Morgunblaðið - 16.07.2018, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 16.07.2018, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚLÍ 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Heimsmeist-aramótikarla í knattspyrnu lauk í gær með sigri Frakka. Mótið var haldið í Rússlandi og geta gest- gjafarnir vel við unað. Leikir mótsins voru flestir spennandi og ágæt auglýsing fyrir knattspyrn- una, sér í lagi eftir þau spilling- armál sem sett hafa svartan blett á Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, á undanförnum árum. Að þessu sinni var knatt- spyrnan í fyrirrúmi. Fjölmörg mörk voru skoruð og boðið var upp á spennu og óvænt úrslit. Sigur Frakka var verðskuld- aður. Lið þeirra byrjaði hægt, en óx ásmegin eftir því sem á leið. Liðið sýndi að það gat spilað leiftrandi knattspyrnu, en oftar beið það átekta. Stundum mátti jafnvel ætla að Frakkarnir hefðu laumast í handbók íslenska landsliðsins þegar þeir leyfðu andstæðingnum að stjórna leikn- um og treystu á að sækja hratt þegar þeir unnu boltann. Króatar eru einnig með frá- bært lið eins og Íslendingar þekkja eftir margar viðureignir á undanförnum árum. Þeir verð- skulduðu fyllilega að leika til úr- slita. Sömu sögu má segja um lið Belga, sem hrepptu þriðja sætið og mætti halda fram að hafi leikið áferðarfallegustu og skemmtileg- ustu knattspyrnuna. Íslendingar geta borið höfuðið hátt eftir þátttökuna í mótinu. Liðið stóð sig með prýði, sýndi að það átti fullt erindi í Rússlandi og hefði hæglega getað komist upp úr sínum riðli. Nú er að fylgja þessum árangri eftir. Eitt af því sem vakti hvað mesta athygli í upphafi mótsins var myndbandsdómgæslan svo- kallaða, sem réð að mörgu leyti úrslitum í nokkrum af mikilvæg- ustu leikjum riðlakeppninnar. Minna fór fyrir henni í útslátt- arkeppninni sjálfri allt þar til í úrslitaleikinn í gær var komið. Mun lengi verða deilt um vítið, sem Frökkum var dæmt með því að skoða upptökur eftir að bolt- inn fór í hönd varnarmanns Kró- atíu í vítateignum. Þá munu Kró- atar ugglaust einnig spyrja hvers vegna tæknin var ekki notuð til að fara yfir það hvort einn leik- manna Frakka hafi verið rang- stæður þegar franska liðið náði forustu með sjálfsmarki Króata eftir aukaspyrnu. Hvað sem því líður er ljóst að tæknin mun eiga sífellt meiri þátt í alþjóðaknattspyrnunni. Þótt hún sé umdeild verður það að teljast gott því að hún tekur af vafa og getur leitt í ljós hluti, sem ella færu fram hjá dómurum. Það verður líka forvitnilegt að sjá hvaða áhrif myndbandsdómgæsla hefur á hegðun leikmanna því nú munu dómarar eiga auðveldara með að fullvissa sig um að ekki sé verið að leika á þá. Að mörgu leyti var þetta keppni „smáþjóðanna“, þar sem fornfræg landslið náðu sér ekki á strik. Þetta mun til að mynda vera í fyrsta sinn í sögu mótsins þar sem hvorki Þýskaland, Brasilía eða Argent- ína ná í undanúrslit. Þá er Króat- ía fámennasta ríkið sem nær í úr- slitaleik mótsins frá því Úrúgvæ varð heimsmeistari árið 1950. Gestgjafar Rússa nutu þess líka greinilega að vera á heima- velli. Lágt skrifað lið heima- manna náði að komast í átta liða úrslit, þvert á spár, og munaði litlu að því tækist að slá út verð- andi silfurlið Króata í víta- spyrnukeppni. Mótið