Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.06.2018, Side 23
Falleg svalaborð í frönskum stíl fást víða og það er ákaflega fagurt að hlaða þau
kryddjurtum í leirpottum.
Áttu gamlar trétröppur sem eru jafnvel með
málningarslettum á? Ekkert mál, plöntur gera
þær fallegar um leið og þú raðar þeim á. Svona
stykki gætirðu líka fundið í Góða hirðinum.
Umhverfisvænir smartpinnar finna að sjálfsögðu til
pappa- og plastmál undan núðlusúpum og slíku,
vefja í maskínupappír og binda snæri utan um.
Línan
2.400 kr.
Skittle-blómapottarnir
frá Present time gefa
fágað yfirbragð.
17.6. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
TÍSKA
Saint Laurent reið á vaðið íherratískusýningunumfyrir vorið 2019 með sýn-
ingu á stórbrotnum stað í stóra
eplinu fyrr í mánuðinum. Þar
hefur Anthony Vaccarello
verið við stjórn síðustu tvö
árin en hann er hrifinn af
dramatísku umhverfi og til
að mynda var Eiffelturninn
í sýningunni á kventísk-
unni fyrir haustið 2018. Í
þetta sinnið var það ekki
turninn í París sem blasti
við gestum á borð við Kate
Moss, Julianne Moore, Char-
lotte Gainsbourg og Casey
Affleck heldur háhýsi Manhattan.
Fötin voru í mjög rokkuðum stíl og í þeim
anda sem Hedi Slimane byggði upp í fjög-
urra ára veru sinni hjá franska tískuhúsinu.
Vaccarello segist þó ekki endilega hafa hugsað
um þetta á þennan hátt heldur segist hafa umkringt
sig með myndum af Yves Saint Laurent sjálfum frá
því á áttunda áratuginum þar sem hann er með sítt
hár og klæðist buxum sem eru háar í mittið og támjó-
um skóm. Hann segist hafa fengið innblástur frá
þessu útliti og síðan breytt því í takt við nútímann.
Þó þetta hafi verið herratískusýning tóku tíu kven-
kynsfyrirsætur líka þátt í sýningunni til að sýna fram
á fjölhæfni fatnaðarins. Ein þeirra var Kaia Gerber,
dóttir ofurfyrirsætunnar Cindy Crawford og Randys
Gerber. Hún var ekki eina barn fræga fólksins sem tók
þátt heldur gekk Lennon Gallagher sýningarpallinn en
hann er sonur Oasis-rokkarans Liams Gallagher og
fyrirsætunnar og leikkonunnar Patsy Kensit.
Sýningin fór fram í Li-
berty State Park með
útsýni yfir til Manhattan.
AFP
Rokknótt í New York
Kaia Gerber var á meðal
þeirra kvenna sem tóku þátt.
Vaccarello fékk innblástur frá Yves Saint
Laurent sjálfum á áttunda áratuginum
Herratískan fyrir vorið 2019 er rokkuð hjá Saint Laurent
og gætti áhrifa frá áttunda áratugi síðustu aldar.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Lennon Gallag-
her er sonur
Liams Gallagher.
Verð og vöruupplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur.
Yfirstrikað verð sýnir fullt verð vöru.
Verð gildir til 8. júlí 2018, eða á meðan birgðir endast.
VERSLUNIN ER LOKUÐ 17. JÚNÍ
Á ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGINN
EN VIÐ OPNUM AFTUR
KL. 1000 Á MÁNUDAG
GLEÐILEGA HÁTÍÐ