Fréttablaðið - 13.10.2018, Page 42

Fréttablaðið - 13.10.2018, Page 42
Hlutverk Póst- og fjarskiptastofnunar er að tryggja hagkvæm, örugg og aðgengileg fjarskipti og póstþjónustu og efla virka samkeppni á markaði. Meginþungi starfseminnar eru fjarskipti og tengd mál. Hjá PFS starfa 26 starfsmenn, aðallega sérfræðingar við úrlausn tæknilegra, viðskiptalegra og lagalegra verkefna er tengjast hlutverki stofnunarinnar. Sjá nánari upplýsingar á www.pfs.is Póst- og fjarskiptastofnun leitar að öflugum sérfræðingi til liðs við tæknideild stofnunarinnar. Sérfræðingurinn verður hluti af teymi starfsmanna sem vinnur náið saman að skipulagi tíðnimála, úthlutun tíðna og númera, eftirliti með ljósvakanum o.fl. Þá er net- og upplýsingaöryggi fjarskiptakerfa hluti af starfsemi tæknideildar. Helstu verkefni og ábyrgð: • Eftirlit með ljósvakanum, þ.e. fyrirbyggjandi aðgerðir gegn radíótruflunum ásamt truflanaleit • Markaðseftirlit • Skipulag og úthlutun tíðna og númera • Aðkoma að verkefnum sem miða að aukinni sjálfvirknivæðingu starfs tæknideildar Auk þessara verkefna er um að ræða almennt eftirlit með reglum um net- og upplýsingaöryggi, ásamt stuðningi við störf annarra deilda. Þátttaka í innleiðingu gæðaferla tæknideildar er einnig mikilvægur þáttur í starfinu. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólapróf í verk – eða tæknifræði, upplýsingatækni eða sambærileg menntun á raunvísindasviði. Framhaldsnám eða starfsreynsla á sviði fjarskipta er kostur • Góður skilningur á upplýsingatækni og þekking á helstu þáttum í framkvæmd UT verkefna • Þekking á uppbyggingu og virkni fjarskiptaneta æskileg • Einnig þarf viðkomandi að geta unnið skipulega í að greina og svara erindum • Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti • Ríkuleg samskiptafærni ásamt öguðum og skipulögðum vinnubrögðum • Sjálfstæð vinnubrögð og hæfni til að vinna í hópi ásamt því að búa yfir bæði sveigjanleika og festu sem nauðsynleg er í samstarfi við fjarskiptafélög á Íslandi Sérfræðingur á sviði radíómála Um er að ræða krefjandi starf í síbreytilegu og spennandi umhverfi þar sem gerðar eru miklar fagkröfur. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Frekari upplýsingar um starfið Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. PFS hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um störf hjá stofnuninni. Umsóknarfrestur er til og með 15. október nk. Umsjón með starfinu hefur Þorleifur Jónasson forstöðumaður tæknideildar. Umsóknir óskast fylltar út á heimasíðu PFS www.pfs.is. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Krafist er sakavottorðs. Umsóknarfrestur er til og með 23. október 2018.Rio Tinto Straumsvík Pósthólf 244 222 Hafnarfjörður Sími 560 7000 www.riotinto.is Rafvirki Rio Tinto á Íslandi óskar eftir að ráða rafvirkja til starfa, til að sinna fjölbreyttum störfum á aðalverkstæði fyrirtækisins. Rio Tinto á Íslandi er þekkingarfyrirtæki sem rekur álverið ISAL í Straumsvík. Við bjóðum upp á margbreytileg störf og fjölbreytt verkefni þar sem hugvit, þekking og kunnátta starfsmanna gegna lykilhlutverki. Við leggjum áherslu á markvisst fræðslustarf, gott upplýsingaflæði og umhverfi sem hvetur til góðrar frammistöðu. Framtíð okkar byggist á framúrskarandi starfsfólki sem skapar öruggan og eftirsóttan vinnustað. Áhersla ISAL á öryggis-, umhverfis- og heilbrigðismál er forsenda framúrskarandi árangurs. Við leggjum okkur fram um að starfa í sátt við umhverfi og samfélag. Gildi ISAL eru ábyrgð, samvinna, heilindi og virðing. Starfssvið: » Fyrirbyggjandi viðhald og rekstur á rafbúnaði » Bilanagreining á framleiðslubúnaði » Almenn viðgerðarvinna » Bakvaktir Menntunar – og hæfniskröfur: » Sveinspróf í rafvirkjun » Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileiki til að vinna í hópi » Góðir samskiptahæfileikar » Almenn tölvuþekking » Reynsla af rafvirkjavinnu í iðnaðar- umhverfi og háspennubúnaði er kostur Nánari upplýsingar veita Stefán Þór Ragnarsson og/eða Ágúst Helgi Jóhannesson í síma 560 7000. Áhugasamir eru beðnir um að fylla út atvinnuumsókn á vef fyrirtækis www.riotinto.is. 4 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 3 . o k Tó b e R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R 1 3 -1 0 -2 0 1 8 0 4 :3 0 F B 1 0 4 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 1 2 -1 4 D C 2 1 1 2 -1 3 A 0 2 1 1 2 -1 2 6 4 2 1 1 2 -1 1 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 1 0 4 s _ 1 2 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.