Morgunblaðið - 25.07.2018, Blaðsíða 14
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fyrstu sex mánuði ársins fluttu um
3.500 fleiri erlendir ríkisborgarar til
landsins en frá því. Með því hafa á
tólfta þúsund fleiri erlendir ríkis-
borgarar flutt til landsins frá árs-
byrjun 2017 en hafa flutt frá landinu.
Á sama tímabili, frá ársbyrjun 2017,
hafa um 560 fleiri íslenskir ríkis-
borgarar flutt til landsins en frá því.
Þetta má lesa úr nýjum mann-
fjöldatölum Hagstofunnar sem
miðast við fyrri hluta þessa árs.
Benda þær til að um 22.400 fleiri
erlendir ríkisborgarar hafi flutt til
landsins frá ársbyrjun 2012 en hafa
flutt frá landinu. Yfirfært á Ísland
væri sá mannfjöldi fjórða fjölmenn-
asta sveitarfélagið á eftir Hafnar-
firði, Kópavogi og Reykjavík.
Ný störf í ferðaþjónustu
Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði
við Háskóla Íslands, bendir á að
byggingargeirinn sé í vexti og enn að
bæta við sig starfsfólki. Þá sé störf-
um í ferðaþjónustu enn að fjölga.
„Laun á Íslandi eru orðin mjög há í
alþjóðlegum samanburði. Það á þátt
í að hingað kemur fólk frá Evrópska
efnahagssvæðinu í leit að vinnu. Við
höfum aldrei áður tekið á móti svo
mörgum erlendum ríkisborgurum,“
segir Ásgeir.
Hann segir aðflutning erlendra
starfsmanna vega gegn launaskriði
og yfirborgunum. Taxtalaun muni fá
meira vægi á kostnað yfirborgana.
Mesti aðflutningur í sögu Íslands
Á fyrri hluta ársins fluttu um 3.500 fleiri erlendir ríkisborgarar til landsins en fluttu frá landinu
Með því eru aðfluttir erlendir ríkisborgarar umfram brottflutta alls 22.400 frá ársbyrjun 2012
Búferlaflutningar frá Íslandi 2000 til 2018*
Aðfluttir umfram brottflutta
Heimild: Hagstofa Íslands
Íslenskir Erlendir
2000 62 1.652
2001 -472 1.440
2002 -1.020 745
2003 -613 480
2004 -438 968
2005 118 3.742
2006 -280 5.535
2007 -167 5.299
2008 -477 1.621
2009 -2.466 -2.369
2010 -1.703 -431
2011 -1.311 -93
2012 -936 617
2013 -36 1.634
2014 -760 1.873
2015 -1.265 2.716
2016 -146 4.215
2017 352 7.888
2018* 210 3.470
+6
+5
+4
+3
+2
+1
0
-1
-2
-3
-4
.000
’00 ’01 ’02 ’03 ’04 ’05 ’06 ’07 ’08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 ’18*
Samtals Íslenskir Erlendir
2000-2018* -11.348 41.002
2005-2008 -806 16.197
2009-2011 -5.480 -2.893
2012-2018 -2.581 22.413
Íslenskir ríkisborgarar
Erlendir ríkisborgarar
8.240
*Til og með 30. júní 2018 (fyrstu 6 mánuðir ársins)
Fyrstu 6 mán.
2018
Aðfluttir umfram
brottflutta 2010-18
1. ársfj. 2010-2018
2. ársfj. 2010-2018
3.000
2.500
2.000
1.500
1.000
500
0
-500
3.000
2.500
2.000
1.500
1.000
500
0
-500
Íslenskir ríkisborgarar
Erlendir ríkisborgarar
Íslenskir ríkisborgarar
Erlendir ríkisborgarar
’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 ’18
’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 ’18
Heimild:
Hagstofa Íslands
3.130
1.750
1.720
20
190
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 2018
RAFVÖRUR ehf
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Hita-
kútar
rafvorur.is
Amerísk
gæðaframleiðsla
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Fulltrúar Fljótsdalshéraðs, Seyðis-
fjarðarkaupstaðar og Íslenska
gámafélagsins skrifuðu nýverið und-
ir samning vegna jarðgerðar á líf-
rænum heimilisúrgangi sem fellur til
í sveitarfélögunum.
Haukur Björnsson, forstjóri Ís-
lenska gámafélagsins, segir að
samningurinn sé liður í því að gera
vinnslu á heimilisúrgangi umhverf-
isvænni. Hingað til hefur lífrænn
heimilisúrgangur á svæðinu verið
keyrður í Eyjafjörð þar sem hann
hefur verið jarðgerður. Nú verður
breyting þar á, en í samningnum
kemur fram að úrgangurinn skuli nú
vera fluttur til Reyðarfjarðar til
jarðgerðar. „Að fara með úrganginn
þangað er minni kostnaður og meng-
ar minna en þegar farið er með hann
í Eyjafjörð. Þess utan hefur Fjarðar-
byggð verið að jarðgera á Reyðar-
firði um nokkurt skeið með góðum
árangri. Það er því ekkert því til fyr-
irstöðu að þessi sveitarfélög geri
slíkt hið saman,“ segir Haukur og
bætir við að jarðgerð lífræns heim-
ilisúrgangs sé eitt stærsta umhverf-
ismál samtímans. „Með þessu er
komið í veg fyrir að úr verði met-
angas líkt og þegar farið er með
venjulegt sorp. Þess í stað verður til
molta sem hægt er að nota,“ segir
Haukur.
