Morgunblaðið - 16.08.2018, Qupperneq 24
Morgunblaðið/Hari
Samkeppni Magnús Ragnarsson segir að Síminn líti fremur á Stöð 2 en Netflix sem keppinaut um fyrsta valkost í
afþreyingu heimilanna. Ýmislegt sniðugt sé á Netflix en fremur sé litið á efnið þaðan sem viðbótarefni.
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Magnús Ragnarsson, framkvæmda-
stjóri hjá Símanum, segir að sjón-
varpsþjónusta Símans sé að víkka út
þjónustu sína og hún muni nú
standa öllum til boða, óháð því hjá
hvaða fyrirtæki fólk kaupir internet-
þjónustu.
„Með þessari breytingu erum við
bara að fara eftir því sem viðskipta-
vinurinn vill og höfum verið að
hlusta eftir óskum hans,“ sagði
Magnús í samtali við Morgunblaðið í
gær, spurður um ástæður ofan-
greindra breytinga á þjónustu Sjón-
varps Símans.
Premium gengið mjög vel
Magnús segir að Sjónvarp Símans
Premium sé stærsta og vinsælasta
innlenda áskriftarþjónusta landsins.
„Premium hefur gengið mjög vel, en
sala á áskriftum hefur hingað til ver-
ið takmörkuð að mestu við þá sem
hafa verið í viðskiptum við Símann.
Þeir sem verið hafa hjá Gagnaveitu
Reykjavíkur með nettengingu sína
hafa ekki haft aðgang að þessari
þjónustu okkar. Það er að breytast
núna og við munum selja áskrift að
allri þjónustunni, þar með talið
Sjónvarpi Símans Premium, burtséð
frá því hvar menn eru með netteng-
ingar sínar,“ sagði Magnús. Þannig
megi jafnvel nýta 4G-farsímaþjón-
ustu á ferðalögum eða í sumarbú-
stöðum.
James Bond í haust
Magnús segir að nýverið hafi Sím-
inn gert samning við Disney og bætt
við sig 40 sígildum myndum þaðan,
sem auki mjög á úrval barna- og
fjölskylduefnis hjá Símanum. Jafn-
framt verði James Bond á boðstól-
um nú í haust. Samtals eru þegar
meira en sjö þúsund klukkustundir
af efni inni hjá áskriftarþjónustunni.
Spurður hvernig gangi hjá Sjón-
varpi Símans Premium að eiga í
samkeppni við risa eins og Netflix
segir Magnús: „Netflix er stærsti
áskriftarmiðillinn hér á landi, það er
engin launung á því, þar sem tæp-
lega 60% heimila eru með aðgang að
Netflix. Hins vegar er Netflix með
takmarkað efnisframboð. Netflix
var mjög öflugt í upphafi en eftir að
það breytti grundvelli tilveru sinnar
og varð að enn einu stúdíóinu í
Hollywood hafa önnur stúdíó í
Hollywood misst áhugann á því að
selja því sjónvarpsefni sitt. Nú lítur
Hollywood fyrst og fremst á Netflix
sem keppinaut en ekki sölu- eða
dreifingarveitu. Til dæmis selur
Disney því ekkert efni frá sér. Net-
flix er því að þessu leytinu að ein-
angrast svolítið, en er engu að síður
mjög stórt í eigin framleiðslu.“
Keppir ekki við Netflix
Magnús segir það jákvætt fyrir
Símann að Hollywood vilji ekki leng-
ur selja Netflix framleiðslu sína, því
þannig geti Sjónvarp Símans Premi-
um teflt fram efni sem ekki sé til
boða á Netflix. „Þú færð vissulega
ýmislegt sniðugt á Netflix en ég
held að það sé almennt ekki litið á
Netflix sem fyrstu lausn heimilanna,
heldur sé litið á efni þaðan sem við-
bótarefni. Þegar kemur að sam-
keppni um fyrsta valkost í afþrey-
ingu heimilanna lítum við hjá
Símanum miklu fremur á Stöð 2 sem
keppinautinn, ekki Netflix,“ sagði
Magnús.
Ú́tvíkka þjónustuna
Allir geta nú orðið áskrifendur að Sjónvarpi Símans
Premium, óháð því hvar þeir kaupa netþjónustu sína
Premium
» Sjónvarpsþjónusta Símans
er að víkka út þjónustu sína.
» Hægt er að gerast áskrif-
andi burtséð frá því hvar net-
þjónusta er keypt.
» Hollywood vill ekki lengur
selja Netflix efni sitt.
» Hollywood lítur fyrst og
fremst á Netflix sem keppinaut
en ekki sölu- eða dreifing-
arveitu.
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2018
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
2018 Ford F-350 King Ranch
Litur: Ruby red, java að innan.
6,7L Diesel ,440 Hö, 925 ft of torque með upphituð/loft-
kæld sæti, heithúðaðan pall, fjarstart og trappa í hlera,
Driver altert-pakki, Trailer tow camera system og airbag í
belti í aftursæti. Öll standsetning er innifalin í verði ásamt
ábyrgð og þjónustu.
VERÐ
10.690.000 m.vsk
2018 Ram 3500 Limited
Tungsten
Litur: Svartur Loftpúðafjöðrun, Aisin sjálfskipting,
upphitanleg og loftkæld sæti, hiti í stýri, sóllúga,
6,7L Cummins Tungsten Edition.
VERÐ
9.680.000 m.vsk
2018 Ford F-350 King Ranch
Litur: Oxford white, Mesa brown að innan.
6,7L Diesel ,440 Hö, 925 ft of torque. Með upphituð/loft-
kæld sæti, heithúðaðan pall, fjarstart og trappa í hlera,
Driver altert-pakki, Trailer tow camera system og airbag í
belti í aftursæti. Öll standsetning er innifalin í verði ásamt
ábyrgð og þjónustu. Laus aðra viku í ágúst.
