Morgunblaðið - 16.07.2018, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.07.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚLÍ 2018 TANGARHÖFÐA 13 VÉLAVERKSTÆÐIÐ kistufell.com Það er um 80% ódýrara að skipta um tímareim miðað við þann kostnað og óþægindi sem verða ef hún slitnar Hver er staðan á tíma- reiminni í bílnum þínum? Hringdu og pantaðu tíma í síma 577 1313 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Stemningin hér er ótrúleg, París brennur af gleði,“ sagði Laufey Helgadóttir, listfræðingur og leið- sögumaður í París, í samtali við Morgun- blaðið í gær- kvöldi. Hún hef- ur verið búsett í borginni í ára- tugi og segir andblæinn sem þar ríkti í gær eftir heimssigur Frakka á liði Króata líkan því sem var sumarið 1998 þegar franska liðið vann það brasilíska, en keppnin var þá einmitt haldin í Frakklandi. „Ég heyri fagnaðar- lætin af götum hingað inn í stofu og sé í sjónvarpinu mannfjöldann sem er á Champs Elysees, við Sig- urbogann og á Concorde-torginu. Fólk er alveg í skýjunum og mun fagna langt inn í nóttina, segir Laufey sem lýsir sigurgleðinni nú sem framlengingu á þjóðhátíð- ardegi Frakka, Bastilludeginum, sem var á laugardaginn, 14. júlí. „Hér er mikil gleði sem ungir sem gamlir taka þátt í. Margir eru málaðir í fánalitunum, mikið sung- ið og íslenska hú-ið er meira að segja tekið af fullum krafti og það fannst mér skemmtilegt,“ segir Arndís Björk Huldudóttir úr Hafnarfirði, sem stödd var á veit- ingahúsi í 15. hverfi Parísar þegar Morgunblaðið hafði tal af henni undir kvöld í gær. „Eftir leik hópaðist fólk sam- an á torgum og götuhornum og fagnaði. Ég sá fólk sem klifraði upp á bíla og hékk í þeim svo þeir komust lítt áleiðis. Á tali fólks hér má líka heyra að landsliðið sé góður fánaberi fjölmenningar, þar sem leikmenn með fjölbreyttan bakgrunn koma saman undir fána frelsis, jafn- réttis og bræðralags,“ segir Arn- dís Björk. AFP París brennur af gleði Morgunblaðið/Hari Reykjavík Fjöldi Frakka og Króata horfðu á úrslitaleikinn á Ingólfstorgi. Laufey Helgadóttir Breiðstrætið Frakkar glöddust. Á Champs Elysees í París var stiginn stríðsdans með Sigurbogann í baksýn. Þjóðhátíð í Frakklandi eftir sigur á HM í knattspyrnu sem lauk í Moskvu í gær Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Það er ný nálgun hjá okkur að mæla árangur þar sem ekki er unn- ið út frá efnahagslegum fosendum heldur félagslegum þáttum. Teknir eru út þættir sem við viljum mæla og varða líðan íbúa,“ segir Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópa- vogi, sem nú er staddur í New York til að kynna þar á hliðarviðburði í tengslum við ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, High Level Political For- um (HLPF), notkun Kópavogsbæj- ar á Vísitölu félagslegra framfara (VFF). „Mælingar VFF hjálpa til við að fylgjast með því hvernig til tekst að ná heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Mælikvarðinn hefur verið notaður af einstaka þjóðum en aldr- ei af sveitarfélagi af okkar stærð og er því um frumkvöðlastarf að ræða,“ segir Ármann og bætir við að Kópa- vogsbær hafi í júní fengið viður- kenningu fyrir nýsköpun. „Notkun vísitölunnar á að skila sér í að þjónustan við íbúana verði betri, verkefnin markvissari og þar með fjárhagsáætlanagerðin. Vísital- an er nýleg aðferð til þess að mæla styrkleika samfélagslegra innviða Kópavogs,“ segir Ármann sem er sáttur við þá þverpólitísku sátt sem ríkt hefur í bæjarstjórn