Morgunblaðið - 25.07.2018, Page 17
AFP
Skógar í logum Eldur við hús í bænum Kineta, um 45 km vestan við Aþenu.
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Að minnsta kosti 74 manns létu lífið í
skógareldum sem geisuðu í Grikk-
landi í gær og fyrradag. Mörg hús
brunnu til kaldra kola og skelfingu
lostið fólk í strandbæjum flúði í sjó-
inn til að forða sér undan logunum.
Eldarnir kviknuðu í furuskógum
og breiddust mjög hratt út til bæja
nálægt Aþenu þar sem margir ferða-
menn dvelja. Björgunarmenn voru
kallaðir út til að flytja burt íbúa bæj-
anna og ferðamenn sem höfðu flúið á
strendurnar. Lýst var yfir neyðar-
ástandi á svæðinu.
„Ég sá eldinn færast niður hæðina
um sexleytið og fimm eða tíu mín-
útum síðar var hann kominn í garð-
inn minn,“ hefur fréttaveitan AFP
eftir sextugum íbúa eins bæjanna.
Húsið hans var við furutré sem voru
orðin þurr og feyskin eftir þurrka og
allt að 40 stiga hita. „Það kviknaði í
þeim. Ég hljóp í burtu eins og óður
maður, komst á ströndina og setti
höfuðið í sjóinn. Svo komu varðbát-
arnir.“
Bærinn ekki lengur til
Á meðal þeirra sem létu lífið voru
26 manns, þeirra á meðal ung börn,
sem fundust látnir í garði stórs ein-
býlishúss í ferðamannabænum Mati,
um 40 km norðvestan við höfuðborg-
ina. Líkin voru í hrúgum og það benti
til þess að fólkið hefði þjappað sér
saman í hópum „í lokatilraun til að
verja sig“, að því er AFP hefur eftir
björgunarmanni á staðnum.
Bæjarfulltrúi í Rafina, stærsta
bænum á strandsvæðinu, sagði að
óttast væri að tala látinna myndi
hækka þar sem ekki hefði enn verið
leitað í rústum húsa sem brunnu.
Vindhraðinn var um 28 m/s og eld-
urinn breiddist því mjög hratt út í
Mati, að sögn talsmanns slökkviliðs-
ins á svæðinu. „Mati er ekki lengur
til,“ sagði bæjarstjóri Rafina, Ev-
angelos Bournous. Hann bætti við að
rúmlega þúsund hús og 300 bílar
hefðu eyðilagst eða skemmst.
Grísk yfirvöld sögðu að a.m.k. 172
manns hefðu verið fluttir á sjúkra-
hús, þeirra á meðal sextán börn.
Ástand tíu þeirra var alvarlegt.
Að minnsta kosti fimm dóu þegar
þeir reyndu að bjarga lífi sínu með
því að fara í sjóinn. Um 715 manns
voru fluttir með bátum til Rafina, að
sögn grískra yfirvalda. „Fólkið er í
áfalli. Sumir hafa misst allt: börnin
sín, foreldrana, heimili sitt,“ sagði
talsmaður Rauða krossins.
Forsætisráðherra Grikklands,
Alexis Tsipras, var í heimsókn í
Bosníu en flýtti heimför sinni vegna
eldanna. Hann lýsti yfir þriggja daga
þjóðarsorg.
Kveiktir af ásettu ráði?
Grísk yfirvöld sögðu að fimmtán
eldar hefðu kviknað á sama tíma á
þremur svæðum í fyrradag. Grískir
embættismenn sögðu að hugsanlega
hefðu glæpamenn kveikt eldana af
ásettu ráði í því skyni að láta greipar
sópa um hús eftir að íbúarnir legðu á
flótta. Saksóknarar hófu rannsókn á
orsökum eldanna.
Skógareldarnir eru á meðal þeirra
mannskæðustu í sögu Grikklands. 77
manns létu lífið í eldum í suðurhluta
Pelopsskaga og eyjunni Eviu í ágúst
2007.
Gróðureldar hafa einnig geisað
síðustu daga víða í norðanverðri
Evrópu, m.a. í Svíþjóð þar sem nán-
ast ekkert hefur rignt frá því í byrj-
un maí. Íbúar Stokkhólms segja að
grasið sé orðið gult vegna þurrka og
hlýinda og segjast hafa séð elda
kvikna í skrælnuðum gróðri af völd-
um brennandi sólskins og steikjandi
hita þar sem ástandið er verst.
