Morgunblaðið - 16.07.2018, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.07.2018, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚLÍ 2018 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. a 595 1000 TENERIFE 60+ Frá kr. 179.995 14. NÓVEMBER 14 NÆTUR Frá kr. 235.995 7. NÓVEMBER 21 NÆTUR að ve rð ge MEÐ GUNNARI SVANLAUGS Teitur Gissurarson teitur@mbl.is „Yfirvinnubann er ein birtingar- mynd verkfalls. Þá gilda bara al- mennar reglur um verkföll um yfir- vinnuna sem þær ættu annars að vinna. Það er hægt að setja lög á verkföll en það eru ákveðnar tak- markanir á lögþvingunum í tengslum við kjaradeilur.“ Þetta segir Lára V. Júlíusdóttir, hæsta- réttarlögmaður og fyrrverandi lekt- or við lagadeild Háskóla Íslands. Yfirvinnubann ljósmæðra hefst á miðnætti á miðvikudag og hafa verið vangaveltur um hvort sett verði lög á bannið. Í júní 2015 samþykkti Al- þingi lög á verkfallsaðgerðir BHM og Félags íslenskra hjúkrunarfræð- inga en á árunum 1985-2010 var lagasetningu beitt 12 sinnum til að grípa inn í verkfallsaðgerðir. „Það hefur oft komið fyrir að Al- þingi hefur leyft sér slíkt. Það er náttúrulega afar óæskilegt,“ segir Lára og bætir við að lagasetning sé, fyrir utan það að ná fram samn- ingum, eina leiðin til að hindra yf- irvinnubann ljósmæðra. „Ef Alþingi ætlaði að brjóta þetta yfirvinnubann á bak aftur þá yrði að gera það með lagasetningu.“ Lára segir að almannahagsmunir og þjóðhagsleg rök verði að vera fyrir hendi fyrir lagasetningu af slíku tagi en bendir þó á að Alþingi hafi áður verið gagnrýnt fyrir að fara frjálslega með lagasetningu undir sambærilegum kringumstæð- um. „Oftar en einu sinni hefur slík lagasetning verið kærð til Alþjóða- vinnumálastofnunarinnar og tiltekn- ar nefndir þar hafa sett ofan í við stjórnvöld út af þessu.“ Hafa ekki heyrt í neinum „Sagan sýnir okkur að öll vopn sem við höfum nýtt í kjarabarátt- unni hafa verið slegin úr höndunum á okkur. Þannig að þetta kæmi manni ekkert á óvart.“ Þetta segir Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, formað- ur samninganefndar ljósmæðra, að- spurð hvort hún hafi áhyggjur af því að lög verði sett á yfirvinnubann ljósmæðra. Hún segist þó ekki hafa heyrt að lagasetning á yfirvinnubannið sé í undirbúningi. „Við höfum ekkert heyrt, og ekki í neinum.“ Hún segir eng- ar nýjar hreyf- ingar vera í samningamálum ljósmæðra og rík- isins en upp úr slitnaði í samn- ingaviðræðum á síðasta fundi samninganefnda ríkisins og ljósmæðra sl. miðviku- dag. „Við höfum ekkert heyrt í samn- inganefndinni, ríkissáttasemjara eða ráðherra. En við bíðum við símann,“ segir Katrín. Gunnar Björnsson, formaður samninganefndar ríkisins, segir að hann viti ekki til þess að lög á yf- irvinnubannið séu í bígerð. Spurður um lögin sem sett voru á BHM árið 2015 segir Gunnar: „Það voru nátt- úrulega 17 félög og verkfallið hafði staðið í tíu vikur.“ 30 hafa sagt upp Alls hafa nú 30 ljósmæður, um 20%, sagt upp störfum hjá Land- spítalanum í Reykjavík og munu uppsagnir þeirra sem hafa ekki þeg- ar tekið gildi gera það seinna í sum- ar eða í haust. Þá hefur um helm- ingur ljósmæðra við Heilbrigðis- stofnun Suðurlands sagt upp störfum og þar að auki þrjár á Akranesi og ein á Selfossi. Linda Kristmundsdóttir, fram- kvæmdastjóri kvenna- og barnasviðs Landspítalans, segir að áfram verði starfað eftir sömu neyðaráætlun og hefur verið síðan um mánaðamót. „Það kemur í sjálfu sér ekki ný neyðaráætlun. Við bætum við hana með tilliti til yfirvinnubannsins,“ segir Linda og segir að enn sé verið að vinna í áætluninni. Ljósmæðradeilan 5. febrúar Kjaradeilu ljósmæðra vísað til ríkissáttasemjara. 