Morgunblaðið - 25.07.2018, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 2018
TE
N
G
IT
A
U
G
A
R Fallvarnarbúnaður
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Fjölbreytt og gott úrval til á lager
Námskeið um fallvarnir fyrir viðskiptavini
Skoðanir og eftirlit á fallvarnarbúnaði
FA
LLB
LA
K
K
IR
BELTI
Þeir segja í Viðskiptablaðinu:
Ákvörðun íslenskra ráðamannaað sniðganga HM í Rússlandi
er einkar athygliverð í baksýnis-
speglinum. Ríkisstjórnin gaf út að
ákvörðunin væri
vegna samstilltra
aðgerða vestrænna
ríkja, þar með talið
NATO og ESB-
ríkja, vegna efna-
vopnaárásar í Sal-
isbury á Englandi.
Aðgerðirnar virð-ast þó ekki
hafa verið samstillt-
ari en svo að þjóð-
arleiðtogarnir
streymdu til Rúss-
lands. Svíar og Dan-
ir hugðust snið-
ganga mótið, þar til liðin komust í
útsláttarkeppnina og þá bar kappið
milliríkjasamstarfið ofurliði. Að
undanskilinni bresku ríkisstjórn-
inni, sem var of upptekin við að
leysa úr sjálfsköpuðum Brexit-
vanda, voru það helst ríki sem
duttu út í riðlakeppninni, og höfðu
því vart tíma til að snúast hugur,
sem stóðu við sniðgönguna.
Það hefði líklega komið íslensk-um ráðamönnum ágætlega ef
þeir hefðu komist að því að snið-
gangan væri skilyrt við árangur á
mótinu. Það mætti halda að Vla-
dimír Pútín Rússlandsforseti hafi
séð aumur á ríkisstjórn Katrínar
Jakobsdóttur þegar hann sat við
hlið forseta NATO-ríkjanna Frakk-
lands og Króatíu á úrslitaleik móts-
ins.
Pútín mætti með regnhlíf á verð-launaafhendingu mótsins, að
líkindum til að auðsýna samúð með
íslenskum ráðamönnum sem þurftu
að gera sér að góðu að horfa á mót-
ið heima í stofu á meðan regndrop-
arnir börðu á gluggunum.“
Vladímír Pútín
Huginn og Muninn
horfa um öxl
STAKSTEINAR
Katrín
Jakobsdóttir
Veður víða um heim 24.7., kl. 18.00
Reykjavík 11 rigning
Bolungarvík 9 léttskýjað
Akureyri 10 alskýjað
Nuuk 4 súld
Þórshöfn 11 léttskýjað
Ósló 23 heiðskírt
Kaupmannahöfn 27 heiðskírt
Stokkhólmur 29 heiðskírt
Helsinki 24 skúrir
Lúxemborg 30 heiðskírt
Brussel 30 heiðskírt
Dublin 21 skýjað
Glasgow 18 léttskýjað
London 27 alskýjað
París 30 heiðskírt
Amsterdam 27 heiðskírt
Hamborg 31 heiðskírt
Berlín 29 heiðskírt
Vín 29 heiðskírt
Moskva 19 alskýjað
Algarve 24 heiðskírt
Madríd 32 heiðskírt
Barcelona 28 þrumuveður
Mallorca 30 heiðskírt
Róm 30 léttskýjað
Aþena 27 léttskýjað
Winnipeg 21 alskýjað
Montreal 26 skúrir
New York 23 rigning
Chicago 25 léttskýjað
Orlando 28 rigning
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
25. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:13 22:56
ÍSAFJÖRÐUR 3:51 23:29
SIGLUFJÖRÐUR 3:33 23:13
DJÚPIVOGUR 3:36 22:32
„Þetta hefur gengið bara furðuvel
miðað við veður. Við fengum alltaf
smjörþefinn af því eins og við sáum
þetta fyrir okkur þegar við fengum
þessa örfáu sólardaga, þá varð algjör
sprengja,“ segir Róbert Aron Magn-
ússon, hjá Reykjavík Street Food,
spurður hvernig matarmarkaðurinn
í Skeifunni hafi gengið í sumar.
Lokahelgi markaðarins stendur
yfir frá næstkomandi fimmtudegi til
sunnudags. „Við hvetjum alla til að
koma núna um helgina og prófa veit-
ingarnar sem eru í boði. Þetta er síð-
asta helgin í núverandi mynd. Við
ætlum að kveðja með stæl,“ segir
Róbert.
Á markaðnum er seldur götumat-
ur, sem á ensku nefnist „street fo-
od“, og hefur slík eldamennska náð
miklum vinsældum að undanförnu.
„Þessi götumatarmenning einkenn-
ist af hráleika og einfaldleika, nýir
aðilar með nýja rétti. Sem dæmi hef-
ur staðurinn Jömm heldur betur
slegið í gegn, en hann er svo að segja
fyrsti „sveitti“ vegan-veitingastað-
urinn á Íslandi,“ segir Róbert.
Aðspurður segist Róbert ætla að
halda áfram með verkefnið síðar og
bendir á að á höfuðborgarsvæðinu
séu margar staðsetningar sem koma
til greina í því samhengi. axel@mbl.is
Eru ánægðir með götumarkaðinn
Verkefnið BOX í Skeifunni fór af stað 1. júní Nýir aðilar komið sér á framfæri
Nýtt Margir eru sáttir með matinn.
„Þetta er spenn-
andi starf. Svo
toga ræturnar í
mig. Ég er fædd
og uppalin á svæð-
inu og fannst
spennandi að at-
huga hvort ég
kæmist aftur
heim,“ segir Re-
bekka Hilm-
arsdóttir lögfræð-
ingur sem ráðin hefur verið sem
bæjarstjóri Vesturbyggðar frá 1. októ-
ber næstkomandi. „Þetta er öflugt
sveitarfélag sem gaman verður að taka
þátt í að byggja áfram upp með öllu
því góða fólki sem þar er,“ segir hún.
Rebekka var valin úr hópi níu um-
sækjenda. Hún er 34 ára að aldri og
starfar sem lögfræðingur og staðgeng-
ill skrifstofustjóra hjá atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytinu.
Hún og eiginmaður hennar, Örn
Hermann Jónsson smiður, hafa verið
að endurbyggja í upprunalegt horf
stórt og virðulegt hús á Patreksfirði,
Aðalstræti 69 eða Gamla spítalann.
Upphaflega hugmyndin var að eiga
þar samastað í fríum en nú stefna þau
að því að flytja inn í húsið í haust þótt
framkvæmdum sé ekki lokið enda
verkefnið viðamikið. „Maður getur
sætt sig við ýmislegt á meðan fram-
kvæmdir eru í gangi.“ helgi@mbl.is
Flytja beint
inn í Gamla
spítalann
Rebekka
Hilmarsdóttir