Morgunblaðið - 16.07.2018, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 16.07.2018, Blaðsíða 13
DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚLÍ 2018 NÝR FJÓRHJÓLADRIFINN E-PACE Búnaður í R-Dynamic SE er m.a.: 20” álfelgur, lykillaust aðgengi, handfrjáls opnun á afturhlera, rafdrifin leðursæti með minni, glerþak, upphituð framrúða og stýri, Black Pack útlitspakki, Meridian hljóðkerfi, leiðsögubúnaður með Íslandskorti, 10” litaskjár, hjálparbúnaður til að leggja í stæði, skriðstillir með fjarlægðarvara o.m.fl. jaguarisland.is THE ART OF PERFORMANCE VERÐFRÁ: 8.390.000KR. Jaguar E-Pace, fjórhjóladrifinn, sjálfskiptur. E N N E M M / S ÍA / N M 8 9 0 6 5 JAGUAR E-PACE R-DYNAMIC SE VERIÐ VELKOMIN Í REYNSLUAKSTUR JAGUAR HESTHÁLSI 6-8, 110 REYKJAVÍK SÍMI: 525 6500 prentað út ljóðabók í örfáum eintök- um sem hún gaf ekki út, Tilraunar- tilvistarkreppu. Mikill munur er á þeirri bók og Salti, að sögn Maríu. „Tilraunartilvistarkreppa var algjör tilraun. Ef ég opna hana fæ ég bara hroll, ljóðin eru svo lítið unnin. Ég var bara að gera þetta ein og hafði enga reynslu.“ Hins vegar vann María meira í Salti í samstarfi við Kristínu Svövu, ritstjóra Partusar, sem gaf bókina út. María er að vinna í nýju ljóða- handriti og leitar innblásturs víða. Hún lagði af stað í mánaðarferð til Grikklands daginn eftir útgáfu Salts og hóf skrifin þegar í stað. „Þegar maður fer í burtu í svona langan tíma svona langt í burtu þá fær mað- ur yfirsýn yfir allt heima.“ Í nýja handritinu einbeitir María sér enn frekar að myndlíkingum. „Ég er að vinna mig áfram með þær og að vera óhrædd við að taka þær enn lengra,“ segir hún. sú sem sagði að rútínan skyldi ekki gleypa sig hefur gefist upp og sokkið ofan í amstrið sem étur hana að innan hægt en bítandi einn sunnudagsmorgun verður komið gat í gegn þá gefur hún fjandanum alla sína drauma segir bara farið öll til helvítis og kveikir í ljóðunum Hvar sérðu sjálfa þig eftir tíu ár? Ísíðustu viku skrifaði ég pistilum slæmar fyrirmyndir í ung-lingafótbolta. Þjálfara og for-eldra bandarísks liðs sem son- ur minn og félagar hans spiluðu við á alþjóðlegu móti á Spáni. Til upprifj- unar þá urðu bæði þjálfarar og for- eldrar liðsins sér til skammar með grófum og dónalegum hrópum og köllum allan leikinn. Það er ekki til fyrirmyndar. En það sem gerðist síðan er til fyr- irmyndar. Þegar lá við að upp úr syði eftir þennan vasklega leik, þá sá ég son minn og fyrirliða bandaríska liðs- ins tala saman, báðir með símana sína á lofti. Einhverjir héldu að þeir væru að rífast og ég fór til þeirra að athuga málið. Svo var alls ekki. Þeir voru að tengjast á Snapchat. Sallarólegir í lát- unum. Fyrirliðar liðanna. Nú er liðinn tæpur hálfur mánuður frá mótinu og ég spurði son minn í gær hvort þeir hefðu eitthvað verið í sambandi. Hann sagði mér að þeir hefðu mikið verið að ræða málin, bæði leikinn sjálfan og það sem gerðist í honum en líka lífið almennt. Hitabylgjuna sem er núna í New Jersey, heimsmeistarakeppnina og ýmislegt fleira. Tveir heilbrigðir fótboltastrákar hvor í sinni heimsálf- unni með svipuð áhugamál. Mér finnst þetta frábært, sérstak- lega eftir öll lætin sem urðu í kringum fótboltaleikinn. Jákvæð samskipti þeirra sýna í verki að þótt foreldrar séu slæmar fyrirmyndir er ekki sjálf- gefið að börn þeirra fylgi í fótspor þeirra. Vissulega hafa foreldrarnir mikil áhrif, til góðs og ills, en stundum eru vítin til að varast þau. Krakkarnir skynja og átta sig á að hegðun for- eldranna er ekki góð og ákveða að fara aðra leið í lífinu. Samskipti strákanna eftir leikinn Fullorðnir geta lært af börnunum Getty Images/iStockphoto Njóttu ferðalagsins Guðjón Svansson guðjon@njottuferdalagsins.is Guðjón Svansson er Íslendingur, ferðalangur, eiginmaður, fjögurra stráka faðir, rithöfundur, fyrirles ari, ráðgjafi, þjálfari, mentor og nemandi sem heldur úti bloggsíð- unni njottuferdalagsins.is. segja okkur líka hvað samskipta- miðlar – sem við tölum svo mikið nið- ur, ég er þar engin undantekning – geta gert mikið. Snapchat er í þessu tilviku frábært samskiptatól sem á þátt í að brjóta niður múra og breyta neikvæðum tilfinningum og sam- skiptum í jákvæðar. Ég hef mikla trú á komandi kyn- slóðum, finnst krakkar og ungt fólk í dag vera miklu opnara, umburð- arlyndara og umhyggjusamara en mín kynslóð var á þeirra aldri. Við sem erum fullorðin í dag getum margt lært af þeim yngri. Við getum bætt okkur, orðið betri manneskjur og þannig orðið enn betri fyrirmyndir fyrir þau sem á eftir okkur koma. Njótum ferðalagsins! Á leikvelli Við, sem erum fullorðin í dag, getum margt lært af þeim yngri. Í tilefni aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands bjóða danska norð- urheimskautasérsveitin, 1. flotaher- deild og danska sendiráðið á Íslandi til sýningar um borð í eftirlitsskipinu Vædderen sem liggur við Ægisgarð í Reykjavíkurhöfn 17. og 18. júlí, það er á morgun og á miðvikudag í þessari viku. Í skipinu er ljósmyndasýning frá konungsheimsóknum til Íslands frá 1874 til 1938. Þar verða til sýnis ljós- myndir frá konungsheimsóknum til Íslands, á árunum 1874 til 1938. Skip- ið sem flutti fyrstu handritin heim ár- ið 1971 bar sömuleiðis nafnið Vædde- ren og eru ljósmyndir frá þeim viðburði einnig á sýningunni. Vædderen verður opinn frá kl. 13 til 17 fyrrnefnda daga. Dönsku her- skipin eru oft í höfn í Reykjavík og hér er til dæmis skipt um áhafnir á skipunum, sem eru í löngum eftirlits- ferðum við Færeyjar og Grænland. Heimahöfn skipanna er annars í Fre- derikshavn sem er hafnarbær norð- urlega á hinu danska Jótlandi. Myndir í Vædderen Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ingólfsgarður Herskipin í höfn. Handritin og konungarnir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.