Morgunblaðið - 16.07.2018, Side 32

Morgunblaðið - 16.07.2018, Side 32
MÁNUDAGUR 16. JÚLÍ 197. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Prinsessan lét ljósmyndara... 2. „Sum hjólför hverfa ekki“ 3.Heitasti piparsveinn landsins 4. Hæsti hiti ársins í Reykjavík »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Sýningin Kvenfólk, sem Leikfélag Akureyrar setti upp á síðasta leikári og naut þar mikilla vinsælda, verður sett upp á Nýja sviði Borgarleikhúss- ins á komandi leikári og verður fyrsta sýningin fimmtudaginn 22. nóv- ember. Sýningin var tilnefnd til þrennra Grímuverðlauna; fyrir leikrit ársins, tónlist ársins og sprota ársins. Í sýn- ingunni fer dúettinn Hundur í óskil- um, skipaður Hjörleifi Hjartarsyni og Eiríki Stephensen, yfir kvennasögu Íslands á hundavaði með söngvum, sögum og margs konar sprelli. Dúett- inn hefur áður varpað nýju og óvæntu ljósi á Íslandssöguna með þeim hætti, í sýningunum Saga þjóðar og Öldin okkar. Morgunblaðið/Skapti Kvenfólk fer á svið Borgarleikhússins  Kristín Einarsdóttir Mäntylä mezzo- sópran, Sigrún Björk Sævarsdóttir sópran og Elena Postumi píanóleikari flytja sönglög eftir Pál Ísólfsson, Jón Leifs, Emil Thoroddsen, Edvard Grieg og fleiri tónskáld sem öll lærðu eða störfuðu í Leipzig, á morgun kl. 20.30 í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar. Kristín, Sigrún og Elena búa í sömu borg, Leipzig í Þýskalandi. Með kveðju frá Leip- zig í Sigurjónssafni Á þriðjudag Hæg breytileg átt og léttskýjað sunnan- og vest- anlands, en skýjað fyrir norðan og vestan og þokuloft við strönd- ina. Hiti 10 til 19 stig, hlýjast sunnan til. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðlæg átt, 3-10, og léttir smám saman til en skýjað og súld eða dálítil rigning fyrir norðan og austan. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast sunnanlands í dag. VEÐUR Serbinn Novak Djokovic og Angelique Kerber frá Þýska- landi unnu einliðaleiks- keppni Wimbledon-mótsins í tennis. Djokovic hefur átt á brattann að sækja síðustu tvö ár en vonast til að sig- urinn um helgina verði til að snúa gæfuhjólinu honum í vil á nýjan leik. Kerber kom hins vegar í veg fyrir sigur Serena Williams sem er óð- um að nálgast fyrra form. »6 Kerber og Djoko- vic fögnuðu „Það er mjög gaman að keppa á móti henni og með henni, við ýtum hvor annarri áfram. Í 200 metra hlaupinu dró hún mig í mark og það er gaman að geta haft svona samkeppni og ver- ið áfram góðar vinkonur,“ sagði Tiana Ósk Whitworth, spretthlaupari úr ÍR og Íslandsmeistari í 100 m hlaupi, um æfinga- félaga sinn Guðbjörgu Jónu Bjarnadóttur, Evrópumeistara unglinga í 100 m hlaupi og Íslands- meistara í 200 m hlaupi. »4 Mikil samkeppni hjá vinkonunum úr ÍR Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hafnaði í 56. - 61. sæti á Marathon Classic- mótinu í LPGA-mótaröðinni í golfi í Ohio sem lauk í gær. Hún lék hringina fjóra á pari þegar dæmið var gert upp. Ólafía Þórunn lék afar vel á laug- ardaginn og var í góðri stöðu en gaf aðeins eftir í gær. Hún ætti að hafa styrkt stöðu sína í mótaröðinni með þessum árangri. »1 Ólafía Þórunn hefur styrkt stöðu sína ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Snilldin felst auðvitað í því