Morgunblaðið - 16.08.2018, Page 44

Morgunblaðið - 16.08.2018, Page 44
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2018 Guðmundur Sv. Hermannsson gummi@mbl.is Tsukiji-fiskmarkaðurinn í Tókýó í Japan, sá stærsti í heimi, flytur í nýtt húsnæði í haust eftir að hafa verið á sama stað á hafnarsvæðinu í yfir átta áratugi. Lengi hefur staðið til að flytja markaðinn til Toyosu, sem er um þremur kílómetrum austar í borg- inni þar sem áður stóð gasstöð, en tafir hafa orðið á því af ýmsum or- sökum. Meðal annars kom í ljós mengun í jarðveginum í Toyosu sem þurfti að hreinsa. Tsukiji-markaðurinn, sem var opnaður árið 1935, er á um 230 þús- und fermetra svæði við höfnina í hjarta Tókýó skammt frá Ginza- verslunarhverfinu. Markaðurinn slapp að mestu við loftárásir í heimsstyrjöldinni síðari vegna þess að í nágrenninu var stórt sjúkrahús. Eftir stríðið notaði bandaríski her- inn markaðssvæðið, þar var m.a. bú- inn til hafnaboltavöllur og svæðið var einnig notað til að dreifa mat- vælum. Árið 1952 var markaðnum skilað aftur til japönsku þjóð- arinnar. Nú stendur til að reisa nýja samgöngumiðstöð á markaðs- svæðinu sem á að taka í notkun í tengslum við ólympíuleikana sem haldnir verða í Tókýó eftir tvö ár. Fræg túnfiskuppboð Markaðurinn er vinsæll ferða- mannastaður og á markaðssvæðinu er ógrynni af litlum matsölustöðum, sushi-börum og sölubásum. Þar fara einnig fram heimsfræg uppboð á túnfiski þar sem bestu fiskarnir seljast fyrir himinháar upphæðir. Einn fiskur seldist t.d. fyrir jafn- virði 32 milljóna króna á nýárs- uppboði í fyrra. En tæknibúnaður markaðarins er orðinn úreltur og uppfyllir ekki nú- tíma öryggis- og hreinlætiskröfur. Ferðamenn kvarta oft yfir ólykt og hrörlegum skúrabyggingum. Og mikil hitabylgja, sem gengið hefur yfir Japan í sumar, hefur varpað enn skýrara ljósi á þetta ástand. Gamalt loftræstikerfi „Við getum ekki endurnýjað gamla loftræstikerfið vegna þess að við erum að fara að flytja innan skamms en það hefur verið svo heitt í veðri að það er erfitt að halda hita- stiginu á markaðssvæðinu lágu,“ hefur AFP-fréttastofan eftir ónefndum framkvæmdastjóra á markaðnum. Reynt er að hafa hitastigið á markaðssvæðinu um 15 °C en vegna hitanna í sumar fór hitinn stundum yfir 20°C. Hafa heildsalar neyðst til þess að grípa til ýmissa ráðstafana, þar á meðal að hafa dyr markaðar- ins lokaðar og geyma túnfisk og annan fisk inni í kældum flutn- ingabílum þar til skömmu áður en uppboð eru haldin. Þá hefur verið breitt yfir fiskinn um leið og hann er seldur til að koma í veg fyrir að hann þiðni. Löng hefð er fyrir uppboðsmörk- uðum með matvæli í Tókýó og er upphaf þeirra rakið til öndverðrar 17. aldar. Tsukiji-markaðurinn er einn af mörgum uppboðsmörkuðum sem starfa innan borgarmarka Tókýó. Á þessum mörkuðum er einkum boðið upp á kjöt, fisk, græn- meti og blóm. Markaðirnir eru reknir á ábyrgð borgarstjórnar Tókýó. Hitabylgja í Japan veldur fisksölum vandræðum Morgunblaðið/GSH Túnfiskur Væntanlegir kaupendur skoða frystan túnfisk á Tsukiji-fiskmarkaðnum í Tókýó fyrir nokkrum árum. ● Stærsti og elsti fiskmarkaðurinn í Tókýó verður fluttur á nýtt svæði í haust Í síðustu viku barst Síldarvinnslunni í Neskaupstað skemmtilegt bréf frá Þýskalandi. Í bréfinu lýsir bréfrit- arinn, ungur drengur að nafni Hauke Nörenberg frá Cuxhaven, yf- ir ánægju sinni með fiskinn frá Síldarvinnslunni og sendir fyrirtæk- inu sínar bestu kveðjur. Frá þessu er greint á vef Síldar- vinnslunnar, en fram kemur í bréf- inu að um sé að ræða sjófrystan fisk og kemur fiskurinn því frá frystitog- aranum Blængi NK. „Það er ekki oft sem neytendur hafa fyrir því að þakka fyrir góða vöru með þessum hætti,“ segir á vef fyrirtækisins. Þýskur drengur þakkaði fyrir fiskinn Fiskafli íslenskra skipa í júlí var 93.551 tonn og jókst veiðin um 27 prósent á milli júlímánaða 2017 og 2018. Þetta kemur fram á vef Hag- stofu Íslands. Langmest munaði um kolmunna. Uppsjávarafli jókst um 37% Botnfiskafli var rúm 34 þúsund tonn eða tæpum fimm þúsund tonn- um meiri en í júlí 2017. Af botn- fisktegundum veiddist mest af þorski eða tæp 20 þúsund tonn, sem er 16 prósenta aukning frá júlí 2017. Þá veiddust rúm fimm þúsund tonn af ufsa, 4.611 tonn af karfa og 3.555 tonn af ýsu. Uppsjávarafli nam tæpum 54 þús- und tonnum sem er 37 prósentum meiri afli en í júlí 2017. Kolmunni og makríll voru uppistaðan í uppsjávar- aflanum en um 25 þúsund tonn veiddust af hvorri tegund. Í júlí á síðasta ári veiddust ekki nema 6.275 tonn af kolmunna. Þá veiddust 28.453 tonn af makríl og dróst makrílafli því saman um 13 prósent milli ára. Skel- og krabbadýraafli nam 1.912 tonnum en var 1.626 tonn í júlí 2017. Morgunblaðið/Ómar Aukin veiði Fiskafli íslenskra skipa í júlí jókst um 27% frá því í fyrra. Miklu meiri veiði  Fiskafli íslenskra skipa jókst um 27 prósent milli júlímánaða 2017 og 2018 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.