Morgunblaðið - 16.08.2018, Qupperneq 59
DÆGRADVÖL 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú færð það sem þú vilt en ekki á
sama hátt og þú hélst. Kynntu þér mál áður
en þú opnar munninn um menn og málefni,
ef þú vilt að einhver taki mark á þér.
20. apríl - 20. maí
Naut Sambönd þín við vinnufélaga eða aðra
sem þú átt samskipti við gegnum vinnuna
batna nú og á næstu dögum. Ekki tefla á
tæpasta vað í peningamálum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Gefðu þér nú tíma til að setja
reynslu þína niður á blað og miðlaðu henni til
annarra. Ekki gera úlfalda úr mýflugu þó að
nágrannarnir þreyti þig stundum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Hvers vegna að streitast á móti þörf-
inni fyrir að vera öðruvísi? Þú ert skapandi
og hugsar ekki um álit annarra, sem er frá-
bært.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér er gefið að taka eftir hlutum sem
fara framhjá öðrum. Leggðu þitt að mörkum
til góðgerðarstarfsemi eða fólks sem er
hjálpar þurfi.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er mikill vandi að bregðast rétt
við óvæntum tíðindum. Láttu ekki gömul
hjartasár stjórna lífinu. Þér vex í augum að
mála íbúðina en það er engin ástæða til þess.
Byrjaðu bara.
23. sept. - 22. okt.
Vog Leggðu þitt af mörkum til að gera and-
rúmsloftið betra heima og í vinnunni. Þú
fylgir straumnum í vissu máli. Leggðu spilin á
borðið í deilum við maka.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er létt yfir þér í dag og þú
átt því auðvelt með að laða að þér fólk. Þú
ferð ekki troðnar slóðir í átt að markmiðum
þínum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú hefur meira en nóg á þinni
könnu og þótt þér líði vel undir pressu verð-
urðu að gæta þess að það flæði ekki upp úr.
Fjölskyldumeðlimur kemur þér á óvart.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ef þú lætur verða af því að segja
hug þinn muntu undrast hversu marga já-
bræður þú átt. Ekki linna látum fyrr en tak-
markinu er náð.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Láttu nú ekki eyðslusemina ná
tökum á þér. Allir þurfa tíma til að sanna sig
og sjálfsagt er að túlka allan vafa þeim í hag
á meðan.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þetta er stórkostlegur dagur til
skemmtana og ástarævintýra. Bros til sam-
ferðamanna getur breytt öllu. Þú nærð góð-
um samningi.
Sigurlín Hermannsdóttir yrkir áLeir:
Eitt sinn ég eignaðist hest
það öldungis þótti mér verst
er hann vingsaði fótum
á fjórðungsmótum
með háværan hrossabrest.
Sigrún Huld Þorgrímsdóttir er
ný á Boðnarmiði og skrifaði á
föstudag: „Með nokkrum kvíða
leyfi ég mér að pósta eftirfarandi
leirburði“:
Kaffipokar, batterí
kúrbítur og gotterí,
súrmjólk, nýmjólk, sitthvað fleira,
smjörvi, kæfa, ekki meira.
Svoddan innkaup síst má kalla
smotterí.
Hjálmar Freysteinsson segir á
fésbókarsíðu sinni af Þorsteini í
Bakkakoti:
Eðlishvöt sumra er ýkt
og erfitt að ráða við slíkt.
Þegar Ólöf á Bakka
eignaðist krakka,
sagðı́ún: Já, þetta var Þorsteini líkt!
Ármann Þorgrímsson skrifaði
„Ritdóm um eigin verk“:
Oft mig hefur andann skort,
endar þá í rugli flest.
Ljóðið, sem var aldrei ort,
alltaf fannst mér vera best.
„Mikið til í því,“ svaraði Fía á
Sandi:
Oft er vit í orðin lagt
oft er snilld að brúka kjaft
en orðið sem var aldrei sagt
oft er lengi í minni haft.
Mínerva, skip Friðriks Jóns-
sonar á Ytri-Bakka í Eyjafirði,
þótti ekki viðamikil, varð þó allra
skipa elst og farsældin fylgdi
henni jafnan, „Sú mjóa, maður,“
sagði Friðrik um hana. Um hana
var kveðið:
Vísdómsgyðjan veður hryðjur sjávar;
ill með læti og upp í kvið,
á sér vætir gamanið.
