Morgunblaðið - 25.07.2018, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 2018
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Ungt fólk hefur mikinnáhuga á landbúnaði ogmargir vilja hefja búskapsem er vel. Hins vegar er
staðan í þeim efnum þröng; það er
helst með kynslóðaskiptum á jörðum
sem möguleikar til slíks bjóðast. Í
sauðfjárræktinni er afurðaverðið hins
vegar svo lágt að dæmið gengur illa
upp. Því þarf að hugsa áherslur í
greininni alveg upp á nýtt,“ segir Jóna
Björg Hlöðversdóttir á Björgum í
Kinn í Þingeyjarsýslu, formaður Sam-
taka ungra bænda.
Stóð sjálfa mig að verki
Í febrúar á þessu ári tók Jóna
Björg við forystu í samtökum ung-
bænda á Íslandi. Um 300 manns
manns taka þátt í starfinu, mismikið
eftir atvikum og svæðum en margir
sýna stuðning í verki með því að
greiða félagsgjöldin sem eru ekki há.
Björg eru nyrsti bær í Kinn, er
undir Ógöngufjalli úti við Skjálf-
andaflóa. Umhverfið er stórbrotið og
bæjarstæðið enda segir Jóna að þess-
ar slóðir eigi í sér hvert bein. Eftir
stúdentspróf frá Menntaskólanum á
Akureyri árið 2005 bjó hún í nokkur
ár í Reykjavík og vann þar við ýmis
störf.
„Hins vegar stóð ég sjálfa mig að
verki á þann hátt að ég fór oft strax
eftir vinnu á föstudögum heim í Björg
og fór ekki í bæinn aftur fyrr en að-
faranótt mánudags. Þegar ég setti
þetta í samhengi gerði ég mér ljóst að
framtíð mín væri auðvitað í sveitinni.
Það rökrétta í stöðunni var því að fara
í nám á Hvanneyri og eftir þriggja ára
nám þar var ég komin með gráðu í bú-
vísindum,“ segir Jóna.
Í félagsmálum af
brennandi áhuga
Föðurfjölskylda Jónu hefur lengi
búið á Björgum og um síðustu áramót
var þar stofnað félagsbú. Að því
standa Jóna Björg, Þóra Magnea
systir hennar og Arnór Orri Her-
mannsson unnusti hennar – og svo
foreldrar þeirra systra, þau Hlöðver
Pétur Hlöðversson og Kornína Björg
Óskarsdóttir. Þau búa með um 100
fjár og 40 kýr og hafa ýmis áform um
að auka við sig í mjólkurframleiðsl-
unni.
„Nú veit maður ekki hvert svig-
rúm til aukningar er, en eigi að síður
erum við áformamikil hér á bæ,“ segir
Jóna Björg. Hún getur þeirrar miklu
uppbyggingar og framkvæmda sem
víða hafa verið hjá bændum síðustu ár
og misseri, bú hafi verið stækkuð en
aðrir jafnvel hætt. Umhverfið og við-
miðin í greininni séu að breytast. Slíkt
kalli á umræðu í grasrótinni og nauð-
synlegt sé að rödd ungra bænda heyr-
ist þar.
Efla þarf nýliðastuðning
„Sjálf fór ég í félagsmálin af því
að ég brenn fyrir málefni landbún-
aðarins, svo þar verði nauðsynlegar
framfarir og umhverfið þannig að
ungt fólk geti haslað sér völl í grein-
inni. Félagsmálin eru vissulega tíma-
frek, illa launuð og starfið ekki alltaf
þakklát. Þetta eru hins vegar mál sem
ég brenn fyrir, tek því slaginn og finn
að þetta skilar árangri. Mér finnst að í
mörgu í landbúnaðarmálum hafi orðið
algjör hugarfarsbreyting til hins
betra.“
Til eflingar landbúnaði, þá ekki
síst í sauðfjárræktinni, telur Jóna
Björg mikilvægt að huga að frekari
vöruþróun og jafnframt styrkja tengsl
bænda og neytenda. Þar hafi ýmsir
góðir hlutir gerst. Hjá Norðlenska sé
til dæmis verið að útbúa nýja rétti, svo
sem kebab og frampartar séu nú há-
vegum hafðir. Sala afurða hafi aukist
talsvert síðustu misserin og svo kunni
að fara að kjötskortur verði, sem aftur
kalli á aukna framleiðslu. Þá hafi
margir bændur reynt fyrir sér með
fullvinnslu afurða og heimasölu – og
sú áhugaverða þróun haldi áfram.
