Morgunblaðið - 12.07.2018, Síða 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þótt þú hafir lagt þig allan fram
um að koma máli þínu til skila, er einhver
sem vill ekki hlusta. Leitaðu nýrra leiða út
úr vandanum.
20. apríl - 20. maí
Naut Heimurinn hefur ekkert snúist gegn
þér, þótt eitthvað gangi þér í móti.
Reyndu að finna jafnvægi því aðeins þá
geturðu heyrt svar hjarta þíns.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Hafðu augun hjá þér þegar nýir
möguleikar opnast á starfssviði þínu.
Vertu vakandi fyrir fólki sem vinnur að lík-
um markmiðum og þú.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú átt gott með að greina kjarn-
ann frá hisminu og með góðra manna
hjálp tekst þér að leysa mál sem hefur
hvílt á þér.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Vinnan er góð en þú átt líka að gefa
þér tíma til að eiga áhugamál. Leitaðu
leiða til að bæta heilsu og aðstæður ann-
arra um leið og þú bætir þínar eigin.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Til þess að hafa áhrif á heiminn
þarf að vera opinn fyrir öllum mögu-
leikum, ekki bara þeim augljósu. Haltu
fast í trú þína á það að þú sért á réttri
leið.
23. sept. - 22. okt.
Vog Láttu ekki hugfallast þótt hugmyndir
þínar hafi ekki fallið í góðan jarðveg. Vinur
getur bjargað þér með því að hlekkja þig
við raunveruleikann.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Vandaðu framsetningu þína
þannig að hún særi engan en komi til skila
þeim atriðum sem þú leggur áherslu á.
Hafðu stjórn á skapi þínu.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þótt það sé freistandi til að
halda friðinn að verða við kröfum annarra
er það ekki rétta lausnin til frambúðar.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það getur verið erfitt að út-
skýra málin fyrir öðrum þegar þeir eru
ekki inni í fræðunum. Hlutirnir virðast
flóknir fyrir alla aðila í dag.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þín kann að bíða einstakt tæki-
færi í dag og ríður á miklu að þú þekkir
þinn vitjunartíma. Fólk lítur til þín um for-
ustu og þú vilt ógjarnan valda því von-
brigðum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er ekki við þig að sakast þótt
hlutirnir séu þannig vaxnir að þú þurfir
hjálp. Þú þarft að finna athafnasemi þinni
farveg.
Jósefína Meulengracht Dietrichsegist á Boðnarmiði hafa
ákveðið að gefa út matreiðslubók
og er búin að yrkja fyrstu upp-
skriftina:
Ef úr potti færi fiskinn
finnst mér vera alveg kjörið
að hita tólg á hálfan diskinn
og hella floti yfir smjörið.
Gunnar J. Straumland lýsir
„Sumardegi við Akranesvita“:
Úrugur og argur landsynningur
yfir Breið með rámum hljómi syngur
af söknuði um sumarveðurfar.
Öldufaldar enda líf á klettum,
annars virðist lítið meira í fréttum.
Haustið svala hlær nú allsstaðar.
Eins og veðrið hefur verið þykist
ég vita að Gísli fóstri minn Jónsson
hefði sagt „nema hvað!“ eftir að
hafa heyrt þessa stöku Helga Ing-
ólfssonar:
Í endalausu úrhelli ég vil
í örgu hefndarskyni leggja til
hér vestanlands um borg og sveit og
ból
að brottfellt sé úr tungu orðið „sól“.
Á Boðnarmiði skimar Jón Atli
Játvarðarson eftir hvítabirni:
Enginn birtist björn í mynd,
né blasti við hjá skaflinum.
Löggan sá þó hvíta kind
í krossmiðinu á rifflinum.
Pétur Stefánsson yrkir á Leir og
kalla „Fullyrðingar“:
Konan mín hún bakar brauð.
Blómakróna oft er rauð.
Veraldar lítinn á ég auð.
Eva dóttir guðs er dauð.
Sigurlín Hermannsdóttir bætir
við:
Köttur læðist kringum graut.
Kallast dældin stundum laut.
Rigningin er rosa blaut.
Regnbogi er himinskraut.
