Morgunblaðið - 12.07.2018, Síða 35
in sem forstjóri. Um 260 manns
starfa hjá Deloitte en miklar breyt-
ingar hafa orðið á fyrirtækinu síð-
ustu þrjú árin. „Deloitte er orðið
ráðgjafa- og endurskoðunar-
fyrirtæki og við bjóðum m.a. upp á
fjármálaráðgjöf, áhætturáðgjöf,
upplýsingatækniráðgjöf, stefnumót-
urnarráðgjöf, skatta- og lögfræði-
þjónustu, auk endurskoðunar og
reikningsskilaþjónustu og bókhalds-
þjónustu og svo það sem allir eru að
tala um í dag, persónuverndarmál,
og við aðstoðum stofnanir, fyrirtæki
og einstaklinga. Við höfum sett mik-
inn kraft í alþjóðlegt samstarf og um
35% af okkar starfsfólki taka þátt í
erlendu samstarfi. Þetta eru mjög
skemmtilegar breytingar, mikil
dýnamík er í fyrirtækinu og við bú-
um yfir dýpri og breiðari þekkingu,
til mikilla hagsbóta fyrir viðskipta-
vini okkar.“
Hvað félagsmál varðar hefur Sig-
urður sinnt trúnaðarstörfum fyrir
Félag löggiltra endurskoðenda og
meðal annars sinnt formennsku
félagsins.
„Áhugamál fyrir utan vinnu snú-
ast að mestu um margskonar sam-
veru með fjölskyldunni, sumarbú-
staðarferðir, sunnudagssteikina og
ekki síst útivist en við höfum farið í
margar skemmtilegar göngur um
landið. Nú í sumar er stefnan sett á
að ganga Lónsöræfin.
Þess utan þykir mér mikilvægt að
komast reglulega í Vesturbæjar-
laugina, fjölskyldan segir að það séu
mínar sálfræði- og núvitundar-
stundir. Ég gríp í brids, stangveiði
og skotveiði, en það er nær eingöngu
fyrir félagsskap með gömlum og
góðum vinum. Ég á stóra fjölskyldu,
fimm börn fædd á 11 árum svo það
var í nokkuð mörg horn að líta þegar
þau voru lítil. Nú þegar börnin eru
öll að komast á legg og tvö flutt að
heiman, njótum við þess ég og konan
að ferðast meira heldur en við gerð-
um áður. Við erum nýkomin heim úr
heilmiklu ferðalagi þar sem við hjól-
uðum um vínræktarhéruð Kali-
forníu, Sonoma og Napa, auk þess
að spóka okkur um í San Francisco.
Flakkinu lauk svo með borgarferð til
Mílanó. Svo er bara að hlakka til af-
mælisveislunnar og Lónsöræfanna
auk alls hins sem lífið býður upp á.“
Fjölskylda
Eiginkona Sigurðar er Guðbjörg
Jóhannesdóttir, f. 12.5. 1969, sókn-
arprestur í Langholtskirkju í
Reykjavík. Foreldrar hennar eru
Benedikta Theódórs, f. 24.11. 1949,
húsmóðir í Kristiansand í Noregi, og
Jóhannes Kristinn Björnsson, f.
22.4. 1949, bakari í Regstrup í Dan-
mörku. Þau skildu.
Börn Sigurðar og Guðbjargar eru:
1) Berglind Rós Sigurðardóttir, f.
12.8. 1991, starfsmaður á hóteli, bú-
sett í Reykjavík; 2) Hekla Sigurðar-
dóttir, 16.6. 1993, nemandi í lækn-
isfræði við HÍ, búsett í Reykjavík.
Maki Snorri Hrafnkelsson, nemi í
sjúkraþjálfun í HÍ; 3) Ketill Sigurð-
arson, f. 4.7. 1996, nemandi í við-
skiptafræði í HR, býr heima. Maki
Sandra Sif Smáradóttir, nemi í inn-
anhússarkitektúr í Mílanó; 4) Tindur
Sigurðarson, f. 19.9. 1997, nemandi í
hugbúnaðarverkfræði í HÍ, býr
heima. Maki Karen Lilja Lofts-
dóttir, nemi í sagnfræði í HÍ; 5) Esja
Sigurðardóttir, f. 21.10. 2002, verð-
andi Verzlunarskólamær, býr
heima.
Systur Sigurðar eru Hildur
Hauksdóttir, f. 12.10. 1976, starfs-
maður í Ási vinnustofu, búsett í
Reykjavík, og Harpa Hauksdóttir, f.
1.8. 1979, meistaranemi í sálfræði við
HÍ, búsett í Reykjavík.
Foreldrar Sigurðar eru hjónin
Guðleif Sigurðardóttir, f. 9.1. 1947,
ritari, og Haukur Hafsteinn Þor-
valdsson, f. 28.8. 1942, járnsmiður.
Þau eru búsett í Reykjavík.
