Morgunblaðið - 16.08.2018, Side 39
FRÉTTIR 39Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2018
Til sölu er fasteignin að Hafnarskeið 6, Þorlákshöfn. Eignin er staðsett á mjög góðum stað við
höfnina í Þorlákshöfn sem gerir hana mjög ákjósanlega fyrir hafsækna starfsemi sem og aðra
starfsemi. Fyrir liggur skipulag á stóru iðnaðar- og þjónustusvæði við höfnina og á upplandi
hafnarinnar sem stórskipahöfn er í farvegi, þ.m.t. hluti af henni er að byggja trébryggju við
hafnarbakkann sem lóð fasteignarinnar liggur að.
Um er að ræða atvinnuhúsnæði, byggt 1955 og 1975. Í eigninni var rekin fiskvinnsla um árabil.
Húsnæðið er pokapússað og málað að utan, hefur verið vel viðhaldið og snyrtilegt. Skipt hefur
verið um glugga í stórum hluta hennar. Góð lofthæð er á 1. og 2. hæð. Lóðin liggur að sjó og er
öll malbikuð eða steinsteypt. Á 1. og 2. hæð var fiskmóttaka og vinnslusalir. Á 3. hæð, sem er
inndregin, eru skrifstofur, snyrtingar, íbúðarherbergi og stór matsalur. Samkvæmt útreikningi
verkfræðistofu er stærð eignarinnar alls 3.599 fermetrar.
Til sölu atvinnuhúsnæði á góðum stað
við höfnina í Þorlákshöfn
Hægt er að óska eftir frekari upplýsingum með því að senda tölvupóst á netfangið oskar@lex.is.
Allar nánari upplýsingar veitir Óskar Sigurðsson lögmaður hjá LEX lögmannstofu í síma 590-2600.
París. AFP. | Drónar njóta vaxandi
vinsælda víða um heim og þeir hafa
meðal annars verið notaðir til að taka
myndir af fallegu landslagi en sér-
fræðingar hafa áhyggjur af því að
flugtækin verði notuð til hryðjuverka
eða morðtilræða. Þeir segja að auð-
velt sé að verða sér úti um dróna og
breyta þeim í „vopn fátæka manns-
ins“; fjarstýrðar sprengjur eða
njósnavélar til að undirbúa árásir.
„Þetta verður uppáhaldsvopn
þeirra sem telja sig vera tæknilega
vanbúna á öðrum sviðum,“ sagði
Todd Humphreys, bandarískur
verkfræðiprófessor sem sérhæfir sig
í rannsóknum á drónum.
Sérfræðingarnir segja að nú þegar
séu komnar fram margar vísbend-
ingar um að ástæða sé til að hafa
áhyggjur af hættunni á því að drón-
um verði beitt til hryðjuverka eða
morðtilræða. Þeir skírskota m.a. til
frétta um að tveir drónar með
sprengjur hafi verið notaðir í tilraun
til að myrða Nicolás Maduro, forseta
Venesúela, þegar hann flutti ræðu í
Caracas 4. ágúst. Lífverðir Emm-
anuels Macrons, forseta Frakklands,
urðu varir við dróna nálægt sumar-
bústað hans og trufluðu flugleið-
sögumerki til tækisins, þannig að
það hrapaði í Miðjarðarhafið. Rann-
sókn hefur verið hafin á málinu og
kafarar eru að leita að drónanum.
Dróni brotlenti á sviði nálægt An-
gelu Merkel, kanslara Þýskalands,
árið 2013 og Hvíta húsinu var lokað
um tíma tveimur árum síðar vegna
mikils öryggisviðbúnaðar þegar
dróni lenti í garði þess. „Ég tel að
þetta sé að færast í vöxt og að þjóð-
höfðingar þurfi að varast að flytja
ræður utan dyra nema þeir séu vissir
um að geta varið sig gegn árás eins
eða fleiri dróna,“ sagði Humphreys.
Hermt að liðsmenn hryðjuverka-
samtakanna Ríkis Íslams í hafi notað
dróna til að gera sprengjuárásir og
njósna um hermenn í Írak og Sýr-
landi.
Ennfremur hefur verið skýrt frá
því að umhverfisverndarsinnar hafi
stýrt drónum á kjarnorkuver í
Frakklandi. Yfirvöld í Bandaríkj-
unum hafa sett um upp varnarbúnað
gegn drónum til að koma í veg fyrir
að þeim verði beitt til árása á kjarn-
orkuver. Japani fékk skilorðsbund-
inn fangelsisdóm árið 2016 fyrir að
stýra dróna á þak skrifstofu Shinzo
Abe, forsætisráðherra Japans. Í
drónanum var flaska full af geisla-
virkum sandi úr lóð kjarnorkuvers-
ins í Fukushima eftir slysið sem varð
þar í jarðskjálfta.
Erfitt að skjóta þá niður
Um 400.000 drónar voru seldir í
Frakklandi í fyrra og frönsk yfirvöld
hafa sett reglur um notkun þeirra,
m.a. bannað þá í borgum. Frá og með
næsta ári þarf að skrá eigendur allra
dróna sem vega 800 grömm eða
meira. Yfirvöldin hafa einnig sett
upp varnarbúnað við mikilvægar
byggingar til að koma í veg fyrir
árásir með drónum. Humphreys tel-
ur þó að varnirnar dugi skammt.
