Morgunblaðið - 31.08.2018, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2018
Með sjálfbærni að leiðarljósi
Finnsk innanhússhönnun
02.03–02.09.2018 www.norraenahusid.is
Innblásið af Aalto
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Facebook hefur fjarlægt fylgjenda-
síðu Listahátíðar í Reykjavík af vef
sínum án aðvörunar eða tilkynningar
til forsvarsmanna hátíðarinnar.
Mögulegt er að lokunin tengist atvik-
um sem hentu Borghildi Indriða-
dóttur, listakonu
og forvígiskonu
listasýningarinnar
Demoncrazy, fyrr
í sumar þegar
Facebook hafði
afskipti af per-
sónulegri síðu
hennar.
Hafði hún deilt
þar hlekkjum á
sýningu, þar sem
sjá mátti ber-
brjósta konur á ýmsum þekktum
stöðum í Reykjavík. Hluti sýningar-
innar var einnig gjörningurinn
Drosophilia, þar sem berbrjósta kon-
ur gengu m.a. fylktu liði í miðbænum.
Síðar var aðgangi hennar að sam-
skiptaforritinu Messenger lokað.
Samkvæmt skilmálum Facebook eru
slíkar myndir óleyfilegar nema í af-
mörkuðum tilfellum.
Síðan með 8.000 fylgjendur
„Það kom reyndar fram að eitthvað
sem við gerðum „nýlega“ fer gegn
skilmálum þeirra . Þetta er örugglega
stöðluð setning hjá þeim,“ segir Fjóla
Dögg Sverrisdóttir, framkvæmda-
stjóri Listahátíðar í Reykjavík, en
umrædd síða hefur átta þúsund fylgj-
endur. „Þeir finna okkur ekki í dag,“
segir hún, en forsvarsmenn Listahá-
tíðar leita nú skýringa hjá Facebook.
„Það var þarna hnappur til að
áfrýja sem við smelltum á og sendum
inn fyrirspurn. Ef maður gúgglar
þetta kemur fram að svona mál geti
tekið marga, marga daga eða vikur
og það er enginn tími gefinn upp um
hvenær þessu máli gæti lokið,“ segir
hún. „Við erum líka að leita annarra
leiða til að komast nær þeim. Þau
gefa ekki mikið færi á sér,“ segir
Fjóla Dögg og nefnir að lokun síð-
unnar geti haft mikil áhrif á markaðs-
starf Listahátíðar.
Gæti haft miklar afleiðingar
„Með haustinu förum við í að aug-
lýsa Eyrarrósina. Það er mjög slæmt
að geta ekki nýtt samfélagsmiðlana í
það. Sömuleiðis þegar við förum að
kalla eftir verkefnum fyrir næstu
[Lista]hátíð. Það yrði líka mjög slæmt
ef við myndum missa fylgjendur og
söguna á síðunni. Ef síðan fer ekki
upp aftur verða af því miklar afleið-
ingar,“ segir hún,
Sýning Borghildar var hluti Lista-
hátíðar 2018. Spurð hvort tenging sé
á milli máls Borghildar og að síðu
Listahátíðar hafi verið lokað segir
Fjóla Dögg að svo geti verið.
„Okkur dettur það helst í hug en
það er ekkert sem staðfestir það í
rauninni. Við vorum með myndaseríu
af gjörningnum hennar inni á síðunni,
en það sem okkur finnst skrýtið er að
þetta hafi gerst svona löngu eftir það.
Við settum myndirnar inn í júní, en
þetta gerðist síðasta föstudag,“ segir
hún.
Samfélagsmiðillinn Instagram er í
eigu Facebook og þar gilda áþekkar
reglur um myndir sem sýna geir-
vörtur. Síðu Listahátíðar þar hefur
ekki verið lokað, en myndir sem þar
voru birtar af gjörningi Borghildar
voru fjarlægðar. Fjóla Dögg segir að
þar „hangi þó inni“ ein mynd úr
gjörningnum þar sem barmur fyrir-
sætu er gerður óskýr.
Facebook lokar á síðu
Listahátíðar í Reykjavík
Mögulegt að málið tengist afskiptum af síðu listakonu
Morgunblaðið/Arnþór
Drosophilia Gjörningur Borghildar á Listahátíð hófst í Alþingishúsinu.
Fjóla Dögg
Sverrisdóttir
Framvegis mun lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu birta fyrirvara með
vísan til nýrra persónuverndarlaga
við myndbirtingar vegna sakamála.
