Morgunblaðið - 25.07.2018, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 2018
Við gerum við bremsur í
ÖLLUM BIFREIÐUM
Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi
Sími 587 1400 |www. motorstilling.is
20% afsláttur af
bremsuvarahlutum*
TILBOÐ Í JÚLÍ
ÐU
SAMBAN
D
og bókað
u tíma
fyrir bílin
n þinn
* Gildir einungis með bremsuviðgerðum
HAF
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Það er búið að finna út hvaða slétt-
bakur sást við Reykjanesið og
Reykjavík í gær. Kollegar mínir í
Bandaríkjunum þekktu hann af mynd
en þetta er 10 ára gamalt karldýr sem
er í sinni fyrstu ferð til Íslands en áður
hefur hann alltaf farið til Kanada á
sumrin,“ segir Gísli Víkingsson,
hvalasérfræðingur hjá Hafrann-
sóknastofnun Íslands, um sléttbak
sem Guðmundur Falk, skipstjóri hjá
Whale Watching Reykjanes, sá á
mánudagsmorgun.
„Ég var með túrista við Hrafnkels-
staði þegar ég sá hvalinn og vissi ekk-
ert af hvaða tegund hann væri. Ég
hafði engan tíma til þess að taka mynd
en lét strax vita af honum og hvert ég
reiknaði með að hann myndi synda,“
segir Guðmundur. Útreikningar Guð-
mundar reyndust réttir og náði Guð-
laugur Ottesen Karlsson, skipstjóri
hjá hvalaskoðunarfyrirtækinu Eld-
ingu, mynd af sléttbaknum rétt fyrir
utan Akranes um tvöleytið sama dag
og aftur seint um kvöldið. Sléttbak-
urinn sást aftur í Faxaflóa og var ekki
annað að sjá en að hann væri vel hald-
inn, að sögn markaðsstjóra Eldingar.
Gísli Víkingsson segir að hvalurinn
komi alla leið frá Massachusetts en
sléttbakar haldi sig við norðurströnd
Bandaríkjanna og Kanada.
„Við hvalatalningu árin 1987 og
1995 sáum við eitt dýr í hverri taln-
ingu. 1989 sáum við svo kú með kálf.
Eftir 1995 sást einn sléttbakur við
fuglatalningu við Vestmannaeyjar og
annar síðar við Snæfellsnes,“ sagði
Gísli.
Hann segir sléttbaksstofninn í mik-
illi útrýmingarhættu og drápust m.a.
sautján dýr við strendur Bandaríkj-
anna og Kanada í fyrra, sem ýmist
lentu í árekstri við skip eða í krabba-
gildrum.
„Þetta er sami fjöldi og drapst sam-
tals á fimm árum þar á undan. Þar að
auki komst ekki einn einasti kálfur á
legg eftir síðasta fengitíma,“ segir
Gísli og útskýrir af hverju sléttbakur
er kallaður „sá rétti“:
„Hann er hægur í hreyfingum og
flýtur vel af því að hann er feitur. Það
er ástæðan fyrir því að um tíma var
hann eini hvalurinn sem hægt var að
veiða.“
Sléttbakur í útrýmingar-
hættu synti til Íslands
Syndir til Kanada á sumrin Innan við 400 sléttbakar eft-
ir og myndir til af þeim flestum Engir kálfar komust á legg
Ljósmynd/Guðlaugur Ottesen Karlsson
Víðförull Guðlaugur Ottesen Karlsson, skipstjóri hjá hvalaskoðunarfyrirtækinu Eldingu, myndaði sléttbak í hvala-
skoðunarferð á mánudaginn. Sléttbakurinn sem er í útrýmingarhættu heldur sig við Bandaríkin og Kanada.
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Hætta er á að farþegar hafi smitast
af mislingum í tveimur flugferðum
Wow air 18. júlí. „Þarna voru að-
allega erlendir farþegar en líka Ís-
lendingar. Þeir
hafa fengið upp-
lýsingar og ráð
varðandi þetta
mál,“ segir Har-
aldur Briem sótt-
varnalæknir.
Útlensk kona,
greindist með
mislinga skömmu
eftir að hafa flog-
ið tvisvar með
Wow air. Þá flaug hún frá Englandi
til Detroit með millilendingu í Kefla-
vík fyrir viku. „Hún greindist með
mislinga þegar hún var komin til
Detroit og þá fengu sóttvarna-
yfirvöld upplýsingar um að hún
hefði getað verið smitandi þegar
hún var í fluginu.“
Engar tilkynningar hafa borist
um smit í flugferðunum enn sem
komið er, en einkenni smits taka
nokkurn tíma að koma fram. „Ein-
kenni mislingasmits koma fram eftir
eina til tvær vikur,“ segir Haraldur.
