Morgunblaðið - 16.07.2018, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 16.07.2018, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚLÍ 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Vitrar manneskjur hvetja þig hugsan- lega til þess að takast á við veikleika þína. Kyrr og friðsæll hugur ryður veginn fyrir lífs- máta sem er bæði einbeittur og innihalds- ríkur. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú gætir þurft að annast einhvern ann- an eða láta þínar þarfir mæta afgangi vegna þess að einhver þarf á hjálp þinni að halda á næstu dögum. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Skoðaðu nú vel hvað þú gefur mik- inn tíma í vinnu þína og hvort þú uppskerð sem skyldi. Hættu að vera of almennilegur og treystu á sjálfan þig. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Finnist þér of miklar kröfur vera gerð- ar til þín gæti það reynst þér nauðsynlegt að komast í burtu um tíma. Mundu að góð heilsa er gulli betri. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Reyndu að sjá fyrir næsta skref í starfi þínu því svo kann að fara að þú þurfir að taka það fyrr en þú ætlar. Vertu sveigjanlegur því á þann veg muntu ná mestum árangri. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú þarft að fást við mjög vandasamt og persónulegt verkefni sem þér er lífs- nauðsyn að geta einbeitt þér að á næstunni. Að öðrum kosti fer allt úr böndunum hjá þér. 23. sept. - 22. okt.  Vog Visst verkefni mun hanga yfir þér mán- uðum saman ef þú brettir ekki upp ermarnar. Gefðu því tíma þótt þér sé það þvert um geð. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Vertu óhræddur við að segja hug þinn því þá munu aðrir taka mark á þér. Hugsaðu vandlega áður en þú talar, það er hlustað á þig. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Reyndu að nálgast verkefni þín í vinnunni með skipulögðum hætti. Haltu þínu striki og þá mun allt fara vel. Jákvæð hugsun er gífurlega mikilvæg. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þar sem þú kemur fyrstur auga á vandamál, sér fólk þig sem þann sem getur leyst það. Þetta er hentugur tími til að ganga frá lausum endum og ljúka hálfkláruðum verkum. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú átt ekki að vera í neinum vand- ræðum með að inna af hendi þau verkefni, sem þér hafa verið falin, þótt flókin séu. Allir taka eftir þér og því sem þú gerir. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það bendir ýmislegt til þess að gamall draumur þinn muni nú rætast. Vertu á varð- bergi gagnvart þeim sem eru bara að hugsa um hvernig þú getir gagnast þeim. Davíð Hjálmar Haraldsson orti ámiðvikudag á Leir um „ís- björninn á Sléttu“: Hættulegir bæði fólki og fé, feikna kjaftur, hrammur eins og sleggja, en ætli þessi ísbjörn nyrðra sé með allan gang og kunni best að hneggja? Gústi Mar var með á nótunum: Vappar um hjá vötnunum veldur sálartjóni. Háskalegur hleypur um hrúturinn frá Skinnalóni. Þannig var hljóðið í Pétri Stef- ánssyni á Leir á fimmtudag um rigninguna í Reykjavík: Allt vill blotna, fés og flíkur, fjandans veðrið ergir mann. Enn einn dagur öðrum líkur, ekkert þessu breyta kann. „Já, þetta er að verða allnokkuð,“ bætti Sigrún Haraldsdóttir við: Við mætt höfum úrkomu mestri og flestri mikilli, stöðugri og traustri Það rignir úr suðri og rignir úr vestri svo rignir úr norðri og austri. Og enn: Við reynt höfum stöðugan rigningarklið, er regn kemur þaðan og héðan, það rignir á ská og rignir frá hlið það rignir að ofan og neðan. Nú gat Páll Imsland ekki orða bundist: „Og hafðu sæl lýst góða uppáhaldsveðrinu mínu, Sigrún. Þetta er alveg frábær tíð og alveg að mínu skapi. Ég er fæddur og