Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.06.2018, Side 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.06.2018, Side 29
17.6. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 eins og maður gerir núna á hjóli.“ Jón tekur undir það og bætir við: „Maður drekkur náttúruna meira í sig og svo spjallar maður líka við fólk sem maður færi ekkert að tala við annars. Allt verður einhvern veginn nær manni, bæði náttúran og fólkið. Alls staðar sem maður kemur vill fólk spjalla; það sér að maður er á hjóli og spyr hvernig gengur.“ Ekkert snyrtiveski með Þau hjónin hlæja bæði þegar blaða- maður spyr hvort þau hafi ekkert íhugað það einhvern tíma að kalla þetta bara gott og taka bílaleigubíl? „Það er alla vega ekki komið að því ennþá,“ segir Edda. „En við tök- um líka frí inn á milli. Yfirleitt hjól- um við ekki meira en þrjá daga í röð og tökum einn eða tvo frídaga inn á milli. Við höfum notað þá til að skoða okkur um, fara á ströndina eða gera eitthvað annað skemmtilegt.“ Þau segja farangrinum haldið í al- gjöru lágmarki. „Við erum með tvær hjólatöskur á mann, og í þeim er bara það allra nauðsynlegasta. Við erum með hjólafötin og stuttbuxur og boli, tannbursta og svitalyktareyði. Maskarinn var ekki einu sinni tekinn með. Það er ekkert snyrtiveski,“ segir Edda og hlær. „En það eru þvottavélar á þessum stöðum þar sem við gistum þannig að það er hægt að þvo. Þetta er svo- lítið frumstætt en það er bara gaman líka.“ Að Íslendinga sið spyr blaðamað- ur um veðrið og þau Edda og Jón segjast hafa verið heppin með veður. Það hafi rignt heilmikið í tvo daga en þau hafi verið búin að gera ráð fyrir því þar sem þetta sé rigningartími á svæðinu. „Hitinn hér er í kringum fimmtán til tuttugu gráður en það hlýnar eftir því sem við förum sunnar. Þetta er mjög þægilegt hjólaveður og hentar okkur vel þótt þetta þyki kannski að- eins of kalt fyrir þá sem eru vanir meiri hita,“ segir Edda. Hvað mynduð þið ráðleggja fólki sem hyggur á svona ferð? „Fyrst og fremst að undirbúa sig vel, vera búið að hjóla svolítið mikið og skipuleggja hvernig þetta á að vera,“ segir Edda. Jón bætir við: „Svo þarf líka að vera búið að skoða leiðina sem á að hjóla og gera ráð fyrir að stundum þurfi maður að klifra mikið, maður er ekkert alltaf að hjóla bara á jafnsléttu.“ Öðruvísi upplifun Edda og Jón segja að fegurðin á þessu svæði sé mikil. En hvað skyldi standa upp úr í ferðinni fram að þessu? „Það var mjög gaman að gista í svokölluðu yurt-tjaldi í Vernonia Springs, sem var þó ekki beint tjald heldur frekar eins og kofi sem tjald- að er yfir,“ segir Edda. „Annars er líka gaman að upplifa allt aðra Am- eríku en maður er vanur. Hér eru engin háhýsi, bara mikið af litlum, sætum timburhúsum. Og það er mikill skógur hérna. Þetta minnir mig dálítið á Skandinavíu.“ Þau hjón hafa áður ferðast víða í Bandaríkjunum og Jón tekur undir með Eddu: „Þetta er bara allt öðru- vísi en maður hefur upplifað hingað til.“ Jón og Edda þurfa að gera nokk- urra daga hlé á hjólaferðinni þar sem Jón þarf að fara til Rússlands í vinnuferð. Hann nær þó ekki að kíkja á HM í fótbolta. „Það hefði verið gaman en ég verð í austurhluta Rússlands sem er of langt í burtu.“ Á meðan ætlar Edda að fara heim til Íslands en hún flýgur svo aftur út til Bandaríkjanna þegar Jón snýr til baka frá Rússlandi. „Við geymum hjólin hérna úti,“ segir Edda, „og höldum svo bara áfram þar sem frá var horfið og klár- um hjólatúrinn til San Francisco.“ Þar ætla þau hjónin að dvelja í fimm daga og skoða sig um áður en þau fara aftur heim til Íslands eftir hjólaferðina sem þau segja bæði að sé mikið ævintýri. „Það eru auðvitað forréttindi að fá að upplifa þetta og maður gerir sér grein fyrir því að það eru ekkert allir sem fá tækifæri til þess,“ segir Jón. „Þetta var bara eitthvað sem okkur fannst við verða að gera. Og það er ekkert víst að maður geti það eftir eitt ár, fimm ár eða tíu ár. Þetta er draumur sem er orðinn að veru- leika.“ Edda og Jón segjast upplifa náttúruna og fegurðina í henni á annan hátt á hjóli en í bíl. Í Vernonia Springs gistu Edda og Jón í svokölluðu yurt-tjaldi. Jóni og Eddu finnst umhverfið minna á Skandinavíu. ’Við erum með tværhjólatöskur á mann,og í þeim er bara þaðallra nauðsynlegasta. Við erum með hjólafötin og stuttbuxur og boli, tann- bursta og svitalyktareyði. Fyrsta dagleiðin lá eftir gamalli járnbrautarleið úti í sveit. Farangrinum er haldið í lágmarki og aðeins helstu nauðsynjar teknar með. SÍGILDIR SUNNUDAGAR Fyrsta flokks kammertónlist Sígildir sunnudagar eru klassísk tónleikaröð þar sem boðið er upp á fjölbreytt úrval kammertónleika. Sunnudaga kl. 17:00 í Hörpu jakkafatajoga.is ÁNÆGJA EFLING AFKÖST

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.