Morgunblaðið - 31.08.2018, Side 14

Morgunblaðið - 31.08.2018, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2018 – fyrir dýrin þín Ást og umhyggja fyrir dýrin þín Veldu bosch hundafóður fyrir hundinn þinn Þýskt hágæða fóður – fersk innihaldsefni án aukaefna. Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Akranes | Sími 511-2022 | www.dyrabaer.is 15 kg 8.990 kr. vegna mikils afla í fáum togum, að sögn Þorsteins. Þetta hafi sérstak- lega átt við á vestursvæðinu og því gæti vísitala síðasta árs hafa verið ofmat. Aflaráðgjöf í lok september „Þær sveiflur sem sjást í mæling- unni þurfa því ekki endilega að endurspegla jafn miklar breytingar fyrrasumar og undanfarin sumur. Vísindamenn hafa ítrekað bent á óvissu í stofnmati og segir Þor- steinn Sigurðsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs Hafrannsóknastofn- unar, að mat á stofnstærðinni með þessari aðferð geti auðveldlega sveiflast upp eða niður vegna óvissu í mælingunum. Þannig var óvissan í mælingu ársins 2017 mjög mikil í raunverulegri stofnstærð og niður- stöðurnar benda til. Mat á stærð stofnsins þar sem fleiri upplýsingar koma inn geta sýnt umtalsvert aðra niðurstöðu en menn sjá í þessum leiðangri. Enda þótt niðurstöður leiðang- ursins séu nokkuð skýrar um að stofninn sé á niðurleið er of snemmt að draga þá ályktun að stofninn hafi dregist saman um allt að 40% frá því á síðasta ári. Sú vinna sem nú er í gangi á vettvangi Alþjóða hafrann- sóknaráðsins, ICES, mun leiða það í ljós, en þeirri vinnu lýkur með ráð- gjöf um aflamark næsta árs og verð- ur kynnt í lok september, “ segir Þorsteinn. Fram kom í niðurstöðum leiðang- ursins að 2017-árgangurinn virtist vera öflugur og eru það mjög já- kvæðar fréttir, að sögn Þorsteins. Árgangurinn mældist sá stærsti frá því að þessar mælingar hófust og hann mun vonandi styrkja veiði- stofninn á komandi árum. Í ár hefur makríll veiðst fyrir vestan, sunnan og austan Ísland, en ekki kemur á óvart að undanfarið hafa íslensku skipin einkum verið við veiðar í Smugunni, alþjóðlegu hafsvæði austur af landinu. Það er í samræmi við mælingar sumarsins og niðurstöður um austlæga út- breiðslu. Tíðarfar og sjávarhiti Þorsteinn segir að tíðarfar og sjávarhiti hafi trúlega haft áhrif á göngur makríls á Íslandsmið á þessu ári. „Kalt veður, lítið sólskin og rysjótt tíð framan af sumri gerðu það að verkum að sjór í efstu lögum hitnaði seint og kaldara var sunnan- og vestanlands í sumar,“ segir Þor- steinn. „Það getur hafa haft áhrif á göng- urnar fyrr í sumar þegar makríllinn var að hefja ætisgöngur að aflokinni hrygningu þannig að hann leitaði frekar austur á bóginn þar sem hita- stig var hærra. Hver sem ástæða breytinganna er sýna niðurstöður sumarsins að þær eru miklar, það fer ekki milli mála.“ -Í sumar höfum við séð hátt hlut- fall af stórum fiski í afla íslensku veiðiskipanna vestur af landinu og þá má spyrja hvort yngri árgangar séu hættir að koma eða hvort þeir fylgi göngumynstri þeirra sem eldri eru á komandi árum. Fyrirboði um breytingar? ,,Þessu er erfitt að svara. Þetta gæti verið allt frá því að vera fyrir- boði um einhverjar breytingar í göngum, tilviljun eða tengst veður- fari vorsins, í það minnsta treysti ég mér ekki til að segja til um ástæður þess. Alla jafna ferðast stærsti mak- ríllinn lengst til vesturs og norður en yngri fiskurinn heldur sig nær meginlandinu, það höfum við séð í gegnum árin. Ég held hins vegar að það sé ekki tímabært að koma fram með spár um að göngumynstur makríls sé að breytast þannig að hann hætti að ganga á Íslandsmið,“ segir Þorsteinn. Morgunblaðið/Börkur Kjartansson Vertíð Víða hefur verið leitað að makríl við landið í sumar, en undanfarið hafa skipin verið í Smugunni austur af landinu. Myndin er tekin úr brúnni á Víkingi AK þegar kastað var í kvöldsól vestur af Reykjanesi sumarið 2016. Fleiri spurningar en svör  76% minna af makríl í íslenskri og grænlenskri lögsögu  Margir þættir hafa áhrif á göngu- mynstrið  Ekki tímabært að spá því að makríll hætti að ganga á Íslandsmið, segir