Sigurður Páll
Hauksson
Helgi Sigurðsson
sjómaður í Reykjavík
Málfríður Ágústa Runólfsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Þorvaldur Ísleifur Helgason
verkstjóri í Reykjavík
Ásfríður Gísladóttir
húsfreyja í Reykjavík
Haukur Hafsteinn Þorvaldsson
járnsmiður í Reykjavík Gísli Gíslasonverkamaður í Viðey
Svava Jónína Sigurðardóttir
húsfreyja í Viðey
KristjánMár Kárason skot-
veiðimaður, bús. í Rvík
teinar Berg Björnsson viðskiptafr.
og fv. frkvstj. hjá Sameinuðu þjóð.
Andri Björn Róberts-
son óperusöngvari,
bús. á Englandi
Kári Steinsson íþróttakennari á Sauðárkróki
Bergþóra Steins-
dóttir verkak. í Rvík
Anna Björnsdóttir
tækniteiknari í Rvík
Svanhildur Steinsdóttir skólastjóri barnaskólans í Hjaltadal
Sigurrós Gísladóttir húsfr. í Rvík
S
Skarphéðinn
Berg Steinarsson
ferðamálastjóri
Steinunn
Leifsdóttir
íþróttafr.
og farar-
stjóri hjá FÍ
Leifur Þor-
steinsson
líffræðingur
og farar-
stjóri hjá FÍ
Guðrún Sveinsdóttir
húsfreyja í Rvík
Sveinn Sveinsson
bóndi í Stóru-Mörk
Guðleif Guðmundsdóttir
húsfreyja í Stóru-Mörk
undir Eyjafjöllum
Sigurður Sveinsson
sjómaður í Reykjavík
Soffía Steinsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Steinn Stefánsson
bóndi í Neðri-Ási
Soffía Jónsdóttir
húsfreyja í Neðri-Ási í Hjaltadal, Skag.
Úr frændgarði Sigurðar Páls Haukssonar
Guðleif Sigurðardóttir
ritari í Reykjavík
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2018
95 ára
Óskar Einarsson
90 ára
Ingibjörg Sigurðardóttir
85 ára
Ástvald Bern Valdimarsson
Bjarni Abokhai Akbashev
Edda Björnsdóttir
Inga Þórey Sigurðardóttir
80 ára
Erla Hafrún Guðjónsdóttir
Halldór Þ. Þorsteinsson
Maja Sigurgeirsdóttir
75 ára
Björgvin Bæringsson
Edda Sigríður Hermannsd.
Grétar Már Garðarsson
Guðríður Þórðardóttir
Hafdís Björk Hannesdóttir
Ingibjörg Elsa Sigurðard.
Pétur Oddsson
Rósa Jónsdóttir
Þórarinn Magnússon
70 ára
Borghildur Vigfúsdóttir
Elín Hrönn Jónsdóttir
Margrét Haraldsdóttir
Ólöf Hansína Friðriksdóttir
Sigrún Ólafsdóttir
60 ára
Ásta Kristín Reynisdóttir
Bergur Ingi Ólafsson
Björk Bjarnadóttir
Edda Janette Sigurðsson
Guðrún Margrét Halldórsd.
Gunnar Ólafsson
Hilmar Þór Hilmarsson
Ingibjörg Gunnarsdóttir
Ívar E. Sigurharðarson
Jón Gunnar Sigurðsson
Katrín Þórarinsdóttir
Kolbrún Bjarnadóttir
Sigrún Þórarinsdóttir
Vigfús Hjörtur Jónsson
Wenche Anita Antonsen
Örlygur Vigfús Árnason
50 ára
Anton Jónmundsson
Hrafnhildur Jónsdóttir
Ingibjörg B. Halldórsdóttir
Sigurður Páll Hauksson
Valgerður G. Guðgeirsdóttir
40 ára
Aneta Beata Wlodarczyk
Helga Ágústsdóttir
Jóna Karen Sverrisdóttir
Kolbrún Hrönn Harðard.
Kristinn Kristinsson
Pranee Kaewsri
Snorri Freyr Árnason
Sævar Sigurjónsson
Þröstur Erlingsson
30 ára
Adrian Jan Koczaski
Andrea Eszter Tóth
Arnþór Gíslason
Atli Þór Jóhannsson
Birta Ísólfsdóttir
Daðey Albertsdóttir
Eðvarð Sigurjónsson
Erla Kristín Jónasdóttir
Eydís Eva Hólmbergsdóttir
Friðbjörn Óskar Erlingsson
Hanna Khyzhnyak
Hilmar Birgir Haraldsson
Hilmir Þór Kjartansson
Hrafnhildur Hermannsd.
Ísak Örn Þórðarson
Jóhann Geir Úlfarsson
Karl Birkir Flosason
Katrín Þyri Magnúsdóttir
Pétur Hrafn Jónasson
Sigurður H. Guðmundsson
Sindri Arnlaugsson
Viktor Hrafn Einarsson
Til hamingju með daginn
40 ára Inga Dröfn fæddist
á Húsavík, ólst upp í
Reykjavík en býr á Selfossi.
Hún er þroskaþjálfi á leik-
skólanum Hulduheimum.