14. mars Ljósmæðrafélagið fundar vegna erfiðrar stöðu kjaramála. 16. mars Ljósmæðrafélag Íslands sendir frá sér yfirlýsingu þar sem segir að viðbrögð ríkisvaldsinseinkennist af skilningsleysi og tómlæti. 21. mars Samstöðufundur ljósmæðra þar sem fólki var boðið að ganga í gegnum fæðingarveg. 30. mars Fregnir berast af uppsögnum ljósmæðra. 29. apríl Ljósmæður á fæðingarvakt og meðgöngu- og sængurlegudeildum senda frá séryfirlýsingu um að þær muni ekki vinna umfram vinnuskyldu frá og með 1. maí. 1. maí Ljósmæður fá bréf frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu um að þær hafi ekki val umhvort þær vinni yfirvinnu eða ekki skv. lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. 4. maí Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra boðar samninganefnd ljósmæðra á óformlegan fund. 5. maí Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir í fréttum RÚV að ljósmæðurkrefjist um 20% meiri launahækkunar en ríkið er tilbúið til að semja um. 29. maí Samninganefndir ljósmæðra og ríkisins skrifa undir kjarasamning. Þá höfðu níu sáttafundir verið haldnir í deilunni. 30. maí.-8. júní Kosning um kjarasamning. 8. júní Samningurinn felldur með um 70% greiddra atkvæða. 20. júní Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, formaður samninganefndar ljósmæðra, segir verkfall yfirvofandi. 21. júní Stjórnendur Landspítalans funda vegna viðbragða við uppsögnum og yfirvinnubanni ljósmæðra. 28. júní Fimm rúmum á meðgöngu- og sængurlegudeild LSH lokað vegna skorts á ljósmæðrum. 1. júlí Yfirvinnubann samþykkt með 90% greiddra atkvæða. Uppsagnir 12 ljósmæðra áLandspítalanum taka gildi, þar af ÞRJÁR á fæðingardeild. Aðgerðaáætlun spítalans tekur gildi. 3. júlí Velferðarnefnd Alþingis fundar vegna deilunnar. Fjármála- og efnahagsráðuneytið sendir frá séryfirlýsingu þar sem segir að ljósmæður hafi fengið meiri launahækkanir en aðrar BHM-stéttir. 5. júlí Samningafundur í deilunni. 11. júlí Ljósmæður höfnuðu tilboði ríkisins sem var innan við 12% launahækkun og níu mánaða samningur. 13. júlí Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir kröfur ljósmæðra uppskrift að óstöðugleika. 18. júlí Áformað að yfirvinnubann ljósmæðra taki gildi. Lög á bannið ekki í augsýn enn  Samninganefnd ljósmæðra bíður við símann  Segja að lagasetning kæmi ekki á óvart  30 ljósmæður hafa sagt upp störfum á Landspítala  Helmingur ljósmæðra í Keflavík hefur sagt upp Lára V. Júlíusdóttir Katrín Sif Sigurgeirsdóttir Gunnar Björnsson Þrjár konur hafa nú verið sendar frá Reykjavík til Akraness til að fara í fyrirframákveðna keis- araskurði og munu tvær bætast við í vikunni. Þá munu tvær konur fara í sömu aðgerð á sjúkrahúsinu á Ak- ureyri í vikunni en til þess að minnka álag á meðgöngudeildinni í Reykjavík hefur hluti þeirra kvenna, sem kjósa að fara í keisaraskurð- aðgerð, verið sendur á Akranes eða Akureyri. „Það er auðvitað sumarfrí og helmingurinn úti,“ segir Anna Björnsdóttir, deildarstjóri á kvennadeild Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi. Uppsagnir þriggja ljósmæðra á kvennadeildinni á Akranesi tóku gildi