Morgunblaðið - 25.07.2018, Síða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 2018
Amma var besta
amma sem hægt er
að hugsa sér. Hún
var jákvæð, góð,
hjálpsöm, fyndin,
hress, og allt sem hægt er að
hugsa sér. Hún átti líka skilti,
bolla og bréf sem sögðu að hún
væri hreinlega best. Ég veit
✝ Elín HalldóraÍsleifsdóttir
fæddist 15. janúar
1952. Hún lést 7.
júlí 2018.
Útför Elínar fór
fram 16. júlí 2018.
ekki um eitt skipti
þar sem ekki var
gaman að gista hjá
ömmu. Ég gisti oft,
mjög oft, hjá henni.
Ég hlakkaði alltaf
rosalega mikið til í
hvert skipti sem ég
vissi að ég væri að
fara að gista eða að
fara í mat til henn-
ar. Ég dansaði oft
af gleði þegar ég
vissi að ég væri að fara til henn-
ar. Ég sakna hennar ömmu svo
mikið.
María Kristjánsdóttir.
Elín H. Ísleifsdóttir
Sit hér á leiðinni
heim til Íslands
með kötu þinni,
Erlu og Co. Það er
margt sem hefur
farið í gegnum hugann á þess-
um síðustu dögum. Það fyrsta
Ölver Skúlason
✝ Ölver Skúlasonfæddist 3.
ágúst 1940. Hann
andaðist 15. júní
2018.
Útför Ölvers fór
fram 25. júní 2018.
er þakklæti, þakk-
læti fyrir að hafa
fengið að kynnast
þér. Magnaður
varstu, húmorinn
alltaf á sínum stað,
og brosið alltaf á
réttum stað. Ég
bar mikla virðingu
fyrir þér, sem
pabba, afa, langafa
og ekki síst sem
vini.
Að hafa fengið það tækifæri
og þá löngun að vera saman
með þér, er gott veganesti fyrir
mig. Við gátum spjallað um allt,
þá meina ég allt, og gátum líka
haldið kjafti og það var líka
gott.
Þegar ég kom inn í fjölskyld-
una, og það er oft rætt um það
og hlegið, þáð roðnaði ég frá
toppi til táar, því aldrei hafði ég
kynnst öðrum eins klámkjafti
og þér og Kötu þinni. Það voru
nú ekki margir sem gerðu þig
kjaftstopp, en því get ég verið
stoltur af. Klámkjaft lærði ég af
þér, og roðna ég ekki frá toppi
til táar þegar ég byrja.
Við gátum unnið mjög vel
saman, og þótti okkur gott að
vinna saman. Þegar kallið kom
til að fá þína hjálparhönd, þá
var það aldrei neitt mál, það
lærði ég líka af þér. Stundvísi
var þitt aðalsmerki og mun ég
reyna að fylgja því eftir. Síð-
ustu dagarnir þínir voru erfiðir,
en mikið ofboðslega var nú gott
að fá að vera með þér.
Daginn eftir að þú kvaddir
fórum við Askja þín á hesta-
mannamót. Áður en ég fór inná
völlinn þá hugsaði ég, hvað það
yrði nú skrítið að hafa þig ekki
á hliðarlínunni og að hvetja
okkur. Upp með húmorinn og
takk fyrir að vera þú.
Þinn vinur,
Guðmundur Pálsson
(Mummi).
✝ Kristófer Sæ-mundsson
fæddist í Reykja-
vík 16. desember
1958. Hann lést 8.
júlí 2018.
Hann var sonur
hjónanna Unnars
Sæmundar Frið-
laugssonar bif-
reiðastjóra, f. 18.
maí 1927, d. 28.
febrúar 2012, og
Þuríðar Guðmundsdóttur ljós-
móður, f. 8. febrúar 1928, d.
29. september 1975. Systkini
Kristófers: 1) Guðmundur, f.
27. maí 1949, 2) Sigríður, f. 8.
apríl 1952, 3) Emilía, f. 1. júlí
Sigurður Þór Sigurðsson, f.
3. nóvember 1989. Börn: Hild-
ur Þóra Einarsdóttir, f. 27.
maí 2009, og Amíra Rut Sig-
urðardóttir, f. 5. október
2017.
Kristófer ólst upp á
höfuðborgarsvæðinu en flutt-
ist svo norður á Blönduós.
Þar stofnaði hann heimili og
vann ýmis verkamannastörf
til sjós og lands þar til hann
hóf störf hjá lögreglunni á
Blönduósi. Hann tók próf frá
Lögregluskóla ríkisins 1990,
var ökukennari og starfaði
við það með lögreglustarfinu.
Starfaði hjá lögreglunni á
Blönduósi til ársins 2001, lög-
reglunni á Selfossi til 2006 og
síðan hjá lögreglustjóranum á
höfuðborgarsvæðinu í um-
ferðardeildinni.
