Morgunblaðið - 12.07.2018, Qupperneq 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2018
okkur í þessu. Það er mjög gott sam-
starf þar á milli og bæjarbúar eru
einnig mjög hlynntir menningar-
tengdri uppbyggingu enda er kúltúr
afar góður bissness þó að það séu
ekki allir sem fatti það. Ef það er
engin menning þá deyja svona þorp
hratt út og verða öll eins,“ segir Sig-
urður sem telur Djúpavog vera til-
valinn stað fyrir samtímalistasafn.
MOMA Djúpivogur
Gæði listar á samtímalistasafni á
Djúpavogi ættu ekki að vera minni
en listar á samtímalistasafni úti í
heimi, samkvæmt Sigurði.
„Hver verður munurinn á MOMA,
Museum of Modern Art, á Manhatt-
an og MOMA á Djúpavogi? Það
verður munur á þeim. MOMA Man-
hattan gerir alla listamenn sem þar
sýna fræga og ríka, er tíu eða tutt-
ugu sinnum stærra og hefur milljón
sinnum meira fjármagn en nútíma-
listasafn á Djúpavogi. Það snertir þó
ekki gæði listaverkanna. Þess vegna
er alveg eins hægt að hafa nútíma-
listasafn í litlu fiskiþorpi á Íslandi.
Munurinn á MOMA á Manhattan og
MOMA á Djúpavogi er þá einfald-
lega að í því fyrrnefnda flæða pen-
ingar og frægð og rýmið er meira.
Listin er samt sem áður alveg eins
og ekki gæðaminni.“ Sigurður legg-
ur áherslu á að safnið verði sjálfs-
eignarstofnun. „Við erum ekki að
byggja safn utan um okkar verk eða
neitt slíkt. Þetta verður bara sjálfs-
eignarstofnun og nútímalistasafn
Djúpavogs.“
Sýningin verður opnuð við hátíð-
lega athöfn á laugardaginn klukkan
þrjú en hún stendur yfir til nítjánda
ágúst. Sýningin er opin alla daga frá
ellefu til fjögur og er frítt inn.
Alþjóðlegur hópur
Á Rúllandi snjóbolta/11 munu
tuttugu og sjö listamenn sýna verk
sín en fólkið kemur frá hinum ýmsu
heimshornum. „Það eru sjö kínverj-
ar og nokkrir Íslendingar. Sömu-
leiðis sýnir þarna fólk frá Hollandi,
Rússlandi, Englandi og öðrum þjóð-
um.“ Flest listafólkið sem sýnir á
Rúllandi snjóbolta/11 tengist Kín-
versk-evrópsku menningarmiðstöð-
inni á einhvern hátt. Það eru þau
Anna Líndal, Árni Guðmundsson,
Arnoud Noordegraaf, Áslaug
Thorlacius, Bill Aitchison, Björn
Roth, Erling Klingenberg, Fahrett-
in Orenli, Gerald Van Der Kaap,
Hrafnkell Sigurðsson, Irina Birger,
Kan Xuan, Magnús Pálsson, Nie Li,
Oey Tjeng Sit, Peer Veneman, Per-
sijn Broersen & Margit Lukacs,
Ráðhildur Ingadóttir, Ragnhildur
Jóhanns, Ronny Delrue, Svava
Björnsdóttir, The Hafnia Founda-
tion, Þór Vigfússon, Wei Na, Yang
Ah Ham, Yang Zhi Qian og Zhang
Zhen Xue sem sýna á listsýning-
unni.
Fjölbreytileg Þór Vigfússon setur upp röð verka á sýningunni. „Það eru sjö Kínverjar og nokkrir Íslendingar.
Sömuleiðis sýnir þarna fólk frá Hollandi, Rússlandi, Englandi og öðrum þjóðum,“ segir Sigurður um sýnendur.
Bræðslan Sýningin Rúllandi snjóbolti/11 er sett upp í Bræðslunni sem sést
hér. Nú eru sýnendur og fleiri í óðaönn að setja verkin upp í sölunum.
