Morgunblaðið - 12.07.2018, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 12.07.2018, Blaðsíða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2018 Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is „Þetta er svolítið skemmtilega ólíkt hvort öðru, lítið sjávarþorp og ofsa- lega vönduð samtímalistasýning en einhvern veginn tónar þetta svo dásamlega saman,“ segir Greta Mjöll Samúelsdóttir, atvinnu- og menningarmálafulltrúi Djúpavogs- hrepps um samtímalistsýninguna Rúllandi snjóbolti/11 sem opnar í Bræðslunni á Djúpavogi á laug- ardaginn. Sýningin er samstarfs- verkefni Djúpavogshrepps og Kín- versk-evrópsku menningar- miðstöðvarinnar í Xiamen í Kína, CEAC. Greta segir sýninguna vera menningarlegt afrek. „Ef við tökum hógværðina aðeins í burtu þá telst þetta vera alveg einstakt menning- arafrek hjá Djúpavogshreppi og Kínversk-evrópsku menningar- miðstöðinni. Upp á menningar- framboðið á landinu þá er þetta al- veg til sóma og að mörgu leyti ómetanlegt framlag.“ Með stærri listsýningum Sýningin er nú haldin í fimmta skipti en samkvæmt Gretu er hún einn af stærstu listviðburðum lands- ins. „Það er alla vega talað um að þetta sé tvímælalaust stærsti list- viðburður á Austurlandi í sínum flokki og jafnvel á landinu öllu. Ég þori ekki að segja að hann sé sá allra stærsti en við tölum um eina stærstu samtímalistsýningu á landinu, alveg klárlega.“ Greta segir sýninguna hafa já- kvæð áhrif á samfélagið á Djúpa- vogi. „Hér búa um það bil 460 íbúar og fyrir okkur að halda svona stóra sýningu er alveg magnað. Mér finnst sýningin lífga mikið upp á sam- félagið og með henni bjóðum við upp á sérstaka upplifun á svona litlum stað.“ Allir leggja hönd á plóg Greta segir að menningarlífið á Djúpavogi sé í miklum blóma og að allir séu tilbúnir að leggja hönd á plóg þegar komi að stærri sýningum sem þessum. „Ég myndi segja að menningarlífið á Djúpavogi sé bara mjög ríkt og gefandi. Af því að við erum rosalega fá og mjög langt í burtu frá höfuðborginni, þá eru ein- hvern veginn allir svolítið saman í liði í þessum efnum. Það eru auðvit- að einhverjir stólpar sem halda utan um hitt og allir í bænum halda þetta saman. Stórir viðburðir hér tengjast öllum bæjarbúum og það finna allir fyrir þeim. Ef það þarf að redda ein- hverju þá er alltaf einhver tilbúinn að stökkva til.“ Vinna þvert á listform Ineke Guðmundsson, listrænn stjórnandi og stofnandi Kínversk- evrópsku menningarmiðstöðvar- innar, er upphafskona sýningar- innar ásamt manninum sínum, lista- manninum Sigurði Guðmundssyni sem er Íslendingum góðkunnugur. Hjónin eru búsett í Kína en eiga sumarhús á Djúpavogi. „Fyrir fimm árum síðan gerðum við samkomulag við Djúpavogshrepp. Þá var gagn- kvæmur áhugi á því hjá Kínversk- evrópsku menningarmiðstöðinni og Djúpavogshreppi að hefja sam- vinnuverkefni, árlega sýningu hér,“ segir Sigurður. Samkvæmt Sigurði mun kenna ýmissa grasa á sýningunni þetta ár- ið. „Þetta eru allt nútímalistamenn og nútímalistamenn vinna yfirleitt með öll listform. Nútímalistin er ekki bara alþjóðleg heldur fer hún einnig yfir landamæri miðlunar, al- veg erfiðleikalaust. Ég kannast svo- lítið við þetta frá því að ég var ungur maður. Þá vissi ég ekkert hvort ég væri ballettdansari eða myndlist- armaður,“ segir Sigurður og hlær. Þrátt fyrir að Ineke hafi stofnað menningarmiðstöð í Kína þá er hún ekki þaðan heldur frá Hollandi. Því er vert að velta fyrir sér hvernig það kom til að hún hafi stofnað menning- armiðstöð í Kína. Um það segir Sig- urður: „Við komum í borgina Xia- men í Kína, þar sem listamiðstöðin er staðsett, og Ineke fannst að það vantaði vettvang fyrir nútímalist í borgina sem fjórar milljónir manns búa í. Þá ákvað hún að tala við borg- arstjóra borgarinnar og listadeild háskólans í borginni. Hún fékk mjög góðar undirtektir og henni var í raun bara tekið eins og hún væri inn- fædd,“ en Ineke stofnaði listamið- stöðina fyrir tuttugu árum og hafa hjónin búið í Xiamen síðan þá. Ineke er menntaður hjúkrunarfræðingur en hefur alltaf verið