Morgunblaðið - 16.08.2018, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 16.08.2018, Qupperneq 34
34 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2018 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Áhættumat Hafrannsóknastofnunar vegna slysasleppinga á eldislaxi sæt- ir harðri gagnrýni í skýrslu Laxa fiskeldis ehf. um aukningu á heim- ildum til laxeldis í sjókvíum í Reyð- arfirði. Fram kemur það álit sér- fræðinga fyrirtækisins að áhættu- matið sé slíkum annmörkum háð að ekki verði á því byggjandi. Matið hafi ekki verið fest í lög og vís- indalegt vægi þess lítið. Laxar fiskeldi eru með laxeldi í sjókvíum í Reyðarfirði og hafa þar heimild til framleiðslu á 6.000 tonn- um á ári. Fyrirtækið hefur miðað áform sín um uppbyggingu og fjár- festingar við niðurstöður burð- arþolsmats Hafrannsóknastofnunar sem sýna 20 þúsund tonna hámarks- lífmassa í Reyðarfirði. Í skýrslu um áhættumat sem Hafrannsóknastofn- un kynnti á síðasta ári er hins vegar lagt til að samanlögð framleiðsla í Reyðarfirði yrði að hámarki 9 þús- und tonn. Laxar fiskeldi sækja um 10 þús- und tonna aukningu í Reyðarfirði þannig að heildarframleiðslan verði allt að 16 þúsund tonn, eða 7 þúsund tonnum yfir þröskuldi áhættumats- ins. Fiskistofa, Umhverfisstofnun og Hafrannsóknastofnun gerðu at- hugasemdir við frummatsskýrslu Laxa fiskeldis þess efnis að ekki væri tekið mið af áhættumati Hafró. Fyrirtækið bendir á móti á það að áhættumatið hafi ekki verið leitt í lög og mikilvægt sé að opinberar stofnanir starfi eftir gildandi lögum. Skipulagsstofnun geti ekki tekið mið af skýrslu Hafró við umfjöllun um matsskýrsluna. Á skjön við skynsemi Ekki stendur steinn yfir steini í áhættumati Hafrannsóknastofn- unar, miðað við gagnrýni Laxa fisk- eldis og sérfræðinga hennar. Bent er á í matsskýrslunni að þetta plagg sé hvorki áhættumat né mat á erfða- blöndun, heldur reikniregla eða lík- an sem spái fyrir um dreifingu hugs- anlegra sleppilaxa. Ekki séu gerðar tilraunir til að meta erfðablöndun heldur einblínt á þann fjölda eld- islaxa sem gæti mögulega gengið í ár og hugsanlega tekið þátt í hrygn- ingu. Stefán Þórarinsson, stærðfræð- ingur og hagfræðingur, telur í grein- argerð að í slíku áhættumati sé nauðsynlegt að tilgreina hverjar lík- urnar eru á að atburður gerist og tapið sem af því hlýst, að minnsta kosti annan hvorn hlutinn. Stefán telur að líkanið hafi eig- inleika sem eru á skjön við skyn- semi. Þannig geti niðurstaðan orðið sú að fjöldi strokulaxa sem leitar í tiltekna á verði meiri en heildarfjöldi eldislaxa í landinu. Laxar fiskeldi draga mjög í efa vísindalegt gildi áhættumatsins þar sem það hafi ekki verið ritrýnt eða yfirfarið af óháðum aðilum. Það sé aðeins innlegg stofnunarinnar í um- ræðu og hafi ekki meira vægi í gild- andi regluverki um fiskeldi en hvert annað álit umsagnaraðila. Lögð er áhersla á það við Skipu- lagsstofnun sem fer yfir matsskýrsl- una og segir álit sitt á henni að hún þurfi að gera ríkar kröfur um vís- indaleg vinnubrögð, bæði til fag- stofnana og framkvæmdaraðila, þannig að ávallt sé byggt á bestu fá- anlegu upplýsingum um áhrif fram- kvæmdar á umhverfið. Á það er bent að í áhættumatinu sé ekki gert ráð fyrir mótvæg- isaðgerðum sem minnki líkur á stroki laxa. Laxar fiskeldi hagi starf- semi sinni í samræmi við það. Þann- ig séu aðeins sett út stórseiði, möskvar í kvíunum séu litlir og not- uð ljósastýring til að seinka kyn- þroska laxanna. Ekki villtur stofn í Breiðdal Samkvæmt niðurstöðu áhættu- mats Hafró er ein á á Austurlandi talin í hættu vegna slysasleppinga á laxi úr sjókvíum, Breiðdalsá. Má ráða að takmarkanir á framleiðslu vegna hennar minnki framleiðslu- heimildir í landshlutanum úr 52 þús- und tonnum, samkvæmt burðarþols- mati Hafró, niður í 21 þúsund tonn samkvæmt áhættumati sömu stofn- unar. Í matsskýrslunni eru gerðar at- hugasemdir við að Hafrann- sóknastofnun skuli taka Breiðdalsá inn í útreikninga áhættumatsins á þeim forsendum að um villtan stofn sé að ræða. Hún sé frekar