Flúðu skelfingu lostin í sjóinn
Tugir manna létu lífið í skógareldum í bæjum nálægt Aþenu Einn bæjanna sagður hafa gereyði-
lagst Grískir embættismenn segja að grunur leiki á að glæpamenn hafi kveikt elda af ásettu ráði
Spáð hefur verið fleiri eldum næstu dagaSkógareldar
Heimild: Copernicus, landupplýsingaverkefni á vegum Evrópusambandsins
SVÍÞJÓÐ
FINNLAND
EISTLAND
RÚSSLAND
LETTLAND
LITHÁEN
PÓLLAND
ÞÝSKAL.
DANMÖRK
HOLLAND
Mjög lítil
Lítil
Miðlungs
Mikil
Mjög mikil
Eldar
NOREGUR
Hætta á eldum
GRÈCE
ATHÈNES TURQUIE
MACÉDOINE
100 km
Eldar í Grikklandi
Heimild: Copernicus, VIIRS
Eldar sem loguðu í gær
AÞENA
Heraklion
Þessaloníka
Mati
Krít
Pelopsskagi
Korfú
Lesbos
Kíey
Hringeyjar
Eyjahaf
Jónahaf
Miðjarðarhaf
MAKEDÓNÍA
*
BÚLGARÍA
TYRKLAND
ALBANÍA
GRIKKLAND
*Fyrrverandi Júgóslavíulýðveldið
Makedónía
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 2018
Til í mörgum
stærðum og ge
Nuddpottar
Fullkomnun í líkamlegri vellíðan
rðum
Vagnhöfða 11 | 110 Reykjavík | www.ofnasmidja.is | sími 577 5177
Danskir saksóknarar hafa ákært
ímam í mosku í Kaupmannahöfn fyr-
ir að hvetja til drápa á gyðingum.
Þetta er í fyrsta skipti sem ákært er
á grundvelli danskra hegningarlaga
um trúarboðun sem tóku gildi 1. jan-
úar 2017. Samkvæmt lögunum varð-
ar það allt að þriggja ára fangelsis-
dómi að hvetja til drápa á fólki eða
fagna þeim.
Ímaminn heitir Mundhir Abdallah
og stjórnar bænahaldi í moskunni
Masjid Al-Faraq í Nørrebro í Kaup-
mannahöfn. Danskir fjölmiðlar hafa
sagt að moskan tengist íslömskum
öfgahreyfingum.
Ímaminn er ákærður fyrir að hafa
hvatt til drápa á gyðingum í ræðu á
bænasamkomu föstudaginn 31. mars
2017. Upptöku á ræðunni var dreift á
netinu. Ímaminn vitnaði í svonefnd
hadít, ýmis ummæli sem höfð eru
eftir Múhameð spámanni en eru ekki
í Kóraninum. „Dómsdagur mun ekki
koma fyrr en múslímar berjast gegn
gyðingum, þegar gyðingar fela sig
bak við steina og tré. Steinarnir og
trén munu segja: Ó múslímar, Ó Ab-
dullah, það er gyðingur á bak við
mig, komdu og dreptu hann.“ Um-
deilt er meðal múslíma hve traustar
heimildir hadít séu, en íslamskar
hreyfingar hafa vitnað í þessa frá-
sögn, m.a. Hamas-samtökin.
„Þetta eru alvarlegar yfirlýsingar
og ég tel að rétt sé að dómstóllinn fái
nú tækifæri til að meta málið,“ sagði
Eva Rønne, aðstoðarríkissaksóknari
Danmerkur. „Það hefur alltaf verið
ólöglegt að viðurkenna dráp á
ákveðnum hópi fólks en þetta er í
fyrsta skipti sem hatursprédikari er
lögsóttur.“
Bannað að koma til Danmerkur
Ímaminn er einnig ákærður fyrir
brot á hegningarlögum um kyn-
þáttahatur. Málið fer fyrir undirrétt
í Kaupmannahöfn en ekki hefur ver-
ið ákveðið hvenær réttarhöldin hefj-
ast.
Dönsk yfirvöld birtu í maí lista yf-
ir erlenda klerka sem bannað er að
koma til landsins í a.m.k. tvö ár fyrir
brot á lögum um hatursprédikanir.
Fimm þeirra eru múslímar; tveir
Sádi-Arabar, Sýrlendingur, Kanada-
maður og Bandaríkjamaður. Einn
þeirra er kristinn, Terry Jones, um-
deildur prestur á Flórída sem
brenndi eintök af Kóraninum árið
2011.
Hvatti til drápa
á gyðingum
Ímam ákærður í Kaupmannahöfn