„Nú hallar sumri og menn snúa
aftur til vinnu eftir misjafna tíð í
sumar“, skrifaði Ólafur Stefánsson
á Leir eftir verslunarmannahelg-
ina:
Hip og kúlu helgarnar
hurfu í sumarrokið
og líf í normalt fellur far
því fríinu er lokið.
Undir síðustu helgi gat Ólafur
ekki leynt vonbrigðum sínum:
Ég segi fyrir sjálfan mig,
er sumarið birtist ekki,
að náttúran er söm við sig,
svíkur og er með hrekki.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Hrossabrestur,
kaffipokar og Mínerva
„ÁBYRGÐIN NÆR EKKI YFIR
FRAMLEIÐSLUGALLA.“
„VILTU LÍKAMSRÆKTARROTTUR EÐA
SUKKARA?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að eltast við draum.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG HEF EKKI SÉÐ MÚS Í HEILA
VIKU. VEL GERT, GRETTIR!
HVERNIG
VAR FRÍIÐ?
ÆÐI!
EN ÞAÐ ER
ALLTAF
GOTT AÐ
KOMA HEIM
NEI, VIÐ HÖFUM EKKI VILLST OG, NEI, VIÐ ERUM EKKI
Á LEIÐ Á ÓLYMPÍULEIKANA!
KOM
UR
DRAUMA-
PRINSINN
Xi Jinping, leiðtogi Kína, er stað-ráðinn í því að hefja knatt-
spyrnu til vegs og virðingar í land-
inu. Því hefur meira að segja verið
haldið fram að fótbolti hafi fyrst
komið fram í einhverri mynd í Kína
en síðan horfið aftur af sjónarsvið-
inu. Vísað er til heimildar um að á
tímabilinu 475 til 221 fyrir Krist hafi
íbúar hins auðuga og volduga ríkis
Qi gert ýmislegt sér til afþreyingar,
þar á meðal farið í „cuju“, sem bók-
staflega merki að sparka bolta.
x x x
Í kjölfarið hafi cuju orðið að at-vinnuíþrótt. Tvö lið með tólf leik-
mönnum hvort hafi spilað á leik-
vöngum með áhorfendastúkum og
reynt að sparka leðurbolta, fylltum
með dýrahárum, í mörk. Síðar var
farið að nota blöðru úr dýrum til að
boltinn yrði léttari og settar voru
upp markstangir. Er meira að segja
talað um kvennalið. Þegar kom
fram yfir árið þúsund var hætt að
tala um liðsíþrótt. Þess í stað
reyndu leikmenn, einn eða fleiri, að
halda bolta á lofti og máttu nota alla
hluta líkamans nema hendurnar.
x x x
Íþróttin mun hafa haldið vinsæld-um í þessari mynd en á ógæfu-
hliðina seig er vændishús fóru að
nota hana til að draga að við-
skiptavini. Taizu keisari gaf út til-
skipun þar sem embættis- og her-
mönnum var bannað að stunda cuju.
Þeir sem brutu gegn henni áttu yfir
höfði sér að fæturnir yrðu höggnir
af þeim. Svo fór að cuju hvarf af
sjónarsviðinu.
x x x
Englendingar hafa löngum gerttilkall til þess að hafa fundið
upp fótboltann og upphaf íþrótt-
arinnar í núverandi mynd má vissu-
lega rekja til Englands. Þegar
enska landsliðið gerði sig líklegt til
að ná árangri á HM í Rússlandi var
talað um að heimsmeistaratitillinn
gæti verið á leið heim. Kínverjar
eiga aðeins lengra í land. Þeir hafa
aðeins einu sinni komist á HM, árið
2002. Þá töpuðu þeir öllum sínum
leikjum og tókst ekki að koma bolt-
anum í net andstæðinga sinna.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Jesús sagði: „Hver sem ber ekki sinn
kross og fylgir mér getur ekki verið
lærisveinn minn“
(Lúkasarguðspjall 14.27)