Morgunblaðið - 16.07.2018, Blaðsíða 26
26 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚLÍ 2018
Sandra Oh er fyrsta leikkonan af
asískum uppruna til að hljóta til-
nefningu til Emmy-verðlauna fyrir
aðalhlutverk. Tilnefningar til
Emmy-verðlaunanna voru til-
kynntar fyrir helgi. Oh er tilnefnd
fyrir leik sinn í morðgátuþáttaröð-
unum Killing Eve en þar fór hún
með hlutverk einnar aðalpersón-
unnar, Eve Polastri. „Ég er ánægð
að hafa komið þessu af stað, vegna
þess að það sem gerist á næsta ári
og á árinu þar á eftir og árinu þar
á eftir mun hafa áhrif,“ segir Pol-
astri í samtali við New York Tim-
es.
Meðal annarra sem tilnefndir
eru til Emmy-verðlaunanna er
söngvarinn og leikarinn John Leg-
end. Hann er tilnefndur fyrir aðal-
hlutverk sitt í Jesus Christ Super-
star. Ef Legend vinnur verðlaunin
öðlast hann svokallaða EGOT-
stöðu, sú staða næst þegar sama
manneskja hefur unnið Emmy-,
Tony-, Grammy- og Óskarverð-
laun. BBC greinir frá þessu.
Þættir frá streymisveitunni Net-
flix fá 112 tilnefningar en hún er
þar með mest tilnefnda sjónvarps-
stöðin frá upphafi. Netflix slær þar
með met sjónvarpsstöðvarinnar
HBO upp á 108 tilnefningar.
Stjörnukokkurinn Anthony
Bourdain hlaut sex tilnefningar en
hann lést fyrir rúmum mánuði.
Þær Carrie Fisher og Audrey
Hepburn hafa einnig hlotið tilnefn-
ingar eftir dauða sinn.
Emmy-verðlaunaathöfnin verður
haldin sautjánda september næst-
komandi.
Brautryðjandi Sandra Oh er tilnefnd til Emmy-verðlaunanna fyrir aðalhlutverk.
Áhrifamiklar Emmy-tilnefningar
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Fyrir líkama og sál
Laugarnar í Reykjavík
Frá
morgnifyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t i l kvölds
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Listahátíðin LungA þykir í dag
einn af hápunktum íslensks menn-
ingarlífs, en það sem fáir vita er að
þessi mergjaði listviðburður byrjaði
með rifrildi fimmtán ára stúlku við
móður sína. „Árið 2000 var ég ung-
lingur í uppreisn, og eins og gengur
og gerist var ég að rífast við móður
mína og hóta því að flytja til Egils-
staða þar sem þáverandi kærasti
minn bjó. Mér
fannst Egils-
staðir hafa upp á
miklu meira að
bjóða en skíta-
pleisið Seyð-
isfjörður þar sem
aldrei gerðist
neitt og ekkert
var um að vera.
Á Egilsstöðum
var kærastinn og
vinir hans, og
þau öll svo frjó og áhugaverð, á kafi
í leiklist eða tónlist,“ segir Björt
Sigfinnsdóttir söguna.