að hægt er að taka á loft hvar sem er. Mót- orinn setur maður á bakið og gang- setur, hleypur svo nokkra metra og þá grípur vængurinn gustinn og feykir manni í loftið. Svo lætur mað- ur sig líða um loftin blá; sessan á mótornum er eins og fínasti hæg- indastóll og útsýnið er frábært,“ segir Karol Pawlik paramótor- flugmaður. Eins og fuglinn frjáls Flugsýningin Allt sem flýgur var haldin á Hellu um helgina. Þetta er hátíð fólks í einkafluginu og þarna gat að líta forvitnilegar flugvélar og ýmis flygildi sem tekin voru til kost- anna með nánast listrænum til- þrifum. Karol Pawlik var einn þeirra sem vakti athygli gesta, er hann og fleiri flugu á paramótor fá- eina metra yfir jörðu og meðal ann- ars dreifðu karamellum yfir krakka- skarann sem tók gotteríinu fagnandi. Allir sáu að þarna fóru flinkir flugmenn og flygildi þeirra eru áhugaverðir gripir; það er vængur sem líkist fallhlíf og svo mótor. Sá sem bar Karol er 36 kíló og jafnmörg hestöfl. Allt þetta skil- ar sínu, því á flugi er hægt að ná allt að 60 kílómetra flughraða á klukku- stund og komast í hæstu hæðir. „Samt er skemmtilegast að fara lágt yfir og virða fyrir sér útsýnið; í lágflugi sér maður margt áhugavert á jörðu niðri. Satt að segja er alveg stórkostlegt að geta verið eins og fuglinn frjáls,“ segir Karol sem er pólskur að uppruna. Hann er tækni- maður hjá Origo og hefur búið á Ís- landi frá barnsaldri. Fór í sitt fyrsta paramótorflug árið 2006, en tengda- faðir hans, Henryk Paciejewski, kynnti greinina fyrir honum. „Ég heillaðist strax af flugsport- inu sem ég hef stundað síðan. Hér í Mosfellsbæ þar sem ég bý eru góð- ar aðstæður fyrir þetta sport, til dæmis við Úlfarsfellið,“ segir Karol og heldur áfram: „Sjálfur fer ég oft inn í Mosfellsdal, þar sem er yf- irleitt auðvelt að komast á loft og hægt að fljúga þá inn dalinn og austur að Þingvallavatni ellegar út að ströndinni og í áttina að Esjunni. Listin í þessu öllu er annars að tals- verðu leyti sú að læra á landið og náttúruöflin og fá þau til að vinna með sér. Nýta sér til að mynda vindáttir og uppstreymi við fjöllin. Þannig má komast víða yfir og hratt. Árið 2015 fór ég norður á Blönduós fljúgandi á paramótor og var ekki nema rúmlega fjóra tíma í fluginu þar sem ég fylgdi hringveg- inum nánast alla leiðina. Fylgdi þá fólki sem var í hjólreiðakeppni WOW; það var fyrir neðan mig nán- ast alla leiðina. Ferðin er því mjög eftirminnileg.“ Fis á Hólmsheiði Flugið er líf og yndi Karols sem bæði er öflugur í paramótorfluginu og eins í starfi Fisfélags Reykjavík- ur. Innan vébanda þess er fólk sem flýgur á drekum, flygildum og fis- vélum sem hafa heimahöfn á litlum flugvelli á Hólmsheiði ofan við Reykjavík. „Það er fínt að hafa aðgang að fis- vél, því veðráttan í sumar hefur ekki alltaf boðið upp á flug á para- mótor, sporti sem þó eflist og þátt- takendum fjölgar enda er þetta afar skemmtilegt,“ segir Karol. Vængurinn grípur gustinn  Karol á para- mótor á flugsýn- ingu á Hellu Morgunblaðið/Sigurður Bogi Engill Karol Pawlik renndi sér rétt yfir höfðum fólks á flughátíðinni sem haldin var á Hellu um helgina. Paramótor Flogið af listfengi og ör- yggi undir rauðum vængnum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.