Kópavogs í kringum verkefnið. Auk fyrirlesturs Ármanns á sam- ráðsfundi HLPF, sem fram fer síð- degis í dag, verða þar m.a. fyrir- lestrar efnahags- og samfélags- málaráðherra Paragvæ, fastafull- trúa Kosta Ríka hjá Sameinuðu þjóðunum og framkvæmdastjóra Social Progress Imperative-stofn- unarinnar. Ármann segir að Kópavogsbær hafi látið smíða sérstakan hugbúnað Kópavogur með kynningu í New York  Kópavogur frumkvöðull í notkun vísitölu félagslegra framfara  Ný nálgun mælinga byggð á félagsleg- um þáttum  Fyrirlestur Ármanns Kr. Ólafssonar á ráðstefnu HLPF  Kópavogur frumkvöðull Bæjarstjóri Ármann Kr. Ólafsson heldur fyrirlestur í New York í dag. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon sem byggi á þáttum vísitölunnar og miklu magni af gögnum um fjöl- breyttan rekstur bæjarins. Nálgun bæjarins hafi vakið athygli Social Progress Imperative-stofnunarinn- ar sem tekur saman mælikvarðann sem notaður er í VFF. „Vinnan við undirbúning notkun- ar á vísitölunni hófst 2017 og fyrsta skorkortið var birt í vor. Niðurstöð- ur mælinganna notum við í frammi- stöðumati á framkvæmdir og til að styrkja stýringu og skilvirkni op- inberrar fjárfestingar,“ segir Ár- mann og bætir við að afraksturinn skili sér í aukinni velferð íbúa og betri nýtingu á skattfé íbúanna. Kópavogsbær frumsýnir í dag myndband á fésbókarsíðu sinni um nálgun Kópavogsbæjar á notkun vísitölu félagslegra framfara. „Viðmið okkar um væntanlegan fjölda gesta eru hófleg,“ segir Einar Á. E. Sæmundssen, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum. Alþingismenn koma saman til fundar á Lögbergi nú á miðvikudaginn og er það í tilefni af fullveldisafmælinu. Þar verður borin upp til samþykkt- ar þingsályktun- artillaga um tvö verkefni, það er stofnun Barna- menningarsjóðs Íslands og að smíða skuli nýtt hafrannsóknar- skip. Sjónvarpað verður frá þing- fundinum en bú- ist er við að 3.000- 5.000 manns mæti á staðinn af þessu tilefni. Er það ámóta fjöldi og heim- sækir Þingvelli á venjulegum sum- ardegi. Einföld dagskrá „Við höfum aldrei verið með inni í myndinni að hingað komi tugir þús- unda gesta eins og var á fyrri hátíð- um hér. Dagskráin núna verður raunar mjög einföld, það er fundur Alþingis sem tekur ekki langan tíma og engin viðbótardagskrá eins og var til dæmis á Lýðveldisafmælinu árið 1994 og Kristnihátíðinni 2000. Þá er hátíðin nú í miðri viku um hásumar og margir annaðhvort í fríi eða þá við vinnu og eiga ekki heimangengt. Um 5.000 manns er viðmiðunartala hjá okkur í öllum undirbúningi en við ráðum alveg við að taka á móti fleiri. Annars er aldrei hægt að segja fyrir fram hve margir mæta, við bara sjáum hvað verður á miðvikudaginn. Veðurspáin er að minnsta kosti ljóm- andi góð,“ segir Einar Á. E. Sæ- mundssen. sbs@mbl.is Búist er við allt að 5.000 gestum  Alþingi á Þingvöllum á miðvikudag Framkvæmdir Pallar reistir í þing- helginni fyrir fundinn í vikunni. Einar Á. E. Sæmundssen Morgunblaðið/Arnþór 1. Engin fátækt. 2. Ekkert hung- ur. 3. Heilsa og vellíðan. 4. Menntun fyrir alla. 5. Jafnrétti kynjanna. 6. Hreint vatn og hreinlætisaðstaða. 7. Sjálfbær orka. 8. Góð atvinna og hag- vöxtur. 9. Nýsköpun og upp- bygging. 10. Aukinn jöfnuður. 11. Sjálfbærar borgir og samfélög. 12. Ábyrg neysla. 13. Verndun jarðarinnar. 14. Líf í vatni. 15. Líf á landi. 16. Friður og réttlæti. 17. Samvinna um markmiðin. Heimsmark- miðin 17 SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.