Fréttablaðið - 13.10.2018, Page 79
Ástkær sonur okkar, bróðir og mágur,
Snorri Jónsson
viðskiptafræðingur,
varð bráðkvaddur 11. október
á heimili sínu. Útför hans fer fram frá
Bústaðakirkju föstudaginn 19. október
kl. 11.00.
Jón Snorri Snorrason Sigríður Knútsdóttir
Tryggvi Jónsson Rúna Thors
Hildur Jónsdóttir Alfredo Ferrise
Elskuleg systir okkar,
Guðríður Jónsdóttir
(Dódó)
andaðist 10. október.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu
miðvikudaginn 17. október kl. 15.
Sveinn Jónsson
Gunnar Jónsson
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Halldóra Guðmundsdóttir
frá Raufarhöfn,
Lyngholti 6, Akureyri,
sem lést á dvalarheimilinu Hlíð
sunnudaginn 30. september,
verður jarðsungin frá Glerárkirkju
þriðjudaginn 16. október kl. 13.30.
Guðmundur Bárðarson Steingerður Steinarsdóttir
Jóhanna Bárðardóttir Guðni Þóroddsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir minn,
Jón Þórarinn Bárðarson
frá Vík í Mýrdal,
Engihjalla 3, Kópavogi,
lést á Landspítalanum þann
2. október síðastliðinn.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju,
fimmtudaginn 18. október kl. 13.00.
Bárður Jónsson
Þökkum auðsýnda samúð við andlát
og útför elskulegs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
Vals Aðalsteins
Jóhannessonar
Skeiðarvogi 141,
Reykjavík.
Sigrún Pétursdóttir
Emma Ingibjörg Valsdóttir Valtýr Björn Thors
Þóra Valsdóttir Ronald P. F. Janssen
Pétur Valsson Björn Erlingur Flóki Björnsson
og Pétur Valur, Tomas og Daníel
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts ástkærs
eiginmanns, föður, tengdaföður
og afa,
Braga Þorsteinssonar
bónda, Vatnsleysu, Biskupstungum.
Halla Bjarnadóttir
Ingunn Birna Bragadóttir
Ragnheiður Bragadóttir Eymundur Sigurðsson
Kristrún Bragadóttir Björn Davíð Þorsteinsson
og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts
ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu, langömmu
og langalangömmu,
Þóru Lilju Bjarnadóttur
Sólvangsvegi 1,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjartadeildar LSH,
14 EG fyrir góða umönnun.
Bjarni Valdimarsson Guðfinna Karlsdóttir
Eygló Valdimarsdóttir Guðjón Þorvaldsson
Halldóra Valdimarsdóttir Valur Svavarsson
og ömmubörnin.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Ásbjörn Vigfússon
lést 15. september 2018. Útför fór
fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Guðrún Ólafsdóttir
Guðbjörg Ásbjörnsdóttir
Guðlaugur Ásbjörnsson Aníta Hannesdóttir
Ásdís Ásbjörnsdóttir
Dagbjört Ásbjörnsdóttir Vytautas Narbutas
börn og barnabörn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar
elskulegrar móður okkar,
Elínbjargar Kristjánsdóttur
(Ellu),
Boðahlein 22, Garðabæ.
Sérstakar þakkir færum við nágrönnum
við Boðahlein og samstarfsfólki Ellu í tómstundastarfi
Hrafnistu. Einnig viljum við koma á framfæri þökkum til
sr. Guðna M. Harðarsonar, Útfararstofu kirkjugarðanna,
tónlistarmanna og allra annarra sem tóku þátt í að gleðja
okkur á kveðjustund Ellu.
Pétur, Sigrún, Trausti, Einar, Sigurður,
Bragi, Ester, Ágústa, Davíð og Kári
Unnsteinsbörn og Elínbjargar
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Benedikt Hans Alfonsson
skólastjóri Siglingaskólans,
Vatnsholti 8, Reykjavík,
lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu
Grund, 29. september. Útförin fer fram frá
Dómkirkjunni í Reykjavík, 15. október kl. 13.00.
Katrín Jónsdóttir
Guðleif Hlíf Benediktsdóttir Jan Lönnqvist
Jón Atli Benediktsson Stefanía Óskarsdóttir
Kristín Benediktsdóttir Jón Pétur Friðriksson
Anna Þóra Benediktsdóttir
Helgi Benediktsson María S. Norðdahl
Kjartan Benediktsson Lísa Anne Libungan
og barnabörn.
Hjartans þakkir fyrir hlýhug og vináttu
vegna andláts eiginmanns míns,
ástvinar, föður, tengdaföður,
afa og langafa,
Lúðvígs A. Halldórssonar
fv. skólastjóra í Stykkishólmi.
