Morgunblaðið - 16.07.2018, Side 8
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Návígi Hnúfubakur uppi við skipið
Konsúl, rétt fyrir utan Akureyri.
„Það eru allir skælbrosandi hér um
borð,“ sagði Örn Stefánsson, skip-
stjóri á hvalaskoðunarbátnum Kon-
súl sem gerður er út frá Akureyri,
en þrír hnúfubakar voru í gær
staddir lengst inni við Poll, sunnan
við Akureyrarhöfn.
Örn sagði hnúfubakana þrjá hafa
verið spaka og greinilega í leit að æti
svona innarlega. Fyrr í gær voru
hvalirnir við Hjalteyri, um tíu mílur
frá Akureyri.
Spurður hvernig árangurinn hafi
verið í hvalaskoðuninni í sumar
sagði hann að hvalur hefði sést í
hverri einustu ferð. Hann sagði að
bæði hefðu sést hrefnur og hnýð-
ingar auk hnúfubaka.
Hnúfubak-
ar við Poll
„Allir eru skæl-
brosandi um borð“
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚLÍ 2018
Hamraborg 10, Kópavogi
Sími: 554 3200
Opið: Virka daga 9.30–18
VERIÐ VELKOMIN
Í SJÓNMÆLINGU
———
Hver er staða Atlantshafs-bandalagsins eftir leiðtoga-
fundinn í síðustu viku? Styrmir Gunn-
arsson, fyrrverandi ritstjóri
Morgunblaðsins, velti
þeirri spurningu fyr-
ir sér á heimasíðu
sinni á föstudaginn:
Það er ekki auð-velt að átta sig á
því. Miðað við um-
mæli annarra leið-
toga aðildarríkjanna
virðist Bandaríkjaforseti hafa ýkt
mjög árangur sinn á fundinum.
Hvaða tilgangi getur það þjónað?
Eftir stendur óvissa um afstöðuBandaríkjanna til bandalagsins.
Augljóst er að þegar hér er komið
sögu hafa Evrópuríkin sameinuð
efnahagslega burði til að verja sig
sjálf. Angela Merkel hefur ítrekað
lýst þeirri skoðun, að það hljóti þau
að gera.“
Styrmir víkur einnig að stöðu Rúss-lands: „Rússland er ekki sama
veldi og Sovétríkin voru um skeið en
þau hrundu efnahagslega áður en
þau hrundu pólitískt. Rússland er risi
á efnahagslegum brauðfótum en hef-
ur hins vegar lagt áherzlu á hern-
aðarlega uppbyggingu á ný á seinni
árum. Nágrönnum þeirra stendur
ógn af Rússum. Það er skiljanlegt í
ljósi Krímskaga og Úkraínu.“
Að lokum víkur Styrmir að stöðuÍslands: „Óvissan um afstöðu
Bandaríkjanna er hins vegar sérstakt
vandamál fyrir okkur Íslendinga.
Varnarsamningurinn við þau er,
ásamt aðildinni að NATÓ, kjarninn í
öryggismálapólitík okkar.“
Styrmir leggur sérstaka áherslu álokaorð sín: „En Bandaríkja-
forseti hefur að vísu ekkert gefið til
kynna um að sá samningur standi
ekki fyrir sínu.“
Styrmir
Gunnarsson
Kjarni öryggis-
málastefnunnar
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 15.7., kl. 18.00
Reykjavík 11 súld
Bolungarvík 7 rigning
Akureyri 13 léttskýjað
Nuuk 17 skýjað
Þórshöfn 12 þoka
Ósló 24 heiðskírt
Kaupmannahöfn 22 léttskýjað
Stokkhólmur 28 heiðskírt
Helsinki 29 heiðskírt
Lúxemborg 24 léttskýjað
Brussel 28 heiðskírt
Dublin 18 súld
Glasgow 18 súld
London 26 heiðskírt
París 29 heiðskírt
Amsterdam 26 heiðskírt
Hamborg 19 léttskýjað
Berlín 22 léttskýjað
Vín 28 heiðskírt
Moskva 23 þrumuveður
Algarve 22 léttskýjað
Madríd 28 heiðskírt
Barcelona 29 heiðskírt
Mallorca 29 léttskýjað
Róm 31 heiðskírt
Aþena 30 léttskýjað
Winnipeg 21 heiðskírt
Montreal 27 léttskýjað
New York 21 þoka
Chicago 27 léttskýjað
Orlando 30 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
16. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:45 23:24
ÍSAFJÖRÐUR 3:12 24:06
SIGLUFJÖRÐUR 2:54 23:51
DJÚPIVOGUR 3:06 23:02
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Fjórir voru fluttir á sjúkrahús í
fyrrinótt eftir að upp kom eldur í
sumarbústað á Búrfellsvegi í Gríms-
nesi. Í tilkynningu sem Brunavarnir
Árnessýslu sendu frá sér í gær kom
fram að útkallið hefði komið klukk-
an fimm að morgni. Vel gekk að
slökkva eldinn þrátt fyrir mikinn
bruna en rannsókn á upptökum
eldsins stendur enn yfir.
Líkt og fyrr segir voru fjórar
manneskjur staddar í bústaðnum
þegar eldurinn kom upp. Allt fólkið
vaknaði við reykskynjara og komst í
kjölfarið út úr bústaðnum af sjálfs-
dáðum þrátt fyrir mikinn reyk og
hita. Ákveðið var að flytja fólkið á
sjúkrahús öryggisins vegna auk
þess sem grunur lék á að hluti hóps-
ins hefði orðið fyrir reykeitrun.
„Það er okkur ljóst og það verður
aldrei of oft sagt að reykskynjarar
og slökkvitæki geta bjargað manns-
lífum,“ segir í tilkynningu sem barst
frá Brunavörnum Árnessýslu eftir
brunann í gær.
Lögreglan á Suðurlandi fer með
rannsókn málsins og hefur lokið
rannsókn á vettvangi. Rannsókninni
er þó ekki lokið en lögregla var ekki
tilbúin að veita frekari upplýsingar
um málið þegar eftir því leitað í
gær.
Reykskynjari bjargaði fólki úr eldi
Eldur kom upp í sumarbústað í Grímsnesi Rannsókn stendur enn yfir
Ljósmynd/Brunavarnir Árnessýslu
Eldur Slökkvistörf gengu vel.