Í tilefni af 200 ára fæðingarafmæli
skáldsins Jóns Thoroddsen og 150
ára ártíð hans heldur Helga Kress,
prófessor emeritus við Háskóla Ís-
lands, fyrirlestur
á Nýp á Skarðs-
strönd á laugar-
daginn, 14. júlí,
sem hún nefnir
„Blómmóðir
besta: Konan í
lífi og ljóði Jóns
Thoroddsen“ og
hefst hann
klukkan 15.
Í fyrirlestr-
inum mun hún fjalla um kven-
myndina í verkum Jóns Thorodd-
sen í tengslum við konurnar í hans
eigin lífi, meðal annars út frá óbirt-
um bréfum eiginkonunnar Krist-
ínar Ólínu, fæddrar Þorvaldsdóttur
Sívertsen (1833-1879), og mágkon-
unnar Katrínar Þorvaldsdóttur Sí-
vertsen, til sonarins Þorvalds Thor-
oddsen á námsárum hans í
Kaupmannahöfn 1875-1879. „Það er
athyglisvert,“ segir Helga, „að bera
saman kvenlýsingar í skáldskap og
það sem konur hafa að segja af
sjálfum sér í hversdagsleika raun-
verulegs lífs. En bréf voru til
skamms tíma eini aðgangur kvenna
að ritvellinum, enda ekki ætluð til
birtingar. Það er ekki tilviljun að
fyrirlesturinn verður haldinn á Nýp
á Skarðsströnd við Breiðafjörð, en
þaðan eru þær systur Kristín og
Katrín sem megináherslan verður
lögð á, nánar tiltekið úr Flatey.“
Býlið Nýp var fjárbú í hundruð
ára. Búskapur lagðist af þegar
leið á 20. öld en eftir síðustu
aldamót hófust nýir eigendur
handa við endurbætur á bænum.
Þar er nú gerðarlegt, nútímalegt
bæjarstæði, m.a. með nýju sýn-
ingarrými þar sem áður var fjós
og fjárhús.
Í vetur stóðu yfir framkvæmdir
á Nýp. Arkitektarnir í Studio
Bua hönnuðu gesta- og sýning-
arrými í viðbyggingu við íbúðar-
húsið. Síðustu helgi var opnuð
þar sérstök sýning um uppbygg-
inguna. Þar er sagt og sýnt frá
hönnun viðbyggingarinnar.
Teikningar, módel og önnur und-
irbúningsvinna lítur dagsins ljós.
Við hönnun byggingarinnar var
tillit tekið til útlits bæjarins til
forna. Steinveggir gamlir voru
hafðir fyrir burðarvirki í rýminu,
„hrátt“ efni og upprunalegt þann-
ig sett fram sem áhugavert í
sjálfu sér. snorrim@mbl.is
Jón Thoroddsen og konurnar á Nýp
Reykjavík 1867 Kristín Ólína, Þorvaldur sonur þeirra og Jón Thoroddsen.
Helga Kress
flytur erindi í nýju
rými á æskuslóð-
um móður Jóns
Helga Kress
Fyrir Nýp á Skarðsströnd um 2000.
Eftir Býlið gekk í endurnýjun lífdaga.
Fjöldi kvikmyndahúsa og þ. á m.
Bíó Paradís mun í kvöld kl. 20 sýna
samtímis tónleikamynd rokksveit-
arinnar Muse, Muse - Drones World
Tour. Hljómsveitin var á tónleika-
ferðalagi um heiminn á árunum
2015 og 2016 og lék á yfir 130 stöð-
um. Tónleikaröðin hét Drones
World Tour og var umgjörð tón-
leikanna einkar vegleg, sviðið fyrir
miðju þannig að tónleikagestir voru
allt í kringum hljómsveitina og
drónatæknin var nýtt til hins ýtr-
asta, drónar á flugi sem mynduðu
herlegheitin frá öllum mögulegum
sjónarhornum auk þess sem mikið
var um dýrðir þegar kom að LED-
og laserlýsingu. Tónleikamyndin
verður aðeins sýnd í þetta eina sinn.
AFP
Öflugur Söngvari Muse, Matthew Bell-
amy, á tónleikum með sveitinni 2. júní.
Tónleikamynd
Muse í Bíó Paradís
//////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////
///////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////