Morgunblaðið - 31.08.2018, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 31.08.2018, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2018 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Framkvæmdastjóri AkvaFuture sem lagt hefur fram matsáætlun fyrir fiskeldi í lokuðum sjókvíum í Ísafjarðardjúpi, telur að Djúpið henti vel fyrir þessa tegund af kví- um. Þá stafi náttúrulegum laxa- stofnum á svæðinu minni hætta af því eldi en hefðbundnu sjókvíaeldi. AkvaFuture ehf. er dótturfélag norska fiskeldisfyrirtækisins Ak- vaDesign AS sem hannar lokaðar sjókvíar. Systufyrirtæki þess rek- ur laxeldi í slíkum kvíum í Brøn- nøysund í Norlandfylki. Mikil áform í Djúpinu Burðarþol Hafrannsóknastofn- unar bendir til að hægt sé að framleiða allt að 30 þúsund tonn af laxi árlega í Ísafjarðardjúpi. Akva- Future áformar að framleiða 6.000 tonn af laxi á ári í fjórum inn- fjörðum Djúpsins, fáist til þess leyfi yfirvalda. Þrjú önnur fyrir- tæki eru með mikil áform þar í umhverfismatsferli, Háafell sem er dótturfélag Hraðfrystihússins – Gunnvarar, Arnarlax og Arctic Fish. Síðarnefndu fyrirtækin hafa verið að byggja upp sjókvíaeldi í fjörðum Vestfjarða. Hins vegar leggur Hafrann- sóknastofnun til að Djúpinu verði lokað fyrir eldi vegna hættu á því að eldislax blandist villtum laxi í ám svæðisins. Halda laxalús frá Rögnvaldur Guðmundsson, framkvæmdastjóri AkvaFuture ehf., segir að lokaðar sjókvíar henti vel í innfjörðum, þar sem minna mæði á þeim en opnari fjörðum. Spurður út í sambýlið við villta laxinn segir Rögnvaldur að tvöföld vörn sé gegn slysasleppingum því auka nót sé utan um trefjaplast- poka sem lokar kvíunum. Engar slysasleppingar hafi orðið úr þess- ari gerð sjókvía, frá því notkun þeirra hófst fyrir fimm árum. Þá segir hann að rannsóknir hafi staðfest að kvíarnar haldi laxalús frá fiskinum auk þess sem lúsin þrífist ekki í kvíunum vegna mikils gegnumstreymis af sjó. Lax í þess- um kvíum valdi því ekki lúsafári í villtum laxi. Þetta staðfesti norski Hyggjast nota lúsafríar sjókvíar  Eldi í lokuðum kvíum í Ísafjarðardjúpi Ármúla 24 - s. 585 2800 strax greina suðið í undanhalds- mönnum sem munu hefjast handa við að sannfæra þjóðina að það sé hagkvæmt fyrir hana að láta þau yfirráð af hendi. Við munum hvernig þeir töluðu í Icesave, forystumenn í stjórnmálum, embættismenn og sér- fræðingar. Manna á meðal heyrist setningin: Við eigum ekki annarra kosta völ og er höfð eftir hinum og þessum þingmönnum okkar. [...] Ef það er rétt að við eigum ekki ann- arra kosta völ er tímabært að stöðva við og endurskoða EES-samninginn allan,“ sagði Styrmir enn fremur og bætti við að landsfundir Sjálfstæðis- flokksins, æðsta valdið í málefnum flokksins, hefðu aldrei samþykkt það að fullveldi Íslands væri fært í hend- ur Evrópusambandsins smátt og smátt í gegnum aðild landsins að EES-samningnum. Styrmir rifjaði enn fremur upp ályktun landsfundar Sjálfstæðis- flokksins fyrr á þessu ári þar sem hafnað hefði verið frekara framsali á yfirráðum yfir íslenskum orkumark- aði til stofnana Evrópusambandsins. Ef þingmenn flokksins ætluðu að leyfa sér að ganga gegn ályktuninni sagðist Styrmir vilja leggja fram þá tillögu að málið yrði borið undir at- kvæði allra flokksbundinna sjálf- stæðismanna. Það væri lýðræðisleg leið til að gera út um ágreiningsmál. „Við hina ungu forystusveit Sjálf- stæðisflokksins í dag langar mig að segja: Gætið að ykkur. Sá þráður í sálarlífi þessa flokks sem snýr að fullveldi og sjálfstæði er mjög sterk- ur. Flokkurinn virðist hafa misst varanlega um þriðjung af sínu fylgi. Hann má ekki við meiru. Sýnið þeirri sögu sem hér hefur verið rak- in virðingu.