Fréttablaðið - 13.10.2018, Side 8
Drekktu í þig menninguna
Brostu framan í Mónu Lísu, farðu í ævintýraleiðangur með Tinna og Tobba eða klappaðu
Berlínarbirninum. Stórborgirnar á meginlandi Evrópu eru mögnuð uppspretta menningar
og lista. Þræddu söfn, gallerí og verslanir og fylgstu svo með mannlífinu á götukaffihúsi.
Aldrei hefur verið auðveldara að njóta lífsins í menningarborgum Evrópu.
MENNINGARBORGIR EVRÓPU
Verð aðra leið frá 15.700 kr.
Verð frá 24.100 Vildarpunktum
StjórnSýSla Í yfirlýsingu Strætó
sem send var fjölmiðlum í fyrradag
um bílstjóra sem ráðnir hafa verið
í gegnum starfsmannaþjónustuna
Elju kemur fram að þeir hafi haft
húsaleigusamning við Elju en leigan
hafi verið dregin af launum þeirra
hjá Strætó.
Í svari Strætó við fyrirspurn Sam-
taka leigjenda frá árinu 2016 er hins
vegar fullyrt að Strætó komi ekki
með neinum hætti að innheimtu
leigugreiðslna.
„Strætó kemur ekki með neinum
hætti að leigu, leigusamningum eða
leigukostnaði viðkomandi starfs-
manna né dregur leigukostnað frá
launum þeirra. Þeir sjá um þær
greiðslur algjörlega sjálfir til við-
komandi eigenda,“ segir í svari
Strætó við fyrirspurn frá Samtökum
leigjenda.
„Á þessum tíma var mikill skortur
á leiguhúsnæði og við vorum að
forvitnast um hvernig þessir starfs-
menn myndu búa, en það var tölu-
vert um að verkafólk héldi til í
iðnaðarhúsnæði vegna húsnæðis-
skorts,“ segir Jóhann Már Sigur-
björnsson, fyrrverandi formaður
Samtaka leigjenda.
Í svari Strætó kemur fram að
starfsmennirnir komi til starfa hjá
Strætó í gegnum ráðningarþjónust-
una Elju, sem útvegi þeim leiguhús-
næði. Um sé að ræða íbúðarhúsnæði
í fjölbýlishúsum á höfuðborgar-
svæðinu og muni starfsmennirnir
búa saman í íbúðum. Þeir eigi kost
á að velja annaðhvort einstaklings-
herbergi eða tveggja manna her-
Sagði bílstjórana sjá um greiðslu til Elju
Strætó sagðist ekki annast milligöngu um innheimtu húsaleigu af starfsmönnum til starfsmannaþjónustunnar Elju í svari við fyrir-
spurn Samtaka leigjenda árið 2016. Í yfirlýsingu frá Strætó í fyrradag segir hins vegar að Strætó hafi haft milligöngu um greiðslurnar.
Enginn starfar hjá Strætó í dag fyrir milligöngu Elju en nokkrir hafa verið fastráðnir sem komu þaðan. Fréttablaðið/StEFán
bergi. Leiguverð á mánuði sé 45-60
þúsund krónur eftir því hvort þeir
velja að vera einir eða tveir saman
í herbergi.
„Á þeim tímapunkti þegar ég
svaraði þessum pósti frá Leigjenda-
samtökunum, þá lá í rauninni ekki
fyrir neitt samkomulag um að við
myndum draga húsaleigu af starfs-
mönnunum og þess vegna svaraði
ég þessu með þessum hætti,“ segir
Sigríður Harðardóttir, mannauðs-
stjóri Strætó.
Hún segir að langan tíma hafi
tekið að fá öll nauðsynleg gögn að
utan, skilríki, ökuréttindi og þess
háttar og umræða um húsnæðis-
málin hafi setið á hakanum. „Það
var ekki fyrr en seinna í maí sem
þetta kom til umræðu og rætt hvort
við séum tilbúin til að draga leiguna
af launum, ég samþykki það en gegn
því að það liggi fyrir samþykki allra
starfsmannanna.“ Samþykki hafi
svo komið frá þeim öllum og Strætó
í kjölfarið samþykkt tillögu Elju
um hvernig þetta yrði gert. Sigríður
Þegar ég svaraði
þessum pósti frá
Leigusamtökunum, þá lá í
rauninni ekki fyrir neitt
samkomulag um að við
myndum draga húsaleigu af
starfsmönnunum.
Sigríður Harðardóttir, mannauðsstjóri
Strætó bs.
segir þetta samkomulag þannig ekki
hafa legið fyrir fyrr en eftir að hún
svaraði póstinum frá Samtökum
leigjenda.
Málefni Strætó og starfsmanna-
þjónustunnar komust í hámæli
eftir að Sanna Magdalena Mörtu-
dóttir birti langa færslu á Facebook
um meinta bága stöðu erlendra
starfsmanna Strætó. Í kjölfarið birti
Strætó fyrrnefnda yfirlýsingu þar
sem því er hafnað að brotið sé á
réttindum og kjörum starfsmanna
fyrirtækisins.
Í yfirlýsingunni segir að fyrirtæk-
ið hafi leitað til Elju haustið 2017
vegna aukinnar starfsmannaþarfar
í kjölfar breytinga og bættrar þjón-
ustu hjá Strætó. Eins og Fréttablaðið
greindi frá í gær, leitaði Strætó hins
vegar fyrst til Elju vorið 2016 og
hefur mannað sumarafleysingar
með aðstoð Elju þrjú undanfarin
sumur en ekki einungis sumarið
2018 eins og skilja mátti á yfirlýs-
ingu Strætó. adalheidur@frettabladid.is
1 3 . o k t ó b e r 2 0 1 8 l a U G a r D a G U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
1
3
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:3
0
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
1
1
-F
2
4
C
2
1
1
1
-F
1
1
0
2
1
1
1
-E
F
D
4
2
1
1
1
-E
E
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
0
4
s
_
1
2
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K