Morgunblaðið - 16.07.2018, Síða 27

Morgunblaðið - 16.07.2018, Síða 27
///////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////// /////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////// MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚLÍ 2018 Jack Reacher hefur sýnt hvershann er megnugur í Banda-ríkjunum og meðframtakinu í París og Lundúnum undirstrikar Lee Child að hann hefur skapað sögupersónu, sem er öðrum langtum fremri í baráttu við glæpamenn og annað misindisfólk. Spennusagan Uppgjör er um margt forvitnileg. Til þessa hefur Jack Reacher verið einfarinn, sem tekið hefur á málum vestra, jafn- vel í andstöðu við yfirvöld, en nú er það herinn, sem fær hann í verkefni í Evrópu. Þegar á reynir fær hann samt ekki þann stuðning, sem búast mætti við, og hef- ur ástæðu til þess að efast um Casey Nice, tiltölulega óreynda aðstoðar- konu, sem honum er úthlutað. Ekki er á allt kosið en ekki er allt sem sýnist. Í öðru lagi er Jack Reacher vanur að láta sverfa til stáls á fyrstu síðum, en að þessu sinni fer sagan rólega af stað. Óvanalega mikil ró er yfir helstu söguhetjunni til þess að byrja með en hún endist samt ekki poppkornsskál- ina og eins gott að hafa eitthvað með til að drekka svo poppið festist ekki í hálsi lesandans áður en yfir lýkur. Í þriðja lagi má nefna uppgjörið. Fléttan er sérlega vel gerð og þó að Jack Reacher sé fenginn í verkið á ákveðnum forsendum verður fljótlega ljóst að hann getur ekki skýlt sér með hverjum sem er á bak við gler. Með öðrum orðum getur hann nánast engum treyst þegar á hólminn er komið. Þegar á reynir er það gamla góða sagan og þá er Jack Reacher í essinu sínu. Jack Reacher ber höf- uð og herðar yfir aðra, jafnt í tíma sem rúmi, og hann er snöggur að reikna út möguleikana í návígi. Einn á móti ein- um vefst ekki fyrir hon- um, því síður einn á móti tveimur og hann óttast ekki þrjá, en úr því flækist málið. Hann nýtur samt ekki alltaf sann- mælis, en þótt hann eigi misjafna daga fer hann á kostum í uppgjörinu og stendur upp sem sigurvegari. Hvernig sem á það er litið. Enginn sér við Jack Reacher Glæpasaga Uppgjör bbbbm Eftir Lee Child. Björn Garðarsson þýddi. JPV útgáfa 2018. Kilja. 404 bls. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR Sjóaður Enski rithöfundurinn Lee Child. listamannateymið Dream Yggdrasil hefur umbreytt á mjög spennandi hátt.“ Ókeypis er á listasmiðjur LungA Lab og almenna listviðburði en kaupa þarf miða á tónleikana. Dag- skrána má finna á www.lunga.is og einnig eru ýmsar gagnlegar upplýs- ingar á Facebook- og Instagram- síðum hátíðarinnar. Helstu bak- hjarlar LungA eru Þrenna, Ölgerðin, Bríó og Seyðisfjarðarkaupstaður en að auki leggja fjölmörg minni og stærri fyrirtæki á svæðinu sitt af mörkum og teymi sjálfboðaliða gefur vinnu sína. Lokuð inni í skel Þegar hún er spurð hvers vegna LungA hefur dafnað svona vel segir Björt að skýringin sé ef til vill að hluta fólgin í því að hátíðin spratt upp úr þörf ungs fólks til að finna útrás fyrir sköpunarkrafta sína, hitt- ast og tengjast. „Það býr líka mikil ástríða í fólkinu sem stendur að við- burðinum, og þau hafa lagt sig fram við að skapa umgjörð sem er opin og gefur öllum tækifæri til að skapa og flæða í núinu, án þess að það þurfi endilega að hafa einhverja fyrir- framákveðna útkomu,“ segir hún. „Staðsetningin hefur líka óneitanlega áhrif, og fjallgarðarnir umhverfis Seyðisfjörð loka gesti inni í nokkurs konar skel; þau tróna yfir og eru í senn ógnandi og verndandi, og ein skemmtileg þjóðsaga segir að kjarn- inn í Bjólfi, stærsta fjallinu á svæð- inu, sé úr kristöllum sem vernda svæðið og hafa áhrif á þessa skap- andi orku sem hefur myndast í bæn- um. Síðast en ekki síst eru það sjálf- ir gestirnir sem skýra árangur hátíðarinnar en þeir koma á LungA með opinn hug og með mikinn áhuga á að taka þátt í öllu því sem er á boðstólum.“ Birtingarmyndir Venju samkvæmt tvinnar dagskráin saman fræðslu og sköpun, og ólíkum tegundum lista.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.