uppalinn í rigningu og hatast við snjó“: Það rignir að kvöldi og rignir að moddni og svo rignir hann auk þessa stanslaust á meðan við rétt aðeins vonum að regnskúrir þoddni og rignir þá bæði að ofan og neðan. Sigrún svaraði: Það rignir að morgni og um miðjan dag, í musku og næturhúmi. Regnið um harðbala, fitjar og flag fellur í tíma og rúmi. Gústi Mar: Helliregn úr himingáttum hripar þarna dag og nótt. Lemur fólk úr öllum áttum engum manni verður rótt. Ingólfur Ómar um veðrið fyrir norðan: Þar sem sunnanblærinn blæs brosir sól við skötnum. Andinn svífur eins og gæs yfir Héraðsvötnum. Gústi Mar að lokum: Mig í anda um það bil alveg hljóðan setur. Með ykkur finn ég ósköp til einsog maður getur. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af ísbirni, hrútum og rigningu „BYRJUM Á ÞVÍ AÐ TAKA OKKUR HÁDEGISHLÉ. ÞAÐ ER ALLTAF HÁDEGI EINHVERS STAÐAR.“ „ÉG VEIT HVERNIG ÞÉR LÍÐUR! ÉG KLÚÐRAÐI EINU SINNI FIMM CM PÚTTI.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar bara hann hefur lykilinn að hjarta þínu. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÞETTA HEFUR VERIÐ LANGUR DAGUR ÉG HEF VERIÐ VAKANDI Í NOKKRAR MÍNÚTUR… LIÐU EINS OG KLUKKU STUNDIR! VEFÐU HERTOGANN INN Í ÞETTA TEPPI! VIÐ SKULUM TAKA HANN SEM GÍSL! NEI! PLÍS EKKI GERA ÞAÐ… ÉG GRÁTBIÐ ÞIG! ÞETTA ER UPPÁHALDSTEPPIÐ MITT! Í skemmu inn við Sund í Reykjavík,þar sem sjálfboðaliðar á vegum Rauða krossins taka á móti fötum og flokka, var ungur maður við störf. Þetta var hælisleitandi frá Afríku sem skolað hafði á öldum örlaganna hingað norður í svalann. Góðlegur gaur en glöggt mátti greina í svip hans að lífið væri enginn dans á rós- um. Eitthvað í svipnum hans snart því Víkverja. Fólk getur auðvitað haft allar mögulegar skoðanir á inn- flytjendamálum og hvaða stefnu skuli þar taka, en um velferð og mannúð ættu þó allir að geta verið sammála. Því fer hrollur um Víkverja þegar hann hugsar til þess að til séu á Íslandi stjórnmálahreyfingar og fólk sem gerir út á andúð á flótta- fólki, mannana börnum sem hvergi eiga veraldlegt skjól eða traust bak- land. Sem betur fer er sá hópur þó fámennur. x x x Í Viðskipta-Mogganum fyrir helginavar áhugaverð frétt um að Rík- isskattstjóri hefði nú að hætt að setja bréf í póst. Þannig sparast að senda út 480 þúsund bréf, sem vegið hefðu fimm tonn og póstburðargjöld verið 65 milljónir króna. Skatturinn er raunar nú orðin framúrskarandi þjónustustofnun sem afgreiðir málin fljótt og vel og öðruvísi mér áður brá! Því er spurning hvort aðrar opinber- ar stofnanir ætli ekki að taka sér tak með sama móti. Gera þjónustu sína rafræna í enn ríkari mæli og afgreiða erindi borgaranna á staðnum og stundinni, eins og við á. Hjá Reykja- víkurborg tekur stundum ár að svara fyrirspurnum eða leysa úr málum og fyrir nokkrum dögum sagði frá því að umhverfisráðuneytið gæfi sér mánuði til þess að segja af eða á um hvort setja megi upp kamar til bráða- birgða norður í Mývatnssveit. Væri þá hægt að halda lengi áfram upp- talningu á dratthalahætti í opinbera kerfinu. x x x Til hamingju Frakkar! Hugurinnsvífur til Parísar þangað sem Víkverji hefur nokkrum sinnum komið. Þar mætast stefnur og straumar í stórkostlegri heimsborg hins ljúfa lífs og nú þeirrar fögru list- ar sem fótboltinn er. vikverji@mbl.is Víkverji Lofaður sé Guð er hvorki vísaði bæn minni á bug né tók frá mér miskunn sína. (Sálmarnir 66.20) Nýr stór humar Opið virka daga 10.00 - 18.15 | laugardaga 11.00 - 15.00 Gnoðarvogi 44 | 104 Reykjavík | sími: 588 8686 Glæný lúða Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði fyrir þig til að taka með heim Ný línuýsa Klaustur- bleikja

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.