mikill listunn- andi og hefur lengi starfað sem list- rænn stjórnandi. Skapa menningarlega brú Kínversk-evrópska menningar- miðstöðin hefur það að markmiði að koma á tengslum milli vestræna heimsins og kínverskrar listar og listafólks. „Við viljum skapa menn- ingarlega brú þar á milli og það hef- ur tekist mjög vel. Við höfum hjálp- að kínversku listafólki að komast inn í listnám og stofnanir í Evrópu. Mið- stöðin hefur einnig staðið fyrir sýn- ingum um allan heim, en í fyrsta skipti sem miðstöðin stóð fyrir sýn- ingu utan Kína þá var það á Djúpa- vogi,“ segir Sigurður. Sigurði þykir ekki nóg að halda, ásamt Ineke og sveitarstjórn Djúpa- vogs, eina stærstu samtímalistsýn- ingu landsins heldur ætlar hann sér sömuleiðis að opna nútímalistasafn á Djúpavogi í samstarfi við aðra. „Mig langar að gera það, ég ætla að gera það og ég mun gera það. Það er engin spurning. Við erum að leggja fyrstu drögin að því. Ég vil helst geta séð þetta verða að veru- leika áður en ég er allur, svo það er bara að kýla á það,“ segir Sigurður en listamaðurinn Þór Vigfússon, sem er búsettur á Djúpavogi, er að vinna í því með Sigurði að stofna safnið. „Hann er alveg á fullu í þessu með mér en sveitarstjórinn og sveit- arstjórnin standa þétt við bakið á Menningarleg brú á Djúpavogi  Samtímalistsýningin Rúllandi snjó- bolti/11 opnuð á laugardaginn  Lista- fólk frá hinum ýmsu heimshornum Ljósmynd/Greta Mjöll Samúelsdóttir Nútímalist Hjónin og sýningarstjórarnir Sigurður og Ineke Guðmundsson við uppsetningu sýningarinnar í gær. „Nútímalistin er ekki bara alþjóðleg heldur fer hún einnig yfir landamæri miðlunar,“ segir hann. Fiðludúettinn Bachelsi kemur fram á tónleikum í Gerðarsafni í Kópavogi í dag, fimmtudag, klukkan 18. Dú- ettinn skipa þær Ingibjörg Ásta Guðmundsdóttir og Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir og munu þær leika tónlist eftir Johann Sebastian Bach innan um verk Gerðar Helgadóttur á sýningunni Gerður: Yfirlit. Auk fiðluleikaranna koma fram Katrín Helga Ólafsdóttir á rafbassa, Rögn- valdur Konráð Helgason á óbó og Brynjar Friðrik Pétursson sem leik- ur á klassískan gítar. Verkefni tónlistarfólksins er liður í Skapandi sumarstörfum á vegum Kópavogsbæjar. Tónleikarnir eru um klukkustund að lengd og að þeim loknum verður boðið upp á bakkelsi á neðri hæð Gerðarsafns. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. „Við höfum spilað víða í sumar en þetta verða viðamestu tónleikarnir,“ segir Sólrún Ylfa. „Fyrir þá höfum við útsett nokkur verka Bachs og flytjum þau ásamt nokkrum gestum, sem eru líka í skapandi sumar- störfum.“ Þær Ingibjörg Ásta hafa aðallega útsett verkin sem flutt verða en Rögnvaldur útsetti eitt. Hann er út- skrifaður úr tónsmíðum við LHÍ, Sólrún Ylfa hefur lokið öðru ári í hljóðfæraleik við LHÍ og Ingibjörg Ásta hefur stundað nám við Tón- skóla Sigursveins auk þess að læra sálfræði við Háskóla Íslands. „Við höfum tekist á við ýmis verk eftir Bach í sumar og ekki bara fiðlu- verk, heldur höfum við til dæmis út- sett orgelverk fyrir fiðlur. Við höfum líka spilað kafla úr sellósvítunum á fiðlurnar og reyndar útsettum við eina fúguna fyrir einleiksfiðlu fyrir tvær,“ segir Sólrún. Þegar spurt er hvort allir geti gert verk eftir Bach að sínum, þá bendir hún á að ýmis- legt hafi verið gert hvað það varðar. „Við gáfum okkur svolítið skálda- leyfi en ekki mikið.“ Hún segir Bach passa vel innan um verk Gerðar Helgadóttur. „Mér finnst byggingin í verkum Gerðar endurspegla vel bygginguna í verk- um Bachs. Strúktúrinn kallast á – og verkin hljóma alveg ótrúlega vel í safninu. Eins og í kirkju.“ efi@mbl.is Kallast á við verk Gerðar  Bachelsi flytur verk eftir Bach Fiðludúett Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir og Ingibjörg Ásta Guðmundsdóttir skipa Bachelsi og leika ásamt fleirum á tónleikum í Gerðarsafni kl. 18. Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is Góð þjónusta byrjar með flottu útliti. Fatnaður fyrir fagfólk

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.