Morgunblaðið - 16.07.2018, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 16.07.2018, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚLÍ 2018 Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is Margar gerðir af innihurðum Hjá Parka færðu gullfallegar innihurðir frá Grauthoff. Mikið úrval, sjón er sögu ríkari! Bjóðum aðeins það besta fyrir þig! Margar gerðir af innihurðum Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is „Þetta hefur verið bylting. Þótt Héð- insfjarðargöng hafi verið gífurleg fjárfesting á sínum tíma, þá voru þau lykillinn að sameiningu Ólafsfjarðar og Siglufjarðar, sem er orðið sveitar- félag sem dafnar, annars hefðu menn verið í vondum málum,“ segir Gunn- ar Birgisson, sveitarstjóri í Fjalla- byggð, í samtali við Morgunblaðið, sem innti hann og sveitarstjóra Dal- víkur eftir hagrænum áhrifum Héð- insfjarðarganga á Tröllaskaga nú þegar liðin eru átta ár frá opnun. Gunnar segir Tröllaskaga nú orð- inn hluta af Eyjafjarðarsvæðinu, það hafi orðið fólksfjölgun, fleiri ferða- menn, fleiri störf og að afkoma bæj- arfélagsins hafi batnað, en það er í samræmi við niðurstöður rannsókn- ar Háskólans á Akureyri frá 2015 sem sýnir m.a. að fólksfækkun hafi stöðvast, konum á barneignaaldri hafi fjölgað á staðnum og fleiri ferða- menn leggi nú leið sína um Trölla- skagann á ferð um Norðurland. „Störfum hefur fækkað í sjávar- útvegi vegna tækniframfara, en á móti hefur störfum fjölgað í ferða- mannaiðnaði og svo eru hérna tvö líf- tæknifyrirtæki sem skapa störf og svo almenn þjónusta,“ segir Gunnar og bætir við að reynt sé að hafa góða umgjörð, mikilvægt sé að fá þá sem skapa störf líka. Stór höfn og löndun sé á staðnum og mikilvægt að hafa góðar samgöngur til flutninga. Vill fleiri opinber störf „Nú þurfum við bara að fá fleiri störf, t.d. eins og ríkisstofnanir, það er hægt að vinna svo margt rafrænt. Menn verða að hugsa um það til að halda landinu í byggð,“ segir Gunn- ar, það séu komnar fínar samgöngur og net en hann hefur áhyggjur af raf- magninu. „Við eigum nóg fyrir okkur núna en það á fljótlega eftir að verða vandamál, eins og er hérna á Norð- vesturlandinu. Það má ekki leggja línur neins staðar, þó að virkjanirnar framleiði nóga orku og þetta heftir atvinnuuppbyggingu hérna á Norð- urlandinu,“ segir Gunnar að lokum. Katrín Sigurjónsdóttir, sveitar- stjóri Dalvíkurbyggðar, segir í skrif- legu svari við fyrirspurn Morgun- blaðsins Héðinsfjarðargöng hafa haft jákvæð áhrif fyrir Dalvíkur- byggð. „Til að mynda erum við í samstarfi við Fjallabyggð í nokkrum málum s.s. um rekstur tónlistar- skóla, málefnum fatlaðra og svo er sameiginleg barnaverndarnefnd hjá sveitarfélögunum. Allt slíkt samstarf er mun auðveldara þegar sam- göngur hafa styst um tugi kílómetra og eru einnig öruggari. Þá eru íþróttafélög í samstarfi, t.d. yngri flokkar í knattspyrnu hjá KF og Dal- vík. Hvað varðar ferðamannastraum þá er jákvætt að hafa styttri og þægilegri tengingu á milli allra þétt- býlisstaðanna á Tröllaskaganum. Það njóta allir góðs af því.“ Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Héðinsfjarðargöng Horft til Ólafsfjarðar úr gangamunna Héðinsfjarðarganga en göngin voru opnuð árið 2010. Segja jákvæð áhrif af Héðinsfjarðargöngum  Sveitarstjórar á Tröllaskaga hæstánægðir með áhrif frá opnun ganganna  Viðsnúningur í afkomu og byggðaþróun „Það má í raun segja að þetta hafi verið algjört hugsunarleysi hjá okkur,“ segir Einar Sigfússon, eig- andi veiðihússins við Haffjarðará, um atvinnuauglýsingu sem fyrir- tækið birti fyrir helgi. Þar er óskað eftir „hressri og duglegri stúlku“ sem geti sinnt daglegum verk- efnum, t.d. þrifum og þjónustu til borðs í hádegis- og kvöldmat. Í jafnréttislögum kemur fram að einungis megi auglýsa eftir fólki af tilteknu kyni krefjist starfið þess eða þegar rétta þarf hlut kynjanna. Spurður um hvers vegna eingöngu hafi verið auglýst eftir stúlku kveðst Einar lítið hafa leitt hugann að því. „Það hafa alltaf verið stúlk- ur hjá okkur sem sinnt hafa þessu starfi. Maður hugsaði því ekki út í það að þetta er auðvitað starf sem strákar geta sinnt líka. Þetta var því bara vegna þess að við erum vön að hafa stelpu og hugsunarleysi af okkar hálfu,“ segir Einar og bæt- ir við að öllum sé frjálst að sækja um stöðuna. „Fólk af báðum kynj- um getur sótt um starfið og á jafna möguleika á því að hreppa það,“ segir Einar. aronthordur@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Haffjarðará Veiðihúsið vildi ráða hressa og duglega stúlku til starfa. Óskuðu eftir duglegri og hressri stúlku  „Auðvitað starf sem strákar geta sinnt“ Arnar Þór Ingólfsson athi@mbl.is Erlendir ferðamenn óskuðu í gær eft- ir aðstoð rekstraraðila í Kerlingar- fjöllum, eftir að hafa fest tvær bifreið- ar sínar í grennd við fjallið Loðmund, sem er á milli Kerlingarfjalla og Set- ursins, hálendisskála ferðaklúbbsins 4x4. Akstur á svæðinu hefur verið bannaður sökum þess hve blautt er enn á þessum slóðum. „Þetta svæði er lokað,“ segir Páll Gíslason, fram- kvæmdastjóri Fannborgar ehf. sem rekur ferðaþjónustuna í Kerlingar- fjöllum, í samtali við mbl.is. Hann segir að það hafi þó verið þrýstingur frá íslenskum bílstjórum að fara þess leið upp á síðkastið þrátt fyrir að vegurinn sé ekki tilbúinn. Páll segir að hann hafi neitað ferðamönn- unum um hjálp úr ógöngunum en þess í stað óskað eftir aðkomu lögreglunn- ar á Suðurlandi, sem kom á svæðið og fer nú með málið. „Við erum stöðugt að fá símtöl frá íslenskum bílstjórum sem vilja fara þetta, en við höfum átt mjög gott samstarf við ferðaklúbbinn 4x4 um að halda þessu lokuðu og að menn séu sammála um að vera ekki að fara leiðina fyrr en vegurinn er orðinn þurr,“ segir Páll, en leiðin sem um ræðir er sú þægilegasta milli Kerling- arfjalla og Setursins. „Allt á kafi í drullu enn þá“ Lögreglan á Suðurlandi vann að því í gær að koma bílum, sem óku á veginum og festu sig, upp úr drull- unni og af svæðinu. Lögreglan sagði í samtali við mbl.is í gær að ekki lægi fyrir hver refsing ferðalang- anna fyrir utanvegaaksturinn yrði. Bílarnir eru á erlendum númerum og eru merktir frönsku ferðaskrif- stofunni Imagine 4x4 sem selur ævintýrajeppaferðir víða um heim. Jón Guðmundsson, formaður um- hverfisnefndar ferðaklúbbsins 4x4, segir að almennt séu leiðir á hálend- inu að opnast fremur seint í sumar sökum vætutíðar. „Sérstaklega þessi leið norðan við Kerlingarfjöll- in, það er allt á kafi í drullu þar enn þá,“ segir Jón, en samkvæmt upp- lýsingum mbl.is höfðu ferðamenn- irnir krækt út af veginum sem þarna liggur til að forðast snjó- skafla en festust þess í stað í drullu- svaði. Lögregla kölluð til vegna utanvegaaksturs  Erlendir ferðamenn fastir eftir akstur á leið sem er lokuð Ljósmynd/Páll Gíslason Utanvegaakstur Annar bílanna fastur í aurbleytu utan vegar í grennd við fjallið Loðmund í gær. Lögreglan á Suðurlandi var kölluð til vegna málsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.