Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.08.2018, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.08.2018, Blaðsíða 18
Jarmíla fæddist í Þýskalandi átta árum áður en seinni heimsstyrjöldinni lauk með upp- gjöf Þjóðverja. Það hefur verið sagt að börnin sem fæddust milli 1930 og 1945 hafi verið of ung fyrir beina hluttekningu í stríðinu en nógu gömul til að upplifa hung- ur, brottrekstur, sprengjuárásir og ótta við dauðann, ástvinamissi og aðskilnað. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson áhuga hennar og þegar hún var sautján ára sagðist ein bekkjarsystir hennar hafa séð aug- lýsingu þar sem auglýst væri eftir Haus- mädchen á Íslandi. „Það þótti voða fínt orð en þýddi auðvitað bara vinnukona. Ég sló til og sótti um.“ Haustið 1954 steig Jarmíla svo fæti á ís- lenska grund ásamt annarri þýskri stúlku, Elsie að nafni. Ferðalagið var langt. Fyrst tóku þær stöllur lest til Kaupmannahafnar. Þaðan sigldu þær til Íslands og Jarmíla segist hafa verið sjóveik á leiðinni. Einum farþega segist hún muna eftir frá Gullfossi. „Það var Jón Sigurbjörnsson, leikari og söngvari, sem hafði verið í námi í Danmörku. Ég þekkti hann ekkert en mundi eftir honum þegar ég sá hann seinna á sviði.“ Jarmíla segir foreldra sína ekkert hafa get- að sagt við því þegar hún tilkynnti þeim að hún væri að fara til Íslands að vinna því hún hefði lengi verið búin að tala um að einn daginn ætl- aði hún að láta verða af því að fara þangað. „Mamma hafði alltaf sagt að þetta væru bara draumórar í mér sem yrðu aldrei að veruleika. Svo hún gat ekkert sagt. En hún varð alveg vitlaus seinna meir þegar ég ætlaði að fara að setjast að á Íslandi og ná mér í gamlan mann,“ segir Jarmíla og hlær. „Það fannst henni alveg hræðilegt.“ Jarmíla fór til fjölskyldu í Reykjavík en Elsie í Kópavog. „Ég vann hjá hjónunum Ing- unni Erlendsdóttur og Borgþóri Björnssyni. Þau áttu fjögur börn. Ég var vinnukona hjá þeim í heilt ár.“ Hún segir að þetta hafi verið vinna en hjónin hafi verið góð við sig. Hún hafi fengið frí eftir hádegi á miðvikudögum og ann- an hvern sunnudag. „Á miðvikudögum fór ég oft að heimsækja Elsie í Kópavoginn. Annars hafði ég ekki mikið samband við aðrar þýskar stúlkur sem voru hér.“ Á þessum tíma var algengt að hingað kæmu þýskar stúlkur og ynnu sem vinnukonur hjá heldra fólki, fólki sem hafði efni á því. „Og hafði herbergi fyrir þær,“ segir Jarmíla. Hún hafi þó ekki haft herbergi hjá fjölskyldunni til að byrja með heldur sofið á skrifstofunni, en svo hafi hún fengið herbergi í kjallaranum. Fékkstu aldrei heimþrá? „Nei, ég var ekki með heimþrá, en ég sakn- aði kannski ákveðinna hluta að heiman, til dæmis matarins. Mér fannst íslenski maturinn ekki upp á marga fiska til að byrja með. En ég vandist þessu fljótt. Ég lærði að borða súrt slátur fyrsta veturinn minn á Íslandi. Hús- móðirin mín gerði slátur og mér þótti það æð- islega gott. Og mér þykir enn þann dag í dag súr blóðmör miklu betri en súr lifrarpylsa.“ Jarmíla segir að sér hafi gengið ágætlega að læra íslenskuna. „Ég las dálítið mikið. Og las unglingabækur sem höfðu verið þýddar yfir á íslensku; til dæmis bækur eftir norska höfund- inn Margit Ravn.“ Hefði ekki snúið til baka Sumarið eftir komuna til Íslands var Jarmíla send norður í land til að passa, þar sem hún dvaldi frá því í maí fram í ágúst. „Við flugum til Kópaskers og þar tók á móti okkur bóndi sem keyrði okkur á sveitabæinn þar sem við áttum að dvelja, Grjótnes.“ Jarmílu leist ekkert á blikuna á meðan á bílferðinni stóð og segist hafa spurt sig hvert í ósköpunum hún væri eig- inlega komin. Þar sem hún horfði út um gluggann sá hún ekkert nema sand, en það hafi þó strax verið aðeins betra þegar hún hafi séð til sjávar. Bóndinn sem keyrði var fámáll og Jarmílu fannst bílferðin engan endi ætla að taka. Loksins komu þau þó á leiðarenda. Í hlaðinu stóðu meðal annarra tveir menn sem Jarmílu fannst alveg nákvæmlega eins, en það voru eineggja tvíburabræðurnir Gunnlaugur og Björn Björnssynir. Og öðrum átti Jarmíla eftir að giftast. „Það voru þarna tvö hús; annað var reisu- legt timburhús og hitt steinhús, og þar bjó ég. Í steinhúsinu bjuggu þrír bræður ásamt föður sínum og systur. Hún hafði reyndar gifst manni og flutt til Raufarhafnar en fannst hún þurfa að sinna bræðrum sínum og föðurnum. Tveir bræðranna voru bændur en VIÐTAL 18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.8. 2018

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.