Guðrún R. Kristjánsdóttir Guðrún I. Árnadóttir
Grétar F. Jakobsson Guðrún H. Hjálmarsdóttir
Lára Lúðvígsdóttir Sigurður G. Guðjónsson
Halldór Lúðvígsson Margrét Þ. Sigurðardóttir
María R. Lúðvígsdóttir Björgvin G. Sigurðsson
afa- og langafabörn.
Elsku hjartans sonur minn,
bróðir okkar, mágur og frændi,
Kristján Ketilsson
lést á heimili sínu, sambýlinu Hlein
í Mosfellsbæ, í faðmi fjölskyldunnar
miðvikudaginn 3. október.
Útför fer fram frá Grafarvogskirkju
mánudaginn 15. október kl. 13.00.
Auður Ásta Sigríður Jónasdóttir
Bára A. Ketilsdóttir Örn Gunnarsson
Írunn Ketilsdóttir Tómas Sigurðsson
Steinunn Ketilsdóttir Snorri Þórisson
Jónas Ketilsson Sigríður M. Óskarsdóttir
frændsystkin og fjölskyldur.
Það er bara eins og Gústi sé kominn. Hann stóð þarna á torginu í yfir 40 ár, pre-dikaði og söng og gaf öllum miða með ritningarorðum,“ segir séra Vigfús Þór Árnason
um styttu þá sem búið er að koma fyrir á
Ráðhústorginu á Siglufirði og afhjúpuð
verður klukkan 14 í dag og vígð.
Ágúst Gíslason hét hann, fæddist 1897
og dó 1985. „Móðir hans dó þegar hann
var ungur en amma hans tók hann að
sér og ól hann upp í góðum siðum, lét
hann til dæmis lesa einn passíusálm á
dag á föstunni, þannig sköpuðust trúar-
stefin,“ segir séra Vigfús og heldur
áfram. „Svo hitti Gústi guð sinn
á Akureyri og gerði samning,
keypti bátinn Sigurvin, reri
á honum í 40 ár og varði öllu
sem hann þénaði til kristniboðs
og góðverka. Studdi til dæmis 50
indíánabörn í Bólivíu frá því þau
voru kornung, þegar hann dó höfðu
mörg þeirra lokið stúdentsprófi.“
Styttan er steypt í brons af Ragn-
hildi Stefánsdóttur. Auk Vigfúsar
stóðu þeir Kristján L. Möller,
fyrrverandi ráðherra, og Her-
mann Jónasson framkvæmda-
stjóri fyrir gerð minnis-
varðans. „Við eigum góða
vildarvini,“ segir séra Vigfús.
„Í fjölmennri Siglufjarðar-
messu í Grafarvogskirkju
fyrir nokkrum árum
var hugmyndinni
hreyft og allir stóðu
upp og klöppuðu.
Maður fann strax
mikinn byr.“
Hann nefnir meðal
annars Birki Baldvinsson
og Pál Samúelsson sem
hafi styrkt framtakið. „Þeir
eru báðir Sigl-
firðingar sem
misstu mæður
sínar, þá voru
ekki félagslegar
stofnanir eins
og núna, fólk
stóð bara á klak-
anum kalda, þeir
eru að þakka Sigl-
firðingum gamlar velgjörðir við sig.“
Séra Vigfús rifjar upp þegar Gústi guðs-
maður týndist á sjónum, einu sinni sem
oftar. „Allur siglfirski flotinn fór að leita
og ég með, hann hafði verið týndur í þrjá
daga. Við fundum hann utan við Siglu-
nesið þar sem öldurnar voru eins og
fimm hæða blokkir og hann hvarf ofan
í dalina en skaust upp aftur. Þegar hann
sá okkur stóð hann upp og söng Hærra
minn Guð til þín, sama lag og sungið var
um borð í Titanic. Hann vildi ekki hjálp.
Nokkru síðar lygndi og þá kom hann í
land og sagði: Guð sér um sína.“
gun@frettabladid.is
Gústi guðsmaður á stall
Stytta af Gústa guðsmanni verður afhjúpuð á Ráðhústorginu á Siglufirði í dag af Katrínu
Jakobsdóttur forsætisráðherra. Séra Vigfús Þór Árnason fer þar líka með gott orð.
Séra Vigfús
Þór Árnason.
Fréttablaðið/Hari
Styttan af Gústa guðsmanni að lesa upp úr
Nýja testamentinu. MyNd/KriStjÁN Möller
t í m a m ó t ∙ F R É t t a B L a ð i ðT T T T 39L a U G a R D a G U R 1 3 . o k T ó B e R 2 0 1 8
1
3
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:3
0
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
1
1
-F
7
3
C
2
1
1
1
-F
6
0
0
2
1
1
1
-F
4
C
4
2
1
1
1
-F
3
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
0
4
s
_
1
2
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K