Morgunblaðið - 16.07.2018, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 16.07.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚLÍ 2018 Skútuvogi 1c 104 Reykjavík Sími 550 8500 Fax 550 8510 www.vv.is Allir vilja koma að sumarbústaðnum sínum eins og þeir skildu við hann og tryggja öryggi sitt og sinna sem best. Öryggisbúnaður, eins og lásar, þjófavarnarkerfi, reykskynjarar og slökkvitæki, fæst í miklu úrvali í Vélum og verkfærum. Öryggi í sumarbústaðnum Blaupunkt SA2700 Þráðlaust þjófavarnarkerfi • Fullkominn GSM hringibúnaður • Hægt að stjórna með Connect2Home-appi • Boð send með sms eða tali • Viðbótarskynjarar og fjöldi aukahluta fáanlegir Verð: 39.990 kr. OLYMPIA 9030 Þráðlaust þjófavarnarkerfi • Mjög einfalt í uppsetningu/notkun • Fyrir farsímakort (GSM) • Hringir í allt að 10 símanúmer • Allt að 32 stk. skynjarar • 2 stk. hurða/gluggaskynjarar og fjarstýring fylgir • Fáanlegir aukahlutir: viðbótarfjarstýringar, glugga/hurðaskynjarar, svæðisskynjarar PIR, reyk- og vatnsskynjarar. Verð: 13.330 kr. Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Ný lög um persónuvernd tóku gildi í gær. Þau koma í stað laga sem gilt hafa frá árinu 2000. Allar opinberar stofnanir, ráðuneyti og sveitarfélög þurfa að ráða persónuverndarfull- trúa. Það sama á við fyrirtæki í um- fangsmikilli vinnslu persónuupplýs- inga,“ segir Vigdís Eva Líndal, skrifstofustjóri upplýsingaöryggis hjá Persónuvernd. „Sérþekking á persónuverndar- löggjöfinni er eina skilyrðið sem persónuverndarfulltrúar þurfa að uppfylla,“ segir Vigdís sem segir að fólki í þessum störfum fjölgi nú jafnt og þétt. „Í upphafi síð- ustu viku höfðu borist 41 tilkynn- ing inn á borð Persónuvendar um ráðningu per- sónuverndarfull- trúa frá stjórn- völdum og fyrir- tækjum sem skylt er að ráða persónuverndar- fulltrúa. Vigdís segir að fáir sérfræðingar hafi verið á Íslandi þegar byrjað var að kynna og undirbúa innleiðingu Evrópusambandsins á nýjum per- sónuverndarlögum haustið 2016. „Nú hefur þetta algjörlega snúist við. Endurmenntun Háskóla Ís- lands, Háskólinn í Reykjavík og Lögmannafélagið hafa t.d. haldið fjölda námskeiða fyrir sérfræðinga í persónuvernd. Það eru margir ágætlega undir það búnir að takast á við ný lög um persónuvernd og hafa síðastliðin tvö ár kynnt sér söguna á bak við persónuverndarlögin sem þeir verða að þekkja,“ segir Vigdís. Frekari fjölgun starfsmanna Fimm starfsmönnum hefur verið bætt við hjá Persónuvernd til við- bótar við þá sjö sem voru fyrir að sögn Vigdísar. Hún segir að gert sé ráð fyrir fyrir auknum fjárheimild- um í fjármálaáætlun sem gildir til ársins 2022 til að fjölga stöðugildum hjá Persónuvernd. Nóg sé að gera á skrifstofu Persónuverndar. 800 mál séu nú opin og stöðugt bætist ný við. „Það skemmtilega við persónu- vernd er að lögin snerta öll svið sam- félagsins. Málin eru stór og smá og mörgu hægt að svara í síma, en mál- in geta líka verið þung og flókin,“ segir Vigdís og bætir við að Persónu- vernd hafi sett upp þjónustuborð þar sem stefnan er að svara fyrirspurn- um um innleiðingu nýju persónu- verndarlaganna frá litlum og með- alstórum innan þriggja til fimm daga. Vigdís upplifir að þær stofn- anir og fyrirtæki sem leita til Per- sónuverndar séu almennt jákvæð fyrir breytingunum á persónuvernd- arlöggjöfinni og vilji gera vel. „Við leysum úr kvörtunum frá ein- staklingum og aðilar máls geta stundum, eðli máls samkvæmt, verið ósáttir við niðurstöðuna. Það er vandmeðfarið að feta línuna á milli persónuverndar og þess hvað má gera við upplýsingar,“ segir Vigdís. Eyðing fyrir einstaklinga „Samkvæmt nýju löggjöfinni eiga einstaklingar rétt á að fá svar við beiðni um veitingu réttinda 30 dög- um eftir að þeir senda beiðni um það til þess sem vinnur upplýsingarnar. Ef töf verður á svörum má lengja frestinn um tvo mánuði ef það er mjög flókið og margar beiðnir hafa borist,“ segir Vigdís „Það getur verið snúið og tekið langan tíma að fá leiðréttingu eða eyða gögnum þegar upplýsingar liggja fyrir í mörgum kerfum. Ef lagaskylda er til upplýsingsöfnunar getur einstaklingur ekki látið eyða þeim,“ segir Vigdís og tekur fram að stjórnvöld