Hér er limra eftir Guðmund Arn-
finnsson:
Á Hrauni var glens og gaman,
um gólfið þau dönsuðu saman,
uns henti einn dag,
að herrann fékk slag
og hrökk úr axlarlið daman.
Og hér er önnur eftir Helga R.
Einarsson, – „Slapp fyrir horn“:
Við spúsuna átti spjall
spóinn og síðan vall,
en er brýndi róminn
og barði lóminn
hurð nærri hælum skall.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Úr matreiðslubók,
fullyrðingar og ísbjörn
„AUÐVITAÐ GET ÉG TEKIÐ
UPPBYGGILEGRI GAGNRÝNI. HVERS VEGNA
SPYRÐU – ERTU AÐ HUGSA UM AÐ HÆTTA?“
„SLAKAÐU Á, ÉG ÞARF AÐ ATHUGA
MAGAVÖÐVANA Á ÞÉR.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vilja gefa henni
sólina, mánann og
stjörnurnar.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
VARSTU BÚINN
AÐ HEYRA?
HEYRA
HVAÐ?
SAMKVÆMT VÍSINDUNUM
ERU HUNDAR SNJALLARI EN
KETTIR!
SEGIR SÁ SEM DREKKUR
ÚR KLÓSETTINU
PABBI, VÍKINGAR TAKA,
EN GEFA ÞEIR EINHVERN
TÍMANN?
AUÐVITAÐ.
ÉG LÆT ÓVINI MÍNA ALLTAF FÁ ÞAÐ
SEM ÞEIR EIGA SKILIÐ!
Lögmál Murphys um að allt semgeti farið úrskeiðis muni á end-
anum gera það virðist eiga alveg sér-
staklega við í ræktinni, en Víkverji
hefur verið í átaki upp á síðkastið.
Hann hefur til dæmis tekið eftir því,
að þriggja metra breiði beljakinn
sem er að koma allsnakinn og hund-
blautur úr sturtunni virðist alltaf
hafa valið skápinn við hliðina á þeim
sem Víkverji er að nota hverju sinni.
Og hann þarf alltaf sitt pláss, þannig
að Víkverji kemst ekki almennilega í
fötin sín fyrr en steratröllið er búið
að ljúka erindagjörðum sínum.
x x x
Þá eru tækin sem Víkverji vill notaoftast nær upptekin, gott ef ekki
af sama vöðvafjalli, og þegar röðin
kemur að Víkverja neyðist hann í
fyrsta lagi til þess að þurrka svitann
af græjunum og í öðru lagi til þess
að færa stillinguna á lóðunum úr
hæstu stöðu yfir í léttari lóðin. Vík-
verji vill kannski ekki viðurkenna
hvað hann er hégómlegur í raun og
veru en sú hugmynd hefur flogið í
gegnum huga hans oftar en einu
sinni að hann ætti nú kannski bara
að setja ögn meiri þyngd í tækin
þegar hann er búinn að nota þau,
svona svo að næsti maður á eftir
honum hugsi: „Nau, mikið hefur
þessi verið massaður!“ í lotning-
artón.
x x x
Að vísu byggir sú hugmynd á þvíað allir aðrir í ræktinni, ef ekki
heiminum, séu að pæla í því hvað
Víkverji er að paufast þarna. Þar
sem Víkverji er, í huga Víkverja alla-
vegana, langmerkilegasti maðurinn í
ræktinni þykir honum það ekki svo
langsótt að allir hinir sem þarna eru
að stæla kroppinn séu í leiðinni að
hugsa um það hvað Víkverji sé að
vilja þarna í allri sinni lágvöxnu
dýrð.
x x x
Finnst ekki annars öllum það stór-merkilegt þegar Víkverji við-
urkennir að hann hafi bara misst
heilt kíló á síðasta ári, þrátt fyrir all-
an dugnaðinn í ræktinni? Kannski
ætti Víkverji að leggja frá sér
snakkpokann næst þegar hann fer í
svona átak. vikverji@mbl.is
Víkverji
Varpið allri áhyggju ykkar á hann
því að hann ber umhyggju fyrir
ykkur.
(Fyrra Pétursbréf 5.7)