„Það er mjög erfitt að skjóta niður
dróna á miklum hraða, 100 km á
klukkustund,“ sagði hann. „Og jafn-
vel ef hægt væri að skjóta niður einn
dróna á miklum hraða, hvað væri þá
hægt að gera ef fimm eða tíu drónar
gerðu árás á sama tíma?“
Sérfræðingarnir segja að það væri
óraunhæft og dýrt að hafa skyttur
við allar mikilvægar byggingar sem
gætu orðið fyrir árásum dróna. Her
Frakklands hefur reynt að þjálfa
erni í að grípa dróna með klónum í
von um að hægt verði að nota þá til
að verja mikilvægar byggingar. Sú
aðferð var reynd í Hollandi en hætt
hefur verið við að beita henni þar
vegna þess að hún þótti of dýr og
ernirnir létu illa að stjórn.
Öryggisyfirvöld reyna að
efla varnir gegn drónum
Auðvelt að breyta dróna í fjarstýrða sprengju eða tæki til að undirbúa árás
Litlar
sprengjur
eru festar
á hann
Myndavél
er sett á
drónann
Notaðir eru drónar
sem auðvelt er að
verða sér úti um
Skammdrægir
„Vopn fátæka mannsins“
Heimildir: MilitaryTimes/WIRED
Notaðir til árása á hersveitir
Hermenn hafa skotið dróna niður
Sérfræðingar segja að auðvelt sé að gera dróna, sem fást í verslunum, að fjar-
stýrðum sprengjum eða nota þá til að undirbúa hryðjuverk og aðrar árásir.
Mikill öryggis-
viðbúnaður var við
Hvíta húsið í
Washington árið
2015 þegar dróni
lenti í garði þess.
4. ágúst 2018:
Hermt er að tveir
drónar með sprengi-
efni hafi verið notaðir
í tilraun til að myrða
forseta Venesúela.
Fréttir ummeintar drónaárásir:
Rússar skýrðu frá
því í janúar að
rússneskir hermenn
í Sýrlandi hefðu orðið
fyrir árásum
sprengjudróna.
Samtökin Ríki íslams hafa sett sprengjur
í dróna sem notaðir hafa verið gegn
öryggissveitum í Írak
Dæmi:
Ríkissaksóknari Venesúela hefur
skýrt frá því að fjórtán menn, þeirra á
meðal tveir hátt settir herforingjar,
hafi verið handteknir vegna gruns um
að þeir hafi tekið þátt í samsæri um að
myrða forseta landsins, sósíalistann
Nicolás Maduro.
Stjórnvöld í Venesúela saka sam-
særismennina um að hafa ætlað að
ráða forsetann af dögum með því að
nota tvo dróna þegar hann flutti ræðu
á hersýningu í Caracas 4. ágúst. Sagt
er að sprengjur hafi verið settar í
drónana.
Ríkissaksóknarinn, sem er banda-
maður forsetans, sagði að rannsókn
hefði leitt í ljós að 34 menn væru við-
riðnir meinta morðsamsærið. Margir
þeirra væru núna í Kólumbíu og
Bandaríkjunum.
Stjórnarandstaðan í Venesúela ótt-
ast að stjórn Maduros nýti sér málið
til að fangelsa andstæðinga forsetans.
Efnahagur landsins er í lamasessi
vegna óstjórnar sósíalista og gert er
ráð fyrir að verðbólgan verði orðin
milljón prósent í lok ársins. Efnahags-
kreppan hefur leitt til mikils land-
flótta og mesta flóttamannavanda í
Suður-Ameríku í áratugi. bogi@mbl.is
AFP
Maduro Stuðningsmaður forseta
Venesúela heldur á mynd af honum.
Handteknir
fyrir meint
morðsamsæri
Yfirmenn kaþólsku kirkjunnar í
Bandaríkjunum hylmdu með skipu-
legum hætti yfir með 300 prestum
sem eru taldir hafa brotið kynferðis-
lega gegn þúsundum barna í Penn-
sylvaníu á 70 árum, að því er fram
kemur í nýrri skýrslu um viðamikla
rannsókn.
Í skýrslunni segir að vitað sé um
rúmlega þúsund börn sem prestar
hafi brotið gegn kynferðislega í
Pennsylvaníu en talið sé að þau séu í
raun miklu fleiri og skipti þúsund-
um.
Ríkissaksóknari í Pennsylvaníu
óskaði eftir rannsókninni sem hefur
staðið í eitt og hálft ár. Í skýrslunni
kemur fram að hátt settir menn í
kirkjunni hafi þaggað niður brot
prestanna árum saman og neitað
ásökunum á hendur þeim. Börn og
unglingar, drengir og stúlkur, hafi
verið beitt kynferðislegu ofbeldi.
„Leiðtogar kirkjunnar ýttu þeim öll-
um til hliðar, kusu að vernda níð-
ingana og stofnunina ofar öllu,“ segir
meðal annars í skýrslunni.
Meðal hátt settra ráðamanna
kirkjunnar sem eru gagnrýndir í
skýrslunni er Donald Wuerl, kardin-
áli og erkibiskup í Washington, sem
er sagður hafa tekið þátt í að hylma
yfir brotin.
Þar sem áratugir eru liðnir frá því
að flest brotanna voru framin er
meirihluti þeirra fyrndur og aðeins
tveir prestar hafa verið ákærðir. Í
skýrslunni er meðal annars lagt til
að núgildandi lagaákvæði um fyrn-
ingu slíkra brota verði afnumin.
Hylmdu
yfir með
níðingum
Prestar nauðg-
uðu fjölda barna