Morgunblaðið - 25.07.2018, Side 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 2018
R
GUNA
GÓÐAR
I
Hermann Stefánsson rithöfundur á 50 ára í afmæli. Hann dvel-ur nú í Davíðshúsi á Akureyri og er að leggja lokahönd á nýj-asta ritverk sitt sem á að koma út í haust.
Hermann er á mála hjá bókaútgáfunni Sæmundi og frá honum hef-
ur komið út skáldverk á hverju ári frá 2003 ef árið í fyrra og annað ár
til eru undanskilin. Síðast komu út skáldsögurnar Bjargræði, sem er
um Látra-Björgu, og Leiðin út í heim.
Bókin sem kemur út í haust er þó ekki skáldsaga. „Þetta eru textar
en titillinn er trúnaðarmál, hjátrúarinnar vegna.“ Hermann mun
dvelja í Davíðshúsi fram að mánaðamótum og ætlar þá að vera búinn
að klára bókina. „Mér líkar alveg dásamlega hérna í Davíðshúsi en ég
var hérna áður fyrir margt löngu. Þótt ég sé Reykvíkingur er ég mik-
ill Akureyringur í mér, en ég átti afa og ömmu hérna á Akureyri.
Núna hef ég þó farið lítið út úr húsi, það er þá helst til að fara í sund.
En þegar synir mínir komu hingað og voru hjá mér í Davíðshúsi gerð-
um við allt mögulegt, fórum t.d. að dorga. Mér finnst gaman að veiða
en læt mér nægja bryggjudorg.“
Það er stutt í að dvölinni ljúki í Davíðshúsi og því ætlar Hermann að
fresta afmælinu fram yfir mánaðamótin. Hann er nýlega fráskilinn en
börn hans eru Sólrún Hedda 24 ára, Stefán Þórarinn 16 ára og Bene-
dikt Hilmir 7 ára, að verða 8.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Rithöfundurinn Von er á nýrri bók frá Hermanni í haust.
Dvelur við skriftir
í Davíðshúsi
Hermann Stefánsson er fimmtugur í dag
S
veinn Kjartan Gestsson
fæddist í Reykjavík 25.7.
1948 og ólst þar upp til
fimm ára aldurs: „Þá
fluttu foreldrar okkar á
Fellsströndina og byggðu þar upp
nýbýlið Grund í landi Litla-
Galtardals. Þar ólst ég síðan upp við
öll almenn sveitastörf en þau voru
með blandaðan búskap. Foreldrar
mínir fluttu síðan suður árið 1966 en
þá hafði ég tekið þá ákvörðun að yf-
irgefa ekki sveitasæluna fyrir höfuð-
borgina.“
Sveinn var í grunnskóla á Laug-
um í Sælingsdal í þrjá vetur: „Þá var
verið að reisa skólabyggingarnar
þar og þá, eins og endranær, stóðust
ekki áætlanir um verklok, svo fyrsta
skólaárið mitt hófst ekki fyrr en í
janúar. Ég var síðan einn vetur í
unglinganámi hjá séra Þorgrími Sig-
urðssyni á Staðastað en hann var
merkur skólamaður og laginn við
baldna stráka.“
Sveinn stundaði nám við Bænda-
skólann á Hvanneyri 1965-67 og
lauk þá búfræðiprófi. Hann vann á
Hvanneyrarbúinu 1967-69 og starf-
aði við nautastöðina á Hvanneyri
1969-71.
Sveinn hefur verið bóndi á Stað-
arfelli frá 1971: „Staðarfell er rík-
isjörð. Þar var húsmæðraskóli til
1976 og árið 1980 kom SÁÁ hingað
Sveinn Kjartan Gestsson, bóndi á Staðarfelli – 70 ára
Með dóttur og dóttursonum F.v.: Brynjar Páll, Anna Kristí́n, Sveinn Sigurður, Sveinn, Þóra Stella og Páll Halldór.
Tók Fellsströndina
fram yfir þéttbýlið
Bláfjallageimur Sveinn staddur á Snækolli í Kerlingafjöllum, í hálendisferð.
Hafnarfjörður Þorfinnur
Torfi Ólason fæddist 7.
nóvember 2017 kl. 0.50.
Hann vó 3.048 g og var 48
cm langur. Foreldrar hans
eru Auðbjörg Ólafsdóttir
og Óli Örn Eiríksson.
Bræður Þorfinns eru Eirík-
ur Skorri og Ólafur Flóki.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is