Sá fyrsti eftir gildistöku laganna
birtist fyrst í fyrradag þegar mynd
var birt af manni vegna árása á ung-
ar stúlkur í Garðabæ. Þar sagði m.a.
að hana mætti eingöngu nota í þess-
um ákveðna tilgangi og í þetta eina
sinn. Henni bæri að eyða að lokinni
notkun og ekki mætti geyma, afrita
eða nota myndina.
Þórir Ingvarsson lögreglufulltrúi
segir að þegar farið sé í myndbirt-
ingu hafi vægari úrræði verið kláruð.
„Heilt yfir er reynt að fara ekki í
myndbirtingar nema aðrar leiðir séu
ekki færar,“ segir hann. „Við viljum
hnykkja á því að það á ekki að nota
þessar myndir í öðrum tilgangi, í því
ljósi að þarna er um íþyngjandi að-
gerð að ræða. Það er vilji löggjafans
að þessu sé markaður eins þröngur
rammi og mögulegt er,“ segir hann
og segir átt við frekari birtingar
mynda af þessum toga. Eðli máls
samkvæmt verði prentuðum mynd-
um ekki eytt og myndum ekki varan-
lega eytt á internetinu. „Þarna er um
manneskjur að ræða og það skiptir
máli að myndum sé ekki haldið á lífi
lengur en nauðsynlegt þykir,“ segir
Þórir. jbe@mbl.is
Fyrirvari fylgi
myndbirtingum
Vísað til nýrra laga um persónuvernd
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Menn eiga almennt að virða náung-
ann, en það eru auðvitað til reglur
um þetta og þær hafa verið kynntar
verslunarmönnum í miðbænum,“
segir Jón Halldór Jónasson, upplýs-
ingafulltrúi hjá Reykjavíkurborg, í
samtali við Morgunblaðið og vísar í
máli sínu til þeirra fjölmörgu auglýs-
ingaskilta sem verslunarmenn hafa
stillt upp á gangstígum í miðborg
Reykjavíkur.
Nákvæm fyrirmæli í reglum
Ljósmyndari Morgunblaðsins átti
nýverið leið um Laugaveg og voru
þá auglýsingaskilti áberandi. Mátti
meðal annars sjá þar skilti sem enn
gera út á heimsmeistaramót karla í
knattspyrnu, nú þegar hátt í sjö vik-
ur eru liðnar frá úrslitaleiknum.
Í reglum Reykjavíkurborgar um
afnot af borgarlandi vegna skilta og
útstillinga er göturými nákvæmlega
skilgreint og skipt upp í svæði, þ.e.
svæði við framhlið byggingar,
göngusvæði, millisvæði, öryggis-
svæði og aksturssvæði.
„Næst aksturssvæði er öryggis-
svæði sem alltaf skal vera autt,“
segir í fyrrgreindum reglum borgar-
innar. „Göngusvæði skal halda auðu
fyrir gangandi vegfarendur. Ekki
má nota þetta svæði til uppstillingar
á vörum eða skiltum. Göngusvæði
skal að lágmarki vera 1,5 m,“ segir
þar enn fremur, en millisvæði liggur
milli öryggissvæðis og göngusvæðis
og er misbreitt eftir aðstæðum. „Það
er notað fyrir götugögn, s.s. lýsingu,
bekki og gróður.“
Almennt er heimilt að koma fyrir
skiltum og útstillingum við framhlið
byggingar viðkomandi, en þó aldrei
á göngusvæði. „Aðeins er heimilt að
staðsetja skilti eða útstillingu á milli-
svæði ef ekki er unnt eða æskilegt
m.t.t. aðstæðna að nýta svæði við
framhlið byggingar,“ segir í reglum
borgarinnar. Þá mega skilti með
festingum ekki vera breiðari en 0,8
m og hærri en 1,25 m. Bil á milli
skilta má ekki vera minna en 3 m.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Verslunargata Það getur verið mikið að gera á Laugaveginum í Reykjavík og er þá oft þröngt á gangstígum.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ferðamennska Mörg skilti verslunarmanna í miðbænum eru einungis á ensku.
Mega aldrei standa á göngusvæði
Í reglum Reykjavíkurborgar er göturými skilgreint nákvæmlega Skilti kaupmanna í miðbænum
mega ekki standa á göngusvæði fólks eða á svonefndu öryggissvæði sem finna má næst aksturssvæði