Maki: Guðni Þ. Snorrason,
f. 1973, bifreiðarstjóri.
Börn: Tvíburarnir Snorri
Steinn, og Karen Eva, f.
2011.
Foreldrar: Jón Tómas Er-
lendsson, f. 1952, rútubíl-
stjóri, og Guðrún Yrsa Sig-
urðardóttir, f. 1950,
verslunarmaður.
Inga Dröfn
Jónsdóttir
30 ára Ólafur er uppalinn
í Kópavogi en býr í Vín í
Austurríki. Hann er hand-
boltamaður hjá West-Wien
og íslenska landsliðinu.
Maki: Freydís Helgadóttir,
f. 1990, viðskiptafræð-
ingur í barneignafríi.
Dóttir: Emma Björt, f.
2018.
Foreldrar: Ragnar Ólafs-
son, f. 1956, og Hólm-
fríður Jóna Guðmunds-
dóttir, f. 1960, bús. í
Kópavogi.
Ólafur Bjarki
Ragnarsson
30 ára Kolla er uppalin í
Kópavogi og býr þar. Hún
er í meistaranámi í tón-
listarfræði í Amsterdam
og vinnur í sumar á lag-
ernum hjá Mekka – Wine
and Spirits.
Systkini: Björg Kristín, f.
1979, og Ólafur Bjarki, f.
1988.
Foreldrar: Ragnar Ólafs-
son, deildarstjóri í Lands-
bankanum, og Hólmfríður
Jóna Guðmundsdóttir,
vinnur í tollskjalagerð
Eimskips.
Ólöf Kolbrún
Ragnarsdóttir
Finnborg Salome Steinþórsdóttir
hefur varið doktorsritgerð sína í kynja-
fræði við félagsvísindasvið Háskóla Ís-
lands. Ritgerðin heitir Að fylgja fénu.
Kynjuð fjármál gegn kynjaslagsíðu há-
skóla í kjölfar markaðsvæðingar (e. Fol-
lowing the Money. Using Gender Bud-
geting to Challenge the Gender Biases
of New Managerialism in Academia).
Leiðbeinandi var Þorgerður Einars-
dóttir, prófessor í kynjafræði við stjórn-
málafræðideild Háskóla Íslands.
Markmið rannsóknarinnar er að öðl-
ast dýpri skilning á því hvernig mark-
aðsvæðing á þátt í að stuðla að og við-
halda kynjamisrétti í vísindasam-
félaginu, og skapa þekkingu sem
gagnast við innleiðingu á kynjuðum
fjármálum á háskólastiginu og í vís-
indum og rannsóknum. Kynjuð fjármál
(e. gender budgeting) er femínísk að-
ferðafræði til að móta nýjar nálganir við
stefnumörkun og ákvarðanatöku um
ráðstöfun og öflun opinberra fjármuna
með það að markmiði að stuðla að
auknu jafnrétti kynjanna.
Rannsóknin byggist á margþættum
aðferðum og gögnum úr GARCIA-
rannsóknarverkefninu, sem styrkt var
af sjöundu rammaáætlun Evrópu-
sambandsins, en
gögnin saman-
standa af u.þ.b.
hundrað skriflegum
stefnumótunar-
skjölum, tölfræði-
legum gögnum og
viðtölum við 54
lykilaðila í stjórn-
sýslu, akademíska
starfsmenn í dóm- og valnefndum og
vísindamenn sem eru að stíga sín
fyrstu skref á vinnumarkaði. Við grein-
ingu gagnanna var sjónum beint sér-
staklega að valdatengslum og rýnt
með gagnrýnum hætti í mat á akadem-
ískum störfum. Niðurstöður rannsókn-
arinnar varpa ljósi á mikilvægi þess að
meta út frá gagnrýnu sjónarhorni þá
þætti sem móta stefnur og taka tillit til
þeirra áhrifa sem þær hafa á kynjuð
valdatengsl í vísindasamfélaginu.
Ávinningur þess felst ekki aðeins í að
vinna gegn þeim óyrtu viðmiðum sem
viðhalda og stuðla að kynjaójafnrétti,
heldur einnig í leiðum að skilvirkari
stefnumótun og betri nýtingu á al-
mannafé. Þessi rannsókn sýnir fram á
það að kynjuð fjármál eru vænleg
aðferðafræði til að vinna að því.
Finnborg Salome
Steinþórsdóttir
Finnborg Salome Steinþórsdóttir fæddist á Ísafirði 1985. Hún lauk BA-prófi í fé-
lagsfræði frá Háskóla Íslands 2010 og MA-prófi í kynjafræði frá sama skóla 2014.
Finnborg starfar sem nýdoktor í evrópska samstarfsverkefninu ACT, sem er ætl-
að að stuðla að kynjajafnrétti í vísindasamfélaginu, og við kennslu í Háskóla Ís-
lands og Háskólanum á Akureyri. Finnborg býr með Áskeli Harðarsyni tónskáldi.
Doktor
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk.
s: 781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18
fös: 12-16
ÚTSALA!
30-50%
AFSLÁTTUR