VERÐ
10.690.000
2018 Ford F-350 Limited
Litur: Stone Grey / Cocoa að innan.
6,7L Diesel ,440 Hö, 925 ft of torque
með sóllúgu (twin panel moon roof), upphituð/loftkæld
sæti, fjarstart, trappa í hlera og Driver altert-pakki.
VERÐ
10.890.000 m.vsk
Hundaræktarfélag Íslands (HRFÍ)
telur þau rök sem fram hafa kom-
ið um lengd einangrunar gæludýra
ekki standast. Þetta kemur fram í
yfirlýsingu sem félagið sendi frá
sér í gær, en Morgunblaðið fjallaði
fyrr í vikunni um grein þriggja
vísindamanna sem birt var í vef-
tímaritinu Icelandic Agricultural
Sciences. Þar er því haldið fram
að sníkjudýr hafi borist með inn-
fluttum hundum og köttum í ís-
lenska dýrastofna.
Í yfirlýsingu HRFÍ segir að
engar tilraunir séu gerðar til að
sanna eða afsanna tilgátur vísinda-
mannanna um nauðsyn langrar
einangrunar og rökin sem fram
komi standist ekki. „Við höfum
ekki fengið nein gögn sem styðja
að fjögurra vikna einangrun sé
nauðsynleg né að hún bæti nokkru
við þær bólusetningar, rannsóknir
og meðferð sem dýrin þurfa að
undirgangast áður en þau fá að
koma inn í landið,“ segir þar.
Óskuðu eftir áhættumati
Þar segir að HRFÍ hafi í
september í fyrra óskað eftir nýju
áhættumati varðandi einangrun
innfluttra hunda og katta en ekk-
ert hafi frést af matinu þrátt fyrir
ítrekaða eftirleitan af hálfu HRFÍ.
Á sama tíma skjóti hins vegar upp
kollinum umfjöllun í fjölmiðlum
um nauðsyn einangrunar, m.a.
yfirlitsgrein í Búvísindum þar sem
settar séu fram nokkrar hug-
myndir um mögulegar ástæður áð-
ur ógreindra sníkjudýra hér á
landi, getið er um ferðamenn og
farangur en einnig eru talin til
innflutt gæludýr.
Í því yfirliti sé horft til 26 ára
sögu einangrunar, vitnað til sam-
tala við dýralækna og minnis
þeirra og á þeim grunni sé sett
fram sú tilgáta að sníkjudýr hafi
borist með gæludýrum sem sætt
hafa einangrun og hún talin
styrkja rök um nauðsyn fjögurra
vikna einangrunar þeirra við komu
til landsins. Engin tilraun sé hins
vegar gerð til að sanna tilgátuna
né afsanna, leita annarra mögu-
legra skýringa eða bera hana sam-
an við aðrar mögulegar lausnir.
„HRFÍ telur þau rök sem fram
hafa komið um lengd einangrunar
gæludýra ekki standast! Við höf-
um ekki fengið nein gögn sem
styðja að fjögurra vikna einangrun
sé nauðsynleg né að hún bæti
nokkru við þær bólusetningar,
rannsóknir og meðferð sem dýrin
þurfa að undirgangast áður en þau
fá að koma inn í landið. HRFÍ
bendir einnig á að skilyrði þetta
uppfyllir ekki kröfur um velferð
dýra hér á landi,“ segir í yfir-
lýsingunni og þar er enn fremur
kallað eftir niðurstöðum áhættu-
matsins.
Segja rök um einangr-
un dýra ekki standast
Notkun efnisins glýfosfats, sem m.a.
er notað til eyðingar illgresis, er
óæskileg að mati Guðmundar Inga
Guðbrandssonar, umhverfis- og auð-
lindaráðherra. Hann telur að nota
ætti sem minnst af slíkum efnum og í
skriflegu svari sínu við fyrirspurn
mbl.is hvatti hann fólk til að hætta
notkun þeirra.
Talsverð umræða hefur verið um
skaðsemi efna sem notuð eru til ill-
gresiseyðingar í kjölfar svonefnds
Roundup-máls, en þar var fyrirtækið
Monsanto, sem er stærsti efnafram-
leiðandi Bandaríkjanna á sviði land-
búnaðar, dæmt til að greiða manni
289 milljónir dala í skaðabætur.
Maðurinn hélt því fram að hann
hefði fengið krabbamein eftir að hafa
notað plöntueyðinn Roundup, sem
inniheldur glýfosfat.
Sala á sterkari lausn af glýfosfati
er bönnuð hér á landi að sögn ráð-
herra og tók bann við markaðssetn-
ingu slíkrar lausnar gildi um síðustu
áramót. Engu að síður eru ýmsir ill-
gresiseyðar sem innihalda glýfosfat
seldir hér á almennum markaði,
þeirra á meðal er Roundup.
Ráðherra segir að mörkuð hafi
verið aðgerðaáætlun um notkun
varnarefna og lögð sé áhersla á að
þau séu ekki notuð að nauðsynja-
lausu. Spurður hvort Roundup-dóm-
urinn gefi ráðuneytinu tilefni til að
fjalla frekar um notkun glýfosfats
segir ráðherra að stefna ráðuneytis-
ins hafi verið sú að notað sé sem
minnst af svokölluðum plöntu-
verndarvörum, þ.m.t. illgresiseyði.
Ráðherra segir notkun efn-
isins glýfosfats óæskilega
Verði ekki notað að ástæðulausu
Aðgerðaáætlun mörkuð um notkun
Morgunblaðið/Valli
Ráðherra Guðmundur Ingi segir
notkun glýsfosfats óæskilega.