“ Vantar meiri rannsóknir Stefán Már Stefánsson, lagapró- fessor við Háskóla Íslands, hélt einnig erindi á fundinum og ræddi um lagalegar hliðar málsins. Fjallaði hann um það hvernig aðild Íslands að EES-samningnum og sífellt frek- ari kröfur um framsal valds til evr- ópskra stofnana skapaði ákveðin vandamál varðandi stjórnarskrána. Samningurinn hefði í byrjun verið talinn á mörkum þess að standast hana en síðan hefði sífellt bæst við regluverk frá Evrópusambandinu í gegnum hann sem kallaði á frekara framsal valds. Stefán lagði áherslu á mikilvægi þess að horfa heildstætt á það valda- framsal sem átt hefði sér stað í gegnum EES-samninginn í stað þess að horfa aðeins á eina og eina lagagerð frá Evrópusambandinu. Það væri heildarmyndin sem skipti fyrst og fremst máli. Hversu mikið vald hefði verið framselt í heildina í gegnum samninginn og hvort það stæðist stjórnarskrána. Varðandi þriðja orkupakkann sagðist Stefán telja þörf á að fara í miklu meiri rannsóknir á áhrifum hans fyrir Ísland áður en tekin yrði ákvörðun um framhald málsins. Þá lagði hann áherslu á að það sem skipti máli í þessu sambandi væri ekki eignarrétturinn heldur stjórn- unarrétturinn. Valdið til að taka ákvarðanir í málaflokknum. Samþykkt var einróma ályktun í lok fundarins þar sem skorað var á forystu Sjálfstæðisflokksins að hafna þriðja orkupakka Evrópusam- bandsins þegar hann kæmi til af- greiðslu á Alþingi. Sjálfstæðið til Brussel í smápörtum  Varað við samþykkt þriðja orkupakka Evrópusambandsins á fjölmennum fundi í Valhöll  Fundurinn skoraði á forystu Sjálfstæðisflokksins að hafna innleiðingu pakkans á Alþingi Morgunblaðið/Eggert Fundur Fjölmenni var á fundinum í Valhöll þar sem fjallað var um þriðja orkupakka Evrópusambandsins. Ræða Styrmir Gunnarsson sagði að yrði orkupakkinn samþykktur hefði ESB opnast leið til að ná síðar yfirráðum yfir orkuauðlind Íslendinga. SVIÐSLJÓS Hjörtur J. Guðmundsson hjortur@mbl.is „Við stöndum á ákveðnum tímamót- um í samskiptum okkar við Evrópu- sambandið. Frá því að EES- samningurinn var gerður fyrir aldarfjórðungi hefur Evrópusam- bandið þróast á þann veg að það koma upp stöðug fleiri álitamál um hversu langt við getum gengið í þessu samstarfi án þess að við afsöl- um okkur sjálfstæði okkar í smá- pörtum hér og þar til Brussel.“ Þannig hófst ræða Styrmis Gunnarssonar, fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðsins, á fjölmennum opn- um fundi sem hverfafélög Sjálf- stæðisflokksins í Smáíbúða-, Bú- staða- og Fossvogshverfi og Hlíða- og Holtahverfi í Reykjavíkur boðuðu til í gærkvöld í aðalsal Valhallar, höfuðstöðva flokksins, um þriðja orkupakka Evrópusambandsins sem til stendur að leggja fyrir Alþingi til samþykktar, en Styrmir var frum- mælandi á fundinum. Tímabært að staldra við Styrmir sagði þriðja orkupakkann eitt dæmi um þessa ásælni Evrópu- sambandsins. Hún sneri hins vegar ekki aðeins að Íslandi heldur mætti sjá dæmi hennar um alla Evrópu, sem aftur leiddi til stöðugt meiri ágreinings innan sambandsins. Tímabært væri fyrir sjálfstæðis- menn að staldra við nú þegar staðið væri frammi fyrir ákvörðunum sem gætu opnað Evrópusambandinu leið til yfirráða yfir einni helstu auðlind Íslands, orku fallvatnanna, og íhuga hvert væri verið að fara í ljósi sögu flokksins sem hefði öðrum stjórn- málaflokkum fremur staðið vörð um frelsi og sjálfstæði landsins. „Verði orkupakkinn samþykktur hefur Evrópusambandinu verið opn- uð leið til þess að ná síðar yfirráðum yfir einni af þremur helstu auðlind- um okkar Íslendinga. Þótt sagt sé á pappírunum að það sé í okkar eigin höndum að koma í veg fyrir það má

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.