hefur verið góð auglýs- ing fyrir Rússland. Það var vel skipulagt og flestir þeir, sem héldu til Rússlands, bera landi og þjóð söguna vel. Þótt öryggis- gæsla hafi yfirleitt ekki verið íþyngjandi fyrir gesti var hún talsverð og Rússar greinilega við öllu búnir. Fyrir leik Íslendinga og Króata mátti til dæmis sjá bryndreka með loftvarnarbyssur fyrir utan leikvanginn. Hafi menn átt von á að Vladim- ír Pútín Rússlandsforseti myndi nota mótið til að trana sér fram varð sú ekki raunin. Hann var viðstaddur upphafsleik mótsins milli Rússlands og Sádi-Arabíu og fylgdist með viðureigninni við hlið Mohammeds bin Salman, krónprins olíuveldisins. Fór þar vel á með þessum tveimur leið- togum, sem saman sitja á um fjórðungi olíu- og gasbirgða heimsins. Hann var ekki við- staddur aðra leiki Rússa þótt þeir kæmust í átta liða úrslit, en var hins vegar á úrslitaleiknum í gær ásamt Kolindu Grabar- Kitarovic, forseta Króatíu, og Emmanuel Macron, forseta Frakklands, sem enn virðist ekki hafa heyrt af sniðgöngu íslenskra ráðamanna á HM til að mótmæla framgöngu Rússa á alþjóðavett- vangi. Haft hefur verið á orði að mót- ið í Rússlandi hafi verið eitt besta mót frá upphafi. Eftir fjögur ár mun sögunni víkja til Katar og fer mótið þá fram á aðventunni. Mótsstaðurinn er umdeildur og er það ekki bara vegna loftslags- ins. Spurningar hafa vaknað um spillingu í kringum staðarvalið og vinnuþrælkun við byggingu leik- vanga og annarra mannvirkja. Eftir átta ár verður móti hald- ið í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó. Þá verður þátttöku- löndum fjölgað um 16, úr 32 í 48. Margir hafa áhyggjur af að það muni veikja mótið. Meira verði af ójöfnum leikjum. Yfirburðir Evr- ópu og Suður-Ameríku eru miklir í knattspyrnunni. Þrettán lið frá öðrum álfum tóku þátt í mótinu. Aðeins tvö þeirra komust upp úr sínum riðlum, Japan og Mexíkó, og voru slegin út í 16 liða úrslit- um. Fjölgunin gæti hins vegar einnig orðið til þess að efla knatt- spyrnuna og stuðlað að því að lina það tak, sem Evrópa og Suð- ur-Ameríka hafa á vinsælustu íþrótt heims. Frakkar heimsmeist- arar eftir vel heppn- að HM í Rússlandi} Spenna og óvænt úrslit Á meðan heilbrigðiskerfið er einn mikilvægast þáttur mannlífsins hér á landi er það um leið eitt stærsta bitbein pólitískra átaka. Öll erum við sammála um að vilja gott og öflugt heilbrigðiskerfi en okkur greinir á um hvernig kerfið á að vera uppbyggt, hver á að veita þjónustuna og svo er það auðvitað hug- lægt mat hvenær heilbrigðiskerfið nær þeirri stöðu að vera það gott að hægt sé að una því hvernig það er uppbyggt. Líklega komum við aldrei að þeim tímapunkti að lyfta upp þum- alfingri og segja að nú sé kerfið orðið fullkomið. Líkt og svo margir aðrir þættir þróast heil- brigðiskerfið með tímanum, m.a. vegna tækni- breytinga og annarra lýðheilsuþátta. Við lifum lengur, nýir sjúkdómar gera vart við sig á með- an aðrir líða undir lok og þannig mætti áfram telja. Til einföldunar mætti skipta heilbrigðiskerfinu upp í tvo þætti, annars vegar aðgengi að heilbrigðisþjónustu og hins vegar veitingu þjónustunnar. Um það verður ekki deilt að allir eigi að hafa aðgengi að heilbrigðisþjónustu, óháð efna- hag eða öðrum samfélagslegum þáttum. Þó að