„Ég er svo heppin að eiga alveg
hreint einstaka móður sem er sjálf-
frumkvöðull að eðlisfari, og söng-
kona sem hefur unnið með ýmsum
listamönnum. Í miðju rifrildiskast-
inu leggur hún til að við gerum
frekar eitthvað í vandanum með því
að fá hóp fólks til liðs við okkur til
að lífga upp á Seyðisfjörð. Næsta
skref var að halda fund með kær-
astanum þáverandi, Ólafi Ágústs-
syni, og vinum hans, þeim Halldóru
Malín Pétursdóttur og Stefáni
Benedikt, til að skiptast á hug-
myndum. Í kjölfarið fæddist LungA
og man ég að fyrstu árin þurftum
við að hafa mikið fyrir því að
hringja í fólk hér og þar í listalífinu
og grátbiðja þau að koma fram eða
halda listasmiðju hjá okkur. Svo
gerist eitthvað, allt í einu, í kring-
um 2005-6, og eins og hátíðin
springi út. Það hafði greinilega
spurst út að eitthvað mjög sérstakt
væri í gangi á Seyðisfirði og fljót-
lega var hátíðin farin að spanna
heila viku og dagskráin stútfull af
listafólki alls staðar að úr heim-
inum.“
Björt er framkvæmdastýra
LungA en býr núna í Danmörku þar
sem hún gerir það gott í stjórn götu-
tónlistarhátíðarinnar Distortion í
Kaupmannahöfn. Um risaviðburð er
að ræða sem ár hvert laðar að nokk-
ur hundruð þúsund tónlistarunn-
endur. „Þegar ég horfi til baka sé ég
hvað ég á LungA ótrúlega mikið að
þakka. Þar öðlaðist ég mikla
reynslu, kynntist fjöldanum öllum af
góðu fólki, og fleytti það mér á end-
anum í Kaospilot-skólann í nám í
skapandi verkefnastjórn og frum-
kvöðlafræðum. Ég sé líka hvað það
hefur breytt miklu fyrir mig að hafa
notið svona mikils stuðnings frá for-
eldrum mínum – að fá heila listahá-
tíð í fangið á silfurfati hjálpar manni
heldur betur að trúa á eigin getu.“
Sneisafull dagskrá
LungA hófst í gær, sunnudag, og
stendur yfir í heila viku. Skipulagið
er með svipuðum hætti og áður og
má skipta hátíðinni í fjóra megin-
þætti: „Fyrst ber að nefna lista-
smiðjurnar sem eru á bilinu sjö til
níu talsins ár hvert. Þar fáum við
starfandi listamenn frá öllum heims-
hornum til að miðla reynslu sinni,
þekkingu og sýn. Yfirleitt eru þessi
námskeið mjög ólík þeim nám-
skeiðum sem eru í boði annars stað-
ar, og einkennast af tilraunastarf-
semi,“ útskýrir Björt. „Í öðru lagi er
LungA Lab; fræðandi fyrirlestra- og
umræðudagskrá sem tvinnast saman
við upplestur, leikrit, kvikmyndasýn-
ingar og margt fleira, og allt tengt
ákveðinu þema. Í ár er LungA Lab
haldið í samstarfi við Erasmus+ og
Appelsín og þemað er „kyn“, en við
fáum til okkar ungmenni frá Kaos-
pilot, Hyper Island, Brighton-
háskóla og Myndlistarskóla Reykja-
víkur til að skoða þetta þema frá
ýmsum sjónarhornum.“
Þriðji liðurinn í dagskránni eru al-
mennir listrænir viðburðir sem
haldnir eru öll kvöld hátíðarinnar.
„Þetta eru t.d. myndlistarsýningar
og gjörningar, og listamennir sumir
að stíga sín fyrstu skref en aðrir
með langan og merkilegan feril að
baki,“ segir Björt. „Fjórði liðurinn
er tónlistardagskráin sem í ár
spannar í fyrsta skipti bæði föstu-
dags- og laugardagskvöld og fer
fram á Norðursíldarplaninu sem
Spratt upp úr þörf fyrir útrás
Upplifun Sveitin, fjöllin og hafið skapa heillandi umgjörð sem virðist leysa úr læðingi sköpunargáfur gesta og listamanna. Svipmyndir frá LungA 2017.
Gremja fimmtán ára stúlku yfir tilbreytingarleysinu á Seyðisfirði var kveikjan að LungA
Í dag koma listamenn hvaðnæva úr heiminum á Seyðisfjörð til að taka þátt í einstökum viðburði
Björt
Sigfinnsdóttir
Ljósmyndir/Lunga - Timothée Lambrecq