fiskifræðingur Lífmassi makríls á norðurslóðum H ei m ild : H af ra nn só kn as to fn un 10 8 6 4 2 0 milljón tonn 2010 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 4,89 5,09 8,85 8,98 7,72 9,11 10,29 6,22 Makríll fór að veiðast sem meðafli í síldveiðum fyrir Austur- landi árið 2006 en beinar makrílveiðar hófust árið eftir. Göngur makríls norður á bóginn og veiðar íslenskra skipa hafa skipt þjóðarbúið miklu máli frá efnahagshruni og útflutnings- verðmæti sum árin verið um og yfir 20 milljarðar króna. Hæst mun útflutningsverð- mæti makríls hafa farið í 24 milljarða árið 2011 en þá var bæði krónan veikari og Rúss- landsmarkaður opinn fyrir sjávarafurðir frá Íslandi. Í ár má áætla að heildarverðmæti verði á bilinu 14-16 milljarðar króna. Mikil verðmæti ÞJÓÐARBÚIÐ Engir samningar eru milli strand- ríkja um stjórnun veiða úr upp- sjávarstofnun í Norðaustur- Atlantshafi. Eins og undanfarin ár verður sest að samningaborði í London í október og verður rætt um makríl 8.-9. október, en þá liggur ráðgjöf Alþjóða hafrann- sóknaráðsins fyrir. Evrópusambandið, Noregur og Færeyjar gerðu samning sín á milli um stjórnun makrílveiða 2014, án aðkomu Íslendinga og Grænlend- inga. Sá samningur rennur út í haust. Sigurgeir Þorgeirsson, aðal- samningamaður Íslands í viðræð- unum, segir óljóst á þessu stigi hvort Evrópusambandið, Noregur og Færeyjar framlengi gildandi samkomulag sín á milli eða hvort einhverjar breytingar verði gerðar. „Nú reynir á það í haust hvort það tekst að gera allsherjarsamning með öllum aðilum inni, þá á ég við með okkur og hugsanlega Græn- lendingum,“ segir Sigurgeir. Spurður hvort niðurstöður tog- leiðangursins veiki stöðu Íslands í samningaviðræðunum segir Sigur- geir: „Við hrökkvum ekki upp við þetta núna þó svo að minna sé af makríl í ár heldur en verið hefur. Það segir ekkert um það hvað verður á næsta eða næstu árum. Í lögsögunni hefur verið mikið af makríl síðustu átta til tíu ár. Að mínu mati breytir þetta ár ekki samningsstöðu okkar, þvert á móti hefur hún verið að styrkjast ár frá ári.“ Breytir ekki samningsstöðu VIÐRÆÐUR UM STJÓRNUN VEIÐA FRAMUNDAN FRÉTTASKÝRING Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Niðurstöður fiskifræðinga á út- breiðslu og magni makríls á norður- slóð vekja fleiri spurningar en þær svara, en greint var frá niðurstöðum togleiðangurs í fyrradag. Hvað gerir makríllinn á næsta ári? Mun hann ganga í miklum mæli norður í höf og vaða í yfir- borði sjávar á Ís- landsmiðum eða nægja honum æt- isgöngur nær hrygningar- stöðvum sunnar í Atlantshafinu og upp með strönd- um Noregs? Svör við þessum spurningum liggja ekki fyrir og óvissa um stofnstærð, vorkomuna í sjónum næsta ár og lærða hegðun eldri árganga samanborið við yngri fiskinn eru þættir sem allir gætu haft mikil áhrif. Hrygningarstofn makríls í Norð- austur-Atlantshafi var í heildina 40% minni í ár en í fyrra og 30% minni hvað varðar fjölda einstakl- inga. Þó svo að útbreiðsla hans á svæðinu hafi í sjálfu sér ekki breyst mikið og makríll hafi fundist víða er mun hærra hlutfall hans austar og nær Noregi en síðustu ár. Óvissa í stofnmati Fram kemur á heimasíðu norsku hafrannsóknastofnunarinnar að samdrátturinn í íslenskri og græn- lenskri lögsögu nemi alls 76% og það skýri að miklu leyti heildarsam- dráttinn. Í austlægum og norðaust- lægum hlutum svæðisins nemur samdrátturinn 21% miðað við tvö síðustu ár. Óvissan í stofnvísitölunni er talin minni í niðurstöðum leiðang- ursins í ár en var á síðasta ári. Sumarið 2016 var vísitala makríls innan íslenskrar efnahagslögsögu metin 3,1 milljón tonn, eða 30,6% af heildarvísitölu stofnsins. Það var hæsta vísitala makríls innan lögsög- unnar sem mælst hefur, en ekki hef- ur verið upplýst um magnið við Ís- land í ár og á síðasta ári. Í ástands- skýrslu Hafró í sumar kemur fram að niðurstöður árlegs makrílleiðang- urs í NA-Atlantshafi sumarið 2017 bendi til að álíka magn af makríl hafi verið innan íslenskrar lögsögu í Þorsteinn Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.