Morgunblaðið - 12.07.2018, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2018
Hágæða
umhverfisvænar
hreinsivörur
fyrir bílinn þinn
Glansandi
flottur
Fást í betri byggingavöruverslunum, matvöruverslunum og bensínstöðvum.
Þessi litli en fjörugi þröstur er væntanlega ánægður með tíð-
ina undanfarið eins og aðrir Eyfirðingar en vildi þó fyrir alla
muni komast inn í listhús bændanna Einars og Hugrúnar á
bænum Brúnum um hádegisbil í gær. Þar er rekið kaffihús og
hefur þrösturinn hugsanlega runnið á lyktina, þótt ormar og
einhvers konar skordýr séu víst í mestu uppáhaldi hjá þröst-
um almennt á þessum árstíma. Hver svo sem ástæðan var
reyndi hann hvað eftir annað að fljúga í gegnum stóra rúðuna
og virtist með engu móti skilja hvers vegna það tókst ekki.
Ræddi hástöfum, að því er blaðamanni heyrðist, við tvífara
sinn; þekkir kannski til listaskáldsins góða og spurði um engil
með húfu og rauðan skúf í peysu. Hugðist e.t.v. skila kveðju.
Fiðraður Eyfirðingur vildi komast inn í hús
Sérðu engil með húfu og rauðan skúf í peysu?
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Ferðaþjónustufyrirtæki sem selja
jöklaferðir í Öræfum hafa áhyggjur
af stöðu mála vegna stórrar sprungu
í vesturhlíð Svínafellsheiðar.
Almannavarnir vöruðu nýlega við
berghlaupi við jökulinn vegna
sprungunnar og hafa aðrir kostir í
nágrenninu því verið nýttir til jökla-
göngu, t.d. Skaftafellsjökull og Fall-
jökull. Ljóst er að síðar í sumar mun
gönguleið upp að Skaftafellsjökli
lokast þegar á sprettur fram undan
jöklinum.
Málið verður þó tekið fyrir á fundi
stjórnar þjóðgarðsins í dag. Ekki er
hefð fyrir hópferðum ferðaþjónustu-
fyrirtækja á Skaftafellsjökul, en
vegna hinna sérstöku aðstæðna hafa
ráðamenn í Vatnajökulsþjóðgarði
látið starfsemina óátalda.
Stór og skyndileg breyting
„Við erum vön að takast á við
breytingar í okkar umhverfi, en
þessi er heldur stór og kemur
skyndilega,“ segir Arnar Bjarnason,
framkvæmdastjóri hjá Íslenskum
fjallaleiðsögumönnum, en tugir þús-
unda viðskiptavina fyrirtækisins
fara upp á jökulinn á ári hverju.
Hann segir fyrirtækið leita allra
leiða til að greiða úr flækjunni, í
samráði við yfirvöld í Vatnajök-
ulsþjóðgarði og almannavarnir.
Arnar segir fyrirtæki með rekstur
á svæðinu óska þess að gott samráð
verði haft við þau um næstu skref.
„Við höfum að sjálfsögðu áhyggj-
ur og væntum þess að okkur verði
sýndur skilningur. Við vonum að
menn taki ekki ákvarðanir sem geta
stórskaðað fyrirtækin. Við höfum
unnið með þjóðgarðinum gegnum
tíðina, sinnt fræðslu og sinnt útköll-
um þegar slys verða o.s.frv.“
Arnar nefnir að nú séu uppi
vangaveltur um það hvort göngu-
leiðin upp að Skaftafellsjökli geti
borið fólksfjöldann til lengri tíma.
„Þjóðgarðurinn hefur áhyggjur af
stígnum upp að jöklinum. Við skilj-
um það vel en erum í ofsalega erfiðri
stöðu. Það er flókið að breyta ferða-
leiðunum, en við erum að reyna að
leysa þetta,“ segir hann og nefnir að
fleiri gönguleiðir séu mögulegar á
svæðinu. Sumar þeirra séu þó kostn-
aðarsamar og standi jafnvel ekki
undir kostnaði.
