Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.06.2018, Page 35

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.06.2018, Page 35
Hugmyndin að Þjáningar-frelsinu kom upp þegarAuði Jónsdóttur var stefnt fyrir pistil sem hún birti á Kjarn- anum. Viðfang og höfundafjöldi bókarinnar óx og breyttist eftir því sem á leið en að lokum stendur eftir veglegt safn af skoðunum ólíks fólks um fjölmiðla. Hvernig kom bókin til? „Mig langaði að skrifa bók um það hvernig það væri að vera í málaferl- um, sama hvernig þau færu kæmi eitthvað gott upp úr þeim. Ég byrj- aði á að tala við lögfræðingana mína og fjölmiðlafólk í kringum mig og þá reyndist áberandi hversu flækings- legt er að vinna við fjölmiðla svo ég varð forvitin og bókin breyttist. Eft- ir að ég talaði við Elvu Ýri Gylfa- dóttur og Heiðdísi Lilju Magnús- dóttur hjá fjölmiðlanefnd fattaði ég að þetta væri að vinda upp á sig og að ég þyrfti að fá höfund með mér. Þá var ég heppin að hafa þolinmóðan forleggjara sem treysti þessu rugl- ingslega vinnuferli mínu. Fyrst fékk ég til liðs við mig Arn- dísi Þorgeirsdóttur, fyrrverandi fréttastjóra, sem heltist síðar úr lestinni, en þá var hún búin að finna Steinunni Stefánsdóttur, fyrrver- andi aðstoðarritstjóra, og í kjölfarið kom til liðs við okkur Bára Huld Beck, blaðamaður á Kjarnanum, og við unnum bókina þrjár. Bókin varð eins konar mósaík af tíðaranda í fjöl- miðlum, þar sem við vildum í bland tala við fræðifólk og heimspekinga frekar en að gera eitthvað í ætt við annál fyrir Blaðamannafélagið. Við vildum fá greiningu á aðstæðum og hvað fjölmiðlar eru í dag.“ Voru einhver sameiginleg stef? „Það voru ákveðnir gegnum- gangandi hlutir eins og til dæmis atvinnuóöryggi og fylgifiskur þess þegar safnast ekki upp næg reynsla á ritstjórnum því að fólk fer hratt í gegn. Þannig getur með- al annars skapast hætta á var- hugaverðum skorti á sérhæfingu og að fjölmiðlafólk líti upp til við- mælenda. Reynsla í þessu fagi er ómetanleg, þótt nýtt og ungt fólk sé vissulega nauðsynlegt líka. Það var líka töluvert talað um hvernig fjölmiðlafólk lendir í per- sónuárásum. Að sjálfsögðu er gott að gagnrýna fjölmiðla, en það er stundum gert af hvatvísi og van- hugsun. Þannig getur skapast menning þar sem sjálfsagt þykir að tala niður fjölmiðla og láta þá stýrast af hagsmunum. Áhrifamenn sem vilja hafa áhrif á fjölmiðla eiga oft of auðvelt með það. Sumir bentu líka á að ójafnvægi getur skapast þegar al- mannatenglar eru með meiri reynslu en blaðamenn. Í þessum tíðaranda þarf síðan að greiða úr falsfréttum og upplýsingamengun, svo að styrk- ar og reyndar ritstjórnir eru ólýs- anlega mikilvægar á breyttum tím- um. Tækninni fylgja jú krefjandi aðstæður, nokkuð sem ýmsir höfðu á orði.“ Ertu bjartsýn á stöðu fjölmiðla á Íslandi? „Í dag er náttúrulega miklu meira talað um málfrelsi og tjáningarfrelsi en áður fyrr. Úlfar Þormóðsson seg- ir til dæmis í viðtali sínu um Spegils- málið að orðið tjáningarfrelsi hafi ekki borið þar á góma. Sjón segir í viðtali sínu að við höfum ekki, sem samfélag, verið búin að ræða ýmis grundvallarlýðræðisréttindi þegar við fengum þau á silfurfati – en í dag erum við að lifa þau. Nútíma- samfélag kallar eftir aukinni vitund okkar sem fjölmiðlaneytenda. Við megum ekki vera hrædd að ræða þessi hugtök á hverjum degi og velta þeim fyrir okkur – þó að þeim fylgi stundum hausklór. Baklandið fyrir blöðin í dag er náttúrulega gömlu flokkablöðin – og svo verða til viðskiptablokkir að baki stærri miðlunum sem hafa, að ógleymdu hinu ríkisrekna RÚV, sterka stöðu miðað við sjálfstæða litla fjölmiðla – umhverfið er svolítið eins og villta vestrið. Einhverjum viðmælendum