hafbeit- ará. Miklar sleppingar séu stund- aðar í ánni og fullyrt að aðeins þann- ig sé hægt að standa undir stangveiði. „Fiskurinn sem veiðist á ánni stenst ekki lagalega skilgreiningu á villtum fiskistofni auk þess sem hætta á erfðablöndun verður að telj- ast hverfandi lítil þar sem nýliðun í ánni á sér stað í gegnum seiðaslepp- ingar,“ segir í matsskýrslunni. Áhættumat ekki á vetur setjandi  Laxar fiskeldi ehf. vilja ekki lúta þeim takmörkunum á framleiðsluheimildum í Reyðarfirði sem áhættumat Hafró setur  Telur annmarka slíka að ekki sé á matinu byggjandi Reyðarfjörður Laxaseiðum dælt úr brunnbát í sjókví Laxa fiskeldis. „Þetta er með ólíkindum. Við hófum vinnu við mat á umhverfisáhrifum á árinu 2012 en miklar utanaðkom- andi tafir hafa orðið í ferlinu af hálfu stjórnvalda. Mesta töfin var þegar okkur var gert að bíða í rúm tvö ár eftir burðarþolsmati Hafrannsóknastofnunar sem kynnt var með lagasetningu í miðju ferli. Þegar burð- arþolsmat lá loksins fyrir fjárfesti félagið fyrir millj- arða í ljósi niðurstöðu matsins og þess regluverks sem var og er í gildi. Hálfu ári síðar kom áhættumat Hafrannsóknastofnunar sem ekki styðst við nein lög og setur allt á annan endann,“ segir Einar Örn Gunn- arsson, stjórnarmaður Laxa fiskeldis ehf. Hann segir að áhættulíkan Hafrannsóknastofnunar eigi ekkert skylt við vísindi. „Ljóst er að þessu áhættumati er ætlað að takmarka uppbyggingu lax- eldis á Íslandi,“ segir Einar Örn og nefnir í því sam- bandi að Breiðdalsá sé eingöngu tekin með í áhættu- matið sem laxveiðiá með villtan stofn til að auka vægi áhættulíkansins þótt áin sé ekki sjálfbær og veiðin grundvallist á seiðasleppingum. „Í rituðum heim- ildum langt aftur í aldir kemur fram að engan laxa- stofn sé að finna í ánni,“ segir Einar. Ætlað að takmarka uppbyggingu laxeldis EINAR ÖRN GUNNARSSON STJÓRNARMAÐUR LAXA FISKELDIS Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is Góð þjónusta byrjar með flottu útliti. Fatnaður fyrir fagfólk TIL LEIGU Skipholt 31 – 105 Reykjavík Skrifstofuhúsnæði 2. og 3. hæð hússins Stærð samtals 1.200 fm. Virðisaukaskattslaust. Ólafur Jóhannsson Rekstrarfræðingur Löggiltur leigumiðlari Löggiltur fasteignasali 534 1023 / 824 6703 olafur@jofur.is Allar nánari upplýsingar veitir: Til leigu tvær samliggjandi skrifstofuhæðir samtals um 1.200 fm. Um er að ræða 2. og 3. hæð hússins (efstu hæð). Lyfta í sameign. Gott útsýni og gluggar allan hringinn. Tveir rafmagnsstofnar eru inn í húsið og tveir ljósleiðarar, lagnaskápur fyrir netkerfi með lögnum í allar skrifstofur á hæðum og tengibox fyrir ljósleiðara. Aðgangsstýrt bílaplan með yfir 50 stæðum er við húsið. Getur hentað mjög vel fyrir t.d. tölvufyrirtæki eða almenna skrifstofustarfsemi. Uppl. um leiguverð gefur Ólafur í síma 824-6703. Laust strax. Sérhæfum okkur í sölu og leigu á atvinnuhúsnæði Pantaðu verðmat eða skoðun – 534 1020 // sala@jofur.is Til leigu verslunar- og skrifstofuhúsnæði að Grandagarði 13, 101 Reykjavík, alls um 196,8 fm. Laust í júní 2018. Í boði er langtíma leigusamningur. Húsnæðið býður upp á ýmsa möguleika fyrir verslunar eða veitingastarfsemi. Mikil uppbygging er fyrirhuguð á þessu sv ði á næstu árum. Á jarðhæð er verslunarrými með góðum verslunargluggum út að götu. Bakatil er aðkoma og bílastæði. Gengið er upp á 2. hæð um sameiginlegan sti agang þar sem eru sameiginlegar snyrtingar. Á hæðinni r eldhús, tvær skrifstofur og opið vinnurými. Neðri hæð er 80,3 fm., efri hæð 93,0 fm. og hlutdeild í sameign 23,5 fm. 534 1020 Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is Ólafur S: 824 6703 Magnús S: 861 0511 Sigurður J. S: 534 1026 Helgi Már S: 897 7086 Bergsveinn S: 863 5868 TIL LEIGU Grandagarður 13 – 101 Rvk Gerð: Verslunar- og skrifstofuhúsnæði Stærð: 196,8 m2 Allar nánari upplýsingar veitir: Bergsveinn Ólafsson Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, löggiltur leigumiðlari og rekstrarfræðingur 863 5868 | 534 1028 bergsveinn@jofur.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.