Morgunblaðið - 31.08.2018, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 31.08.2018, Qupperneq 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2018 Dreifingardeild Morgunblaðsins leitar að dugmiklu fólki 13 ára og eldra, til að bera út blöð. Allar nánari upplýsingar í síma 569 1440 eða dreifing@mbl.is Hafðu samband í dag www.mbl.is/laushverfi Hressandi morgunganga Útgáfu á nýjum geisladiski með flutningi píanóleikar- ans Víkings Heiðars Ólafssonar á verkum Johanns Sebastians Bach, sem Deutsche Grammophon, stærsti útgefandi klassískrar tónlistar í heiminum, gefur út, var fagnað í fyrradag í sendiherrabústað Íslands í Berl- ín. Á diskinum má m.a. finna verk eftir Bach sem hefur ekki verið gefið út áður. Víkingur lék nokkur verk fyrir viðstadda í sendi- herrabústaðnum og hlaut mikið lof fyrir. Þá fræddi hann gesti einnig um tónlistina og samband sitt við Bach og sagði m.a. að Bach gæfi flytjandanum litlar leiðbeiningar og því mikið frelsi til túlkunar. Deutsche Grammophon gaf í fyrra út disk með flutn- ingi Víkings á lögum eftir Philip Glass og hlaut sá disk- ur mikið lof gagnrýnenda. Var það jafnframt fyrsti diskurinn sem fyrirtækið gaf út með píanóleik Víkings. Deutsche Grammophon fagnar 120 ára afmæli í ár og er hinn nýi diskur Víkings enn ein rósin í hnappagat þess. Clemens Trautmann, framkvæmdastjóri fyrir- tækisins, fagnaði útgáfunni í fyrrakvöld og sagði mikla ánægju með samstarfið við Víking. Yfir hundrað manns sóttu viðburðinn. Ljósmyndir/Bernd Jaworek Gleðistund Frá vinstri: Ruth Bobrich, Kleopatra Sofroniou, Marc Fritsch, Frank Briegmann, Vikingur Ólafsson, Eva Þengilsdóttir, Martin Eyjólfsson og Clemens Trautmann stilltu sér upp fyrir ljósmyndara. Nýjum diski Víkings fagnað Skífuþeytir Plötusnúðurinn Dj Clé lék fyrir gesti. Hugfangnir Gestir hlusta hugfangnir á leik Víkings í stillu úr frétt þýsku sjónvarpsstöðvarinnar RBB um hófið. Einbeittur Víkingur Heiðar lék verk eftir Bach á flygilinn í sendiherrabústaðnum í Berlín. Sam Ainsley heldur opinn fyrir- lestur um verkefni sín og vinnuað- ferðir í fyrirlestrarsal Listaháskól- ans á Laugarnesvegi 91 í dag kl. 13. „Sam Ainsley er myndlistarmaður og kennari og stýrði MFA-náminu við Listaháskólann í Glasgow. Hún kenndi einnig við Environmental Art deildina með David Harding frá 1985-1991. Hún er mikilsvirt tals- kona myndlistar og eru verk hennar hluti af fjölmörgum safneignum og einkasöfnum um allan heim. Ainsley hefur tekið þátt í ýmis- konar frumkvöðlastarfsemi á sviði myndlistar í Skotlandi og á alþjóð- legum vettvangi. Sem boðsgestur á umfangsmiklum ferðalögum sem listamaður og sýningarstjóri hefur það styrkt stöðu hennar sem óform- legur sendiherra skoskrar mynd- listar og myndlistarmanna,“ segir í tilkynningu. Þar kemur fram að fyr- irlesturinn fari fram á ensku og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Ainsley ræðir verk sín og vinnuaðferðir Kennari Sam Ainsley myndlistarmaður. Menningarhúsin í Kópavogi hefja haustdagskrá sína á morgun, laug- ardag, með viðburðum milli kl. 13 og 15 í öllum húsum og er aðgangur ókeypis. Vala Guðnadóttir syngur þekkt lög úr teiknimyndum í Salnum kl. 13. Ný og gömul leikföng verða til sýnis og brúks á Bókasafni Kópa- vogs og vatnaplöntur skoðaðar og pressaðar í Náttúrufræðistofu. Í Gerðarsafni verður skúlptúr við- fangsefnið en óhefðbundinn efnivið- ur verður notaður í sköpun fyrir alla fjölskylduna. „Nýr dagskrár- bæklingur liggur frammi í húsunum en Fjölskyldu- stundir á laugar- dögum eru opnar öllum og dag- skráin ávallt ókeypis. Bóka- safn Kópavogs, Náttúrufræði- stofa, Salurinn og Gerðarsafn mynda Menning- arhúsin í Kópavogi en húsin skiptast á að bjóða fjölbreytta dagskrá sem hefst kl. 13 á hverjum laugardegi,“ segir í tilkynningu. Tónlist, plöntur, leikir og skúlptúrsmiðja Vala Guðnadóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.