Morgunblaðið - 12.07.2018, Qupperneq 11
Við erum á Facebook
Laugavegi 82 | 101 Reykjavík
Sími 551 4473
ÚtsalaInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2018
Finnbjörn Þorvalds-
son, margfaldur Ís-
landsmeistari í frjáls-
íþróttum og
fyrrverandi fjár-
málastjóri Loftleiða,
lést á mánudaginn, 94
ára að aldri.
Finnbjörn fæddist í
Hnífsdal 25. maí 1924.
Foreldrar hans voru
Halldóra Finnbjörns-
dóttir húsfrú og Þor-
valdur Magnússon
sjómaður.
Finnbjörn flutti
ungur til Ísafjarðar
og svo með foreldrum sínum til
Reykjavíkur. Hann gekk í Sam-
vinnuskólann og að loknu námi
þar hóf Finnbjörn að vinna fyrir
Ísafoldarprentsmiðju. Á sjötta
áratugnum varð hann starfs-
maður Loftleiða, sá um bókhald,
varð síðar skrifstofustjóri og loks
fjármálastjóri. Það starf hafði
Finnbjörn með hönd-
um þar til Loftleiðir
sameinuðust Flug-
félagi Íslands að
hann hóf hóf störf á
skrifstofu hótels
Esju, sem Flugleiðir
áttu.
Eftirlifandi eigin-
kona Finnbjörns er
Theodóra Steffensen,
fædd 17. septebmer
1928. Þau giftust
1947. Hún er dóttir
Sigríðar Árnadóttur
húsfrúar og Björns
Steffensen endur-
skoðanda.
Finnbjörn og Theodóra eign-
uðust sjö börn: Björn, fæddur
1947, er kvæntur Sigríði Aradótt-
ur, Finnbjörn, fæddur 1950, er
kvæntur Kathia Rovelli, Þorvald-
ur, fæddur 1952, er kvæntur Önnu
Árnadóttur, Sigríður, fædd 1954,
er gift Halldóri Hilmarssyni,
Gunnar Þór, fæddur 1958, er
kvæntur Eyrúnu Magnúsdóttur,
Halldóra Svala er fædd 1962 og
Úlfar, sem fæddur er 1964 og
kvæntur Sigrúnu Hafsteinsdóttur.
Á árunum 1945 til 1952 var
Finnbjörn einn besti frjáls-
íþróttamaður á Norðurlöndum.
Hann setti tugi Íslandsmeta í
spretthlaupum og langstökki.
Finnbjörn tók þátt í Norður-
landamótum þar sem hann vann
sigra og Evrópumótum þar sem
hann komst í úrslit. Hann keppti á
Ólympíuleikunum í London 1948,
þar sem hann var fánaberi Ís-
lands.
Hann varð einnig Íslandsmeist-
ari í handbolta með félagi sínu,
ÍR. Þá spilaði Finnbjörn badmin-
ton með góðum árangri í áratugi
hjá TBR. Golf stundaði hann einn-
ig lengi, allt til 92 ára aldurs.
Finnbjörn var einn stofnenda golf-
klúbbsins Keilis í Hafnarfirði og
félagi í honum alla tíð.
Andlát
Finnbjörn Þorvaldsson
Skoðið LAXDAL.is
Skipholti 29b • S. 551 4422
ÚTSÖLUFJÖR
ENN MEIRI AFSLÁTTUR
40-60%
AFSLÁTTUR
ÞV
O
TT
A
VÉ
LA
R
KÆ
LI
SK
Á
PA
R
HELLUBORÐ
ÞURRKARAR
SMÁTÆKI
U
PPÞVO
TTA
VÉLA
R
OFNAR
RYKSUGUR
VIFTUR OG HÁFAR
TILBOÐSDAGAR
20-40%
Gerðu góð kaup!
FYRIR HEIMILIN Í LANDINU
LágMúLA 8 · sÍMI 530 2800
Atvinna
Brúin yfir Ölfusá verður lokuð í
viku um miðjan ágúst. Í tilkynningu
á vefsíðu Vegagerðarinnar segir að
áætlað sé að loka brúnni á miðnætti
12. ágúst, opna fyrir morgun-
umferð kl. 6 að morgni þess 13. og
loka henni svo aftur kl. 20 sama
dag. Áætlað er að hægt verði að
hleypa umferð aftur á brúna 20.
ágúst og gangbrautin á brúnni
verður opin á framkvæmdatím-
anum.
Nýtt brúargólf verður steypt og
tekur það steypuna nokkra sólar-
hringa að harðna. Hjáleið verður
m.a. um Þrengsli og Óseyrarbrú á
Eyrarbakkavegi.
Í uppsveitum eru hjáleiðir um
Biskupstungnabraut, Skálholtsveg,
Bræðratunguveg og Skeiðaveg.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Ölfusárbrú Lokuð nokkra daga í ágúst.
Ölfusárbrú lokuð
um miðjan ágúst