fannst að í íslenskum fjölmiðlum mætti al- mennt vera minni hávaði og meiri greining, meiri upplýsingavinnsla og fleiri fréttaskýringar en minna af skoðunum. Það er einfalt að fram- leiða smellibeitur og skoðanapistla, en það verður oft á kostnað frétta- skýringa. Ég bjó í níu ár í þremur Evrópulöndum og þar vandist mað- ur mun dýpri fréttaskýringum og margslungnari umræðu. En ég flutti á miklum mótunarárum til Kaup- mannahafnar og það að lesa þessi þykku helgarblöð var besti skóli sem ég hef farið í. Ég er þakklát góðum fjölmiðlum því þeir kenna okkur ákveðin hugtök og ákveðna lífs- leikni. Við lærum af því að vera fjöl- miðlaneytendur. Á móti kemur að við þurfum að vera kröfuharðir, meðvitaðir neytendur.“ Mósaík af tíðaranda Þjáningarfrelsið – Óreiða hugsjóna og hagsmuna í heimi fjölmiðla er nýútgefið samansafn skoðana og hugleiðinga fjölda fólks um flókinn heim fjölmiðla. Arnar Tómas Valgeirsson arnart@mbl.is Auður Jónsdóttir segir fjölmiðlum á Íslandi svipa til villta vestursins. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson 17.6. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35 BÓKSALA 6.-12. JÚNÍ Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 UppgjörLee Child 2 OfurhetjuvíddinÆvar Þór Benediktsson 3 Sumar í litla bakaríinu við Strandgötu Jenny Colgan 4 Ævintýraeyjan TenerifeSnæfríður Ingadóttir 5 Tólf lífsreglurJordan Peterson 6 StormfuglarEinar Kárason 7 Handbók fyrir ofurhetjur Annar hluti — Rauða gríman Elias/Agnes Vahlund 8 Marrið í stiganumEva Björk Ægisdóttir 9 KapítólaEmma D.E.N. Southworth 10 BlóðengillÓskar Guðmundsson 1 OfurhetjuvíddinÆvar Þór Benediktsson 2 Handbók fyrir ofurhetjur Annar hluti — Rauða gríman Elias/Agnes Vahlund 3 Ísland á HMGunnar Helgason 4 Kamilla Vindmylla og svikamillurnar Hilmar Örn Óskarsson 5 Risasyrpa sniðugra upp- finninga Walt Disney 6 VillinornLene Kaaberbøl 7 Stóra bókin um Hvolpasveitina Mary Tillworth 8 Alein úti í snjónum Holly Webb 9 Bernskubrek Ævars — PakkiÆvar Þór Benediktsson 10 Risasyrpa Sögufrægar endurWalt Disney Allar bækur Barnabækur Um þessar mundir er ég að lesa smásöguna The Shadow Line eftir Joseph Conrad (sem er í miklu uppáhaldi) og bókina Asymmetry eftir Lisa Halliday, en hin síðarnefnda byggist lauslega á ástarsam- bandi höfundar og bandaríska stór- skáldsins Philip Roth (hvíl í friði). Asymmetry hef ég les- ið hægt og rólega á Eymundsson á Austurstræti og er hún stórfín. Hún geymir meðal annars eftirfarandi tilvísun í Ambrose Bierce: „Stríð er leið Guðs til þess að kenna Bandaríkja- mönnum landa- fræði.“ Það eru margar bækur sem eru á leslistanum og þá aðallega helstu verk Philip heitins Roth. Svo er ég alltaf að gefast upp og byrja aftur á Ódysseifi eft- ir Joyce, Infinite Jest eftir Wallace og Stríði og friði eftir Tolstoy (ég virð- ist ekki hafa vitsmuni til að klára). ÉG ER AÐ LESA Ragnar Tómas Hall- grímsson Ragnar Tómas Hallgrímsson er rit- stjóri SKE og forsprakki bóka- klúbbsins Viskí og bækur Hin fullkomnaþrennaVel samsett boost, einusinni á dag, eykur orkuna,kemur meira jafnvægi áblóðsykurinn. Candéa Byggir upp og kemur jafnvægi á þarma- flóruna. Öflugt fyrir ónæmiskerfði og vinnur á candéa sveppnum. Betri melting Aukin orka Öflugra ónæmiskerfi Meltingin og þarmaflóran er grunnur að góðri heilsu Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna. Digest Spectrum – einnig gegn fæðuóþoli • Styður meltingu á glúteini, laktósa, kaseini, próteini og baunum. • Hentar vel þeim sem glíma við ýmiskonar fæðuóþol. • Viðurkennt af Autism Hope Aliance. • Hentar allri fjölskyldunni, tekið rétt fyrir mat.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.