síðastliðin mánaðamót en Anna segir deildina vera rekna á neyðarplani um þessar mundir. „Það er bara ein á vakt. Það er svolítið vont að þurfa kannski að sinna konu sem kemur inn í fæð- ingu þegar maður er líka að fara inn í keisara. Það getur tekið einn og hálfan til tvo tíma. En þetta hefur alla vega gengið hingað til,“ segir Anna. Eins og áður segir munu tvær konur koma í keis- araskurð á fæðingardeildinni á sjúkrahúsinu á Akur- eyri en Svana Zóphoníasdóttir, ljósmóðir á Akureyri, segir áhrifin vegna uppsagna ljósmæðra ekki hafa borist til Akureyrar enn. Hún segir þó: „Það verður náttúrulega líka yfirvinnubann hjá okkur. Við erum með talsvert af útköllum nú á sumartímanum þegar það er lágmarksmönnun. Við höfum þurft að kalla út á aukavaktir.“ Álag á fæðingardeildum á Akranesi og Akureyri FYRIRFRAMÁKVEÐNAR KEISARASKURÐAÐGERÐIR FÆRÐAR ÚT Á LAND Álag Ein ljósmóðir á vakt á Akranesi Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is „Versta ástandið er á sængurkvennagangi. Þaðan þarf að senda konur sem eru með börn á vökudeild heim, konur sem annars hefðu fengið að vera með kríl- unum sínum í nokkra daga. Það er ömurlegt að þurfa að gera þetta.“ Þetta seg- ir Hallfríður Kristín Jóns- dóttir, Fríða, ljós- móðir á fæðing- arvakt Land- spítalans. Hún er ein þeirra 30 ljósmæðra á spítalanum sem hafa sagt starfi sínu lausu. Uppsögn Fríðu tekur gildi 1. októ- ber. Hún áætlar að nú hafi 17 ljós- mæður á fæðingarvaktinni sagt upp, um þriðjungur þeirra rúmlega 50 ljósmæðra sem starfa á vaktinni. „Þær sem eru að segja upp eru ungu konurnar í hæsta starfshlutfallinu. Þrjár á vaktinni munu hætta í haust vegna aldurs og nokkrar sem eru orðnar sextugar eru byrjaðar að taka út lífeyri og eru í minna en 50% starfi. Stéttin virðist vera að lognast út af,“ segir Fríða. Verðandi mæður áhyggjufullar Hún hefur starfað sem ljósmóðir í tíu ár og segir það hafa verið afar erf- iða ákvörðun að segja starfi sínu lausu. „Ég sagði upp 20. júní og beið eins lengi og mér fannst ég geta með það. Ég hélt að ástandið myndi ekki ganga svona langt. Mér finnst hafa verið farið illa með mig og ég skammast mín hálfpartinn fyrir að hafa látið það viðgangast.“ Fríða segir að talsvert sé um að konur, sem eru komnar að því að fæða, hringi áhyggjufullar á fæðing- arvaktina. „Þær spyrja hvort það sé pláss fyrir þær, hvort hægt sé að sinna þeim. Þegar þær koma svo á staðinn verður þeim létt því við ger- um allt sem við getum til að þær finni ekki fyrir ástandinu.“ Að sögn Fríðu eru allar vaktir bæði á fæðingarvakt og sængurkvennagangi undirmannaðar eftir að uppsagnir 12 ljósmæðra tóku gildi um síðustu mánaðamót. Við það bætast forföll vegna sumarfría og gripið hefur verið til þess ráðs að fá ljósmæður til að bæta við sig vinnu og fá ljósmæður af öðrum deildum, m.a. mannauðssviði til að standa vaktina. Að öllu óbreyttu mun yfirvinnu- bann ljósmæðra taka gildi eftir tvo sólarhringa. Þegar Fríða var spurð að því í gær hvort starfsfólki hefði verið kynnt hvernig spítalinn hyggst bregðast við því ástandi sem þá mun hugsanlega skapast sagði hún svo ekki vera. „Okkur hefur ekki verið kynnt nein áætlun. Ég veit satt best að segja ekki hvernig á að manna deildirnar eftir að bannið skellur á.“ Hallfríður K. Jónsdóttir Þriðjungur ljósmæðra á fæðingarvakt hefur sagt upp

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.