Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.08.2018, Side 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.08.2018, Side 40
SUNNUDAGUR 5. ÁGÚST 2018 Í Jemen, einu fátækasta landi heims, þurfa 11 milljónir barna á hjálp að halda og þar deyr eitt barn á tíu mínútna fresti. Börnin þar þjást mikið en í landinu geisar stríð og hungursneyð. UNICEF keppist við að koma nauðsynlegum hjálpargögnum til Jemens, oft við erfiðar aðstæður. Þeir sem hlaupa fyrir UNICEF í Reykjavík- urmaraþoni safna fyrir lífsnauðsynlegri neyðaraðstoð fyrir bág- stadda í Jemen. Margt smátt gerir eitt stórt en til dæmis geta þús- und krónur borgað vikumeðferð eins barns gegn vannæringu. María Thelma er ein af þeim sem hlaupa fyrir UNICEF í ár. „Æfingar ganga ágætlega, en ég hef stundað langhlaup í nokkur ár og hef mjög gaman af því. Ég hljóp líka heilt maraþon í fyrra og ákvað að hlaupa núna aftur og styrkja gott málefni. Ég stefni ekki á neinn sérstakan tíma, bara að klára,“ segir María Thelma. Hægt er að heita á Maríu Thelmu á rmi.is. Ungur strákur leikur sér með dekk meðfram byggingum sem hafa eyðilagst í átökum í borginni Saada í Jemen. María hleypur fyrir Jemen María Thelma Smáradóttir ætlar að styrkja bág- stödd börn í Jemen og hlaupa heilt maraþon. Morgunblaðið/Ásdís Leikkonan María Thelma Smáradóttir hleypur heilt maraþon fyrir UNICEF en allur ágóði rennur til Jemens þar sem neyðin ríkir Í Morgunblaðinu þann 7. ágúst árið 1988 dregur Friðrik Indr- iðason upp skondna mynd af Þjóðhátíð í Eyjum. Þar stendur: Hið fyrsta sem ég heyri er ég kem inn á hátíðarsvæðið er: „Ætlarðu að fá þér sopa eða ætlarðu að sofna með þetta í klofinu?“ Þetta kemur úr barka nokkuð skondins náunga, klædd- ur rýjateppi og litlu öðru með skærrauða plasthárkollu á höfð- inu. Ég heyri ekki svarið þar sem tveir góðkunningjar mínir úr borginni koma að og segja farir sínar ekki sléttar. „Djöfullinn sjálfur, það er búið að ræna öllu áfenginu okkar. Öllu, þremur Jim Beam, tveimur Tequlia og einni Glenlivet. Það eina sem eftir er í tjaldinu eru tvö kíló af sítrónum og saltbaukur. Hvað í helvítinu eigum við að gera við tvö kíló af sítrónum?“ spyr ann- ar þeirra. Góðkunningjar mínir eru að snæða hið eina sem eftir er af nesti þeirra, stórt stykki af Toblerone-súkkulaði. Það veldur umtali nær allra er leið eiga um. „Hva, eruð þið að koma frá út- löndum?“ spyr ung pysja. Hún er spurð af hverju hún haldi það. „Nú þið eruð að éta Toblerone.“ GAMLA FRÉTTIN Toblerone, sítrónur og saltbaukur Það var stemmning hjá þessum pysjum á Þjóðhátíð í Eyjum árið 1988. Morgunblaðið/Sigurgeir ÞRÍFARAR VIKUNNAR Haukur Örn Birgisson forseti Golfsambands Íslands Greipur Gíslason verkefnastjóri Colin Firth leikari Smáratorgi | Holtagörðum | Akureyri | Ísafirði Sumarútsala í fjórumbúðum Afgreiðslutími Rvk Mánudaga til föstudaga kl. 10–18 Laugardaga kl. 11–17 Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi) www.dorma.is Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði Sumar útsala ALLTAÐ 60% AFSLÁTTUR www.dorma.is VEFVERSLUN ALLTAF OPIN

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.