Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.06.2018, Page 25

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.06.2018, Page 25
1 bolli pistasíur ¾ bolli sesamfræ 2 msk kóríanderfræ 2 msk cuminfræ (ath.: ekki kúmen) ½ msk fennelfræ ½ tsk svört piparkorn smakkað til með salti Ristið pistasíur þar til þær eru orðnar brúnleitar. Rist- ið sesamfræin þar til þau eru orðin ljósbrún. Ristið kóríander-, cumin- og fennelfræin, ásamt pip- arkornunum þar til það ilm- ar allt af dásamlegri krydd- lykt. Látið öll hráefnin í mat- vinnsluvél og vinnið blönd- una niður í það form sem þið kjósið, fínmalað eða grófmalað. Geymið í loftþéttum um- búðum. Æðislegt að strá yfir pítsu. Dukkah 17.6. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25 Pestó á pítsuna 2 búnt basil 1-2 rif hvítlaukur safi úr ½ sítrónu ½ l ólífuolía 50 g ristaðar furuhnetur 75 g rifin parmesan-ostur salt og pipar Setjið basil, hvítlauk, sí- trónusafa og ólífuolíu í blandara og maukið vel saman. Bætið út í rist- uðum furuhnetum og blandið áfram. Setjið þá út í parmesan-ostinn og hrærið honum saman við með sleif. Kryddið með salti og pipar. Þetta geymist vel í kæli og er tilvalið að setja ofan á pizzur. Pítsu-sósa 1 dós góðir tómatar 2 msk ólífuolía 5 gr salt frá Saltverk Öllu blandað saman í blandara. Dugar á þrjár 12“ pítsur. Tilvalið er að setja chilli- majó yfir pítsur til að gera þær meira spennandi. 50 gr Sambal Oelek 10 gr Sriracha sósa 15 gr olía 300 gr majónes salt og pipar Blandið saman Sambal Oelek, Sriracha sósu og olíu og bætið svo majónesi sam- an við. Kryddið með salti og pipar. Chilli- majó

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.