Hann var jarðsettur í kyrr-
þey frá Grafarvogskirkju 19.
júlí 2018.
1953, 4) Heiðbrá,
f. 3. september
1954, 5) Tryggvi,
f. 4. desember
1955, 6) Unnur, f.
25. mars 1957, 7)
Guðmundur, f. 12.
mars 1960, 8)
Davíð Brár, f. 9.
september 1979.
9) Hanna Sigga, f.
14. apríl 1981.
Kristófer
kvæntist 31.12. 1981 Þóru
Lilju Valsdóttur frá Blöndu-
ósi, f. 12. maí 1961, þau
skildu. Dóttir þeirra er Sig-
urbjörg Bára, f. 24. ágúst
1990, sambýlismaður hennar
Á kertinu mínu ég kveiki í dag
við krossmarkið helgi og friðar,
því tíminn mér virðist nú standa í
stað
en stöðugt þó fram honum miðar.
Ég finn það og veit að við erum ei
ein
að almættið vakir oss yfir,
því ljósið á kertinu lifir.
Við flöktandi logana falla nú tár
það flýr enginn sorgina lengi.
Hún braut allar vonir, hún braut allar
þrár,
hún brýtur þá viðkvæmu strengi,
er blunda í hjarta og í brjósti hvers
manns.
Nú birtir, og friður er yfir,
því ljósið á kertinu lifir.
Sá einn þekkir gleðinnar gáska og
fjör
sem gist hefir þjáning og pínu.
Sá einn getur sigrast á ótta og kvöl
sem eigir í hugskoti sínu,
að sorgina við getum virkjað til góðs
í vanmætti sem er oss yfir,
ef ljósið á kertinu lifir.
(Kristján frá Gilhaga)
Guð geymi þig, elsku Krist-
ófer minn.
Þín
Þóra.
Elsku Kristófer, við vitum
ekki hvernig við eigum að byrja
þessi skrif, en okkur bræðurna
langar að tala til þín í stað þess
að skrifa um þig.
Þegar þú komst inn á heimili
foreldra okkar með Þóru systur
vorum við bræður sjö og átta
ára gamlir. Þú varst alltaf
reiðubúinn að leika við okkur
og til í smá fíflagang. Okkur
þótti það ekkert leiðinlegt. Sér-
staklega bóndabeygjan. Hún
var mjög erfið og vonlaust að
losna úr henni. Þær voru líka
ansi margar og allar jafn erf-
iðar að eiga við. Þér leiddist
það alls ekki.
Þegar við hugsum til baka og
rifjum upp þá kemur upp fullt
af minningum, og þessar minn-
ingar verða alltaf með okkur.
Þitt aðalsmerki var faðmurinn.
Þeir sem þekktu þig þekkja
faðminn. Þar liggja þessar
sterku minningar, faðmurinn,
nándin, spjallið, að skiptast á
skoðunum og svo nærveran á
góðum stundum. Þetta eru
minningar sem við eigum um
þig, elsku Kristófer. Í þessari
upptalningu er ekki „Like“,
enda er það ekki minning og
verður aldrei.
Þegar þú og Þóra voruð að
byggja á Heiðarbrautinni
fannst okkur bræðrunum nauð-
synlegt að fylgjast með gangi
mála. Við trúðum því þá að við
værum eitthvað að hjálpað til,
en líklega þvældumst við bara
fyrir, frekar en að gera eitt-
hvert gagn. Við ætlum núna að
viðurkenna eitt, þegar múrinn
hrundi fyrir ofan eitt dyraopið.
Það var Ágúst sem hoppaði upp
í dyraopið þegar hann gekk þar
í gegn, já þetta var honum að
kenna. En Ási kom og reddaði
þessu.
Alla tíð varst þú reiðubúinn
að hendast í öll verkefni sem
þurfti að leysa, sérstaklega í
Vatnsdalnum með Val, hvort
sem það var smíðavinna, girð-
ingavinna, að smala Hálsinn,
önnur vinna eða stúss í kring-
um hestana. Alltaf fannst tími
og alltaf varstu mættur og
reiðubúinn. Algjörlega ómetan-
legt.
Þegar við bræður urðum
eldri fjölgaði símtölunum þegar
þurfti að fá ráð eða aðstoð við
eitthvað, eins og t.d. þegar
Ágúst var að standsetja íbúðina
sína í Skipasundi. Síðan kom að
því að þú fórst að hringja í
Ágúst varðandi ráð í kringum
rafmagnsvinnuna, bæði með
Kópavoginn og sumarbústað-
inn. Það var gott að fá þessi
símtöl og geta hjálpað þér.
Þetta er allt ómetanlegt.
Á erfiðri stundu í lífi okkar
bræðra þegar við misstum
pabba okkar allt of snemma,
komst þú okkur í föðurstað
með alla þá hluti sem mann
langaði að hringja í pabba sinn
með, um allt og ekkert. Einnig
varst þú mikill stuðningur við
mömmu okkar á þessum erfiðu
tímum. Aftur ómetanlegt.