Helstu einkenni mislinga eru nef-
rennsli, hiti, hósti, roði í augum og
viðkvæmni fyrir ljósi. Haraldur seg-
ir að varnir Íslendinga við smit-
sjúkdómnum séu mjög góðar.
„Langflestir Íslendingar eru bólu-
settir eða hafa mótefni gegn misl-
ingum, um 95 prósent. Þegar varn-
irnar eru svona góðar fáum við
svokallað hjarðónæmi. Það þýðir að
þótt eitt tilfelli komi upp þá breiðist
sjúkdómurinn ekki út.“ Bólusetn-
ingar gegn mislingum hófust á 8.
áratugnum. Þeir sem eru óbólusett-
ir gætu hafa veikst áður af misl-
ingum. Sá hópur hefur mótefni í lík-
amanum og getur því ekki veikst af
sjúkdómnum aftur. Mislingar eru
bráðsmitandi en bólusetning er
besta vörnin við smiti, að sögn Har-
alds.
Í júní kom upp mislingasmit í vél
Icelandair en enginn í fluginu veikt-
ist. Mislingasmit eru algeng í Evr-
ópu, að sögn Haralds. „Þúsundir
manna smitast á ári hverju, sem
þýðir að bólusetningum er ábóta-
vant. Þess vegna megum við búast
við svona atburðum,“ segir Har-
aldur.
Mislingasmit í vélum Wow air
Erlendur farþegi greindist með mislinga eftir flug
Hætta er á mislingasmiti í tveimur flugferðum Wow air
Haraldur
Briem
Ljósmynd/Wow air
Millilending Farþeginn millilenti í Keflavík en greindist með mislinga þeg-
ar hann kom til Detroit. Sóttvarnayfirvöld voru upplýst um málið án tafar.
Skipasmíðastöðin Crist CA í Pól-
landi hefur óskað eftir því að fresta
afhendingu á nýjum Herjólfi. Ástæð-
an er sögð umbeðin aukaverk og at-
hugasemdir sem Samgöngustofa
gerir við áður samþykktar teikning-
ar, að því er fram kemur hjá Sigurði
Áss Grétarssyni, framkvæmdastjóra
siglingasviðs Vegagerðarinnar, á
vefnum Eyjar.net.
Upphaflega var stefnt að afhend-
ingu skipsins í sumar þannig að það
gæti hafið siglingar fyrir Þjóðhátíð
Vestmannaeyja. Eftir að ríkisstjórn-
in ákvað að gera breytingar á smíð-
inni þannig að skipið yrði búið
stórum rafhlöðum og gengi því að
mestu fyrir rafmagni frestaðist af-
hending fram eftir september. Var
talið að það yrði komið hingað til
lands í október eða nóvember.
Fulltrúar Vegagerðarinnar munu
funda með fulltrúum skipasmíða-
stöðvarinnar á næstu dögum vegna
óskar þeirra um frestun á afhend-
ingu til 17. október. Verði það nið-
urstaðan mun skipið væntanlega
ekki koma til landsins fyrr en í nóv-
ember eða jafnvel desember. Fyrir
liggur að lengri tíma tekur að koma
hleðslubúnaðinum fyrir og líkur á að
hann verði ekki tilbúinn til notkunar
fyrr en næsta vor.
helgi@mbl.is
Afhending
frestast frekar
Nýr Herjólfur væntanlegur í vetur
Frá Eyjum Gamli Herjólfur mun sigla eitthvað lengur en áformað var.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Isavia hefur ákveðið að kæra
bráðabirgðaákvörðun Samkeppnis-
eftirlitsins frá 17. júlí síðastliðnum
til áfrýjunarnefndar samkeppnis-
mála. Bráðbirgðaákvörðunin felst í
því að stofnunin gerir Isavia að
stöðva tímabundið gjaldtöku á ytri
hópbifreiðastæðum á Keflavíkur-
flugvelli. Þetta kemur fram í til-
kynningu frá fyrirtækinu. Þar kem-
ur fram að fyrirtækið er ósammála
niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins
og telur það óeðlilegt að Sam-
keppniseftirlitið stöðvi gjaldtöku
fyrir einn af þjónustuþáttum á
Keflavíkurflugvelli.
„Með því að ákveðinn hluti þeirra
aðila sem starfa við hópferðaakstur
til og frá flugvellinum greiði fyrir
aðstöðu á vellinum og annar hluti
greiði ekki, telur félagið að sam-
keppnisstaða aðila á markaðinum
sé skekkt,“ kemur fram í tilkynn-
ingunni.
Isavia kærir ákvörðun
Vill halda gjaldtöku sinni til streitu
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Rútur Isavia hefur verið harðlega
gagnrýnt fyrir gjaldtökuna.