vissulega megi finna vankanta þá er mér óhætt að fullyrða að heilt yf- ir litið hefur okkur tekist vel í því að tryggja aðgengi að heilbrigðisþjónustu. Það eru helst landfræðilegar aðstæður sem torvelda það aðgengi. Úr því má bæta og við þurfum að tryggja betra aðgengi landsbyggðarinnar að öflugri þjón- ustu. Hluti af þeirri lausn ætti að vera að efla fjarheilbrigð- isþjónustu þar sem þess gefst kostur. Samhliða aðgengi að þjónustunni erum við nokkuð sammála um að ríkið greiði meg- inþorra þjónustunnar, líkt og það gerir nú þeg- ar. Það er hins vegar frekar deilt um það hver á að veita þá þjónustu sem landsmönnum stend- ur til boða. Það verður ekki séð með góðum rökum að ríkið eigi eitt að veita þá þjónustu. Við höfum nú þegar góða reynslu af rekstri og þjónustu einkaaðila í heilbrigðiskerfinu, t.d. Í öldrunarmálum og í rekstri einkarekinna heilsugæslustöðva. Þessa reynslu eigum við að nýta til að gera kerfið enn öflugra. Síðastliðið ár hefur mikið verið rætt um kostnað við liðskiptaaðgerðir þar sem við erum að senda landsmenn til Svíþjóðar í liðskipta- aðgerðir í stað þess að gera samning við einka- reknar skurðstofur hér á landi. Að senda sjúk- ling til Svíþjóðar í aðgerð er tvöfalt dýrara fyrir utan allt það rask sem fylgir ferðalaginu. Með öðrum orðum, þjónustan er hvort tveggja í senn dýr- ari fyrir ríkið og verri fyrir sjúklinginn. Það getur ekki ver- ið pólitískt markmið að bjóða upp á lélega þjónustu í nafni þess að ríkið eigi eitt að veita heilbrigðisþjónustu. Við þurfum að vera opin fyrir því að hugsa hlutina upp á nýtt, líka þegar kemur að heilbrigðiskerfinu. Markmiðið hlýtur að vera að bjóða upp á góða og um leið hagkvæma þjónustu. Það verður ekki gert með ríkið sitji eitt beggja megin borðsins. Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Öflugra heilbrigðiskerfi með einkaaðilum Höfundur er formaður utanríkismálanefndar og ritari Sjálfstæðisflokksins. aslaugs@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Nína Guðrún Geirsdóttir ninag@mbl.is Umsóknarfrestur fyrir aug-lýstar stöður bæjar- ogsveitarstjóra er nú liðinn íflestum tilvikum og hafa þrettán sveitarfélög birt lista yfir um- sækjendur. Heilt yfir sóttu töluvert fleiri karlmenn um stöðu bæjar- eða sveitarstjóra eða 70 prósent. Í tveimur sveitarfélögum sóttu eingöngu karl- menn um stöðuna, það var í Fjarða- byggð og sveitarfélaginu Hornafirði. Fjöldi umsækjenda var æði misjafn eft- ir sveitarfélögum en flestar umsóknir bárust um stöðu sveitarstjóra Blá- skógabyggðar eða 24. Flestir framkvæmdastjórar Heilt yfir virðist starfsreynsla um- sækjenda vera nokkuð fjölbreytt. Langflest sveitarfélög setja þær kröfur að umsækjandi hafi framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum ásamt því að hafa reynslu af stjórnun og rekstri. Ef litið er á starfstitla umsækj- enda virðist starfsreynsla þeirra helst felast í stjórnun af ýmsu tagi. Flestir titluðu sig framkvæmdastjóra og næst- flestir voru fyrrverandi sveitarstjórar eða bæjarstjórar. Allnokkrir voru verk- efnastjórar og mátti þar að auki finna hvers kyns stjóra sem flokkaðir voru í „annað“, t.d. forstjóra, slökkviliðs- stjóra, sviðsstjóra, hótelstjóra, ritstjóra og fjármálastjóra. Tveir fyrrverandi sveitarstjórar