„Hins vegar verður ekkert fram
hjá því litið að margir sauðfjárbændur
hafa hætt eða dregið saman seglin.
Þessi búskapur er ekkert stundaður
nema fólk sæki vinnu af bæ. Því þarf
að efla nýliðastuðning í gegnum bú-
vörusamninga sem þurfa að miðast
við landbúnaðinn í heild, en ekki ein-
staka búgreinar.“
Bóndinn á
Björgum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Heyfengur Hugsa þarf áherslur í greininni alveg upp á nýtt, segir Jóna Björg, hér með rúllustæðurnar að baki sér.
Ljósmynd/Jóna Björg Hlöðvarsdóttir
Kýr Braut heitir þessi og í baksýn er hið formfagra Ógöngufjall.
Í mörgu í landbúnaðarmálum hefur orðið algjör hug-
arfarsbreyting til hins betra. Jóna Björg Hlöðvers-
dóttir á Björgum í Kinn er formaður Ungra bænda og
brennur fyrir málefni stéttarinnar og vill stækka fé-
lagsbúskap fjölskyldu sinnar.
„Áhugamálin eru mikið til bú-
skapur og þau fjölmörgu mál
sem honum tengjast. Ég er
heppin að vinna við það sem ég
hef áhuga á,“ segir Jóna Björg,
sem er fædd árið 1985.
„Út frá búskapnum spinnst
svo upp mikill áhugi á mat-
reiðslu og nýting afurða úr nátt-
úrunni. Þar að auki má nefna
ljósmyndun sem vaxandi áhuga-
mál þar sem fyrir verður oft
dýralífið og náttúran á bænum
sem er skemmtilegt myndefni.“
Myndir og
matreiðsla
SAMOFIN ÁHUGAMÁL
Bæjarlind 2, 201 Kópavogur | SÍMI 577-4700 | bilalindin.is
Svampþvottastöð
Afkastamikil sjálfvirk
þvottastöð sem getur þvegið
allt að 50 bíla á klukkustund.
Opið virka daga kl. 8 -19
helgar kl. 10 – 18.
Hátíðin Á góðri stundu er í Grund-
arfirði um helgina og af því tilefni gera
menn sér margvíslegan dagamun í
bænum þessa vikuna. Bæjarútvarp fór
í loftið á mánudag, í dag munu Grund-
firðingar skreyta hverfin sín og á
fimmudag verða húsin á morgun
skreytt – og verðlaun veitt fyrir það
sem í besta búningnum verður.
Á föstudag leiðir Ingó veðurguð
brekkusöng á svonefndu Brekkutúni
og hljómsveitin Stuðlabandið verður
með tónleika í hátíðartjaldi. Hápunkt-
arnir verða svo á laugardag.
Í hádeginu selur Lionsklúbbur bæj-
arins fiskisúpu á hafnarsvæðinu, í eft-
irmiðdaginn er fjölskyldudagskrá og
um kvöldið hittist fólk á hafnarsvæð-
inu, en þangað storma íbúarnir undir
litum síns hverfis. Um kvöldið verður
svo bryggjuball – og er þá fátt eitt tal-
ið af áhugaverðum viðburðum á þess-
ari Grundarfjarðargleði sem nú er efnt
til í 20. sinn.
„Áhuginn er mikill og þátttakan hef-
ur jafnan verið góð. Bæði taka bæj-
arbúar virkan þátt en svo er líka gam-
an að brott fluttir Grundfirðingar og
gestir þeirra koma í bæinn af þessu
tilefni og eru með okkur yfir helgina,“
segir Aldís Ásgeirsdóttir sem stýrir
hátíðinni.
Bæjarhátíð Grundfirðinga verður um helgina
Ljósmynd/Tómas Freyr Kristjánsson
Litadýrð Hverfi bæjarins hafa hvert sinn lit á hátíðinni. Gulur er litur vonar.
Grundarfjörður á góðri stundu