Óvissa um jöklaferðir í Öræfum
Skaftafellsjökull ekki varanleg lausn Leið að jöklinum lokast síðar í sumar
Stjórn þjóðgarðsins metur stöðuna Ferðaþjónustufyrirtæki óska samráðs
Morgunblaðið/RAX
Skaftafellsjökull Ferðaþjónustufyrirtæki hafa fært sig um set vegna hættu á berghlaupi við Svínafellsjökul.
Þorsteinn Gunnarsson, sveitarstjóri
Skútustaðahrepps, segir sorglegt að
umhverfisráðuneytið hafi ekki enn
veitt undanþágu til að reisa salern-
isaðstöðu á svæði Grjótagjár. Morg-
unblaðið greindi frá því í gær að
landeigendur hafi lokað fyrir aðgang
að kvennagjá í Grjótagjá, sem er vin-
sæll baðstaður og áfangastaður
ferðamanna. Sögðu þeir ákvörð-
unina jafnframt tímabundna meðan
beðið er lausna fyrir svæðið en um-
gengni í hellinum hefur verið til
skammar að sögn landeigenda. Þor-
steinn segir að lokað verði fyrir bað-
ferðir í gjánni þar til undanþágan fá-
ist. Samkvæmt honum er beðið
átekta frá umhverfisráðuneytinu
vegna beiðni um undanþágu frá
ákvæðum um vatnsverndarsvæði
svo hægt verði að reisa salernisað-
stöðu í lokuðu kerfi.
„Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
sveitarfélagsins til þess að fá málið
afgreitt hefur undanþága ekki feng-
ist enn,“ segir Þorsteinn. Hann segir
ekki um stórfenglegar breytingar að
ræða heldur snúist málið um „bætta
aðstöðu ferðamanna og að færa bíla-
stæðin fjær“.
Hann segir jafnframt að deili-
skipulag fyrir svæðið hafi verið tilbú-
ið af hálfu sveitarfélagsins í apríl.
„Landeigendur í Vogum hafa unnið
að þessu deiliskipulagi í einhvern
tíma og líka við Hverfjall. Þessi
vinna hjá þeim er alveg til fyrir-
myndar og sveitarfélagið hefur stutt
við bakið á þeim í þessu, enda til eft-
irtekni hvernig sé haldið á þessu.
Það er sorglegt að ráðuneytið hafi
ekki klárað sitt svo hægt sé að klára
skipulagið,“ segir Þorsteinn.
Sveitarstjórinn segist enn fremur
ekki þekkja til neinna áforma um
gjaldtöku á svæðinu. gso@mbl.is
Löng bið eftir undanþágu
Mál Grjótagjár
sagt stranda í
ráðuneytinu
Ljósmynd/Ólöf Hallgrímsdóttir
Baðstaður Gjáin er á flekamótum
og er þar streymi lághitavatns.
Aftöku fangans
Scott Dozier var
frestað í Ne-
vada-ríki í
Bandaríkjunum í
gærkvöldi eftir
að dómari tók
kröfu lyfjafyrir-
tækisins Alvo-
gen til greina.
Nota átti lyfið
Midazolam, sem Alvogen framleið-
ir, við aftökuna, lögfræðingar fyr-
irtækisins töldu að Nevada-ríki
hefði útvegað sér lyfið á fölskum
forsendum en forsvarsmenn fyr-
irtækisins heyrðu fyrst af því í
fjölmiðlum að nota ætti lyfið við
aftökuna.
Halldór Kristmannsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Alvogen, sagði í
samtali við mbl.is í gær að það
væri skýr stefna fyrirtækisins að
selja ekki lyf sem Midazolam,
beint til fangelsismálastofnana.
Notkun lyfsins, sem er slökunar-
lyf, á þennan hátt væri því gegn
vilja fyrirtækisins.
Höfuðstöðvar Alvogen eru hér á
landi, en fyrirtækið er með starf-
semi í 35 löndum. Forstjóri Alvo-
gen er Róbert Wessman.
Aftöku frest-
að að kröfu
Alvogen
Selja ekki lyf til
fangelsismálstofnana
Lyf Alvogen fram-
leiðir Midazolam.