Elsku Kristófer, eins og við
byrjuðum þessi skrif, þá vitum
við heldur ekki hvernig á að
enda. Það er spurning hvort við
fáum nógu mikið pláss í Mogg-
anum til að skrifa um það sem
okkur langar til að segja við
þig.
Við hefðum öll viljað hafa þig
lengur hjá okkur. En við vitum
að þú ert á góðum stað í dag,
umkringdur okkar fólki og þínu
fólki. Þar fær faðmur þinn
áfram að njóta sín og þau að
njóta faðmsins.
Megi Guð geyma þig og
varðveita. Eins og presturinn
sagði: „Lífið er ekki lagt í
kistu, lífinu er ekki lokið, því
Jesús Kristur segir, ég lifi og
þér munuð lifa.“
Elsku Kristófer, takk fyrir
allt.
Ágúst Valsson og
Valur Valsson.
Elsku Diddi frændi. Það er
ekki annað hægt en að tárast
þegar við systkinin hugsum til
þín og skrifum þessi orð. Við
erum enn að átta okkur á því
að þú sért í raun farinn, farinn
alltof snemma úr lífi okkar og
það er erfitt að hugsa til þess
að þú komir ekki aftur. Að við
fáum aldrei aftur að sjá þitt fal-
lega bros né heldur að fá þitt
stóra og sterka faðmlag. En við
huggum okkur við þær minn-
ingar sem við eigum um þig,
allt frá því að við vorum lítil til
dagsins í dag. Þú varst alltaf til
staðar, til staðar fyrir okkur og
börnin okkar. Við litum á þig
sem pabba númer tvö, þú tókst
þátt í öllum stóru sem smáu
stundunum í okkar lífi. Viðvera
þín var okkur mikilvæg enda
betri frænda ekki hægt að
finna. Þú varst með stórt og
mikið hjarta og vildir allt fyrir
alla gera. Margir leituðu til þín
enda tókstu á móti öllum með
opinn faðm. Faðmur þinn var
stór og það voru margir sem
nýttu sér hann, við og fleiri úr
fjölskyldunni og vinir. Það er
þyngra en tárum taki að sætta
sig við og hugsa til þess að við
getum ekki lengur leitað til þín
en minningar munu alltaf lifa.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Við elskum þig og söknum
mikið.
Elín Margrét, Þuríður,
Kristjana, Heiðbrá og
Sigurður.
Kristófer
Sæmundsson
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Elsku mamma mín, amma og langamma,
HELGA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Hlíðarvegi 1, Kópavogi,
búsett að Skógarbæ,
lést laugardaginn 21. júlí.
Útförin fer fram mánudaginn 30. júlí
klukkan 13 frá Fossvogskirkju.
Þóra Guðrún Gunnarsdóttir Grétar Sölvason
Klara Rakel Grétarsdóttir Rúnar Ingi Garðarsson
Júlía Grétarsdóttir
Gabríel Ingi Rúnarsson
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, systir, amma og langamma,
KRISTBJÖRG SVEINSDÓTTIR,
Kidda,
ættuð frá Skoruvík á Langanesi,
lést miðvikudaginn 18. júlí.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 27. júlí
klukkan 11.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðni Óskar Jensen
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
INGIMAR NÚMASON,
Ægisbyggð 1, Ólafsfirði,
lést miðvikudaginn 18. júlí á Sjúkrahúsi
Akureyrar.
Útför hans fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju föstudaginn
27. júlí klukkan 14.
Ingibjörg Antonsdóttir
Nína Ingimarsdóttir
Númi Ingimarsson Steina Jóna Hermannsdóttir
Matthías Ingimarsson
Helga Ingimarsdóttir Hlynur Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur faðir okkar,
STEFÁN LEO HOLM,
lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands,
Blönduósi, sunnudaginn 22. júlí.
Jarðarför fer fram frá Sauðárkrókskirkju
föstudaginn 27. júlí klukkan 13.30.
Börn og fjölskyldur
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
SIGMAR JÓNSSON,
stórkaupmaður,
Strikinu 8,
lést á Líknardeild Landspítalans,
mánudaginn 23. júlí.
Útförin fer fram í Bústaðakirkju, mánudaginn 30. júlí klukkan 15.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er
bent á Thorvaldsensfélagið.
Hlíf Jóhannsdóttir
Ólöf G. Ásbjörnsdóttir Sigurður Gunnarsson
Sveinn Dal Sigmarsson
Sigrún Sigmarsdóttir Sigurður Guðmundsson
Jóhanna Sigmarsdóttir Atli Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir
og amma,
ÁSLAUG RAGNARS,
lést á líknardeild Landspítalans
miðvikudaginn 18. júlí.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 27. júlí klukkan 13.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kjartan Magnússon
Andrés Magnússon