Morgunblaðið - 12.07.2018, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2018
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
S
umar í Reykjavík er verk-
efni Margrétar Erlu
Þórsdóttur, Hlakkar
Þrastardóttur og Hólm-
fríðar Benediktsdóttur
sem skipa listahóp hjá Hinu húsinu.
Verkefnið felst í að kanna mismun-
andi sjónarmið fólks á förnum vegi
um hvað einkenni sumarið í Reykja-
vík og í dag verður ljósmyndasýn-
ing í tengslum við það í Banka-
stræti.
„Við vorum í London í skóla-
ferð og þá datt okkur þetta í hug.
Þá vorum við gestir í borg, sem við
þekktum ekki vel, en þeir sem búa í
borginni sjá hana á allt annan hátt,“
segir Hlökk. „Pælingin var hvernig
það væri að vera gestur í eigin borg
og hvernig Reykvíkingar upplifi
borgina sína,“ segir Hólmfríður.
Eftir að hafa fengið hugmynd-
ina sendu þær inn umsókn til Hins
hússins. Hún var samþykkt og þá
hófust þær handa við verkefnið.
„Það er aldrei sumar“
Verkefnið hefur fengið góðar
viðtökur. Vegfarendur hafa verið já-
kvæðir gagnvart viðtölunum og þeir
fá birta mynd af sér ásamt nafni og
ummælum um sumarið á Insta-
gram- og Facebook-síðu verkefn-
isins. Ýmis ummæli hafa verið látin
falla um sumarið í Reykjavík, já-
kvæð og neikvæð. „Einn sagði að
sumar í Reykjavík væri að elta sól-
ina, mér fannst það svolítið viðeig-
andi,“ segir Hólmfríður.
„Uppáhaldsummælin mín eru
„Það er aldrei sumar“, segir Hlökk.
Sumurin hafa oftast verið sól-
ríkari í Reykjavík en einmitt nú
enda borgin að ganga í gegnum
mikla vætutíð. Stelpurnar bjuggust
við fleiri sólardögum og rigningin
setti sinn svip á verkefnið. Þó segja
þær sumarið sannarlega vera til
staðar þrátt fyrir slæma veðrið.
„Hvað sem gerist, þá eigum við
bara að fylgja sumrinu, veðrinu og
fólkinu,“ segir Hlökk. Það sem er
skemmtilegt við sumarið er að það
er öðruvísi stemning hjá fólki og
það er eitthvað í gangi. Við hugs-
uðum verkefnið ekki út frá veðri,“
segir Hólmfríður.
Auk myndbirtinganna af gang-
andi vegfarendum á samfélags-
miðlum hafa stelpurnar birt þrjú
myndbönd á miðlinum Vimeo. Í
fyrsta myndbandinu er einblínt á
ungmenni og sýn þeirra á sumarið í
Reykjavík. Þar tala þær við bretta-
stráka og -stelpur við undirleik tón-
listarmannsins Sin Fang. „Lagið
hans og textinn passaði mjög vel við
myndbandið,“ segir Hlökk.
Í næsta myndbandi töluðu þær
við búðareigendur í miðbænum sem
sögðu frá því hvernig bærinn hefur
breyst með árunum.
Rigningarsumarið í Reykjavík
Verkefnið Sumar í
Reykjavík gengur út á að
sýna svipmyndir úr borg-
arlífinu. Í dag verður
haldin ljósmyndasýning í
tengslum við verkefnið í
Bankastræti, auk ann-
arra viðburða á vegum
listhópa Hins hússins.
Morgunblaðið/Eggert
Hugmyndaríkar „Það sem er skemmtilegt við sumarið er að það er öðruvísi stemning hjá fólki,“ segja þær Hlökk og Hólmfríður.
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl.
Krónan
mælir með!
599 kr.pk.
Fylltir hamborgarar, 2x120 g
199 kr.pk.
Gestus snakk, 100 g
Gott með
borgaranu
m