myndum við fjór- falda tölu ferðamanna ásamt því að ná efsta sæti í ánægjukönnun stærstu ferðasíðu heims og yfir 70% NPS- skori, þá er ekki ólíklegt að við vær- um í dag að verðlauna viðkomandi. Við eigum margt ógert. Áskor- anirnar eru margar og jafnvel þótt árlegur vöxtur færi niður í 7% myndi það þýða fjölgun um eina milljón ferðamanna á næstu fimm árum. Stjórnvöld og atvinnugreinin sjálf eru með fjölmörg verkefni í gangi, mörg hver í góðri samvinnu, sem munu stuðla að áframhaldandi framförum og þannig verja okkar góðu stöðu. Árangur íslenskrar ferðaþjónustu Úr ólíkum áttum Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir thordiskolbrun@anr.is Fyrir nokkrum dögum bárustþær fréttir að Ísland ogReykjavík hefðu raðað sér í efstu sæti í árlegri gæðamælingu TripAdvisor, sem er ein vinsælasta ferðasíða heims. Þetta eru töluverð tíðindi og bera íslenskri ferðaþjón- ustu gott vitni. Mælingin segir til um hversu hátt hlutfall fyrirtækja í þremur þjón- ustugeirum á viðkomandi markaðs- svæði (landi eða borg) hefur hlotið framúrskarandi meðaleinkunn hjá viðskiptavinum. Hún er með öðrum orðum til marks um það hversu hár „standard“ er almennt til staðar á viðkomandi svæði. Þjónusta á heimsmælikvarða Ísland er í efsta sæti á aðallista könn- unarinnar, þar sem allir þjónustu- ’Ef einhver hefði á þeim tíma tekið að sér aðframfylgja því markmiði að á sjö árum myndumvið fjórfalda tölu ferðamanna ásamt því að ná efstasæti í ánægjukönnun stærstu ferðasíðu heims og yfir 70% NPS-skori, þá er ekki ólíklegt að við værum í dag að verðlauna viðkomandi. Morgunblaðið/Eggert Dagur Hjartarson skáld er með skemmtilega lýsingu á landsliðs- hópnum í Rússlandi á Twitter, í anda Eurovision. Hann tísti meðal annars: „Íslenski hópurinn stígur á stóra sviðið á sama tíma og sá argentíski. Bæði atriðin skarta bláu þema, en níu sinnum hefur siguratriðið klæðst bláu. Löndin tvö hafa aldrei gefið hvort öðru stig, en það gæti breyst á laugardaginn. Það er Dagur Hjart- arson sem skrifar frá Rússlandi.“ Margrét Erla Maack burles- quedrottning með meiru tísti: „Þetta selfí með frægum er öm- urlegt kids. Ég snappaði á eitthvað aumingjans gæsa- partí í dag. Ég er manneskja, ekki þjóðareign. Ég er ekki merkilegri en annað fólk.“ Viðar Víkingsson kvikmynda- gerðarmaður skrifaði á Facebook: „Er Trump að reyna að líkja eftir stjórnunarstíl Jóns Gnarr? Sem borgarstjóri vildi Gnarr reisa vegg og tollhlið milli Reykjavíkur og Sel- tjarnarness eins og Trump vill gera milli BNA og Mexíkó. Gnarr atyrti Garðabæ eins og Trump Kanada. Gnarr vingaðist við Yoko Ono eins og Trump við Kim Jong-un.“ Og Salka Sól Eyfeld tónlistar- og dagskrárgerð- arkona tísti: „Ég er bæði matsár og svefnsár og þegar ég verð mjög þreytt fer ég að gráta.“ AF NETINU GAKKTU Á HLJÓÐIÐ STÓRTÓNLEIKAR Í HLJÓMSKÁLAGARÐINUM 17. JÚNÍ Gakktu á hljóðið og komdu í Hljómskálagarðinn á 17. júní. Skrúðganga leggur af stað kl. 13 frá Laugavegi / Snorrabraut og lýkur með stórtónleikum í Hljómskálagarðinum frá kl. 14–18. Auk tónleikadagskrár verða ýmsir viðburðir í boði fyrir alla fjölskylduna: Brúðubíllinn, skátaþrautir, listhópar, Sirkus Íslands og margt fleira. Sjáumst í hátíðarskapi. NÁNAR Á 17JUNI.IS #17JUNI 14:00 Stuðmenn 14:50 Heimilistónar 15:20 Ateria 15:30 Dansskóli Birnu Björns 15:45 Daði Freyr 16.20 Ronja Ræningjadóttir 16:40 Dans Brynju Péturs 17:00 Floni 17:30 Aron Can Kynnir: Margrét Erla Maack

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.