geti ekki eytt upplýsing- um sem falli undir varðveisluskyldu í lögum og opinberar persónur geti almennt ekki látið eyða ummælum eða gögnum sem þeir sögðu einn daginn í því skyni að það komi ekki illa út fyrir þá síðar meir. Vernd látinna í fimm ár „Af því að hér er um að ræða reglugerð Evrópusambandsins þarf að taka hana beint upp í íslenskan rétt. Þó fá ríkin svigrúm hvað sumt varðar,“ segir Vigdís og á þar t.d.við vinnslu persónuupplýsinga um látna. „Gömlu lögin giltu fullum fetum bæði um lifandi og látna. Í nýju lög- unum var ákveðið eftir yfirlegu að lögin tækju til látinna í fimm ár frá andláti,“ segir Vigdís og bætir við að svigrúm hafi verið nýtt til að láta sektir einnig ná einnig til stjórn- valda. „Frumvarpið gerði ráð fyrir að sektir skyldu lagðar bæði á fyrir- tæki og stjórnvöld og voru lögin samþykkt frá Alþingi, líkt og í flest- um Evrópuríkjum að undanskildu Austurríki,“ sagði Vigdís. Ný persónuverndarlög í gildi  Tilkynningar um persónuverndarfulltrúa hrúgast inn  Meiri sérþekking  Stjórnvöld fá ekki að eyða gögnum  Stjórnmálamenn geti ekki afmáð ummæli  Starfsmönnum fjölgar hjá Persónuvernd Morgunblaðið/Eggert Persónuvernd Ný lög um sem tóku gildi í gær eiga að bæta réttarstöðu einstaklinga gagnvart upplýsingasöfnun. Vigdís Eva Líndal Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Ég fékk ábendingu um að það væri mynd af mér á vegg í Vídeó- markaðnum í Hamraborg með text- anum: Veit einhver hver þessi kona er! Hafa samband við Gulla,“ segir Karen Elísabet Halldórsdóttir, bæj- arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópa- vogi. Hún segist hafa farið strax á staðinn og beðið um að myndin, sem var tekin úr upp- töku eftirlits- myndavélar stað- arins, yrði fjarlægð. „Starfsmaður sem ég talaði við sagði eigandann geta svarað fyrir myndbirtinguna og neitaði að taka niður myndina. Ég benti honum á að samkvæmt per- sónuverndarlögum væri óheimilt að birta myndir úr eftirlitsmyndavélum. Annar starfsmaður virti ósk mína og tók niður myndina,“ segir Karen. Hún segist hafa farið að skoða að- stæður á staðnum á miðvikudag eftir umræður á meirihlutafundi bæjar- stjórnar Kópavogs um ábyrgð bæjar- ins á leyfisveitingum fyrir fjölbreytta starfsemi sem er í Vídeó-markaðnum. „Ég skoðaði aðbúnað í Vídeó- markaðnum, spilasalinn, salernin og kannaði hvernig ég bæri mig að ef ég vildi kaupa bjór,“ segir Karen sem hringdi í eigandann til þess að fá skýringu á myndbirtingunni. „Hann sagði að náðst hefði mynd af mér í eftirlitsmyndavélinni á sama tíma og gleraugu fundust og tilgang- urinn hafi verið að koma til mín gler- augunum. Ég hef takmarkaða trú á þeirri skýringu,“ segir Karen Guðlaugur Kristjánsson, eigandi Vídeó-markaðarins, segir ekkert óeðlilegt hafi átt sér stað. Reynt sé að hafa uppi á fólki með þessum hætti og leysa mál í stað þess að fara með týnda hluti til lögreglunnar. Lög um persónuvernd eru mjög skýr hvað varðar rafræna vöktun en í þeim segir að það efni, sem til verði við vöktun, verði ekki afhent öðrum eða unnið frekar nema með samþykki þess sem upptaka er af eða sam- kvæmt ákvörðun Persónuverndar; heimilt sé þó að afhenda lögreglu efni með upplýsingum um slys eða refsi- verðan verknað. Eftirlýstur bæjar- fulltrúi í Kópavogi Eftirlýst Myndin sem hengd var upp Karen Elísabet Halldórsdóttir Hópur tæplega 1.260 einstaklinga á fésbókinni sem tilheyrir hópnum „Ég vil fá persónugögnin mín“ gerir kröfu á stjórnvöld og fyrirtæki á Íslandi að þau af- hendi þeim rafrænt afrit af öllum þeirra persónugögn- um. Á síðu hópsins kemur fram að markmið hans sé að skapa vettvang fyrir fólk með áhuga á persónu- gögnum og að koma saman og ræða um virði gagna og hagnýtingar möguleika þeirra einstaklingum til góða. Fimm stjórnendur fésbókarhópsins bjóðast til þess að setja fram kröfulýsingu um aðgengi að persónuupplýsingum fé- laga í hópnum sem þess óska á íslensk fyrirtæki og stofnanir sem þeir kjósa. Sniðmát af kröfugerð stendur fésbókarnotendum til boða á síð- unni. Almennt virðast félagsmenn jákvæðir með framtakið. Ég vil fá persónugögnin mín FÉSBÓKARHÓPUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.