Reiknað er með að næsta vor verði
til molta sem unnin er úr austfirsk-
um heimilisúrgangi. Þá verði íbúum
svæðisins boðið að ná sér í moltu og
nota í garða sína.
Semja um jarðgerð lífræns
heimilissorps á Austfjörðum
Liður í því að gera vinnslu úrgangs umhverfisvænni
Morgunblaðið/Friðrik Tryggvason
Sorp Lífrænn heimilisúrgangur á
Austfjörðum verður jarðgerður.
Björgunarsveitir Slysavarnafélags-
ins Landsbjargar á vestanverðu
Snæfellsnesi voru kallaðar út á átt-
unda tímanum í gærkvöldi. Þá hafði
ferðamaður, sem var á leið um Rauð-
feldsgjá, hrasað illa og hringt í
Neyðarlínuna. Hann taldi sig vera
ökklabrotinn. Rauðfeldsgjá skerst
inn í austanvert Botnsfjall, vestan
við Hnausahraun.
Jónas Guðmundsson, upplýsinga-
fulltrúi Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar, segir aðstæður erfiðar á
staðnum og bratt yfirferðar. Bera
þurfti manninn að bílastæði og í
sjúkrabíl. Slys eru algeng við Rauð-
feldsgjá og þekkja björgunarsveit-
armenn og aðrir viðbragðsaðilar að-
stæður þar vel. Slys sem þessi eru
algeng, einkum meðal ferðamanna.
Fyrr í gær voru sömu björgunar-
sveitir kallaðar út vegna slasaðs
ferðamanns á Djúplónssandi. Slysið
átti sér stað í nokkurri fjarlægð frá
bílastæðum og þurftu því sjúkra-
flutningamenn aðstoð við burð.
Slys í
Rauð-
feldsgjá
Ferðamaður
hrasaði og hringdi
í Neyðarlínuna
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Loftrýmisgæsla Atlantshafs-
bandalagsins við Ísland er að
hefjast að nýju með komu flug-
sveitar bandaríska flughersins.
Alls munu um 300 liðsmenn
flughersins taka þátt í verkefninu
og til viðbótar starfsmenn frá
stjórnstöð NATO í Uedem í
Þýskalandi (Combined Air Opera-
tions Center), að því er fram kem-
ur í frétt á heimasíðu Landhelgis-
gæslu Íslands. Flugsveitin kemur
til landsins með um fimmtán F-15
orrustuþotur.
Gera má ráð fyrir aðflugsæf-
ingum að varaflugvöllum á Ak-
ureyri og Egilsstöðum á tíma-
bilinu 31. júlí til 8. ágúst. Þessar
æfingar munu væntanlega ekki
fara fram hjá heimamönnum.
Loftrýmisgæsla Atlantshafs-
bandalagsins við Ísland nú er tals-
vert umfangsmeiri en loftrýmis-
gæslan sem fram fór í ágúst árið
2017.
Þá tóku rúmlega 200 liðs-
menn bandaríska flughersins þátt
í verkefninu og til viðbótar starfs-
menn frá stjórnstöð NATO í Ue-
dem, Þýskalandi (Combined Air
Operations Center). Flugsveitin
kom til landsins með sex F-15C
orrustuþotur, ásamt eldsneytis-
birgðaflugvélum.
Verkefnið í ár verður fram-
kvæmt með sama fyrirkomulagi
og fyrri ár og í samræmi við loft-
rýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ís-
land. Flugsveitin verður staðsett
á öryggissvæðinu á Keflavíkur-
flugvelli. Ráðgert er að verkefn-
inu ljúki í lok ágúst. Verkefnið er
framkvæmt af Landhelgisgæslu
Íslands í samvinnu við Isavia, en
samanber samning við utanríkis-
ráðuneytið annast Landhelgis-
gæsla Íslands framkvæmd varn-
artengdra verkefna samkvæmt
varnarmálalögum nr. 34/2008.
Í lögunum er loftrýmisgæsla
skildgreind þannig: „Notkun loft-
fara og annars búnaðar í þeim til-
gangi að hafa eftirlit með og
gæta loftrýmisins á loftrýmiseft-
irlitssvæði Atlantshafsbandalags-
ins.“
15 orrustu-
þotur koma
hingað til
gæslustarfa
Ljósmynd/LHG
Loftrýmisgæsla NATO við Ísland að hefjast að nýju með komu 300 liðsmanna bandaríska flughersins