sóttu um á nokkrum stöðum þeir Gísli Halldór Halldórsson, fráfarandi bæj- arstjóri Ísafjarðarbæjar, sem sótti alls um sjö stöður víðs vegar um landið og var Ísafjarðarbær ekki þar á meðal. Magnús Stefánsson, fráfarandi bæj- arstjóri Garðs, sótti um á tveimur stöð- um en samningar þessara bæjarstjóra runnu út í vor. Þá sótti Elliði Vignisson, fyrrverandi bæjarstjóri í Vest- mannaeyjum, um stöðu bæjarstjóra í Ölfusi. Umsóknametið í ár á Linda Björk Hávarðardóttir verkefnastjóri sem sótti um á alls tíu stöðum víðs vegar um landið. Fjölbreytileiki fyrir austan Fjölbreyttustu reynsluna er lík- lega að finna meðal umsækjenda um starf bæjarstjóra á Seyðisfirði, en þeirra á meðal var leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson sem ættaður er af svæðinu. Einnig sóttu þar um Snorri Emilsson leikstjóri og Sveinn Enok Jó- hannsson, sölustjóri og söngvari. Ætti það ekki að koma á óvart í ljósi þess að á Seyðisfirði er blómlegt lista- og menningarlíf sem nær hápunkti einu sinni á ári með listahátíðinni LungA. Einn forsprakki LungA-hátíðarinnar, Kristín Amalía Atladóttir, var einnig meðal umsækjenda á Seyðisfirði. Má gera fastlega ráð fyrir því að þegar auglýst er eftir bæjarstjórastöðu geti margir brottfluttir einstaklingar frá viðkomandi sveitarfélögum vel hugsað sér að sækja um. Selfyssing- urinn Einar Bárðarson sem hefur gegnt stöðu samskiptastjóra Hafnar- fjarðarbæjar undanfarin ár, var meðal umsækjenda í Árborg. Fjórir fyrrverandi vílja stjórna Akureyri Margir eru um hituna á Akureyri þar sem sextán umsóknir bárust um stöðu bæjarstjóra en Eiríkur Björn Björgvinsson lætur þar af störfum eftir átta ár í starfi. Fjórir fyrrverandi sveitarstjórar sóttu um starfið, m.a. Ásthildur Sturlu- dóttir, fyrrverandi sveitarstjóri í Vest- urbyggð. Einnig sótti þar um Guð- mundur Steingrímsson, fyrrverandi þingmaður og ritstjóri. Hafa ber í huga að sum sveit- arfélögin birtu ekki upplýsingar um störf eða bakgrunn umsækjenda sinna. Því var aðeins notast við þá starfstitla sem voru aðgengilegir hjá sveit- arfélögunum í tölfræðinni sem fylgir greininni. Konur eru tæpur þriðjungur umsækjenda Búið er að ráða í nokkrar stöð- ur sveitarstjóra nú þegar. Með- al annars var Ásta Stefáns- dóttir valin í starf sveitarstjóra Bláskógabyggðar en hún lét nýverið af störfum sem fram- kvæmdastjóri Árborgar eftir tvö kjörtímabil. Þá var Valdi- mar O. Hermannsson ráðinn sveitarstjóri í Blönduósbæ. Hann hefur verið verkefnastjóri undanfarin ár m.a. fyrir At- vinnuþróunarfélag Eyjafjarðar. Í Fjarðabyggð var ráðinn Karl Óttar Pétursson sem hefur starfað sem forstöðumaður lögfræðisviðs Arionbanka, Katrín Sigurjónsdóttir sem m.a. hefur starfað sem fram- kvæmdastjóri er nýr sveit- arstjóri Dalvíkurbyggðar og Linda Björk Pálsdóttir er nýr sveitarstjóri í Hval- fjarðarsveit, en hún var áður skrifstofustjóri sveitarfé- lagsins. Fjölbreyttur hópur REYNSLA Í BLAND VIÐ NÝGRÆÐINGA Ásta Stefánsdóttir Umsækjendur um störf sveitar- og bæjarstjóra Kynjahlutfall umsækjenda Fjöldi umsækjenda efir starfstitlum Framkvæmda- stjórar Sérfræðingar Sviðsstjórar Ráðgjafar Sveitar- og bæjarstjórar Annað Karl Kona 70% 30% 24 5 5 7 19 45

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.